Morgunblaðið - 17.11.1998, Page 68

Morgunblaðið - 17.11.1998, Page 68
68 ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Hundrað prósent Holly- wood-maður Michael Bay heitir hasarmyndaleikstjóri í Hollywood sem kominn er í fremstu röð með þremur bíómyndum þar sem rokktón- list og áferðarfallegt, myndrænt sjónarspil skiptir meira máli en persónusköpun og LOFTSTEINAREGN í Ragnarökum, dýrustu mynd sem Bay hefur leikstýrt. rökrænt innihald. Arnaldur Indriðason kynnti sér þennan höfuðpostula nýju hasarmyndanna, sem hefur sérstaka unun af að gera metsölumyndir eins og Ragnarök, sem er að koma út á mynd- bandi þessa dagana. SPRENGINGAR í fyrstu myndinni, Slæmum strákum. BANDARÍSKI hasarleikstjórinn Michael Bay er af nýrri gerð kvik- myndagerðarmanna í Hollywood sem orðið hefur áberandi á síðustu tveimur til þremur árum. Þeir hafa meira gaman af því að sprengja upp hluti en t.d. að skapa trúverðugar persónur. Þeir lama áhorfendur með stöðugu áreiti í formi gegndar- lausra hasaratriða og glæsilegs sjónai-spils og spila hávaðarokk undir, en ef þeir ætla að gera litla, viðkvæma ástarsenu í kvöldsólinni, eins og Bay reynir í nýjustu mynd sinni, Ragnarökum eða „Arma- geddon“, verða þeir allt í einu skelf- ing hlægilegir. Enginn listrænn metnaður Bay er í fremstu röð hinna nýju leikstjóra en hefur aðeins gert þrjár bíómyndir. Hann leikstýrði dýrustu mynd sem Disney-veldið hefur nokkru sinni gert eða heimsenda- hættunni Ragnarökum, sem naut mikilla vinsælda hér á landi sl. sum- ar og kemur nú út á myndbandi. Hún kostaði 135 milljónir dollara. Fyrsta mynd hans í fullri lengd var Slæmir strákar eða „Bad Boys“ en síðan gerði hann Klettinn eða „The Rock“ og með henni fór allt í hans lífi að snúast um stærðir. Hann vann með stórstjörnunum, enginn sprengdi stærri sprengjur, enginn (nema James Cameron) vann með stærri fjárhagsáætlanir og hann náði til stórs hóps kvikmyndahúsa- gesta. Myndir hans hafa samanlagt halað inn næstum hálfan milljarð dollara í heimsdreifmgu. Aðalmálið er að ná til áhorfenda. Hann var viðstaddur eina af prufusýningun- um á Ragnarökum vestra „og áhorf- endur fógnuðu níu sinnum undir sýningu myndarinnar. „Það sem skiptir mestu máli fyrir mig er að fylgjast með viðbrögðunum í yfir- fullum kvikmyndasal og komast að því hvort áhorfendum líkar myndin eða ekki,“ sagði leikstjórinn í sam- tali við bandaríska skemmtanatíma- ritið Entertainment Weekly. í tímaritinu er bent á að Bay sé einstakur að mörgu leyti á meðal ungra og upprennandi kvikmynda- leikstjóra í draumaverksmiðjunni. Hann hefur ekki gert neitt af því sem þykir einkennandi fyrir slíka menn, sem yfírleitt vilja þjóna kvik- myndalistinni. Hann hefur ekkert lítið, persónulegt verkefni sem hann vill framleiða innan óháða geirans og berst fyrir með kjafti og klóm og hann talar ekki um að taka áhættu og vera djarfur í verkefnavali. Hann virðist fullkomlega sáttur við að starfa fyrir framleiðanda sinn, Jerry Bruckheimer, sem framleitt hefur allar þrjár myndir hans og virðist standa á sama þótt allir tali um þá nýjustu, Ragnarök, sem Jerry Bruckheimer-mynd. Þeir eru ekki margir eins og Bay HVAÐ er að því að gera poppmynd? Hasarleikstjórinn Michael Bay. sem þora að koma fram eins og þeir eru klæddir og segja að þeir keppi að því að gera sem vinsælastar sölu- myndir. Listrænn metnaður virðist enginn í þessum leikstjóra. Hann er hundrað prósent Hollywood-maður. „Ég sé ekkert athugavert við það að eyða helling af peningum í það að gera stórfenglegar hasarmyndir í þeim tilgangi að skemmta fólki," segir hann. „En það er eins og ég sé undir smásjá af einhverjum ástæð- um. Ahorfendur vilja poppmyndir. Hvað er svona athugavert við það?“ Ekkert, ef marka má þá sem ráða í kvikmyndaborginni. „Michael læt- ur fólk fá það sem það vill sjá,“ seg- ir Joe Roth, yfírmaður kvikmynda- framleiðsludeildar Disney-veldisins. „Hann helsta áhugamál er að hafa áhorfendur góða og líklega má segja að hann sé óvenjulegur að því leyti miðað við það sem gengur og gerist í dag.“ Auglýsingar og tónlistarmyndbönd Kvikmyndagagnrýnendur vestra hafa pkki verið að hlífa Michael Bay. í The New York Times sagði um Slæma stráka að það væri engu líkara en hún væri „saumuð saman eins og kvikmyndalegt Franken- steinskrýmsli úr líkamspörtum ann- arra mynda". I The Los Angeles Times sagði: Bay fannst hann vera á réttri leið. „Ég vildi reyna fyi-ir mér- með meiri peninga í höndunum og stærri stjörnur." Hann fékk ná- kvæmlega það upp í hendurnar. Næsta mynd, Kletturinn, kostaði 75 milljónir dollara og var með Nicholas Cage og Sean Connery í aðalhlutverkum ásamt nokkrum kjarnorkueldflaugum og liði af óþokkum sem þurfti að sigrast á. „Styrkleiki Michaels kom vel fram í þeirri mynd,“ er haft eftir Bruck- heimer. Spurningin er, hvað tekur Mich- ael Bay sér fyrir hendur næst í þeim tilgangi að skemmta fólki um allan heim? Hann hefur gert vinsæl- ar myndir hingað til og framleið- endurnir í Hollywood hafa mikið dá- læti á slíkum leikstjórum svo hann getur líklega valið úr verkefnunum. I sumar átti hann í viðræðum við James Cameron um möguleikann á því að hann leikstýrði endurgerð Apaplánetunnar en Cameron skrif- ar handritið og er framleiðandi. Einnig skrifaði Bay undir samning við Disney-veldið um gerð tveggja bíómynda. Hvað með listrænu hliðina? Reyndar er ekkert að gerast í þeirri deild en Bay biður þó fólk um að af- skrifa sig ekki alveg. „Fólk á bágt með að trúa því að ég vilji gera litl- ar, listrænar myndir en ég hef áhuga á að gera eitthvað fyndið og skrýtið,“ segir hann og bætir við að hann sé mikill aðdáandi Coen- bræðranna. „En það er ekki mikið af góðum listrænum handritum í umferð. Ef ég kemst einhvern tím- ann í gegnum öll geimskutluhand- ritin, sem verið er að senda mér daginn út og inn, gæti ég gert eitt- hvað sem er öðruvísi.“ ENN meiri sprengingar í Klettinum. MYNDBÖND Bílstjórinn og stjarnan Vandskrifað (Just Write) G a ni a n iii.v nd ★ ★V2 Framleiðandi: Heath Mclaughlin. Leikstjóri: Andrew Gallerani. Hand- ritshöfundur: Stan Willianison. Kvik- myndataka: Michael D. Brown. Tón- list: Leland Boyd. Aðalhlutverk: Jer- emy Piven, Sherlyn Fenn, JoBeth Williams, Wallace Shawn, Costas Mandylor, Alex Rocco, Yeardley Smith. 110 mín. Bandaríkin. Mynd- form 1998. Myndin er öllum leyfð. HAROLD starfar við að keyra ferðamenn um hverfi Hollywood- stjarnanna. Einn daginn hittir hann uppáhaldsleikkonu sína á kaffihúsi og vegna misskiln- ings heldur hún að hann sé handrits- höfundur. Hún biður hann um að kíkja á handritið að nýjustu mynd sinni og segja hvað honum finnst. Eft- ir þetta hefst mikil vinátta á milli Amöndu og Harolds, og það eina sem hann þarf að gera til að vinna hjarta hennar er að kunna að skrifa en í barnaskóla var hann ávallt við að falla í stafsetningu. Vandskrifað er saklaus mynd með tveimur skemmtilegum aðal- Ieikurum, Jeremy Piven, sem er þekktastur fyiár að leika frænda El- lenar í samnefndum sjónvarpsþátt- um, og Sherlyn Fenn sem varð fræg eftir að leika í hinum dularfullu þáttum „Twin Peaks“. Þetta er mynd sem rennur Ijúflega í gegn á meðan á henni stendur en gleymist fljótt. Þess má geta að Yeardley Smith, sem er rödd Barts Simpson, leikur kynóða spákonu í myndinni. Ottó Geir Borg --------------- Skúrkur í löggubúningi Góður vondur gæi (Good Bad Guy)___________ Gaman niynd V2 Framleiðendur: Ezio Greggio, Roger La Page. Leikstjóri: Ezio Greggio. Handritshöfundur: Rudy De Luca og Ezio Greggio. Kvik- myndataka: Massimo Zeri. Tónlist: John Dickson. Aðalhlutverk: Pat Asanti, Ron Carey, Carmine Caridi, Rudy De Luca, Dom DeLuise, Ezio Greggio, Jessica Lundy. 110 mín. Italía. Myndform 1998. Myndin bönnuð börnum innan 12 ára. ÍTALSKI innflytjandinn Joe er ráðinn af glæpamanninum Vince til þess að drepa vitni í máli sem er höfðað gegn hon- um. Joe fer í lög- reglubúning til þess að komast sem næst fórnar- lambi sínu, en allir halda að hann sé raunveruleg lögga svo hann verður að halda uppi lög- um og reglu til að ekki komist upp um hann. Það eina sem er hægt að segja já- kvætt um þessa mynd er að hún er aðeins betri en fyrri mynd leikstjór- ans og handritshöfundarins Ezio Greggio en sú mynd var „Silence of the Hams“ sem aðdáendur lélegra mynda setja án efa ofarlega á lista yfir sínar eftirlætismyndir. Góður vondur gæi gerir tilkall til að hljóta heiðurinn lélegasta mynd ársins 1998 og ef einhver mynd ætlar að slá henni við vil ég helst ekki þurfa að sjá hana. Ottó Geir Borg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.