Morgunblaðið - 18.11.1998, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Jeltsín hittir Schröder í Kreml og Prímakov Gore í Malasíu
Leiðtogar Rússlands
kalla á meiri stuðning
Reuters
Áttu að myrða
Berezovskí
STOFNUNIN sem tók við af
hinni illræmdu sovésku leyni-
þjónustu, KGB, er samsafn morð-
ingja, mannræningja og ótíndra
glæpamanna, ef marka má full-
yrðingar þriggja foringja í rúss-
nesku leyniþjónustunni. Þeir boð-
uðu til afar óvenjulegs blaða-
mannafundar í gær þar sem þeir
fullyrtu að yfirmenn þeirra hefðu
skipað þeim að drepa auðkýfing-
inn Borís Berezovskí. Sögðu þre-
Trimble
vill stöðva
lausn fanga
DAVID Trimble, leiðtogi stærsta
flokks sambandssinna á Norður-ír-
landi og væntanlegur forsætisráð-
herra, sagði á mánudagskvöld að svo
gæti farið að stöðva yrði lausn fanga
sem tengjast öfgahópum kaþólikka
og mótmælenda á N-írlandi neiti
Irski lýðveldisherinn (IRA) áfram að
láta vopn sín af hendi.
Eru ummæli Trimbles sögð til
marks um vaxandi óánægju meðal
sambandssinna á N-írlandi, og
einnig þingmanna breska Ihalds-
flokksins, sem telja að lausn fang-
anna gangi of hratt fyrir sig.
Belfast-samkomulagið frá páskum
kveður á um að allir fangar sem
tengjast öfgahópunum verði orðnir
frjálsir menn innan tveggja ára.
Þetta ferli hefur hins vegar gengið
hraðar fyrir sig en menn áttu von á
og þegar hefur um helmingi allra
fanga verið sleppt úr haldi. Hafa
margir áhyggjur af því að fyrr en
vari verði allir hættulegustu morð-
ingjar vargaldar undanfarinna þrjá-
tíu ára frjálsir menn jafnvel þótt enn
eigi eftir að hrinda ýmsum öðrum
markmiðum samningsins í fram-
kvæmd sem eiga að tryggja frið.
Sambandssinnar hafa m.a. neitað
að setja á fót ríkisstjóm, með þátt-
töku Sinn Féin nema afvopnun IRA
komi til fyrst. Nú hefur Trimble í
fyrsta skipti einnig tengt afvopnun
IRA málefni fanganna.
menningarnir að þeim hefði ver-
ið hótað lífláti, segðu þeir frá
þessu.
Berezovskí fullyrti í opnu bréfi
til yfirmanns leyniþjónustunnar,
Vladimír Pútín, í síðustu viku, að
samsæri hefði verið um að drepa
sig. í gær svaraði Pútín því til að
málið væri í rannsókn en mót-
mælti því jafnframt að leyniþjón-
ustumennirnir hefðu kosið að
koma fram á þennan hátt. Var
einn þeirra með skíðahettu á
höfði svo hann þekktist ekki.
Fullyrtu mennirnir m.a. að áætl-
unin um að ráða Berezovskí af
dögum væri ekkert einsdæmi
innan leyniþjónustunnar, innan
hennar væru fjölmargir aðilar
sem notfærðu sér hana til að
jafna sakirnar við andstæðinga
sína og til persónulegs ávinnings,
auk þess sem margir starfsmenn
hennar þæðu fé fyrir að fram-
kvæma ýmis konar afbrot.
Moskvu. Reuters.
FORSETI og forsætisráð-
herra Rússlands hittu í gær
leiðtoga tveggja mikilvægustu
viðskiptalanda Rússlands í
vestri og hvöttu þá til að halda
áfram stuðningi við efnahags-
umbætur í hinu kreppuhrjáða
landi.
Borís Jeltsín Rússlandsfor-
seti hitti Gerhard Schröder,
nýjan kanzlara Þýzkalands, í
Kreml, og Jevgení Prímakov
forsætisráðherra hitti A1 Gore,
varaforseta Bandaríkjanna, í
Kuala Lumpur í Malasíu, þar
sem þeir eru báðir á leiðtoga-
fundi Asíuríkja. Prímakov
kynnti efnahagsumbótaáætlun
stjórnar sinnar fyrir Gore í
gær en fyrir Schröder á mánu-
dag, áður en hann hélt til
Malasíu.
Bæði Jeltsín og Schröder
lögðu við upphaf síns fundar
áherzlu á að samskipti land-
anna ættu að haldast áfram
eins náin og áður. Jeltsín tjáði
Schröder að tengslin við Þýzkaland,
sem er stærsti lánardrottinn Rúss-
lands, væru meðal helstu forgangs-
mála rússneskrar utanríkisstefnu.
Jeltsín stífur
Jeltsín virtist stífur og svip-
brigðalaus, að sögn þýzkra blaða-
manna sem fengu að fylgjast með er
leiðtogarnir heilsuðust, en heilsa
forsetans hefur á ný verið í brenni-
depli fjölmiðla undanfarnar vikur.
Forsetinn dvelur þessa dagana
mestmegnis í afslöppun utan
Reuters
vísar Ger-
BORIS Jeltsín Rússlandsforseti
hard Schröder, kanzlara Þýzkalands, til sæt-
is í Kreml í gær.
Moskvu. Hann sást síðast í Kreml á
fimmtudaginn var, þegar hann átti
stuttan fund með Keizo Obuchi, for-
sætisráðherra Japans.
í gær tók Jeltsín sér góðan tíma
til að setja saman setningar og tal-
aði með þungum áherzlum og
handapati, að sögn blaðamannanna.
Rússneska sjónvarpið sýndi
Jeltsín strangan á svip ávarpa
þýzku sendinefndina í Kreml með
þeim orðum, að samskipti landanna
„séu og munu haldast eins og þau
hafa verið undanfarin ár“. Þetta var
túlkað svo, að hann væri að
vísa til náins persónulegs sam-
bands síns við Helmut Kohl,
forvera Schröders.
Schröder hefur sagt að slík
persónuleg tengsl séu gagn-
leg, en þau megi ekki einoka
samskipti heilla ríkja, einkum
og sér í lagi ekki þegar um
það er að ræða hvernig taka
skuli á efnahagskreppunni í
Rússlandi.
Áætlun Prímakovs í
brennidepli
Prímakov mætti á Asíu-
ríkjafundinn í Malasíu í stað
Jeltsíns. „Eg útskýrði efna-
hagsáætlun okkar,“ sagði
hann. „Ég sagði - og Gore var
mér sammála - að hún sé
skynsamleg og gangi raun-
verulega upp.“
Enginn fulltrúi Bandaríkj-
anna lét hafa eftir sér neitt
um áætlun Prímakovs, en
hún hefur fram að þessu kallað
fram gagnrýni af hálfu alþjóðlegra
lánastofnana fyrir að fela í sér aft-
urhvarf frá markaðsvæðingu.
Rússar eru að reyna að telja Al-
þjóðagjaldeyrissjóðinn, IMF, á að
afgreiða 4,3 milljarða dollara
greiðslu, sem er hluti af lánapakka
sem Rússum var heitið í júlí sl. í
því skyni að hjálpa þeim út úr efna-
hagsógöngunum.
Von var á sendinefnd IMF til
Moskvu í dag, sem ætlaði að líta
nánar á áætlanir stjómarinnar, þar
með talið fjárlögin fyrir næsta ár.
Reuters
Áformaðar umbætur á landbúnaðarkerfí Evrópusambandsins (ESB)
Hörð gagnrýni endurskoðenda
London, Strassborg. Daily Telegraph, Reuters.
ÁFORMAÐAR umbætur á landbúnaðarkerfi
Evrópusambandsins (ESB) eru harðlega gagn-
rýndar í ársskýrslu endurskoðunarstofnunar
sambandsins, og það þótt ráðherrar aðildarríkj-
anna hafi enn ekki komizt að samkomulagi um
umbótaáætlunina.
Bernhard Friedmann, forseti endurskoðunar-
stofnunarinnar, tjáði Evrópuþinginu í gær að
sambandið yrði að lækka viðmiðunarverð á land-
búnaðarvörum enn meira en gert er ráð fyrir í
þar að iútandi tillögum framkvæmdastjórnar
ESB, sem er að finna í umbótaáætluninni
„Agenda 2000“ sem lögð var fram í júlí í fyrra.
Sagði Friedmann efnahagshrunið í Rússlandi
og Asíu valda því að það verð sem framkvæmda-
stjómin hafði talið að fengist fyrir evrópskar
landbúnaðarvörur á heimsmark-
aðnum og lagt til grundvallar út-
reikningum sínum væri einfald-
lega of hátt. Dæmið liti þv£ þannig
út núna, að kæmu tillögurnar
óbreyttar til framkvæmda, gæti
kostnaður ESB við kerfisbreyt-
ingarnar orðið hærri en sem nemur þeim sparn-
aði sem lækkun niðurgreiðslna á að skapa. Út-
flutningsbætur og geymslukostnaður við land-
búnaðai'vörur sem ekki seljast á settu viðmiðun-
arverði yllu þessu meðal annars.
Myndu sprengja fjárlagarammann
Friedmann sagði ennfremur, að það væri
„óraunhæft“ að gera ráð fyrir að bændur í vænt-
EVRÓPA^
anlegum aðildarríkjum sambands-
ins í Austur-Evrópu fengju enga
beina styrki eftir að lönd þeirra
verða gengin í sambandið. Gera
yrði ráð fyrir nokkrum milljörðum
í stuðningsgreiðslur við landbún-
aðinn í þessum ríkjum.
John Wiggins, sem á sæti í stjórn stofnunar-
innar fyrir hönd Bretlands, sagði í samtali við
The Daily Telegraph að framkvæmdastjórnin
hefði alvarlega misreiknað kostnaðinn við tillögur
sínar. Kæmu þær óbreyttar til framkvæmda
myndu þær sprengja fjárlagaramma ESB um
marga milljarða. Þessi orð voru höfð eftir Wigg-
ins eftir að ársskýrslu endurskoðunarstofnunar-
innar var lekið til fjölmiðla í byrjun vikunnar.
Kúrdar í
Bonn í
hungur-
verkfall
KÚRDÍSKUR skæiailiði olli sín-
um eigin dauða og særði sex
aðra í sjálfsmorðssprengjuárás í
Tyrklandi í gær sem virðist
mega tengja við handtöku
Abdullahs Öcalans, leiðtoga
Verkamannaflokks Kúrdistans
(PKK), í Róm á ítaliu í siðustu
viku. Óttast öryggisyfirvöld í
Tyrklandi að fleiri slíkar árásir
muni fylgja í kjölfarið.
Fyrir framan Dúmuna. neðri
deild rússneska þingsins í
Moskvu, urðu tveir Kúrdar fyrir
alvarlegum brunasárum eftir að
þeir höfðu hellt yfír sig olíu og
sfðan kveikt í. Er þessi atburður
einnig tengdur deilum um hand-
töku og framsal Öcalans.
Tregða ítala til að framselja
Öcalan hefur mjög reitt tyrk-
nesk stjórnvöld til reiði en þau
vilja rétta yfir Öcalan sem þau
saka um föðurlandssvik. Hafa
ýmsir úr viðskiptalífí Tyrklands
beitt sér fyrir því að neytendur
hunsi ítalskar vörur og virðist
koniin upp hatrömm milliríkja-
deila vegna málsins.
Stóðu um 4.000 Kúrdar, sem
búsettir eru í Þýskalandi, fyrir
mótmælagöngu í Bonn í gær
gegn handtöku Öcalans og
héldu þeir á Iofti risastórri and-
litsmynd af leiðtoganum. Hófu
um 200 þeirra hungurverkfall í
gær til að þrýsta á um að Öcal-
an verði sleppt úr haldi. Einnig
var efnt til mótmæla í Rómar-
borg.