Morgunblaðið - 17.11.1998, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 17.11.1998, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ SIGRÚN STEFÁNSDÓTTIR + Sigrún Stefáns- dóttir fæddist í Reykjavík 10. maí 1942. Hún lést á Grensásdeild Sjúkrahúss Reykja- víkur 31. október síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Áskirkju 10. nóveinber. Það er fagur nóv- embermorgunn. Sím- inn hringir, kunnugleg rödd. Þetta er Jón. „Blessuð viltu setj- ast.“ En það er svo sem ekki nýtt að Jón ávarpi mig þannig þegar mikið er í húfi. En nú var óvenju- mikill þungi í röddinni og óöryggi. „Hún Sigrún okkar er dáin.“ Mig setti hljóða eitt augnablik. Og áfram hélt hann. „En heldurðu að Guð taki ekki á móti henni?“ „Jú, það er ég viss um, við vissum að hún var Guðs bam,“ svaraði ég. „Mér líður betur að vita þetta,“ sagði Jón þá. Ég átti því láni að fagna að kynnast Sigrúnu og Jóni fyrir tveimur árum þegar ég starfaði í heimilishjálpinni hjá þeim. Strax myndaðist sérstakt og náið sam- band milli okkar og eftir að ég hætti í því starfi í vor hélst vin- skapurinn eftir sem áður. Sigrún var ekki allra en var vinur vina sinna. Hún gat verið krefjandi, en gaf það margfalt til baka. Hún hafði ákaflega gaman af hand- verki og hafði góðan smekk þar. Hún hafði sérstaka ánægju af tónlist og var það eitt af því sem tengdi Sigrúnu og Jón hvað mest saman. Oft var það þegar morgunverkin voru búin að við tókum lag- ið saman og að sjálf- sögðu spilaði Jón undir á harmonikuna. Þá ljómaði Sigrún af stolti yfir undirleikar- anum. Söngurinn færði þeim mikla gleði og oft gleymdu þau sársauka og veikindum um stund. En það sem gaf samt mest- an friðinn var þegar við vorum að biðja saman. Sigi’ún var trúuð og vildi helst að þegar bænastund var á Lindinni, væri kyrrð í kring- um hana. Útvarpsmenn á Lind- inni báru mikinn hlýhug til henn- ar. Oft hringdi hún inn bænarefni og þá ekki síður fyrir öðrum en sjálfri sér. Og það var táknrænt að það síðasta sem ég heyrði í henni var þegar hún hringdi stuttu fyrir andlátið upp á Lind og talaði við mig og bað mig að biðja fyrir sér að Guð mætti um- vefja hana og gefa henni frið í sitt hjarta og gefa Jóni styrk og blessa hann heima. Megi þetta vera bæn mín og þakka ég fyrir sérstök kynni, sem gerði mig rík- ari af andlegum auði. Jón minn. Drottinn varðveiti þig. Ykkar vinkona, Aldís. EINAR SIGURJÓNSSON + Einar Sigurjónsson fæddist í Vestmannaeyjum 7. janúar 1920. Hann lést í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 14. október síð- astliðinn og fór útför hans frain frá Landakirkju í Vestmanna- eyjum 20. október. Elsku afi minn. Nú er henni lokið, baráttunni við þennan illvíga sjúkdóm sem staðið hefur síðustu mánuði. Ekki datt mér í hug að þetta tæki svona stuttan tíma. Það er svo stutt síðan þú varst hress og kátur að leggja mér lífsreglurnar. Söknuðurinn er mikill og til að huggast verð ég bara að trúa því að við munum hittast aftur síðar. Þú komst til mín í draumi um daginn og sagðir þar að þú fylgdist með okkur úr fjarlægð, það varð til þess að efla þessa trú mína enn frekar. Afi MAGNÚS TORFI ÓLAFSSON I æviágripi um Magnús Torfa Olafsson hér í blaðinu féll niður fyrra nafn sonar hans, Ingimundar Tryggva. Leiðréttist þetta hér með. minn, minningarnar um þig eru svo margar og góðar. Þó að alltaf hafi verið mikið að gera hjá þér gafstu þér ávallt tíma til að spjalla við tryppin þín þrjú, mig, Ingu og Astu Jónu. Þið amma vonið líka ansi dugleg við að dekra okkur systumar þegar við vorum litlar. Það kom ósjaldan fýrir að ef mamma og pabbi sögðu nei við ein- hverju þá var hlaupið upp á Höfða- veg til afa og ömmu, þau áttu svo óskaplega erfitt með að segja nei við litlu stelpurnar sínar. Jólin eni hátíð barnanna og vegna afa og ömmu var tilhlökkunin til jólanna alltaf tvöföld hjá okkur systrunum. Afi kom alltaf til okkar á Þorláks- messu og fór með okkur í bæinn þar sem við fengum að velja okkur hvað sem hugurinn girntist, hver fékk að velja einn hlut. Þetta þótti okkur alveg frábært og ég man enn eftir mörgum þessara hluta, suma á ég enn í dag. Það segja allir að það sé gangur lífsins að gamla fólkið fari og hið unga taki við og er það sjálfsagt rétt. Málið er bara að þú varðst aldrei gamall í mínum augum, það var alltaf sami krafturinn í þér og eldmóðurinn og þess vegna er erf- iðara að sætta sig við að geta ekki leitað til þín lengur. Þú vissir svo margt og fylgdist svo vel með öllu, sérstaklega þó ef það tengdist sjáv- arútveginum og það vita allir sem þekktu þig. Mér finnst enn að ég eigi að geta tekið upp símtólið og hringt í þig og stundum er ég kom- in svo langt að ég er lögð af stað í símann áður en ég átta mig. Ég vissi að krabbameinið var ólækn- andi en einhvem veginn var það svo fjarlægt að þú myndir deyja. Þú varst alltaf stoð mín og stytta og ég mun ávallt varðveita minningu þína. Ég kveð þig með söknuði, elsku afi minn. Elsku amma, megi guð gefa þér styrk til að takast á við þinn mikla missi. Hrefna Óskarsdóttir. MINNINGAR Afmælis- og minn- ingar- greinar MIKILL fjöldi minningar- greina birtist daglega í Morg- unblaðinu. Til leiðbeiningar fyrir greinahöfunda skal eftir- farandi tekið fram um lengd greina, frágang og skilatíma: Lengd greina Um hvem einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar minningargreinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd, - eða 2200 slög (um 25 dálksenti- metrar í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Formáli Æskilegt er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fædd- ur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka, og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans' fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitleti-að- ur, en ekki í greinunum sjálf- um. Undirskrift Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Blómastofa rnotums j SuðuriandsbrautlO 108 Reykjavík • Sími 553 1099 Opið öll kvöld til kl. 22 - einnig um helgar. Slueytingar fyrir öll tilefni. Gjafavörur. ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Stapahrauni 5, Hafnarfirði, sími 565 5892 Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson, útfararstjóri útfararstjóri Utfararstofa Islands Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300 ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998 55 Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, dóttir, systir og fyrrverandi eiginkona, ÁSDÍS PÁLSDÓTTIR, Sléttahrauni 19, Hafnarfirði, lést laugardaginn 14. nóvember. Útför verður auglýst síðar. Páll Ragnar Kristjánsson, Kolfinna Líf Pálsdóttir, Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir, Ægir Ágústsson, Gunnar Páll Ægisson, Eva Björk Kristjánsdóttir, Páll Ólafsson, María Guðmundsdóttir, systkini og Kristján Ingi Gunnarsson. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, SVEINSÍNA INGIBJÖRG HJARTARDÓTTIR, Skipholti 47, Reykjavík, verður jarðsungin frá Háteigskirkju miðviku- daginn 18. nóvember kl. 13.30. Árni Jónsson, Jón Emil Árnason, Hjörtur B. Árnason, Unnur Halldórsdóttir, Páll Ingi Árnason, Margrét Sveinbjörnsdóttir, Helgi Árnason, Mábil G. Másdóttir, Hilmar Árnason, Guðni Árnason, Lilja Loftsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum innilega öllum þeim, sem sýnt hafa okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, EYJÓLFS PÁLSSONAR fyrrv. framkvæmdastjóra, Miðleiti 4, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólk deildar A6 á Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Ásta Ólafsdóttir, Ingibjörg Eyjólfsdóttir, Örn Þórðarson, Páll Eyjólfsson, Stefán Ólafur Eyjólfsson, Helga Jóna Sigurðardóttir, Davíð, Eyþór og Kári. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinar- hug við andlát og útför föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, KRISTJÁNS HREINSSONAR múrara, Sólvöllum, Eyrarbakka. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Sólvöllum og á Kumbaravogi. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. LEGSTEINAR í rúragóðum sýningarsölum okkar eigum við ávallt fyrirliggjandi margar gerðir legsteina og minnisvarða úr íslenskum og erlendum steintegundum. Verið velkomin til okkar eða hafið samband og fáið myndalista. S.HELGAS0N HF STEINSMIÐJA SKEMMUVEGI 48, 200 KÓP.,SÍMI:557-6677/FAX:557-8410 Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ v
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.