Morgunblaðið - 18.11.1998, Blaðsíða 38
-38 MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
_______AÐSENPAR GREINAR_
Hjálpum náms-
mönnum að læra!
MEÐ HVERJU ár-
inu sem líður eykst
þörfin á tölvuvæðingu
Háskólans. Gerðar eru
kröfur um tölvuunnin
verkefni í öllum deild-
um Háskólans. Enn-
fremur er ætlast til
j*-þess að nemendur
þekki Netið og geti
nýtt sér það á skyn-
samlegan hátt. Þetta
eru sanngjarnar kröf-
ur sem eðlilegt er að
standa undir en því
miður er þar einn
hængur á. Það hafa
ekki allir nemendur að-
gang að tölvum fyrir utan skóla og
enn síður geta allir nemendur
komist á Netið nema þá í skólan-
um.
Tölvuskortur
í Árnagarði
Háskólinn hefur reynt að mæta
þessu með því að setja upp tölvu-
ver í sem flestum byggingum skól-
ans. En eins og allir vita er þrengt
að fjárhag Háskólans á öllum svið-
um, ekki síst þessu. Því mega
nemendur í útbyggingum horfa
upp á að hafa e.t.v. eina nettengda
tölvu fyrir meira en
hundrað manna hóp.
Ekki þarf þó að leita til
útbygginga til að kom-
ast í kynni við dapur-
legan tölvukost. Eg hef
stundað nám mitt í
Ámagarði þar sem
stór hluti heimspeki-
deildar og einnig hluti
félagsvísindadeildar
sækir tíma. Síðast þeg-
ar ég hejmsótti tölvu-
verið í Arnagarði, en
það geri ég daglega,
voru þar tíu PC-tölvur.
Þar af var ein biluð og
hefur sú tölva verið bil-
uð frá septemberbyrjun. Einnig
voru þar tvær Macintosh-tölvur.
Það eru því tólf tölvur sem eiga að
þjóna öllum þeim sem stunda nám
sitt í Árnagarði.
Tölvum
hefur fækkað
Ekki aðeins eru tölvurnar fáar í
Ái’nagarði heldur hefur þeim
fækkað um helming frá því að ég
hóf nám við Háskóla íslands.
Einnig má bæta því við að þessar
tólf tölvur, sem þó eru til, eru
gamlar tölvur sem Árngerðingar
Góð tölvukunnátta, seg-
ir Katrín Jakobsdóttir,
er nauðsynlegur hluti af
námi á nýrri öld.
fengu frá Odda. Það gefur því
augaleið að þau forrit sem við
þurfum að vinna með eru heldur
gamaldags. En þó að tölvurnar séu
slitnar og gamlar þarf iðulega að
bíða í 10-15 mínútur eftir að kom-
ast í tölvu. Það er sárasjaldgæft að
fólk geti gengið að tölvunum og
sinnt erindum sínum án þess að
þurfa að húka í biðröð, bíta á jaxl-
inn og blóta í hljóði.
Háskóli íslands þarf að búa við
góðan tölvukost. Háskólanemend-
ur hafa ekki efni á því að horfa á
þróunarlestina þjóta framhjá og
missa af henni. Góð tölvukunnátta
er nauðsynlegur hluti af námi á
nýrri öld. Því ætla námsmenn ekki
að bíða lengur heldur safna sjálfir.
Við efnum til átaks til að bæta
tölvukost Háskólans og hvetjum
landsmenn alla til að leggja okkur
lið og hjálpa okkur í náminu.
Höfundur er íslenskunemi og situr í
Stúdentnráði fyrir hönd Röskvu.
Katrín
Jakobsdóttir
Amma 09 mamma
eru enn að
nota sínar
í Lavamat W 80
Ég treysti þeim
»Tekur5kg
• Vindingarhraöi: 800/400 snúningar
• Ryðfrír belgur og tromla
»Sjálfvirkt magnskynjunarkerfi nýjasta tækni
• “Fuzzy-Logic" enginn 1/2 takki
• “ÖK0" kerfi (sparar sápu)
• Öll þvottakerfi
»Ullarvagga
»Þvottahæfni "B" Þeytivinduafköst “C"
Verð 59.900,- stgr. j
fLavamat W 1Q1Q
• Tekur 5 kg
• Vindingarhraöi: 1000/600 snúningar
• Ryðfrir belgur og tromla
• Sjálfvirkt magnskynjunarkerfi - nýjasta tækni. “Fuzzy-Logic"
enginn 1 /2 takki
• "ÖK0" kerfi (sparar sápu)
• Öll þvottakerfi ásamt sérstöku blettakerfi
• Ullarvagga
• Þvottahæfni "B" Þeytivinduafköst "C"
Verð 69.900,- stgr. J
Lavamat 74600
• Rafeindastýröur forskriftarvalsrofi (vélin sem
hugsar)
> Sýnir í Ijósaborði gang forskriftar
> Hægt að seinka gangsetningu forskriftar allt að
19t(mum
> Sýnir í Ijósaborði of mikla sápunotkun
> Sérstakur takki fyrir kælingu og aukaskolun
> Tekur 5 kg
> Vindingarhraði: 1400,1000,800,600 og 400
snúningar
> Ryðfrír belgur og tromla
> Sjálfvirkt magnskynjunarkerfi - nýjasta tækni
“Fuzzy-Loglc" enginn 1/2 takki
> "ÖK0” kerfi (sparar sápu)
• "UKS" kerfi, jafnar tau í tromlu fyrir vindingu
» Froðuskynjunarkerfi (bætir við aukaskolun)
• Öll þvottakerfi ásamt sérstöku blettakerfi
»Ullarvagga
> Þvottahæfni "A“ Þeytivinduafköst "B"
Verð 89.900,- stgrTj
Lag
Orugg þjónusta í 75 ár
1
, Vesturiand: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guðni Hallgrímsson, Grundarfirði. Heimahorniö Stykkishólmi. Asubúð,
Búðardal. Vestfirðlr. Geirseyrarbúoin, Patreksfirði. Rafverk, Bolungarvík. Straumur, ísafirði. Norðurland: Kf. Steingrímsfjarðar, Hólmavík. Kf. V-Hún„ Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfiröingabúð, Sauöárkróki. KEA
byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri. KEA, Dalvlk. KEA ólafsfirði. KEA, Siglufirði. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Urö Raufarhöfn. Austurland: Sveinn Guðmundsson, Egilsstöðum. Hjalti Sigurösson, Eskifirði. Kf. Vopnfirðinga, Vopnafirói. Verslunin
Vík, Neskaupstað. Kf. Fáskrúðsfirðinga, Fáskrúðsfirði. KASK, Höfn. KASK, Djúpavogi. Suöurland: Mosfell. Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Rafmagnsverkstæði KR, Hvolsvelli. Jón Þorbergs, Kirkjubæjarklaustri. Klakkur, Vík.
Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanee: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Grindavfk..
SKOÐUN
JARÐGONG
Á TRÖLLA-
SKAGA
Á SÍÐASTLIÐNUM
vetri lagði ríkisstjórnin
fram á Alþingi tillögu
til þingsályktunar um
stefnu í byggðamálum
fyrir árin 1998 til 2001.
Þar segir orðrétt:
„Alþingi ályktar að
fela ríkisstjórninni að
vinna að framkvæmd
stefnumótandi áætlun-
ar um byggðamál fyrir
árin 1998-2001 sem
hafi að markmiði að
treysta búsetu á
landsbyggðinni. Stefnt
verði að því að fólks-
fjölgun þar verði ekki
undir landsmeðaltali
og nemi 10% til ársins 2010.“
Við lestur skýrslu ríkisstjórnar-
innar (10 bls.) kemur glöggt fram
að stórauka þarf fjárframlög til
samgöngumála á næstu árum ef
þessi markmið eiga að nást.
/
Jarðgöng á utanverðum
Tröllaskaga og vetrar-
vegur yfir Lágheiði
Samgöngumálin hér á utanverð-
um Tröllaskaga hafa mikið verið í
umræðunni á undanförnum miss-
erum og margir orðnir langeygir
eftir úrbótum í þeim efnum. Sigl-
fírðingar gera þá eindregnu kröfu
að núverandi samgönguleysi þeirra
við Eyjafjarðarsvæðið verði leyst
með jarðgöngum á milli Siglufjarð-
ar og Ólafsfjarðar um Héðinsfjörð.
Vegagerðin hefur hins vegar látið
frumhanna „heilsársveg“ yfir Lág-
heiði og er sú áætlun komin inn á
vegaáætlun 2004-7. Báðar þessar
lausnir hafa marga annmarka í för
með sér.
Jarðgöng milli Siglufjarðar
og Ólafsfjarðar
Mjög mikill kostnaður fylgir
vegtengingu á milli Siglufjarðar og
Ólafsfjarðar um Héðinsfjörð en
bora þarf tvenn jarðgöng sem eru
samanlagt um 10,2 km að lengd,
samkvæmt nýjustu hönnunartil-
lögum Vegagerðarinnar. Heildar-
kostnaður er áætlaður rúmur 4,1
milljarður króna. Auk þess hefur
þessi lausn í för með sér mikinn
umhverfisskaða að mínu mati, sem
erfitt er að meta til fjár. Héðins-
fjörður er einn örfárra dala í land-
inu sem eru enn ósnortnir af
mannvirkjagerð tengdri vegafram-
kvæmdum. Mikil
verðmæti eru fólgin í
því að hafa Héðins-
fjörðinn ósnortinn fyr-
ir íbúana í nærliggj-
andi sveitarfélögum
með tilliti til ört vax-
andi ferðaþjónustu á
svæðinu. Nauðsynlegt
er að þessar fram-
kvæmdaáætlanir fari í
umhverfismat sem
allra fyrst.
Vegur yfir
Lágheiði
í tillögu að upp-
byggingu heilsársveg-
ar yfir Lágheiði er
gert ráð fyrir að þær framkvæmd-
ir kosti u.þ.b. 700 milljónir króna.
Þessi vegtenging frá Ketilási til
Ólafsfjarðar er um 40 km löng og
liggur hæst í um það bil 400 m
hæð og er Lágheiðin einn snjó-
þyngsti fjallvegur á landinu. Vet-
urinn 1995 var mjög snjóþungur
Jarðgöng úr Fljótum til
✓
Olafsfjarðar eru, að
mati Trausta Sveins-
sonar, góður og hag-
kvæmur kostur.
og er það samdóma álit kunnugi'a
að ekki hafi verið hægt að opna
Lágheiðarveginn á tímabilinu 10.
janúar til aprílloka vegna fann-
fergis og ótíðar, þó svo að búið
hefði verið að byggja veginn upp
eins og nú er ráðgert.
Það kom skýrt fram hjá öllum
pólitískum fulltrúum sem buðu
sig fram í sveitarstjórnarkosning-
unum á Siglufirði í vor að þeir
sætta sig ekki við uppbyggingu
Lágheiðarvegar sem framtíðar-
lausn í samgöngumálum við Eyja-
fjarðarsvæðið. Nútíma atvinnu-
rekstur krefst góðra samgangna
við næstu byggðakjarna, nánast
daglega. Einnig vegur það mjög
þungt, þegar ungt fólk tekur
ákvarðanir sínar um framtíðarbú-
setu, hversu greiðar samgöngur
eru og hvað langt er til næstu
þjónustukjarna.
Besta ráðið til að tryggja góða
þjónustu í samgöngumálum, sem
Trausti
Sveinsson
Reykvíkingar
Munið
borgarstjórnarfundinn
á morgun kl. 17.00
sem útvarpað er á