Morgunblaðið - 18.11.1998, Side 12

Morgunblaðið - 18.11.1998, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Utandagskrárumræða um breytingar á skipulagi lögreglustjóraembættisins Hart deilt á dómsmálaráð- herra fyrir málsmeðferð Þorsteinn Pálsson segir tillögur VSÓ miða að því að gera stjórnskipulag lögreglunnar allt markvissara HART var deilt á Þorstein Pálsson dómsmálaráðherra fyrir málsmeð- ferð í sambandi við breytingar á skipulagi lögreglustjóraembættisins í Reykjavík í utandagskrárumræð- um á Alþingi í gær. Efuðust þing- menn sem til máls tóku um að fyrir- hugaðar breytingar á starfssviði lög- reglustjóra stæðust lög, og sökuðu þeir dómsmálaráðherra um að gi'afa undan lögi'eglustjóranum. Ögmundur Jónasson, þingflokki óháðra, hóf utandagskrárumræðuna og kallaði hann skýrslu verkfræði- stofunnar VSÓ um lögreglustjóra- embættið handarbaksvinnubrögð. Út yfir allan þjófabálk hefði þó tekið þegai- dómsmálaráðuneytið hefði falið yfirmönnum lögreglunnai' að framfylgja tillögum VSO þótt þær væru mjög umdeildar, vanhugsaðar og síðast en ekki síst stönguðust á við landslög. „Þetta eru þungar ásakanh'. Það eru þung orð að halda því fram að dómsmálaráðherra landsins hafi falið æðstu mönnum lögreglunnar að fremja lögbrot," sagði Ögmundur. Hann vitnaði í þessu sambandi í 6. grein lögreglulaga, þar sem segir að lögreglustjórar fari með stjóm lög- regluliðs hver í sínu umdæmi og þeir annist daglega stjórn og rekstur lög- reglunnar í umdæmi sínu og beri ábyrgð á framkvæmd lögreglustarfa innan þess. Sagði Ögmundur að VSÓ legði til að lögreglustjórinn í Reykja- vík verði sviptur mannaforráðum sem honum séu þó ákvörðuð í áður- nefndri lagagrein. Engin lokaákvörðun verið tekin Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð- herra sagði meðal annai-s hafa komið fram í skýrslu VSÓ eftir ítarlega út- tekt að helstu veikleikar lögreglu- stjóraembættisins væru að mikill fjöldi starfsheita væri án ábyrgðar, millistjórnendur væru óvirkir, boð- leiðir óskýrar, æðstu embættismenn eyddu miklum tíma í að fjalla um smæstu málefni og staða og hlutverk varalögreglustjóra væri óljós. Tillög- ur VSÓ miðuðu að úrbótum á þess- um sviðum og að því að gera stjórn- skipulagið allt markvissara. „Það hefur engin lokaákvörðun verið tekin því þetta er allt enn í vinnuferli. Eg geri ráð fyrir að í þessu vinnuferli eigi eftir að koma upp ýmsar athugasemdir sem síðan verða skoðaðar og reynt verði að taka afstöðu til því það er auðvitað svo að umfjöllun um mál af þessu tagi hlýtur að skýra og koma fram með ný atriði sem ég vona að öll geti stuðlað að því að gera þetta skipulag betra og heilsteyptara. En því fer al- veg víðsfjarri að hér hafi verið nokk- uð gert sem víki gegn lögum. Hér er verið að byggja upp heilsteypt kerfi í fullri sátt við yfirstjórn lögreglunnar og ég er sannfærður um að það mun leiða til markvissari og betri stjórn- unar þegar búið er að fara yfir þæi' athugasemdir og taka endanlegar ákvarðanir," sagði dómsmálaráð- herra. / Samstarf lækna og Islenskrar erfðagreiningar Ráðherra spurður hvort greiðslur hafi runnið til lækna fyrir upplýsingar? Morgunblaðið/Ásdís ÞORSTEINN Pálsson dómsmálaráðherra í ræðustól í umræðum um breytingar á skipulagi lögreglustjóraembættisins í Reykjavík. námi. Samhljómur innan lögreglunn- ar hefði verið rofinn með skipuriti þar sem ekki hefði verið haft samráð við yfirstjórn lögreglunnar og hinn almenna lögreglumann. „Það leiðir augljóslega til tortryggni og veikir þar af leiðandi lögregluna sem eina heild,“ sagði hann. Jón Kristjánsson, Framsóknar- flokki, sagði að hann treysti dóms- málaráðherra til að vinda ofan af þessu máli og taka það upp í samráði við lögreglustjórann í Reykjavík og lögreglumenn í landinu. Engin tilraun gerð til að draga úr valdi lögreglustjóra Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð- herra sagði engan þingmanna hafa fært ein einustu rök fyrir því að ver- ið væri að gera þær breytingar á skipulagi lögreglunnar í Reykjavík sem brjóti í bága við lög. Enda gengi það í sjálfu sér ekki upp því allt skipulag yrði að vera í samræmi við lög og yrði auðvitað aldrei á annan veg. „I öðru lagi þá liggur það í augum uppi, lögum samkvæmt og í sam- ræmi við þetta skipulag, að lögreglu- stjórinn í Reykjavík er æðsti yfir- maður lögreglunnar í Reykjavík og ber þai' fulla ábjrgð sem slíkur. Það hefur ekki minnsta tilraun verið gerð til þess að draga úr því valdi og þeirri ábjrgð. Fyi'ir því eru engin rök,“ sagði dómsmálaráðherra. Hann sagði engar hugmjmdh' hafa verið pantaðar úr dómsmálaráðu- neytinu í þessu sambandi og fullyrð- ingar um slíkt væru sagðar algjör- lega út í loftið og án nokkurs rök- stuðnings. Þá sagði hann að tillögur VSÓ væru í meginatriðum samhljóða þeim tillögum sem komu frá Ríkis- endurskoðun en þær væru fyllri og nauðsynlegt hefði verið að vinna þær frekar. band lögreglumanna. Hann svai-aði stutt og laggott: Þeim kemur þetta ekki við. Það er því ekki von á góðu,“ sagði ísólfur Gylfi. Lúðvík Bergvinsson, Þingflokki jafnaðarmanna, sagði þær hugmjmd- ir sem kjmntar hefðu verið vai't sam- rýmast lögum að sínu viti og hvað þá hugmyndum um heilbrigða skyn- semi. „Það eru grátbroslegar hug- myndir sem þarna eru settar fram, og að mínu viti geta þessar hug- myndir aðeins átt sér stoð í því að hæstvirtur dómsmálaráðherra hefur pantað þessar hugmyndir, það er al- veg klárt. Það er ekkert fyi'h'tæki sem vill láta taka sig alvarlega sem setur fram hugmyndir af þessum toga nema þær séu pantaðai'." Össur Skarpéðinsson, þingflokki jafnaðarmanna, sagði ógeðfellt að fylgjast með því úr fjariægð hvernig reynt væri að grafa undan lögreglu- stjóranum í Reykjavík. Hann sagði það blasa við að verið væri að fara á svig við lög og rejmt að beita skipu- riti utan úr bæ til að setja lögreglu- stjórann á hliðarspor. „Ætlar ekki hæstvirtur dóms- málaráðheira í ljósi þeirra stað- rejmda sem nú liggja fyrir að láta af ofsóknum sínum á hendur lögreglu- stjóranum, framfylgja lögunum og sjá til þess að hann verði yfirmaður lögregluliðsins í sínu umdæmi?" sagði Össur. Bryndís Hlöðverdótth’, Alþýðu- bandalagi, sagði það með ólíkindum hversu óhönduglega dómsmálaráð- herra hefði tekist við það þarfa verk- efni að endurskipuleggja stjórn- skipulag lögreglunnar i Reykjavík og niðurstaðan væri ótrúlegt klúður. Krafðist Bryndís þess að dómsmála- ráðherra svaraði því hvers vegna til- lögum í stjórnsýsluúttekt Ríkisend- urskoðunar á lögreglustjóraembætt- inu í Reykjavík hefði verið ýtt til hliðai’. „Það gengur ekki að fara svona í málið í blóra við lög, í ósátt við lög- reglumenn og í andstöðu við samtök þeirra," sagði Bryndís. Hjálmar Arnason, Framsóknar- flokki, sagði málið alvai'legt og í upp- ALÞINGI Kjördæma- málið komið inn í þingið FRUMVARPI til brejtinga á stjórnskipunarlögum var dreift á Alþingi í gær en það felur í sér brejdingu á kjördæmaskip- an í landinu og jöfnun atkvæð- isréttar. Flutningsmenn eru formenn alh'a stjórnmála- flokka, sem eiga sæti á þingi, nema þingflokks óháðra. Allir þingflokkar hafa sam- þykkt að styðja frumvai'pið, en einstakir þingmenn í flestum flokkum eru með fyrirvara um samþykkt þess. Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður óháðra, sagði að þingflokkur óháðra hefði ekki átt fulltrúa í nefndinni sem samdi frumvarpið og þess vegna hefði það orðið að sam- komulagi að þingmenn hans yi'ðu ekki meðal flutnings- manna. Þingflokkur óháðra legðist hins vegar ekki gegn því að frumvarpið jrði lagt fram og myndi taka þátt í umræðu um það eins og aðrir flokkar. Stefnt er að því að mælt verði fyrir frumvarpinu á morgun. Laun forseta íslands Undanþága frá skatt- skyldu falli niður LAGT hefur verið fram á Al- þingi frumvarp til breytinga á lögum um laun forseta Islands þess efnis að fellt verði brott ákvæði um að forseti skuli und- anþeginn öllum opinberum gjöldum og sköttum. Flutnings- menn eru Ólafur Hannibalsson og Pétur H. Blöndal. I greinargerð með frumvarp- inu segir að markmið þess sé að gera launakjör forseta Islands gagnsæ, það eigi að vera meg- inforsenda skattalöggjafar að hún sé einföld og að jafnræðis þegnanna sé gætt. Stefnt skuli að fækkun undanþágna frá skattskyldu. Þá er í frumvai-p- inu bráðabirgðaákvæði sem segir að forsætisráðherra skuli láta meta kjaraskerðingu for- seta íslands, sem hljótist af lög- festingu lagabreytingarinnar, og skuli forsetanum bætt kjara- skerðingin með hækkun mán- aðarlauna. Frumvarp svipaðs efnis var flutt á þingi fyrir þremur árum en hlaut ekki afgi’eiðslu. Þá var ekki gert ráð fyrir áðurnefndu bráðabirgðaákvæði. Grafíð undan lögreglustjóranum Isólfur Gylfi Pálmason, Fram- sóknai'flokki, sagði að aðferðirnar við að rýra mannorð lögreglustjór- ans væru með ólíkindum, og sam- kvæmt skipuriti sem dómsmálaráð- hen'a hefði kynnt væri lögreglu- stjórinn rúinn völdum. „Eg spurði aðstoðarmann dóms- málaráðherra, sem er í raun og veru arkitekt þessara breytinga í umboði dómsmálaráðhen'a, hvort það hefði verið haft samband við Landssam- LAGÐAR hafa verið fram á Alþingi tvær fyrirspurnir til heilbrigðis- og tryggingaráðheiTa sem snerta ís- lenska erfðagi-einingu og ein til fjár- málaráðherra um samkomulag þjóðkirkju og kirkjumálaráðherra. Fjrirspyi-jandi er Ólafur Hanni- balsson og óskar hann eftir skrif- legu svari. Ólafur Hannibalsson spyr hvort peningagreiðslur hafí runnið til lækna, sem starfa hjá sjúkrahúsun- um og gert hafa samstarfssamninga við Islenska erfðagi’einingu, fyrir upplýsingar sem hafa orðið til þegar sjúklingar lágu á sjúkrahúsi. Spurt er hvort ekki sé eðlilegt, ef um það sé að ræða, að þær greiðslur renni til viðkomandi sjúkrastofnana. Gefur kirkjan út afsal fyrir kirkjujörðum? Einnig hvort stjórnir sjúkrastofn- ananna hafi fengið afrit af samning- um sem læknar hafa gert við Is- lenska erfðagreiningu og hvort ráð- herra telji þörf á að setja almennar reglur um slíka samstarfssamninga. Þá spyi’ þingmaðurinn heilbrigð- isráðherra hvað hafi breyst frá því stefnumótun var sett fram af ráð- herranum í mars 1997 þar til frum- varp um gagnagrunn á heilbrigðis- sviði kom fram ári síðar. Vísar hann sérstaklega til þess atriðis í stefnu- mótun sem segir að þeirri megin- reglu verði fylgt að upplýsingar skuli varðveittar þar sem þær verða til og að ekki sé áformað að setja upp miðlæga gagnabanka með per- sónutengdum upplýsingum um heilsufarsmálefni. Fyi-irspurnirnar til fjármálaráð- herra eru þessar: 1. Hvaða árlegar skuldbindingar tók ríkissjóður á sig með samningi þjóðkii'kjunnar og ráðherra kirkju- mála í ágúst sl. umfram það sem áð- ur gilti? 2. Verða þær skuldbindingar færðar til gjalda á ríkisreikningi og við gerð fjárlaga? 3. Mun þjóðkirkjan eftir gerð samkomulagsins gefa út afsal til ríkissjóðs fyrir öllum kirkjujörð- um?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.