Morgunblaðið - 17.11.1998, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 17.11.1998, Blaðsíða 64
64 ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Vinningshafi í Netleik Á DÖGUNUM stóðu Morgunblaðið á Netinu og Síminn-GSM fyrir Net- leik í tilefni þátttöku Jdns Arnars Magnússonar í tugþrautarmótinu í Frakklandi. Sérstakur vefur var búinn til á íþróttavef mbi.is þar sem hægt var að fylgjast með því hvernig Jóni Arnari gekk. Einnig hafði verið safnað upplýsingum um sögu tugþrautar á Islandi. Leikurinn sem hægt var að taka þátt í á vefnum hlaut nafnið þrí- þraut þar sem þátttakendur áttu að leysa þi'jár léttar spurningaþrautir til að eiga mögideika á vinningi. Vinningurinn var glæsilegur GSM-sími frá Símanum-GSM. Vinningshafinn heitir Guðni Þór Þórðarson og er til vinstri á mynd- inni en það var Jóhann Friðleifs- son frá Símanum-GSM sem afhenti honum vinninginn. -Góðir skór á betra verði á Skómarkaöinum 3. hæö Kringlunnar. Opið frá kl. 12-18 alla daga nema sunnudaga. Skómarkaðurinn 3. hæð, Kringlunni, sími 568 2888. Besta fræðilega erindið! Heilbrigðistæknifélag íslands (HTFÍ) efnir til samkeppni um besta fræðilega erindið í heilbrigðistækni. Vinningshafi verður styrktur til að fara með er- indi sitt á 11. norrænu-baltísku ráðstefnuna í heilbrigðistækni, sem haldin verður 6. til 10. júní 1999 í Tallinn, Eistlandi. Nánari upplýsingar má finna á heimasiðu HTFÍ: http://www.nervus.is/htfi/ SÍÐASTI SKILAFRESTUR ÚTDRÁTTA (ABSTRACTS) ER 21. DESEMBER 1998. Stjórn HTFÍ. Tilboðið okkar, allt er að verða upppantað til jóla Myndataka, þar sem þú raeður hve stórar og hve margar myndir þú færð, innifalið ein stækkun 30 x 40 cm í ramma. kr. 5.000,oo Þú færð að velja úr 10 - 20 myndum af börnunum, eftirfarandi stærðir færðu með 60 % afslætti frá gildandi verðskrá ef þú pantar þær strax endanlegt verð er þá. 13 x 18 cm í möppu kr. 1.200,00 20 x 25 cm í möppu kr. 1.720,00 30 x 40 cm í ramma kr. 2.560,00 Gerðu þinn eigin verð samanburð, hringdu á aðrar ljósmyndastofur og kannaðu hvort jjetta verð á stækkunum er ekki lægsta verðið á landinu. Ljósmyndastofa Kópavogs Ljósmyndastofan Mynd sími: 554 30 20 sími: 565 42 07 Passamyndir á fimm mínútum alla virka daga. WESPER hitablásararnir eru til í eftirtöldum stærðum: 352 CN 6235 kcal./7kw. 900 sn./mín. 220V1F. 353 CH 8775 kcal/lOkw. 900 sn./mín. 220V1F. 453 CN 20,727 kcal./24 kw 1.400 sn./mín. 380V3F.* 453 CN 16,670 kcal./19kw 900 sn./mín. 380V3F.* * Einn og sami blásarinn, en 2ja hraða. WESPER-umboðið Sólheimum 26,104 Reykjavík, sími 553 4932, fax 581 4932, GSM 898 9336, boðs. 842 0066. 352 CN/353 CN eru því sem næst hljóðlausir og 453 CN, langt undir mörkum (53/46 dBA). Allir WESPER-blásararnir eru með rörum úr „Cubro Nickle"-blöndu sem kemst næst stálinu að styrkleika. í DAG Með morgunkaffinu Ast er... .. að finna góðan öku- kennara fyrirhana. TM Reg. U.S. F*at. Off. — all rights reserved (c) 1998 Los Angeles Times Syndicate ÞAR sem gestur okkar er mikilvægur við- skiptavinur, skal ég drekka úr skörðótta bollanum í dag. ÞÁ er ég búin að fá vinnuna, en hvað um launahækkun? ÞETTA er eini megr- unarkúrinn sem ég veit að virkar. HÖGNI HREKKVÍSI VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Jólaglögg! NÚ FER senn í hönd tími jólaundh'búnings og ann- ars sem því fylgii'. Eitt af því er svokallað , jólglögg" vinnustaða. I mínum huga er jólaglögg notaleg stund með félögum eða vinum þar sem dreypt er á heit- um drykk og smákökur á borðum, en þetta virðist á mörgum vinnustöðum hafa snúist upp í and- hverfu sína með einu alls- herjar fylliríi og öllum þeim vandræðum sem svoleiðis samkomum fyigja. Eg er viss um það og veit dæmi þess að margar fjölskyldur, bæði börn og makar, eru farnar að kvíða þessum undanfai'a jólanna og er ég þá ekkert frekar að tala um þær fjöl- skyldur þar sem áfengi er vandamál að staðaldri, því svona samkomur bjóða oft hættunni heim og skapa ýmis vandamál og erfið- leika sem fólk vill síst af öllu takast á við svona rétt fyrir þessa fjölskylduhátíð sem jólin eru, enda sé ég ekkert fjölskylduvænt við þessa skemmtun. Langar mig því að biðja þá sem skipuleggja þessar skemmtanir að hafa það í huga, að hjá mörgum er þetta atburður sem skyggii' á gleði og eftir- væntingu jólanna. Mörg fyiii'tæki hins veg- ar hafa séð hvað þessu fylgir og breytt jjessaii ,jólaglögg“ í t.d. jólahlað- borð þar sem starfsmenn og makar koma saman og njóta góðs matai- og eiga notalega kvöldstund eða jafnvel hádegishlaðborð eða annað þess háttar sem er þá haldið í kaffistofum eða mötuneytum fyrii'- tækja og fer friðsamlega fram án þess að sulla í sig sterkum vínum og bjór sem á ekkert skylt við jólin. Munum tilgang jólanna og hversu friðsæl þau geta verið, eyðileggjum ekki allt fallegt í kringum okk- m' og njótum þessa árs- tíma. Gleðileg jól! Sigurbjörn. Bestu sætin frátekin HAFNFIRSK kona hringdi og hafði_ eftirfar- andi að segja: „Eg fór að sjá Hellisbúann fyrir nokkru. Þegar ég kom inn í salinn og ætlaði að finna sæti sá ég að á mörgum bekkjum sat fólk á hvor- um bekkjarenda og var mér sagt að búið væri að taka frá heilu sætaraðirn- ar fyi'ii' félög og hópa. Eg fann mér sæti úti á enda einhvers staðar og rétt um kl. 9 kom svo fólkið sem áttí „pöntuðu" sætin. Þetta finnst mér yfir- gengilegm- dónaskapur og leikhúsið ætti alls ekki að Iáta þetta viðgangast." SKAK IJiii.sjón Margeir Pétursson STAÐAN kom upp á svæðamóti í And- orra sem nú stend- ur yfir. Spánverjinn Daniel Garcia- Ilundain (2.485) var með hvitt, en Eng- lendingurinn brögðótti, Tony Mi- les (2.590), hafði svart og átti leik. 34. _ Hxh3+! 35. Kgl (35. Kxh3 Dh5 er auðvitað mát) 35. _ Del+ og Spánveijinn gaf, því eftir 36. Dfl Hhl+ tapar hann drottning- unni. Að loknum þremur umferð- um var Miles efstur á mótinu ásamt Spánverjanum Comas Fabrego. 40 skákmenn keppa á mótinu og er meirihluti þeirra stórmeistarar. SVARTUR leikur og vinnur. Víkverji skrifar... AÐ VAKTI nokkra athygli í síðustu viku, þegar upplýst var að eignarhaldsfélag Olíufélagsins hf. hefði keypt hlutabréf Islenzkra sjávarafurða í íshafi hf. og í Vinnslustöðinni. Þegar Morgun- blaðið spurði Geir Magnússon, for- stjóra Olíufélagsins hf., um það hvaða sjónarmið lægju að baki þessum kaupum svai-aði forstjóri Olíufélagsins skýrt og skilmerki- lega að eitt af því, sem ráðið hefði þessari ákvörðun Olíufélagsins, hefði verið vilji til þess að hafa nokkuð um það að segja, hvert þessi hlutabréf færu en gert væri ráð fyrir, að eignarhaldsfélag Olíu- félagsins mundi ekki halda þeim öllum. Þetta svar hefur óneitanlega vak- ið nokkra athygli. Er það enn svo, að önnur sjónarmið en fjárhagsleg ráði ferðinni hjá íslenzkum stórfyr- irtækjum, þegar þau kaupa og selja hlutabréf? Gera hefði mátt ráð fyr- ir, að aðhald markaðarins væri orð- ið svo mikið að forráðamenn fyrir- tækja gætu ekki látið viðskiptapóli- tíska hagsmuni ráða ferðinni held- ur yrðu þeir að láta eingöngu við- skiptasjónarmið koma við sögu. AUtént er ljóst, að Olíufélagið hf. er skráð á verðbréfaþingi og hlut- hafar í fyrirtækinu eru nú orðið fjölmargir, þótt gamlir Sambands- hagsmunir virðist enn ráða ferð- inni. Hvers eiga aðrir hluthafar í Olíufélaginu að gjalda? Hvers vegna var eignarhaldsfélag Olíufé- lagsins að kaupa umrædd hluta- bréf, ef það var ekki vegna við- skiptalegra sjónarmiða heldur til þess að geta ráðið því hverjir eign- uðust hlutabréfin, sem IS vildi losna við? Gamli tíminn er óneitan- lega lífseigur í íslenzku viðskipta- lífi. XXX FULLKOMINN tölvubúnaður er orðinn /orsenda háskólastarfs en Háskóli Islands hefur verið mjög vanbúinn tölvum. Þess vegna er sér- stakt ánægjuefni, að stúdentar við háskólann hafa að undanfömu stað- ið íyrir miklu átaki til þess að safna tölvum fyrir skólann. I Morgunblað- inu í fyrradag kom fram, að þeir hafa nú safnað tækjum, hugbúnaði og fjárframlögum að andvmði um 10 milljónir króna og hefur þetta söfn- unarátak þó aðeins staðið í einn og hálfan mánuð. Þetta framtak stúdentanna er til fyrirmyndar og mun stuðla að því að Háskóli Islands verði samkeppn- isfær við aðrar menntastofnanir í tölvubúnaði. xxx HVAÐ sem öðru líður er ljóst, að mikill kraftur er í Sjálf- stæðisflokknum í Reykjaneskjör- dæmi um þessar mundir. Aðsóknin að kjörstöðum í prófkjöri flokksins sl. laugardag var svo mikil, að það minnti á aðsókn að kjörstöðum í al- þingiskosningum. Þessi mikla þátt- taka í prófkjörinu hlýtur að auka Sjálfstæðismönnum í kjördæminu bjartsýni í komandi kosningum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.