Morgunblaðið - 18.11.1998, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 18.11.1998, Blaðsíða 50
50 MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Eg er mannvera! Frá Þórunni Kristínu Emilsdóttur: EÐA ER það spurning um hvernig litið er á málið? Ég hef verið iðju- söm og starfsglöð frá því að ég var 13 ára gömul og hef verið að læra á lífið og tilveruna í tæp 50 ár. Eign- aðist fjórar mannvænlegar mann- verur sem ég reyndi að innræta jafnræði og bræðralag og ekki síst það að hver mannvera væri sérstök í sinni mynd og byggi ævinlega yfir einstökum kostum sem bæri að rækta vel og hlúa að og það ætti ekki að skipta máli hvort mannver- an er karlkyns eða kvenkyns (ekki satt!!). Ég hafði líka áhuga á að mennta mig því mennt er máttur!! Og fékk titilinn meistari í mínu fagi. Fékk mjög svo áhugaverð og krefjandi störf í kjölfarið sem gáfu mér mikla reynslu og þroska, ásamt virðingu fyrir samstarfsfólki mínu og viðskiptavinum. Mér fannst eins og lífið gæti ekki verið mér betra. Góðan maka, heilbrigð börn, góða og krefjandi vinnu og góð laun. Ég leit á það sem forrétt- indi að fá að fæðast sem mannvera. En þá fór heilsan að bila og á of stuttum tíma þá varð ég óvinnufær með öllu (yfir 75% öryrki). Petta var alveg ný lífsreynsla sem þurfti tíma til að venjast, frá athafna-mannveru til hreyfiskertr- ar og orkutæmdrar en sem betur fer er ég svo lánsöm vera að ég hef alltaf getað átt almættið sem minn einka (besta) vin svo ég spjalla oft og lengi við vin minn. Ég er ennþá lánsöm mannvera, ég á ennþá góð- an maka, heilbrigð börn og barna- börn og gleði í hjarta. En þetta stórkostlega samfélag sem mér fannst svo öruggt og gott að búa í lítur allt öðrum augum á mig núna en áður, ég er ekki lengur í gildi, ég þarf hvorki að fæða mig né klæða, aka bíl, né rétta mínum nánustu smá gjafir á jólum og af- mælum, hvað þá heldur bruðl eins og bíóferðir eða leikhús. Nei, 15.063 krónur á mánuði eiga að duga mér íyrir lyfjum, sjúkraþjálfun og flutn- ingi til og frá læknum, þjálfurum og svo framvegis. Af hverju? Jú, sjáið þið til, makinn minn varð að auka við sig vinnu því hann var orðinn eina fyrirvinna heimilisins. Ég veit að það eru svo margar mannverur úti í þjóðfélaginu okkar sem hafa það margfalt bágara en ég, en það réttlætir ekki að mér sé misboðið sem mannvera. Ég á erfitt með að sætta mig við að vera álitin ónothæf mannvera af opinberum aðilum og að ég hafi ekki rétt á að njóta þess sem er kallað (í velferðarþjóðfélagi) al- menn mannréttindi. Eg verð að við- urkenna að ég hef fæði og húsnæði vegna þess að maki minn þrælar sér út, en ég, börnin og barnabörn- in fáum ekki að vera mikið með honum því hann er jú alltaf að vinna og hvernig fer svona mikil vinna með miðaldra mannveru? Er verið að skapa þarna annan ör- yrkja? Hvað verður þá um afkomu okkar? Pað eru svo ótal margar mann- verar í þjóðfélaginu sem eiga ótrú- lega erfíða ævi og miðað við marga þá bý ég við mjög góð kjör (ennþá). Þetta varðar ekki bara mig og mína heldur ótal aðrar mannverur í svip- uðum sporam. Ráðamenn, við völdum okkur ekki það hlutverk að verða öryrkj- ar, ekki auka á vanmáttarkennd okkar með því að setja okkur í út- jaðar velferðarkerfisins. Ég vona að þessi litli pistill gefi þeim, sem málið varðar, umhugsun- arefni. ÞÓRUNN KRISTÍN EMILSDÓTTIR, Víghólastíg 4, 200 Kópavogi. Segðu mér satt Opið bréf til Bjarna Hafþórs Helgasonar: Ferdinand HERE, UlE'RE 6IVIN6 AWAV A D0U6HNUT WITM EV/ERy' 5UB5CRIPTION TO THE "SREAT PUMPKIN'/NEU)5LETTER l'LL TAKE A D0U6HNUT, BUT I LUOULPN'T REAP YOUR ? NEW5LETTERIF IT WERE THE f LA5T NEW5LETTER ON EARTH.. | Gjörðu svo vel, við gefum kleinu- hring með hverri áskrift að fréttabréfinu „Graskerið mikla.“ Ég skal taka við kleinuhringnum, en ég Iæsi ekki fréttabréfið þitt þó það væri síðasta fréttabréfið á jörðinni... Fáðu þér einn með kókoshnetu... Frá Grétari Mar Jónssyni: ÉG hef fylgst með hluta þess sem þú hefur skrifað um kvótamál, framsal veiðiheimilda og fleira. Ég hef ekki fylgst með öllu sem hefur komið frá þér, en ég held nógu miklu til að fá að vita nokkuð áður en ég get tekið afstöðu til þess sem þú heldur fram. Það sem mig vant- ar að vita er ég viss um að þú getur svarað mér án mikillar fyrirhafnar. Hér á eftir mun ég bera fram nokkrar spurningar, röð þeirra hef- ur ekkert með mikilvægi þeirra að gera. Kannski er ég ekki nógu skipulagður í skrifum mínum, enda er ég-ekki eins fær þar og þú ert. Ég vonast til að þú sjáir aumur á mér og gerir ekki stórt úr stíl mín- um og framsetningu. Jæja, fyrsta spurning: Ætlar þú að vera svo vænn að svara mér hversu miklar aflaheim- ildir fyrirtæki stjórnannanna í Út- vegsmannafélagi Norðurlands hafa leigt frá sér á síðustu þremur áram, helst vildi ég að þú yrðir svo vænn að geta um hvert ár fyrir sig. Eins væri gott að fá að vita hversu miklar aflaheimildir sömu fyrirtæki hafa selt frá sér á sama tíma. Og í framhaldi af þessu vildi ég fá að vita hversu háar fjárhæðir fyrirtækin hafa haft með þessum viðskiptum, og endilega sundirliðað. Þar sem þessar spurningar era aðeins helmingur þess sem ég vil vita hvað þetta áhrærir vildi ég fara fram á að þú svaraðir mér hver kostnaður sömu fyrirtækja er af leigu eða kaupum á aflaheimildum. Sjálfur treysti ég mér til að reikna hver mismunurinn verður þegar þú hefur svarað spurningun- um hér að ofan, Bjarni Hafþór Helgason. Þannig er með mig hátt- að að ég vil helst ekki leggja mikið upp úr því sem þú skrifar fyrr en ég er viss um að mat þitt á ágæti framsalsins tengist ekki á nokkurn hátt afkomu fyrirtækja þeirra manna sem hafa ráðið þig til starfa. Þar sem þú ert ekki bara fær á pennann heldur og einnig ansi hreint duglegur til skrifta bíð ég þess varla lengi að fá svar við þess- um fábreyttu spurningum mínum. GRÉTAR MAR JÓNSSON, forstöðumaður Vísis, félags skip- stjórnarmanna á Suðurnesjum. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að Iútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.