Morgunblaðið - 18.11.1998, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 18.11.1998, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1998 49 I Lögreglan með um- ferðarátak LÖGREGLULIÐ á Suðvestur- landi munu dagana 17.-23. nóvem- ber gangast fyrir umferðarátaki. | Að þessu sinni munu lögregluliðin | beina athygli sinni að akstri við gatnamót, notkun stefnuljósa, ljósabúnaði, ökutækja, dekkjabún- aði stórra ökutækja, notkun rauðra skráningarmerkja, gangandi veg- farendum og notkun endurskins- merkja. „Nú þegar hausta tekur er mikil- vægara en nokkru sinni að hafa I ljósabúnað ökutækja í góðu lagi. Því eru ökumenn hvattir til að sjá Itil þess að svo sé og eins eru gang- andi vegfarendur hvattir til að nota endurskinsmerki. Þá mun lögregl- an fylgjast sérstaklega með því hvemig réttur gangandi vegfar- enda er virtur. Því miður er notkun stefnuljósa • ekki nægjanlega algeng hér á landi en notkun þeirra er mjög mikilvæg fyrir umferðaröryggi. Því eru öku- Imenn hvattir til að sýna meira tillit við aðra ökumenn og nota stefnu- ljós þegar við á,“ segir í frétt frá lögreglunni. SOS-barna- þorpunum SOS-barnaþorpin bjóða enn sem fyrr jólakort til styrktar starfsem- inni. Það er Gitte S. Hansen sem teiknar þrjú jólakort fyrir styrkt- araðila SOS bæði hér og í Dan- mörku, Noregi og Svíþjóð. „Islenskum fyrirtækjum eru einnig boðin jólakort í þriðja sinn og em þau óvenjulega glæsileg þar sem mikil gylling er notuð. Öll jóla- kortin eru birt á heimasíðu SOS ásamt verðlista. Heimasíða SOS er http://www.centram.is/sos/ og net- fangið er: Sos@centram.is,“ segir í fréttatilkynningu. Jólamerki Framtíðarinnar I 8 I KVENFÉLAGIÐ Framtíðin á Akureyri hefur gefið út hið árlega jólamerki sitt. Merkið gerði Jón- borg Sigurðar- dóttir, útskrifuð úr málunardeild Myndlistaskól- ans á Akureyri 1995, og er það prentað í As- prenti/Pob á Akureyri. „Jólamerkið er tekjuöflun fyrir félagið, en tekjum sínum verja Framtíðarkonur til líknai-mála, sérstaklega til styrktar öldraðum. Merkið er til sölu í pósthúsinu á Akureyri, í Frímerkjahúsinu og Frímerkjamiðstöðinni í Reykjavík, auk þess sem félagskonur sjá um sölu á Akureyri," segir í fréttatil- kynningu. GUÐRIJN Eyjólfsdóttir frá Hans Petersen, Dögg Pálsdóttir, formaður Umhyggju, og Esther Sigurðardóttir, fram- kvæmdasljóri Umhyggju, undirrita samstarfið. Umhyggja fær styrk frá Hans Petersen hf. Siglfirðingar vilja ekki skipta Norðurlandi UM ÁRABIL hafa verslanir Hans Petersen hf. selt jólakort utan um ljósmyndir. Jafnlengi hefur fyrirtækið látið tiltekna ijárhæð af liveiju seldu jólakorti renna til styrktar góðu málefni. Nýlega tilkynnti fyrirtækið að það hefði ákveðið að láta Umhyggju, félag til stuðnings langveikum bömum njóta þess stuðnings. 5 krónur af hverju seldu jólakorti renna í Styrktarsjóð Umhyggju. Fjárhæðin sem með þessum hætti safnast mun renna í Styrktarsjóð Umhyggju sem stofnaður var fyrir tveimur ár- um. Tilgangur sjóðsins er að styðja fjölskyldur langveikra barna sem lent hafa í fjárhags- erfiðleikum sem rekja má til veikindanna. Söfnun í styrktar- sjóðinn hefur staðið yfir allt þetta ár og hafa margir lagt hönd á plóg. Mikil þörf er á sjóði sem þessum þar sem hópur barna með alvarlega langvinna sjúkdóma stendur utan við þá tvo styrktarsjóði sem þegar fyr- irfinnast. „Stjórn Umhyggju þakkar Hans Petersen hf. þennan mikil- væga stuðning um leið og hún þakkar ölluin þeim sem leggja sitt af mörkum til uppbyggingar styrktarsjóðsins um leið og þeir senda vinum og vandamönnum jólakveðju. Megi jólin verða ykk- ur öllum tími friðar og kær- leika,“ segir í frétt frá Um- hyggju. EFTIRFARANDI ályktun var samþykkt í bæjarstjórn Siglufjarð- ar 12. nóvember sl.: „I tengslum við umræðu um breytingar á kjördæmaskipan hafa bæjaryfirvöld á Siglufirði lýst yfii' því áliti sínu að eðlilegast og raun- hæfast sé m.t.t. hagsmuna Norð- lendinga að sameina kjördæmin tvö á Norðurlandi í eitt öflugt Norðurlandskjördæmi. Var ein- dregin afstaða tekin með ályktun ársþings Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra í þá vera. Ef nauðsynlegt er talið að koma á breyttri kjördæmaskipan til að jafna atkvæðavægi telur bæjar- stjórn Siglufjarðar að sameining þessai-a tveggja kjördæma sé best- ur þeirra valkosta sem nefndir hafa verið. Kjördæma- og kosningalaga- nefnd Alþingis hefur lagt fram til- SEXTÍU ár eru liðin á þessu ári frá því að ITC-samtökin voru stofnuð í Bandaríkjunum og 25 ár síðan þau voru stofnuð hér á landi. Af því tilefni er boða Landssamtök ITC á Islandi til afmælisfagnaðar föstudaginn 27. nóvember á veit- ingahúsinu Broadway og hefst hann kl. 19. ITC-samtökin era vettvangur fyrir þá sem vilja takast á við sjálf- an sig í framsögn og ræðumennsku og læra þingsköp. Það er hugmynd lögu sem gerir ráð fyrir því að Norðurlandi verði skipt og kjör- dæmamörk verði um Tröllaskaga. Bæjarstjórn Siglufjarðar leggur áherslu á að í meðfóram Alþingis verði skoðað til þrautar hvort ekki finnst leið þar sem ekki kemur til skipting Norðurlands. Myndist hins vegar ekki á vett- vangi Alþingis vilji til breytinga á tillögu Kjördæma- og kosninga- laganefndar lýsir bæjarstjórn Siglufjarðar eindregið yfir vilja sínum til þess að Siglufjörður til- heyri nýju Austurkjördæmi fremur en að fylgja Norðurlandi vestra í Vesturkjördæmi og fagnar því að gert skuli ráð fyrir því. Lítur bæj- arstjórn svo á að með slíkri sam- þykkt sé m.a. viðurkennd brýn nauðsyn á bættri vegtengingu milli Siglufjarðar og Eyjafjarðarsvæðis- ins.“ þeirra sem að þessum fagnaði standa að ná til sem flestra ein- staklinga sem era og hafa verið fé- lagar í samtökunum. Á 25 árum hafa mjög margir einstaklingar verið félagar í tæplega 30 deildum um land allt, sumir í mörg ár en aðrir aðeins í stuttan tíma. Sérstakir gestir samkomunnar verða þær Jean Turner, forseti Al- þjóðasamtaka ITC, og forseti III svæðis, Vilna Wilkinson, en ísland er hluti af III svæði. Afmælisfagnaður ITC -samtakanna Morgunblaðið/Jón Svavarsson HELGA Lísa Þórðardóttir eigandi og Sigrún Erlendsdóttir verslunarstjóri. Fræðslurit um svefn og svefntruflanir DELTA hf. hefur gefið út fræðslu- ritið Svefn og svefntruflanir, eftir Láras Helgason, yfirlækni á geð- deild Landspít- alans. Þetta er fjórða fræðslu- ritið fyrir al- menning, sem Delta hf. lætur skrifa og gefa út. Áður hafa komið út þrjú fræðslurit um geðsjúkdoma. Það fyi-sta, Þunglyndi, kom út árið 1991 og ári síðar kom út ritið Geð- klofi. Árið 1996 kom svo út þriðja fræðsluritið; Kvíði. Láras Helga- son, yfirlæknir á geðdeild Land- spítalans, er höfundur allra fræðsluritanna. „Fræðsluritin bera undirtitilinn Leiðbeiningar fyrir sjúklinga og aðstandendur. Þau era framlag Delta hf. til almenningsfræðslu um sjúkdóma og sjúkdómseinkenni. Þeim er meðal annars ætlað að út- skýra sjúkdómana sem þau fjalla um, styðja við bakið á sjúklingum og auka skilning aðstandenda og vina. í textanum era rakin dæmi frá nokkram sjúklingum, til að draga upp ljósa mynd af sjúk- dómunum. Á alþýðlegu máli er fjallað um einkenni sjúkdómanna, orsakir og meðferðarúrræði,“ segir í fréttatilkynningu. Delta hf. er útgefandi fræðslurit- anna og liggja þau frammi fyrir al- menning í apótekunum og á heilsu- gæslustöðum. Þeim er dreift án endurgjalds. Ný húsgagna- og- gjafavöru- verslun OPNUÐ hefur verið ný húsgagna- og gjafavöruverslun í Ingólfs- stræti 5 og ber hún nafnið I hús- inu. Eigandi verslunarinnar er Helga Lísa Þórðardóttir og verslunar- stjórinn Sigrún Erlendsdóttir. SVEFN É. OG SVEFN- í T’DIICT MJID S Þvottavéla- leikur Bónus og Friggjar VINNINGSHAFI í þvottavéla- leiknum vann Whirpool-þvotta- vél frá Heimilistækjum. Sú heppa er Bryndís Sigurjónsdótt- ir og er hún fyrsti vinningshaf- inn í þessum nýja leik Bónuss og Friggjar. Á myndinni eni Krist- ín Sigurðardóttir, sölufulltníi Friggjar, og Guðmundur Ás Birgisson, verslunarstjóri í Holtagörðum, ásamt vinnings- hafanum Bryndísi Sigurjóns- dóttur. Jólakort SPOEX komin út SPOEX, Samtök psoriasis- og ex- em-sjúklinga era 26 ára gömul samtök og í tæp 20 ár hefur jóla- kortaútgáfa verið aðaltekjuöflun samtakanna. Jólakortin í ár era prentuð eftir myndum sem listamaðurinn Sig- urður Þórir Sigurðsson hefur gefið samtökunum og era unnin af Prentsmiðjunni Odda. Psoriasis- sjúklingar era um 5-6.000 á land- inu og enn fleirir exem-sjúklingai-. „SPOEX hefur kappkostað í gégnum árin að efla fræðslu og þjónustu fyrir þennan hóp og starf- rækir m.a. göngudeild fyrir húð- sjúklinga í húsnæði sínu í Bolholti 6 í Reykjavík," segir í fréttatil- kynningu. Kortin era til sölu á skrifstofunni Bolholti 6. LEIÐRÉTT Óður, ekki róður í UMSÖGN í blaðinu í gær um bók Ingólfs Margeirssonar, vai’ð einu erri ofaukið í íyi-irsögninni og varð hún því villandi. Ekki var um að ræða Hríseyjarróður heldur Hrís- eyjaróður. Hlutaðeigendur era beðnir vel- virðingar á mistökunum. i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.