Morgunblaðið - 17.11.1998, Side 57
MORGUNBLABIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998 57
Fagnar sölu
rfldsins á
49% hlut
ÍFBA
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá SUS:
„Stjórn Sambands ungra sjálf-
stæðismanna fagnai" sölu ríkisins á
49% hlut í Fjárfestingarbanka at-
vinnulífsins. Þessi sala er stór áfangi
í einkavæðingu fjármálamarkaðarins
hér á landi og er hún stærri en öll
samanlögð sala í 16 einkavæðingar-
verkefnum sem Framkvæmdanefnd
um einkavæðingu hefur staðið fyiir.
Viðbrögð rúmlega 10.000 einstak-
linga, sem ákváðu að fjárfesta í
bankanum og voru tilbúnir að kaupa
fjórfalt meira en til sölu var, sýna að
fjármálamarkaðurinn hér á landi er
vel í stakk búinn til að kaupa stærri
og fleiri hluti ríkisins í bönkum þess.
Þess vegna hvetur stjórn SUS til að
sölu verði hraðað eins og hægt er á
þeim hlut sem eftir er í eigu ríkisins í
FBA, en til stendur að selja hana
fyrir mitt næsta ár. Eins hvetur
stjórn SUS til að frekari sala á bréf-
um ríkisins í Landsbanka og Búnað-
arbanka faiú fram hið allra fyrsta og
að það losi sig út úr þeim rekstri fyr-
ir lok næsta árs.“
Lilja Karitas
keppir í „Drottn-
ing heims“
LILJA Karitas Lárusdóttir, Feg-
urðardrottning Reykjavíkur sem
hafnaði í þriðja sæti í Fegurðarsam-
keppni íslands í vor, keppir um titil-
inn „Drottning heims“ eða „Queen
of the World“ í Bonn í Þýskalandi
sunnudaginn 22. nóvember nk.
Lilja Karitas heldur til Frankfurt
þriðjudaginn 17. þar sem keppend-
ur hittast og dvelja til 19. nóvember
en þá fara þær til Bonn þar sem
keppt verður til úrslita.
Fræðslufundur
fyrir foreldra
ungs fólks í
vímuefnavanda
SÁA efnir til fræðslu- og umræðu-
fundar fyrir foreldra ungs fólks í
vímuefnavanda þriðjudaginn 17.
nóvember. Fundurinn verður hald-
inn í göngudeild SAA, Síðumúla 3-5,
og hefst kl. 19. Aðgangur er ókeypis.
A fundinum verður rætt um þá
meðferð sem ungu fólki í vímuefna-
vanda er veitt, hvaða hugsun býr að
baki henni og hvernig unga fólkið
bregst við. Foreldrum er einnig boð-
ið að tjá hug sinn og fá nánari skýr-
ingar.
Frummælendur verða Þórarinn
Tyrfmgsson, yfirlæknir á sjúkra-
húsinu Vogi, Hjalti Björnsson, dag-
skrárstjóri göngudeildar SÁA, og
Halldóra Jónasdóttir ráðgjafí.
LEIÐRÉTT
Rangt föðurnafn
ÞÓRARINN Egill Sveinsson að-
stoðarkaupfélagsstjóri á Akureyri
og stjórnarmaður í knattspyrnu-
deild KA var rangfeðraður i
íþróttablaði Morgunblaðsins á
laugardag. Velvirðingar er beðist á
mistökunum.
Islendingarnir koma!
RANGT mun hafa verið sem fram
kom í frétt um velgengni íslenzkra
nútímabókmennta í Þýzkalandi á
bls. 35 í blaðinu sl. fimmtudag, 12.
nóvember, að auglýsingar sem um
þessar mundir eru birtar í þýzkum
dagblöðum undir yfírskriftinni „Is-
lendingarnir koma“ séu birtar á
vegum Hanser-forlagsins í
Miinchen. Rétt mun vera að Steidl-
forlagið standi að baki auglýsing-
unum, og Hubert Seelow - sem
kunnur er m.a. fyrir þýðingar sínar
á Islendingasögum og verkum
Halldórs Laxness - eigi heiðurinn
að þessum auglýsingum sem svo
vel hefur verið tekið eftir. Þetta
kynningarátak mun ennfremur
einungis beinast að þremur ís-
lenzkum rithöfundum, þyim Guð-
bergi Bergssyni, Fríðu Á. Sigurð-
ardóttur og Ólafi Jóhanni Ólafs-
syni.
Morgunblaðið biðst velvirðingar
á þessum misskilningi.
PJÓNU5TA
Vantar — vantar — vantar
Vegna mikillar eftirspurnar eftir leiguíbúðum
vantar okkur flestar stærðir leiguíbúða á skrá.
Með einu símtali er íbúðin komin á skrá hjá
okkur og um leið ertu komin(n) í samband við
fjölda leigjenda.
Arangurinn mun ekki láta á sér standa og það
besta er, að þetta er þér að kostnaðarlausu.
EiGULISTINN fs“9
LEIGUMIÐLUN
Skipholti 50B, 105 Reykjavík.
TILKYNNINGAR
Stórvinningar í Lottó
Tíðni stórvinninga í Happahúsinu hefurvakið
mikla athygli. Eftirtaldir stórvinningar hafa
verið seldir hjá okkur frá ársbyrjun '97 til
októberloka '98
8/2 '97 Lottó 5/38 kr. 1.009.420.-
4/6 '97 Víkingalottó kr. 2.598.150.-
23/8 '97 Lottó 5/38 kr. 6.750.810.-
27/12 '97 Lottó 5/38 kr. 6.029.450,-
14/2 '98 Lottó 5/38 kr. 676.020,-
11/4 '98 Lottó 5/38 kr. 2.046.520,-
27/6 '98 Jóker kr. 1.000.000.-
1/8 '98 Jóker kr. 1.000.000.-
24/10 '98 Lottó 5/38 kr. 9.619.440,-
31/10 '98 Lottó 5/38 kr. 1.019.800,-
Við hvetjum alla lottóspilara til að láta renna
miðunum sínum í gegn í sölukössum íslenskr-
ar getspár. Það hafa margir hlotið álitlegar
upphæðir sem þeir vissu ekki um.
Happahúsið Kringlunni.
Pípulagningamenn,
verkfræðingar, bygginga-
verktakar og arkitektar
Kynning verður í Kiwanishúsinu, Engjateigi 11
í Reykjavík, á vörum frá ítalska framleiðandanum
Valsir.
Kynningin verður haldin fimmtudaginn
19. nóvember og hefst stundvíslega kl. 13.00.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku hjá Tækja-Tækni
hf. í síma 557 5400, fax 567 0109 eða póstfang
abo@simnet.is.
Allar nánari upplýsingar á sama stað.
(T^) Trakja -Tækni M.
SMIÐJUVEGI 44D
KÓPAVOGI
SÍMI: 557 5400. FAX: 567 0109
AUGLY
Lóðin Austurströnd 5,
Seltjarnarnesi
Laus er til umsóknar lóðin nr. 5 við Austur-
strönd, Seltjarnarnesi, undir skrifstofu eða við-
skiptahús.
Lóðin er 2017 m2 að stærð og nýting lóðarinnar
er um 1200 m2 húsá tveimur hæðum þar af
60% á neðri hæð.
Áhersla er lögð á vandaða hönnun þar sem
hér er um að ræða lóð í hjarta bæjarins. Enn-
fremur verður gerð krafa um skamman bygg-
ingatíma.
Upplýsingar um lóðina veitir byggingafulltrúi,
sími 561 2100.
Bæjarstjórinn Seltjarnarnesi.
G A
FELAGSSTARF
V'
!
l
Auglýst eftir fram-
boðum til prófkjörs
Akveðið hefur verið að prófkjör um val frambjóðenda Sjálfstæðis-
flokksins við næstu alþingiskosningar fari fram 16. janúar 1999.
Hér með er auglýst eftir framboðum til prófkjörs. Skal framboð vera
bundið við flokksbundinn einstaklning enda liggi fyrir skriflegt
samþykki hans um að hann gefi kost á sértil prófkjörs. Frambjóðendur
skulu vera kjörgengir í næstu alþingiskosningum. 20 flokksbundnir
sjálfstæðimenn, búsettir í Austurlandskjördæmi, skulu standa að
hverju framboði og enginn flokksmaður getur staðið að fleiri framboð-
um en 6.
Kjörnefnd er heimilt að tilnefna prófkjörsframbjóðendur til viðbótar
frambjóðendum eftir að framboðsfresti lýkur.
Framboðum ber að skila, ásamt mynd af viðkomandi og stuttu ævi-
ágripi til kjörstjórnar í síðasta lagi laugardaginn 28. nóvember 1998
og sendist til formanns kjörstjórnar, Jónasar A.Þ. Jónssonar í pósthólf
51, 710 Seyðisfirði.
Kjörstjórn Sjálfstæðisflokksins f Austurlandskjördæmi
Jónas A.Þ. Jónsson, formaður,
Agnar Bóasson,
Guðmundur Steingrímsson.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur
knattspyrnudeildar KR
verður haldinn miðvikudagskvöldið
25. nóvember kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
UPPBGÐ
Nauðungaruppboð
— gyllingarvél
Prentarar—bókagerðarmenn, athugið
Nauðungaruppboð verður haldið á sérgerðri
vél til gyllingar á bókum og þ.h. úr þrotabúi
Vélmars ehf. fimmtudaginn 19. nóvember
1998 kl. 14.00 í húsakynnum Vélaverkstæðis
Jóhanns G. Jóhannsonar á Skemmuvegi 34,
Kópavogi, (brún gata innst). Vélin er nokk-
urra ára gömul og framleiðandi var Vélhönnun.
Ný er vélin talin hafa kostað kr. 1.500.000.
Lögmenn Hafnarfirði ehf.
Bjarni S. Ásgeirsson hrl.,
skiptastjóri.
FÉLAGSLÍF
Málefnanefndir
Sjálfstæðisflokksins
um samgöngu-, fjarskipta- og
upplýsingamál
Málþing
Opið málþing í Valhöll, fimmtudaginn 19. nóvember kl. 17.00-19.00.
Framtíð fjarskipta á íslandi
Hvernig á að tryggja samkeppni á fjarskiptamarkaði?
Á að selja Landssímann?
Ef svo er, hvernig?
Framsögumenn:
• Þórarinn V. Þórarinsson, stjórnarformaður Landssímans.
• Ármann Kr. Ólafsson, aðstoðarmaður samgönguráðherra.
• Eyþór Arnalds, þróunarstjóri, OZ.
• Arnþór Halldórsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssvið, TAL.
• Kristján Gíslason, framkvæmdastjóri, Radíómiðun.
• Jón Magnússon, hæstaréttarlögmaður.
Umræður verða á eftir framsöguerindum.
Fundarstjóri: Tómas Ingi Olrich, alþingismaður.
HUSNÆÐI I BOei
3ja herb. íbúð til leigu
á tveimur hæðum ca 80 fm í einbýlishúsi í mið-
bæ Reykjavíkur. Til leigu frá 1. febrúar.
Lágmarksleiga eitt ár.
Umsókniróskastsendartil afgreiðslu Morgun-
blaðsins, merktar: „E — 6871."
Ob. Þetrus= 179111720 = kallanir
I.O.O.F. Rb. 4 = 14811178
Skyggnilýsingafundur
Þórhallur Guðmundsson miðill
heldur skyggnilýsingafund mið-
vikudaginn 18. nóvember kl.
20.30 í veislusal Glaðheima,
Álalind 3, Kópavogi — Reið-
höll Gusts. Húsið verður opnað
kl. 19.30. Miðaverð 1000 kr. Allir
velkomnir.
Aðkoma að salnum er undir
brúna hjá stórmarkaði Elko
og Rúmfatalagers.
KFUM og KFUK,
aðalstöðvar v/Holtaveg
Hádegisverðarfundur
kl. 12.10
Guðlaugur Gunnarsson
kristniboði dreifir molum
kristniboðsstarfinu í Afríku.
Allir velkomnir.
FERÐAFÉLAG
® ÍSLANDS
MORKINNI6 - SlMI 568-2537
Aðventuferð f Þórsmörk
27.-29. nóvember
Ekki missa af aðventustemmn-
ingunni í Langadal. Gönguferðir,
jólaföndur, kvöldvaka.
Fararstjórar: Ólafía Aðalsteins-
dóttir og Björn Finnsson.
Pantið og takið miða tímanlega.
Sjá um Ferðafélagsferðir í texta-
varoi bls. 619.
□ Hlín 5998111719 VI 1
□ EDDA 5998111719 117
Aðaldeild KFUK, Holtavegi
í kvöld kl. 20.30 verður biblíulest-
ur um Hósea spámann í umsjór
Gunnars J. Gunnarssonar,
lektors. Allar konur velkomnar.
TILKYNNINGAR
v ->
Frá Sálar-
rannsóknar-
félagi íslands
Breski miðillinn
Diane Elliott
verður með
umbreytinga-
fund í Garða-
straeti 8 í kvöld,
þriðjudaginn 17.
nóvember, kl. 20.30. Fundurinn
er opinn öllum svo lengi sem
húsrúm leyfir. Aðgangseyrir kr.
1.000 fyrir félagsmenn og kr.
1.500 fyrir aðra. Húsið opnað
kl. 20. Upplýsingar og miðasala
á skrifstofunni í Garðastræti 8
og við innganginn. Einnig í
síma 551 8130 frá kl. 9-15.
Ath.: Takmarkaður fjöldi.
ÝMISLEGT
Stjörnukort
Persónulýsing,
framtíðarkort,
samskiptakort.
Gunnlaugur
Guðmundsson.
Uppl. í síma 553 7075.
Sendum í póstkröfu.