Morgunblaðið - 18.11.1998, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 18.11.1998, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1998 21 Atta bandarísk ríki semja við tóbaksframleiðendur 200 milljarða dala greiðslur til ríkjanna Washington. Reuters. Reuters BILL Clinton Bandaríkjaforseti (t.h.) fagnar Christine Gregoire sak- sóknara eftir að hún hafði kynnt samkomulagið sem náðst hefur við tóbaksframleiðendur. ATTA ríki Bandaríkjanna kynntu á mánudag efnisatriði samkomulags, sem miðar að því að ljúka málaferl- um ríkjanna á hendur tóbaksfyrir- tækjum. Samkomulagið hljóðar upp á 206 milljarða dala greiðslur til ríkjanna til ársins 2025, um 14.400 milljarða ísl. kr., auk tak- markana við tóbaksauglýsingum og aðgerðum til að draga úr og koma í veg fyrir reykingar unglinga. Til að samkomulagið taki gildi, þurfa fleiri ríki að undirrita samkomulag- ið. Christine Gregoire, yfii-saksókn- ari i Washington-ríki, sem stýrði viðræðunum við tóbaksfyrirtækin, sagði samkomulagið vera mesta efnahagsbata sem sögur færu af og að enginn iðnaður hefði gengist undir aðrar eins breytingar. Sagði hún að búast mætti við að verð á sí- garettupökkum hækkaði um 35-40 cent, um 25 kr., í kjölfar samkomu- lagsins. Bill Clinton Bandaríkjaforseti fagnaði samkomulaginu og sagði það afar mikilvægt upphafsskref. Hins vegar væri setning nýrrar tó- bakslöggjafar í höndum öldunga- deildar þingsins. Þá kvaðst forset- inn myndu fara þess á leit við hæstarétt að hann úrskurðaði hvort Matvæla- og lyfjaeftirlitið (FDA) hefði vald til þess að setja reglur um tóbak. „Þetta samkomulag... er fyrsta dæmið um að tóbaksfram- leiðendur verði gerðir ábyrgir fyrir þeim skaða sem framleiðsla þeirra veldur þjóð okkar,“ sagði forsetinn. Ekkert ríki hafnað aðild Tóbaksframleiðendurnir Philip Morris, RJR Nabisco, Brown & Williamson og Lorillard, hafa fallist á samkomulagið, svo fremi sem fleiri ríki undirriti hann. Nú þegar hafa Kalifornía, Kolorado, New York, Norður-Karólína, Norður- Dakóta, Oklahoma, Pennsylvania og Washington undimtað samning- inn, auk þess sem Iowa og Arizona hafa fallist á hann. Gregoire kvaðst ekki vita til þess að neitt ríki hefði hafnað aðild að samningnum. Þar sem stór ríki á borð við Kali- forníu og New York hafa undirritað samkomulagið er talið fullvíst að nægur fjöldi ríkja bætist í hópinn til að hann taki gildi. Fer það eftir íbúafjölda ríkjanna hversu mörg ríki þarf til. Samkomulagið kveður á um að tóbaksframleiðendur greiði 12 milljarða dala, 840 milljarða ísl. kr., fyrstu fimm árin. Frá árinu 2008 greiði þau yfir 9 milljarða dala á ári, um 630 milljarða. Arið 2025 hafi tóbaksfyrirtækin greitt um 206 milljarða dala. Samkomulagið gerir ráð fyrir að fyrirtækin haldi áfram að gi’eiða bætur eftir það og verði þær miðaðar við fjölda reykinga- manna. Samkvæmt samkomulaginu verða teiknimyndafígúrur bannað- ar á umbúðum, í auglýsingum og við kynningu á tóbaki. Tekið verður fyrir auglýsingar sem beinast að unglingum, tóbaksauglýsingar ut- andyra bannaðar, svo og greiðslur til frægs fólks fyrir að láta sjá sig með vindling í hönd. Þá er tóbaks- fyrirtækjum gert skylt að leggja fé í verkefni sem beinist að því að draga úr reykingum. Ekki eru þó allir sáttir við sam- komulagið. Ymis samtök heilbrigð- isstétta telja það ekki ganga nógu langt og hafa hvatt ríkin til að hafna því. „Þetta er ekki samkomu- lag, heldur bróðurleg skipti tóbaks- framleiðenda og aðalsaksóknar- anna sem gera stóru tóbaksfyrir- tækjunum kleift að halda áfram sví- virðilegri framleiðslu sinni,“ sagði John Garrison, framkvæmdastjóri Bandaríska lungnasambandsins. Þessu vísar Gregoire á bug, segir aðeins um fyi’sta skrefið að ræða og að með því hafi náðst meira fram en tekist hafi í nokkrum réttarsal. fyrir jólábaksturinn!! KitchenAid' KSM90 ásamt öflugri hakkavél að verðmæti kr. 5.480 AÐEINS KR: 28.340,- með hakkavclinni! KitchenAid' Kóróna eldhússins ! * 60 blaðsíðna leiðbeininga- og uppskriftabók á íslensku fylgir. * Fjöldi aukahluta fáanlegir, svo sem: Pastagerðartæki, grænmetiskvamir, hveitibrautir, dósaopnarar, kommyllur, ávaxtapressur og fl * Aðrargerðir KitchenAid hrærivéla kosta frá kr. 25-935 stgr. MÍSSTUlEKKfAF.ÞESSLI.FRÁBÆRAiTILBOÐll Enski boltinn á Netinu mbl.is /\L_LTAf= GITTH\SAi£) A/ÝT7 Fylgi norsku ríkisstjórnar- innar hrynur FYLGI við norsku stjórnina hefur hrunið á síðustu mánuðum og mælist nú aðeins 18,9%, samkvæmt skoð- anakönnun Feedback, sem birt var í gær. Er það aðeins 2% meira fylgi en Framfaraflokkurinn hefur og um 12% fylgistap á tæpu ári. Er útlitið heldur svart fyrir stjómina, sem hef- ur ekki tekist að afla stuðnings við fjárlagafrumvarpið, sem lagt verður fram í næstu viku. Samkvæmt skoðanakönnuninni hafa allir þilr stjórnarflokkarnir tap- að fylgi. Kristilegi þjóðarflokkurinn, sem var næststærsti flokkur Noregs eftir síðustu kosningar með 18,6% fylgi, nýtur nú stuðnings 11%. Mið- flokkurinn nýtur nú aðeins 5,1% stuðnings og Venstre enn minna fylgis, 2,8%. Er þetta mikið hrun frá skoðanakönnun í janúar sl. er fylgið við stjórnina var um 30%. Verkamannaflokkurinn hefur 40,7% fylgi, Hægriflokkurinn 15,3% fylgi, Framfaraflokkurinn 16,9% fylgi og Sósíalíski vinstriflokkurinn 5,1% fylgi. V erkamannaflokkur og Hægriflokkur í stjórn? Mikill titringur hefur verið í stjórnmálunum síðustu vikuna eftii' að Hægriflokkurinn, Framfara- flokkurinn og Verkamannaflokkur- inn neituðu að styðja fjárlagafrum- varp stjórnarinnar. Jan Petersen, formaður Hægi-iflokksins, hefur hvatt til þess að menn taki sér „kyrrðarviku" og hugsi sinn gang, en flokkur hans hefur hingað til stutt stjórnina. Verkamannaflokkurinn hefur hins vegar borið víurnar í Hægriflokkinn. I útvarpsviðtali um helgina lýsti Thorbjorn Jagland, fonnaður Verka- mannaflokksins, því yfir að af öllum flokkum á norska þinginu væri frekast að treysta Hægiáflokknum. Þá sagði hann að í fjölmörgum mál- um færu skoðanir flokkanna saman og að þeir gætu myndað meirihluta. Þrátt fyrir að Jagland hafi ekki viljað ganga svo langt að biðla beint til Hægriflokksins um mögulega stjórnarmyndun ef stjórnin fellur fyiár árslok, hafa ummæli hans mælst vel fyrir í flokki hans. Hægri- menn hafa hins vegar tekið dræmt í hugsanlega stjórn með Verkamanna- flokknum, erkifjanda sínum til margra ára. Talsmenn stjórnarflokkanna brugðust æfir við ummælum Jag- lands. Sagði Einar Steensnæs, þing- flokksformaður Kristilega þjóðar- flokksins, að slík stjórn myndi skaða mjög alla möguleika borgaraflokk- anna á stjórnarmyndun til lang- frama, auk þess sem hún myndi festa í sessi þá hugmynd að aðeins Verkamannaflokkurinn gæti stjórn- að landinu. SIEMENS 13 1 1 11 h| / iBf J 7JUA' Dnonl gt heimilistækin eru hvarvetna rómuð fyrir gæði og styrk. Griptu tækifærið og njóttu þess! Siemens uppþvottavél kmiiiéb I I 111 II Sannkölluð hjálparhella í eldhúsinu. Einstaklega hljóðlát og sparneytin. Fjögur þvottakerf tvö hitastig (nauðsynlegt fyri viðkvæmt leirtau), fjórföld flæðivörn með Aqua-Stop. Þetta er uppþvottavél eins og þú vilt hafa hana. Búhnykksverð Bosch hrærivél MUM 4555EU Búhnylcksverð: 17.500Kr.) Ein vinsælasta hrærivélin á íslandi í fjöldamörg ár. Og ekki að ástæðulausu. Allt í einum pakka: öflug grunnvól, rúmgóð hræriskál, tveir þeytispaðar og einn hnoðari, hakkavól, blandari, grænmetisskeri með þremur rifjárnum. Nauðsynleg við jólabaksturinn. Nýr þráðlaus sími frá Siemens GIGASET 2010 Nýr þráðlaus sími frá Siemens af allra bestu gerð. DECT/GAP-staðall. Svalur. Stafrænn. Sterkur. Mikil hljómgæði. 16.900 55.615*01] UMBOÐSMENN: Akranes: Ripiiti Sgnliii • Boigarnes: Gliti ■ Snzlellsbzr: lí«tm!lli - Grundaifiörðui: Gtlii Mjiiisai • Styhistrólmur: Skfirft • BúSardalir: Asnkii • Isaljiilu: Piisi Hvammstangi: Stjwi • Sauúáikrókur: Hafsjá • Siglufiiiiiii: bji) • Uneyii: ljc|þfnu • Húsavík: Diyjji • Vngnaliöiiiri: Sifnjisi Arsa li. - keskaupslaiit: Rifaldi • Reyiaifiiiiui: Rakélanilat. iiaa L • Egilsstaðii: S«iia Gi Wssii • Bieiðdalsvík. Steláa I Slelánssin-Hðfní Hnmaliiii: Kiia Ij hitt-Vikl liýrial: Dakkai ■ Vestnannaeyjn: liánik ■ Hiolsvðllui: Rafnajnsnikst. 18 ■ Hella: Gdsá ■ Selloss: kiini ■ Grindavik Raltnij • Gaiiui: Raftzkjn Sij lijiaiss • lellavlk: Ijáskijiei • Halnailjiiiut: lalkii Ma. taíii SMITH & NORLAND Nóatúni 4 105 Reykjavík Sfmi 520 3000 www.sminor.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.