Morgunblaðið - 18.11.1998, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.11.1998, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Islendingar 1 fímmta sæti í farsímanotkun í Evrópu FÁRSÍMANOTKUN í EVROPU I SEPT. 1998 Fjöldi farsímanotenda á hverja 1000 íbúa Land/Ríki o Jersey írland Andorra Bretland Holland Grikkland Frakkland Spánn Kýpur Jörðin fer á fleygiferð í gegnum loftsteinabelti Eins og flug- eldasýning Þriðji hver Islending- ur farsíma- notandi ÍSLENDINGAR eru komnir í fimmta sæti jrfír fjölda notenda far- síma í Evrópu á hverja þúsund íbúa og þriðji hver íslendingur er nú skráður farsímanotandi samkvæmt tölum frá því í september síðastliðn- um. Fyrir ofan okkur eru Norður- löndin Finnland, Noregur og Sví- þjóð, auk Mónakó, og litlu færri far- símanotendur hlutfallslega en hér eru í Danmörku og á Ítalíu. Flestir skráðir farsímanotendur eru í Finnlandi, þar sem rúmlega annar hver Finni var skráður far- símanotandi í september. Næstir komu Norðmenn með 453 farsíma á hverja þúsund íbúa og þar næst Sví- ar með 439 farsíma á hverja þúsund íbúa. Hér á landi voru farsímar 342 á hverja þúsund íbúa og hefur enn fjölgað nokkuð frá þeim tíma sam- kvæmt upplýsingum Ólafs Stephen- sen, forstöðumanns upplýsinga- og kynningarmála hjá Landssímanum. Tæplega 91 þúsund notendur Samkvæmt þessum tölum voru notendur í GSM-kerfí Landssímans 58.260 og Tal var með 6.500 notend- ur. Til viðbótar voru notendur í NMT-kerfí Landssímans 26.200 talsins. Samanlagt eru þetta tæp- lega 91 þúsund notendur. Fjölgun notenda hefur verið mjög ör undan- farna mánuði hér á landi og í mörg- um löndum Evrópu. Til að mynda hefur farsímanotendum hér á landi fjölgað um nærfellt þriðjung það sem af er þessu ári. Ólafur sagði að þessi þróun sýndi að íslendingar væru mjög fljótir að tileinka sér nýjungar. Til að mynda værum við nú komnir upp fyrir Dani hvað fjölda farsíma á hverja þúsund íbúa varðaði, þó byrjað hefði verið að starfrækja GSM-kerfíð þar tveimur árum áður en það var tekið í gagnið hér á landi. Ólafur sagði einnig að öflug upp- bygging GSM-kerfisins hér á landi skýrði einnig hluta þessarar þróun- ar. Landssíminn hefði verið að byggja upp kerfíð á þéttbýlisstöðum úti á landi og margir nýir notendur hefðu bæst við þar. Síðan væri það samkeppnin sem hefði hafíst á þessu sviði íyrr á árinu. „Sam- keppnin hefur leitt til lægra verðs og stækkað markaðinn. Lægra verð gerir fleirum kleift að eignast síma og við vonum að sjálfsögðu að það verði áframhald á þvi að samkeppn- in lækki verðið og ennþá fleiri geti nýtt sér þessa þjónustu," sagði Ólafur ennfremur. ÞEIR sem höfðu búið sig undir það mikla sjónarspil, sem sést hinn 17. nóvember á 33 ára fresti, þegar jörðin fer í gegnum Ioft- steinabelti halastjörnunnar Temple-Tuttle, gætu hafa orðið fyrir vonbrigðum, því áreksturinn varð sólarhring fyrr en ætlað var. Þó voru allmargir sem urðu vitni að því þegar loftsteinar brunnu upp í gufuhvolfinu aðfaranótt þriðjudags og sáust þeir vel á Norðausturlandi. Hali halastjörn- unnar er um 100 þúsund km þykkur þar sem hann er þéttastur og sjálf halastjarnan, sem gengur þvert á sporbaug jarðar, skar fer- il hennar í byijun mai-s á þessu ári. Eftir stendur halinn, sem gerður er úr steinum, ís og ryki. Jörðin fer síðan á sporbraut sinni umhverfis sólu með 30 km hraða á sekúndu í gegnum halann og þá hefst sjónarspilið fyrir alvöm. Eins og flugeldasýning Norðlendingarnir Helgi Ólafs- son og Björgvin Þóroddsson voru á leiðinni frá Húsavík til Raufar- hafnar klukkan 1 eftir miðnætti aðfaranótt þriðjudags og nutu ljósadýrðarinnar úr bflnum á leiðinni. „Þetta var alveg eins og á gamlárskvöld," sagði Helgi. „Við tókum ekkert eftir þessu fyrr en við komum inn í Keldu- hverfið, en þaðan stóð ljósadýrð- in yfir þangað til við komum að Höskuldarnesi.“ Þeir félagarnir námu aldrei staðar, heldur óku áfram undir björtum himninum og nutu Ijómans af brennandi loftsteinum í um klukkustund. „Þetta var eins og flugeldasýning og stærstu „bombuna" sáum við norður úr Hraunhafnartanga. Manni fannst sumir steinanna vera komnir niður undir jörð, slík var nálægðin, og einn lýsti eins og geisli af vasaljósi, sem maður heldur á í svartamyrkri og snýr í hringi þvf ég sá dökkt inni í miðju bjarmans og ljós- hringi utan við.“ Helgi og Björgvin höfðu ekki hugmynd um að jörðin væri á hraðri leið inn í loftsteinabelti og því kom það þeim á óvart að sjá sjónarspilið. „Það er ótrúleg til- viljun að vera á ferðalagi undir heiðskírum og stjörnubjörtum himni og keyra inn í þetta,“ sagði Helgi. Miklu meira en ég hélt Nokkru seinna eða um óttubil var Kjartan B. Guðmundsson flugstjóri hjá Flugleiðum á leið til Islands frá Minneappolis. Hann vissi að von var á miklu stjörnuhrapi, en grunaði ekki að l>að yrði eins mikið og raun varð á. Ur flugstjórnarklefanum sá hann í norðri mikinn bjarma af stjörnuhrapi næturinnar. „Þetta var miklu meira en ég hélt,“ sagði Kjartan. „Glamparnir komu fyrst á tíu mínútna fresti og síðar með mínútu millibili." Flugleiðin lá mjög norðarlega og sagði Kjartan að mest liefði borið á ljósadýrðinni milli Labrador og vesturstrandar Grænlands. „Manni virtist glampinn frá sum- um steinunum vera mjög nálægt og það logaði í 10-15 sekúndur á hala þeirra. Það var synd að vera ekki með myndavél,“ sagði hann. Ný heimasíða Framsóknarflokksins ■■■■ . :■■/ Morgunblaðið/Árni Sæberg HALLDÓR Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, opnaði nýja heimasíðu Framsóknarflokksins. Hluti flokksþingsins sendur út á Netinu HLUTI af flokksþingi Framsóknar- flokksins, sem fer fram um helgina, verður sendur út á Netinu. Halldór Asgrímsson, formaður Framsókn- arflokksins, opnaði í gær nýja heimasíðu. Hún hefur m.a. að geyma drög að velflestum ályktun- um sem lagðar verða fram á flokks- þinginu. Almenningi gefst kostur á að koma með ábendingar á Netinu og tillögur að breytingum. Egill Heiðar Gíslason, fram- kvæmdastjóri Framsóknarflokks- ins, sagði að hér væri á ferðinni ný- breytni hjá íslenskum stjórnmála- flokki. Með þessu væri flokkurinn að reyna nýja leið til að nálgast kjósendur. Hann sagði að þeim sem hefðu aðgang að Netinu gæfíst þarna tækifæri til að fylgjast með hluta af þingstörfum, m.a. setning- arræðu formanns flokksins. Ræðan og fleiri þinggögn yrðu geymd inni á heimasíðunni þannig að fólk gæti nálgast þau hvenær sem væri. Almenningi gefst tækifæri til að koma með ábendingar og athuga- semdir um þær tillögur sem lagðar verða íyrir þingið fram til kl. 17 á morgun. Athugasemdimar verða síðan teknar til athugunar í nefndum þingsins en það hefst á fóstudag. Skoðanakönnun Gallup á Islandi Tæp 60% fylgjandi mið- lægum gagnagrunni MEIRIHLUTI landsmanna, eða 58%, er fylgjandi írumvarpi um mið- lægan gagnagrunn á heilbrigðissviði sem nú liggur íyrir Alþingi. Rúmlega 19% eru andvíg íhimvarpinu en meira en 22% segjast hvorki íylgjandi né andvíg. Rúmlega 13% telja sig hafa mjög eða frekar mikla þekkingu á írumvarpinu en rúmlega 55% telja sig hafa mjög eða frekar litla þekkingu á frumvarpi um miðlægan gagnagrunn. Næstum 65% þeirra sem afstöðu tóku eru hlynnt því að persónulegar heilsufarsupplýsingar um þau verði skráðar í slíkan gagnagrunn en tæp- lega 21% er því andvígt. Rúmlega 14% segjast hvorki hlynnt því né andvíg að heilsufarsupplýsingar þeirra verði skráðar í miðlægan gagnagrunn. Af þeim sem telja sig hafa mikla þekkingu á frumvarpinu eru ríflega 60% fylgjandi því og tæp- lega 34% andvíg. Af þeim sem telja sig hafa mikla þekkingu á frumvarpinu eru næstum 66% hlynnt því að persónulegar heil- brigðisupplýsingar um þau séu skráðar í miðlægan gagnagrunn. Rúmlega 28% þeirra eru því andvíg. Fjórir af hverjum fímm þeirra, sem eru hlynntir því að heilsufars- upplýsingar um þá séu skráðar í miðlægan gagnagrunn, eru fylgjandi frumvarpinu um miðlægan gagna- grunn. Á hinn bóginn eru rúmlega 73% þeirra, sem eru andvígir því að skráðar séu upplýsingar um þá í slík- an gagnagrunn, einnig andvíg frum- varpi um miðlægan gagnagrunn sem nú liggur fyrir Alþingi. Marktækur munur er á afstöðu fólks til gagna- SKOÐANAKÖNNUN GALLUP Á ÍSLANDI: Ertu fylgjandi eða andvíg(ur) frumvarpi um miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði sem nú liggur fyrir Alþingi? Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur því að persónulegar heilsu- farsupplýsingar um þig verði skráðar í slíkan gagnagrunn? grunnsfrumvarpsins eftir aldri. Þannig eru þeir yngri síður fylgjandi frumvarpinu en hinir sem eru eldri. Flefri karlar en konur telja sig hafa mikla þekkingu á frumvarpinu sem fyrir Alþingi liggur, eða tæplega 17% karla en um 10% kvenna. Einnig hef- ur hærra hlutfall höfuðborgarbúa mikla þekkingu á fiumvarpi um mið- lægan gagnagiunn en þeir sem búa á landsbyggðinni. Þá kemur fram að með hækkandi tekjum er þekking fólks marktækt meiri og með hæni aldri minnkar þekkingin. Spurt var: Ertu fylgjandi eða and- víg(ur) frumvarpi um miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði sem liggur nú fyrir á Alþingi? Hversu mikil eða lítil er þekking þín á frum- varpi um miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði sem liggur nú fyi-ir á Alþingi? Ertu hlynnt(ur) eða and- víg(ur) því að persónulegar heilsu- farsupplýsingar um þig verði skráð- ar í slíkan gagnagrunn? Könnun fór fram í síma 4.-15 nóv- ember. Úrtakið var 1.166 menn af öllu landinu á aldrinum 18-75 ára sem valdfr voru með tilviljun úr þjóðskrá og af þeim svöruðu 69,2%. Vikmörk svara í þessari könnun eru á bilinu 1-4%.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.