Morgunblaðið - 18.11.1998, Blaðsíða 1
263. TBL. 86. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Stuðningi
Als Gores
fagnað
UM 200 stuðningsmenn Anwars
Ibrahims, sem var vikið úr emb-
ætti aðstoðarforsætisráðherra
Malasíu, efndu til mótmæla í
Kuala Lumpur í gær, hrópuðu
vígorð gegn stjórninni og fögn-
uðu yfirlýsingu Als Gores, vara-
forseta Bandaríkjanna, um
stuðning við andstæðinga
Mahathirs Mohamads, forsætis-
ráðherra landsins.
Stuðningsmenn Anwars komu
saman við mosku skammt frá
fundarstað leiðtoga Efnahags-
samvinnuráðs Asíu- og Kyrra-
hafsríkja (APEC) í Kuala Lump-
ur. Leiðtogafundinum lýkur í
dag.
■ Átalinn fyrir/22
Reuters
QECD dregur upp dökka mynd af horfunum í efnahagsmálum
Spáir mikhim samdrætti
í heiminum á næsta ári
París, Washington. Reuters.
EFNAHAGS- og framfarastofnunin,
OECD, varaði í gær við því að hag-
vöxturinn í heiminum myndi minnka
verulega á næsta ári ef seðlabankar
Bandaiíkjanna og fleiri landa lækk-
uðu ekki vexti sína á næstu mánuð-
um. Bandaríski seðlabankinn lækkaði
mikilvægustu vexti sína um fjórðung
úr prósenti í gærkvöldi.
OECD sagði í nýrri skýrslu í gær
að líklegt væri að fjármálaumrótið,
sem hófst í Asíu, yi'ði til þess að hag-
vöxturinn í heiminum minnkaði um
helming og yrði aðeins 2% á þessu ári
og því næsta. Stofnunin spáði því að
hagvöxturinn í Bandaríkjunum yrði
1,5% á næsta ári en til þess að sú spá
gæti ræst þyrfti seðlabankinn að
lækka vexti sína um 0,25 prósentustig
til viðbótar lækkuninni í gær. I síð-
ustu skýrslu OECD, sem birt var í
júní, var gert ráð fyrir 2,1% hagvexti í
Bandaríkjunum á næsta ári.
OECD varaði ennfremur við því
að „færi allt á versta veg“ gæti fjár-
málaumrótið leitt til mikils efnahags-
samdráttar í Bandaríkjunum eins og
í Japan og efnahagslegrar stöðnunar
úti um allan heim. Ignazio Visco, að-
alhagfræðingur stofnunai-innar,
sagði þó á blaðamannafundi í París
að líkurnar á að slíkt gerðist hefðu
minnkað frá því fjármálaumrótið
náði hámarki í september.
Þegar síðasta spá OECD var bh-t í
júní töldu ráðamenn í helstu iðnríkj-
um heims að þau væru varin fyrir
efnahagskreppunni í Asíu. I nýju
skýrslunni segir hins vegar að efna-
hagsöngþveitið í Rússlandi í ágúst
hafí leitt til mikils fjái’magnsflótta frá
löndum, þar sem efnahagsuppgang-
urinn hefur verið mestur á síðustu
árum, og það hafi einnig valdið
keðjuverkun í stóru hagkerfunum.
„Fjármálaumrótið er orðið svo víð-
tækt að þau ríki, sem eru enn laus við
áhiif þess, eru mjög fá, ef nokkur."
Spáir vaxtalækkunum í Evrópu
OECD spáði því að vextir yrðu
lækkaðir í ríkjum Evrópusambands-
ins (ESB) á fyrstu mánuðum næsta
árs þótt útlit væri fyrir tiltölulega
mikinn hagvöxt þar, einkum í ríkj-
unum ellefu sem verða stofnaðilar að
Efnahags- og myntbandalagi Evr-
ópu (EMU). Stofnunin spáði því að
hagvöxturinn í ESB-ríkjunum yrði
2,2% á næsta ári, ívið minni en spáð
var í júní, og 2,5% í ríkjum EMU.
Seðlabanki Bandaríkjanna til-
kynnti í gærkvöldi að hann hefði
ákveðið að lækka vexti skammtíma-
lána úr 5% í 4,75%. Bankinn hefur
lækkað vextina um 0,75 prósentustig
frá því í september og telur þá nú
nógu lága til að tryggja nægjanlegan
hagvöxt án þess að skapa hættu á
aukinni verðbólgu.
■ Mat á lánshæfi/22
Vopnaieitin í frak
Eftirlits-
menn SÞ
hefja störf
Bagdad. Reuters.
86 STARFSMENN vopnaeftirlits-
nefndar Sameinuðu þjóðanna,
UNSCOM, sneru aftur til Bagdad í
gær, viku eftir að hafa farið þaðan
vegna þeirrar ákvörðunar ráða-
manna í Irak að slíta öllu samstarfi
við nefndina.
„Við hlökkum til árangursríkrar
samvinnu við írösk yfirvöld á næstu
dögum,“ sagði Caroline Cross, tals-
maður UNSCOM, við komuna til
Bagdad. Hún bætti við að starfs-
menn nefndarinnar hefðu hafíst
handa við að setja upp tölvur og
fjarskiptatæki og myndu hefja eftir-
litsstörfin eins fljótt og auðið væri.
Starfsmenn nefndarinnar voru
fluttir með flugvél frá Barein til
herflugvallar nálægt Bagdad. Fyrr
um daginn höfðu 120 starfsmenn
hjálparstofnana Sameinuðu þjóð-
anna komið til borgarinnar eftir
1.000 km ferð yfir eyðimörkina frá
Amman.
Bandaríkjamenn hættu við loft-
árásir á skotmörk í Irak á sjðustu
stundu um helgina eftir að írakar
féllu frá þeirri ákvörðun að slíta öllu
samstarfi við nefndina til að freista
þess að knýja öryggisráð Samein-
uðu þjóðanna til að aflétta við-
skiptabanninu sem sett var á landið
eftir innrás íraka í Kúveit 1990.
íraskir embættismenn segja að við-
skiptabannið Jiafi kostað rúma hálfa
aðra milljón íraka lífið.
Rússar gagnrýna Clinton
Rússneska utanríkisráðuneytið
gagnrýndi í gær yfirlýsingu Bills
Clintons Bandaríkjaforseta um að
þörf væri á „nýrri stjórn" í írak
sem starfaði í þágu þjóðarinnar og
kúgaði hana ekki. Ráðuneytið sagði
að yfirlýsingin væri „í ósamræmi
við venjur og reglur þjóðaréttar".
„írakar verða að hlíta ályktunum
Sameinuðu þjóðanna, en ekki má
gleyma því að þær kveða einnig á
um að virða beri fullveldi og póli-
tískt sjálfstæði Iraks.“
Viðræður Israela og Palestínumanna
Þmgið staðfest-
ir samninginn
Jerúsalem. Reuters.
SAMNINGURINN um frekari
brottflutning ísraelskra hersveita
frá Vesturbakkanum var samþykkt-
ur með miklum meirihluta atkvæða
á þingi ísraels í gærkvöldi.
Samningurinn var samþykktur
eftir tveggja daga umræðu með 75
atkvæðum gegn 19. Níu þingmenn
sátu hjá.
Samkvæmt samningnum eiga
Israelar að flytja herlið sitt frá
13% Vesturbakkans í þremur
áföngum á næstu mánuðum. Ráð-
gert hafði verið að stjórn Israels
kæmi saman í dag til að ákveða
formlega að fyrsti áfanginn gæti
hafist en fundinum var frestað í
gær. Stjórnin sagði ástæðuna þá að
hún biði enn eftir því að palestínsk
yfirvöld gæfu út reglugerðir um að
lagt yrði hald á ólögleg vopn og að
bannað væri að hvetja til árása á
Israela.
FyiT um daginn hafði Yasser Ara-
fat, leiðtogi Palestínumanna, orðið
við kröfu ísraela um að draga til
baka hótun sína um að Palestínu-
menn hæfu vopnaða frelsisbaráttu
sína að nýju ef kröfum þeirra yrði
hafnað í viðræðunum um framtíðar-
stöðu Jerúsalemborgar og palest-
ínsku sjálfstjórnarsvæðanna. Benja-
min Netanyahu, forsætisráðherra
Israels, fagnaði yfirlýsingunni og
kvaðst taka hana gilda. Daginn áður
hafði hann tilkynnt að fyrsta áfanga
brottflutningsins yrði frestað vegna
hótunar Ai-afats.
Upptökur
Tripp gerð-
ar opinberar
DÓMSMÁLANEFND fulltrúa-
deildar Bandaríkjaþings gerði í
gær opinberar segulbandsupp-
tökur Lindu Tripp af samtölum
hennar við þáverandi vinkonu
sina, Monicu Lewinsky, fyrrver-
andi starfsstúlku í Hvíta húsinu.
Starfsmaður fulltrúadeildar-
innar sýnir hér upptökurnar,
sem eru 22 klukkustundir að
lengd. Það sem fram kemur í
þessum upptökum um samband
Lewinsky við Bill Clinton varð
upphafið að átta mánaða rann-
sókn Kenneths Starrs á því
hvort forsetinn hefði gerzt sek-
ur um brot sem gæfí tilefni til
málshöfðunar til embættismissis.
Ritskoðuð útprentun af upp-
tökunum var gerð opinber í
október, en upptökurnar sjálfar
Reuters
ekki fyrr en nií. Að sögn The
New York Times er Lewinsky
ýmist gáskafull, barnaleg eða al-
varleg í samtölunum við Tripp
um samband sitt við forsetann.
Ráðgert er að Starr komi fyr-
ir dómsmálanefndina á morgun
og repúblikanar íhuguðu í gær
að stefna fleiri mönnum til að
bera vitni fyrir nefndinni í
rannsókn hennar á máli forset-
ans. Demókratar hótuðu hins
vegar að sniðganga vitnisburð
Starrs.