Morgunblaðið - 18.11.1998, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 18.11.1998, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1998 15 Byggingaramkvæmdir hafa verið stöðvaðar við Laugaveg 53b Unnið undir handleiðslu borgarskipulagsins JÓN Sigurjónsson, einn bygging- araðila við Laugaveg 53b, segir að öll vinna vegna byggingarfram- kvæmdanna hafi verið unnin í góðri trú undir handleiðsiu starfs- manna borgarskipulags. „Borgin er mjög hlynnt þessu húsi og hefur reynt að hjálpa mér en hefur ekki unnið rétt að málinu og það er ég ósáttur við,“ sagði hann og bendir á að ferlið sé þannig að kærar vegna hússins hafi ekki verið tekn- ar til greina fyrr en búið var að veita byggingarleyfi en síðan taki við þrír mánuðir þar til úrskurður úrskurðarnefndar skipulags- og byggingamála liggi fyrir. „Þetta er prófsteinn á frekari framkvæmdir við Laugaveg," sagði Jón. í úrskurði úrskurðarnefndar skipulags- og byggingamála er ákvörðun byggingarnefndar um byggingarleyfi fyrir verslunar-, þjónustu og íbúðarhús við Lauga- veg 53b fellt úr gildi og verður þeirri ákvörðun ekki hnekkt nema fyrir dómstólum. Jón sagði þetta umfangsmikið mál. „Það er allt stopp,“ sagði hann. „Við erum bún- ir að semja við byggingaraðila um að byggja húsið en þeir era farnir heim. Þetta er ein dýrasta lóðin í bænum og þar átti að byggja versl- unar-, þjónustu- og íbúðarhús. Þetta eru feiknalega miklir fjár- muni, sem þarna liggja og margir aðilar hafa verið að velta því fyrir sér annaðhvort að kaupa verslun- arhúsnæði eða leigja hjá okkur og það er allt í uppnámi.“ Borgin skaðabótaskyld Jón sagðist vera afar ósáttur við framkomu borgai-yfirvalda sem ekki hafi haft framkvæði að því að tilkynna byggingaraðilum um nið- urfellingu byggingarleyfisins eða að veita upplýsingar um hvernig bragðist verður við. Sagði hann ljóst að borgin væri skaðabóta- skyld gagnvart byggingaraðila fyr- ir að veita byggingarleyfi sem ekki stæðist. „Borgin og borgarskipulagið er búið að leiða okkur allt frá upphafi og við höfum verið undir hand- leiðslu borgarskipulags frá því við vildum byggja á lóðinni og vorum við í góðri trú um að við værum að gera góða hluti, en svo endar þetta svona,“ sagði Jón. „Það er mjög einkennilegt þar sem við erum ekki að gera neitt að eigin framkvæði. Þessi ferill sem við þurftum að ganga í gegnum sem almennir borgari í Reykjavík er út í bláinn. Það er ekki hægt að kæra bygging- una fyrr en framkvæmdir eru hafnar og byggingarleyfið liggur fyrir. Okkur er hleypt af stað til þess að hægt sé að stoppa okkur. Þetta fólk kærði á sínum tíma skipulagið en þá var það ekki kæruhæft fyrr en búið var að fá byggingarleyfið og teikna húsið frá granni. Um leið og menn eru búnir að fá byggingarleyfið fara þeir auð- vitað að byggja. Síðan tekur þessi nefnd [úrskurðarnefnd skipulags- og byggingamála], sér þrjá mánuði til að úrskurða um það hvort þetta sé í lagi eða ekki. Attum við að bíða eftir þessari kæru sem kom fljót- lega eftir að byggingarleyfið lá fyr- ir? Það er gersamlega vonlaust. Þetta ferli er óvinveitt og óviðun- andi. Auðvitað á að stoppa mann af áður en allt húsið hefur verið teikn- að.“ Bitbein ríkis og borgar Jón sagði að úrskurður nefndar- innar bæri með sér að fram- kvæmdin væri bitbein ríkisins og borgaryfirvaldá en ekkert deili- skipulag liggur fyrir af svæðinu. Þeim væri gefið að sök að nýting- arhlutfall hússins væri of hátt en til þessa hafi ekki tíðkast að gera ráð fyrir bílageymslum í kjallara húsa á þessu svæði. Ef bílakjallarinn kæmi ekki til væri húsið hæfilega stórt. „Reykjavíkurborg túlkar þetta á annan hátt og reiknar ekki bílakjallarann með,“ sagði Jón. „Nefndin er því að refsa okkur fyr- ir að setja bflakjallarann undir hús- ið þó að allir sjái nauðsyn þess að útbúa svæði fyrir bfla á þessum slóðum. I Kvosinni er komið deiliskipulag og þar er kvöð um að hafa bflakjallara í nýbyggingum." Jón sagði að samkvæmt ábend- ingu frá bresku ráðgjafarfyrirtæki sem vinnur að endurskoðun skipu- lags í miðborginni hafi byggingar- aðilar keyp hlut í húsi við Hverfis- götu til að greiða fyrir aðkomu að bílakjallaranum í húsinu við Laugaveg. Sagði hann jafnframt ljóst að engin umbun væri veitt íyrir að hafa rifið tvö ónýt hús við Hverfisgötu þar sem þau væru á annarri lóð. Prófsteinn á byggingar í miðborginni „Við eram búnir að fá fallegan Laugaveg núna og ef ekki á að vera hægt að byggja upp hús við Laugaveginn er það dauðadómur fyrir verslunina," sagði Jón. „Það hafa margir byggingameistarar fylgst með þessum framkvæmdum og þetta er prófsteinn á það hvort menn nenna yfir höfuð að byggja upp í miðbænum. Það var ekkert of auðvelt að fá byggingameistara til að byggja þetta hús. Þeir vilja ekki að standa í svona rugli. Ef þetta era skilaboð yfirvalda nenna menn ekki að byggja í miðborginni, held- ur fara frekar í nágrannasveitarfé- lögin.“ Formaður skipulags- og umferðarnefndar Borgar- yfirvöld að kynna sér úrskurðinn GUÐRÚN Ágústsdóttir, formaður skipulags- og umferðarnefndar, segir að borgaryfirvöld séu að kynna sér og leggja mat á úrskurð Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingamála um niðurfellingu byggingarleyfis við Laugaveg 53b. „Lögfræðingar borgarinnar eru að skoða þetta með okkur og má búast við einhverskonar niðurstöðu eftir næsta skipulagsnefndarfund," sagði Guðrún. Ánægjulegl; að kæru er vísað frá „Þetta er endanlegur úrskurð- ur,“ sagði hún. „Mér finnst ánægjulegt að kæru um að ekki hafi verið rétt farið að samkvæmt stjórnsýslulögum um kynningu á byggingunni og samskiptum við íbúa er vísað frá og ekki talið að rangt hafi verið farið að. Það er mjög mikilvægt. Ekki fallist á vinnureglu til margra ára Hins vegar sýnist mér að ekki sé fallist á þá vinnureglu sem við höf- um viðhaft í Reykjavík um margi-a ára skeið varðandi útreikninga á nýtingarhlutfalli þegar um bfla- geymslur er að ræða. Loks virðist þarna vera deiliskipulagskrafa sem er ríkari en við höfum átt að venj- ast.“ Rafbíll Rafmagnsveitunnar verður á sýningunni Hún er opin almenningi helgina 21. og 22. nóv. kl. 12 -18 RAÐSTEFNA OG SÝNING á umhverfisvænni farkostum í Ráðhúsi Reykjavíkur 20. nóv. 1998 UMHVERFISVÆNNI CA DI/nCTID RAF 1 Tæknilegir eiginleikar: Aksturseiginleikar Hröðun 0-50 km 8,3 sek. Hámarkshraði 90 km/klst. Innanbæjarakstur á hleðslu 80 km (CEN hringur*) Orkueyðsla á 100 km 20 kWh Vél Áritað afl Hámarks afl Hámarks tog (torque) Hámarks snúningshraði Rafgeymar Nafnspenna Venjuleg rafhleðsla Hraðhleðsla Fjöldi rafgeyma Tegund Þyngd DC hreyfill SA13 11 kW 20 kW** milli 1600 og 5500 rpm 127 Nm milli 0 og 1600 rpm 6700 rpm 120 V 7 klst. hámark með 230 VAC / 16A tengill 80% orka á 30 mín. með 18-22 kW afli 20 stk. 6 V Nickel-Cadmium 225 kg * CEN: Staðlaður evrópskur hringur ** 20 kW eru 28-29 hestöfl Frítt rafmagn! Rafmagnsveita Reykjavíkur býður eigendum rafbíla á höfuðborgarsvæðinu ókeypis rafmagn 5- á bílinn í eitt ár. Með því vill RR stuðla að aukinni notkun rafbíla á íslandi. UPPLÝSINGAR Á HEIMASÍÐU www.rr.is OG íSÍMA 560 4688 RAFMAGNSVEITA REYKJAVÍKUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.