Morgunblaðið - 18.11.1998, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 18.11.1998, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1998 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ JON KARL HELGASON ÆTURGA KARL HEl Næturgalinn er bók sem leynir á sér... hún er vel samin og þolir vel að vera lesin aftur. Textinn er þéttur og vísar í sjálfan sig fram og aftur og bókin vinnur á við frekari lestur. Sagan er könnun á ástinni og jafnframt könnun á skáldskapnum... (Geir Svansson. Mbl. 17. nóv. 1998) 7 Söngur næturgalans hljómar undir í öllum ástarsögunum undurfagur og seiðandi söngur sem laðar og lokkar... Vönduð og vel unnin saga... (Sigríður Albertsdóttir. DV 2. nóv. 1998) Á fimlegan hátt skapar Jón Karl Helgason nýtt dulmál ástarinnar í þéttofnum texta sínum. Úlfhildur Dagsdóttir, RÚV BJARTUR AUGLÝSINGADEILD Sími: 569 1111, Bréfsími: 569 1110 Netfang: augl@mbl.is yiTnibl.is __ALLTAf= A/ÝTT Oíiirhug-inn Einar Benediktsson Einar Þorvaldur Benediktsson Gylfason ÞATTAROÐ Itíkiss jónvarpí rt AÐ BYGGJA LAND 2. þáttur. Ofurhuginn. Höfundur texta og þulur: Þorvaldur Gylfason prófessor en hann er jafnframt fram- leiðandi og valdi tónlistina. Mynd- handrit: Jón Egill Bergþórsson. Höf- undur leikmyndar: Vignir Jóhanns- son og Jón Egill Bergþórsson. ANNAR þátturinn í röðinni Að byggja land var sýndur í Sjónvarp- inu á sunnudagskvöld. Rætt er um hagstjórnarhugmyndasögu Islend- inga á 19. og 20. öld með hliðsjón af þremur einstaklingum, þeim Jóni Sigurðssyni, Einari Benediktssyni og Halldóri Laxness og fléttað inn í írásögnina „ýmsu efnahags- og menningarsögulegu efni sem varðar þessa menn og hagstjómarhug- myndir þeirra“ eins og segir í dag- skrárkynningu. Þátturinn um helg- ina fjallaði um framfarasinnan, at- hafnamanninn og stórskáldið Einar Benediktsson og nefnist Ofurhug- inn. Einar Benediktsson var á ung- lingsaldri þegar Jón Sigurðsson lést árið 1879. Faðir Einars, Benedikt Sveinsson alþingismaður og sýslu- maður Þingeyinga, varð þá einn helsti leiðtogi Islendinga í sjálf- stæðisbaráttunni en hafði ekki sama hagstjómarskilning og Jón Sigurðsson og telur Þorvaldur Gylfason smám saman hafa fymst yfir hina þungu áherslu sem Jón forseti lagði á frjáls viðskipti og nauðsyn erlends fjármagns til fram- kvæmda. En Einar Benediktsson hafi verið annarrar skoðunar og hafið hagfrelsismerki Jóns forseta hátt á loft að nýju, hafi viljað berj- ast fyrir efnalegri og andlegri við- reisn íslensku þjóðarinnar enda sveið honum sárt hve Islendingar vora skammt á veg komnir í fjár- hags- og framfaramálum í saman- burði við ýmsar nágrannaþjóðir. Reyndar er iðulega vísað til Jóns forseta í Ofurhuganum og þeir Einar bornir saman, t.d. er vitnað til þess að skapgerð þeirra hafi verið um margt býsna ólík. Einar hafi oft ver- ið illskeyttur og ómildur í dómum um menn og málefni og því eignast marga andstæðinga. Þótt Jón Sig- urðsson gæti verið harður í horn að taka hafi hann kostað kapps um að láta menn njóta sannmælis og þakka þeim vel unnin störf enda eignaðist hann marga dygga samherja. Þor- valdur Gylfason telur að trúlega hafi óvægni Einars og hranalegur mál- flutningur verið honum fjötur um fót i hinu smáa íslenska samfélagi, dreg- ið úr sannfæringarkrafti hans og gert að verkum að honum varð lítt ágengt um helstu áhugamál sín. Báðir hafi þeir verið einarðir þjóð- emissinnar en ekki síður eindregnir alþjóðasinnar, Einar hafi þó verið meiri heimsborgari en Jón og mun víðföralli. Sögulegur og menningar- Síðustu sýning-ar Aldarafmæli Brecht FIMMTA og síðasta sýning á dagskrá í tilefni af aldarafmæli Bertolts Brecht verður fimmtudaginn 19. nóvember. Um er að ræða tónlistardag- skrá í leikrænum búningi sem byggir á 16 lögum úr verkum Brechts. Nýjar þýðingar kvæðanna era eftir Þorstein Gylfason. Lausamálstexti er eftir Þorstein Gylfason og Þor- stein Þorsteinsson. Það er Sif Ragnhildardóttir sem syngur lögin. legui- metnaðui- íyrir hönd þjóðar sinnar hafi knúið þá áfram og báðir hafi kunnað mikið íyrir sér í hag- fræði, raunar telur hagfræðingurinn Þorvaldur Gylfason margt benda til þess að Einar hafi kunnað hagfræði umfram flesta samtíðarmenn sína þótt engar heimildir séu til marks um það að hann hafi lært þau fræði af bókum. Einar Benediktsson hafi hins vegar verið gerólíkur Jóni Sig- urðssyni að því leyti að Einar fór gjaman ótroðnar slóðir og var hvergi banginn við að berjast þótt á brattann væri að sækja, Jón hafi á hinn bóginn yfirleitt tekið minni áhættu. Hvort sem menn samþykkja þessa greiningu eður ei þá gerir samanburðurinn það að verkum að áhorfandinn finnur glöggt að hér er þáttaröð á ferð en ekki einangraðir sjónvarpsþættir, efnið kallast á og vinnur jafnvel saman á köflum. Und- ir lok Ofurhugans er síðan tengt við Halldór Laxness en lokaþátturinn hefur hann einmitt í forgranni. Ofurhuginn er í stórum dráttum byggður líkt upp og sá um braut- ryðjandann Jón Sigurðsson. Þáttur- inn skiptist í sjö kafla þar sem fjall- að er um tiltekin atriði í hugmynd- um og lífi Einars Benediktssonar og tengt við samtíð hans og nútímann. í þeim fyrsta, „Stórskáld smáþjóð- ar“, er dvalist stuttlega við lokaár Einars þar sem hann lifir i hálf- gerðri einangran frá umheiminum í Herdísarvík, maðurinn sem barðist einmitt ötullega gegn einangrun lands og þjóðar. Upprifjun á hátíð- ardagskrá útvarpsins á 75 ára af- mæli hans fáeinum mánuðum fyrir andlátið og vísun í minningargrein- ar þar sem meira var rætt um skáldið en athafnamanninn Einar Benediktsson gefur handritshöf- undi tilefni til að huga nánar að við- horfi hans til efnahags- og atvinnu- mála. í öðrum kafla, „Arftaki Jóns forseta", er m.a. fjallað um skrif Einars í blað sitt Dagskrá, fyrsta dagblað á Islandi, þar sem hann benti á ýmsar nýjungar til atvinnu- sköpunar og tók virkan þátt í stjórnmálaumræðunni. I þriðja kafla, „Jafnaðarmaður", kynnast áhorfendur baráttu Einars fyrir bættri fátækralöggjöf sem hann taldi ómannúðlega, þjóðfélag- inu til ómetanlegs tjóns og bæla nið- ur framfarir þjóðarinnar. Vísað er til þess að Steingrímur J. Þorsteins- son, fyrsti ævisöguritari Einars, hafi komist að þeirri niðurstöðu að Einar hafi orðið afhuga jafnaðarstefnu, áhuginn á eflingu efnahags hafi orð- ið að auðhyggju en umhyggjan fyrir alþýðunni hjaðnað fljótt enda rist grannt. Þessu viðhorfi vísar Þor- valdur Gylfason á bug, segir Einar vissulega hafa hafnað þjóðnýtingu framleiðsluafla en telur hann ekki hafa verið minni jafnaðarmann fyrir því. Einar hafi einfaldlega verið langt á undan sinni samtíð og vísar til þess að þýskir jafnaðarmenn hafi sagt skilið við ríkiseigna- og þjóð- nýtingarstefnu upp úr miðri 20. öld og tekið upp markaðsbúskapar- stefnu, breskir jafnaðarmenn hafi farið svipaða leið enn síðar. Og Þorvaldur skirrist ekki við að vísa til samtímans frekar en í þættinum um Jón Sigurðsson, hann segir: „Réttlæt- is- og hagsældarhug- sjón Einars Bene- diktssonar um jöfnuð í skjóli fjármagns hefur aldrei verið í íyllra samræmi við stefnu evrópskra jafnaðar- manna en einmitt nú á dögum.“ Ekki er víst að allir séu reiðubúnir til að skrifa upp á það að Einai' teljist „nú- tímaj afnaðarmaður “ og nútímahugtök geta verið vand- meðfarin þegar fjallað er um fortíð- arfyrirbæri því þau geta átt misjafn- lega við fyrri tíð. Hitt er víst að Ein- ar Benediktsson var framsýnn á fjölmörgum sviðum, og Þorvaldur Gylfason bendir einnig á að kveð- skapur hans beri vitni um djúpa samúð með þeim sem standa höllum fæti. í fjórða kafla, „Afl þeirra hluta sem gjöra skal“, er fjallað um at- hafnasemi Einars, sem bjó erlendis 1907-1921 og kom víða við, fyrirtæki sem hann tengdist, fossaviðskipti hans á íslandi, virkjunarhugmyndir og verksmiðjuáform, þá sem reyndu að leggja stein í götu hans og afdrif ýmissa mála. Ymsar hugmyndir hans eru settar fram í tilvitnunum sem Einar mælir sjálfur í gervi Pálma Gestssonar leikara. Ræðurn- ar eru eldheitar og augljóst að af- staða hans til erlends fjármagns er afar jákvæð. Tengt er við stórpóli- tísk mál í nútímanum, deilur um veiðigjald fyrir afnotarétt af fiski- miðunum og erlenda fjárfestingu í íslenskum útvegsfyrirtækjum, og þannig hrist upp í áhorfandanum þótt vafalaust finnist einhverjum slíku efni ofaukið í sögulegum þætti. I fimmta kafia, „Endurreisn ís- lensku í Norðurálfu", og þeim sjötta, „Hergögn og hebreska", er m.a. fjallað um liðsinni Einars við Jóhannes Kjarval og Jón Helgason prófessor á námsárum þeirra og hinn síkvika hug Einars en hann var jafnvel uppfinningamaður. í lokakaflanum, „Raunheimar, ósk- heimar“, kemur fram að hann hafi verið höfuðskáld þjóðarinnar síð- ustu tuttugu ár ævinnar. Ái'angur hans í veraldlegri umsýslu hafi hins vegar verið minni en hugur stóð til og hann hafi beðið lægri hlut í nán- ast öllum helstu hugðarmálum sín- um. En sigur hans kom síðar enda er það rauði þráðurinn í þættinum að Einar Benediktsson hafi verið á undan sinni samtíð, stundum langt á undan. Nýjungamaður í hugsun ogyiðhorfum. I leikmynd Ofurhugans er farin svipuð leið og í fyrsta þættinum, áhorfandinn fylgist með Vigni Jó- hannssyni hanna myndverk á vegg í samhengi við texta handritshöfund- ar. Eftir fyrsta þáttinn kemur þessi aðferð ekki eins mikið á óvart og áð- ur, áhorfandinn er betur með á nót- unum frá upphafi. En ýmsar skemmtilegar lausnir er að finna innan þessa ramma og eins og áður kallast á nútími og fortíð þar sem er hið tæknivædda umhverfi lista- mannsins og munir frá fyrri tíð sem hann vinnur með á ýmsan hátt. I lok þáttarins er smiðshöggið á mynd- verkið rekið með eins konar „brú“ milli Einars, eða öllu heldur mál- verks af honum, og áhorfandans sem verður því greinilegri eftir því sem myndavélin fjarlægist vegginn, „brú“ sem tengir saman nútíð og fortíð líkt og hugmyndir Einars Benediktssonar í upphafi aldar tengjast nútímanum. Eggert Þór Bernharðsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.