Morgunblaðið - 18.11.1998, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1998 19
AKRANES • Tölvuþjónuitan - 431 4311 • AKUREYRI - Tólvutæki - 461 5000 • EGILSSTADIR - Tölvuþjónutta
Auiturlands - 470 1111 • HORNAFJÖRDUR • Tölvuþjónuita Auiturlandi - 478 1111 • HÚSAVÍK
E.G. lónasson - 464 1990 • ISAFJÖRÐUR - Tölvuþj. Snerpa - 456 3072 REYKJANESBÆR -Tólvuvæðing - 421
4040 SAUÐÁRKRÓKUR - SkagfirðingabúB - 455 4537 • SELFOSS - TöJvu- og rafaindaþj. - 482 3184 •
VESTMANNAEYJAR - Tðlvun - 481 1122
Alusuisse í
viðræðum
við Viag
Ztirich. Reuters.
SVISSNESKA álfélagið Alusuisse-
Lonza Holding AG hefur staðfest
að það eigi í viðræðum við þýzku
fyrirtækjasamsteypuna Viag AG
um einhvers konar samstarf.
„Þessar umræður hafa snúizt um
ýmiss konar samvinnu og hafa ekki
leitt til áþreifanlegs samkomulags
til þessa,“ sagði í stuttri tilkynn-
ingu frá Alusuisse, sem einnig kall-
ar sig Algroup.
Verð bréfa í Viag lækkaði um
6,5% þegar Alusuisse hafði staðfest
fréttina um viðræðumar.
-------»-♦-«-----
Nokia ber
uppi hagvöxt
í Finnlandi
Helsinki. Reuters.
FINNSKI rafmagnstækniiðnaður-
inn með farsímafyrirtækið Nokia í
broddi fylkingar heldur nánast
einn síns liðs uppi hagvexti í Finn-
landi og býður afturkipp í heimin-
um byrginn, að sögn sérfræðinga.
Samkvæmt nýbirtum tölum
jókst iðnframleiðsla í september
um 8,5% að meðaltali vegna þess
að framleiðsla í rafmagnstækniiðn-
aði jókst um 49%.
-----------------
Bréf í Fox
seljast vel
New York. Reuters.
MIKIL eftirspurn var eftir hluta-
bréfum í Fox Entertainment
Group fyrsta daginn þegar þau
voru til sölu og hækkaði verð
þeirra um 9%.
Fox-bréf að verðmæti meira en
1,1 milljarður dollara skiptu um
eigendur og verð þeirra hækkaði
um 2 dollara í 24,50 dollara. Fox á
20th Century Fox, Fox útvarpsnet-
ið og sjónvarpsstöðvamar og hlut í
Fox News, Fox Family Channel og
Fox/Liberty Sports.
Utgáfa fyrstu hlutabréfanna
mæltist svo vel fyrir að Fox jók
magn þeirra bréfa sem voru til sölu
um tæplega 50%. Góð sala Fox-
bréfanna virtist ýta undir hækkun
á verði bréfa í öðmm fyrirtækjum í
skemmtiiðnaði, þar á meðal Time
Warner, Viacom og jafnvel Metro-
Goldwyn-Mayer.
Netfynrtæki setur met vestra
New York. Telegraph.
VERÐ hlutabréfa í bandarísku fyr-
irtæki, sem hjálpar fólki að útbúa
vefsíður, sjöfaldaðist fyrsta daginn
þegar þau vora í boði.
Bréf í fyrirtækinu theglobe.com
vora sett í sölu á Nasdaq hluta-
bréfamarkaðnum 13. nóvember og
sú markaðssetningu var sú stór-
brotnasta í Wall Street um árabil.
Bear Stearns bauð bréfin á 9 doll-
ara og verðið snarhækkaði í 97
dollara, en lokagengi mældist 63,3
dollarar.
„Ég veit ekki til þess að byrjun-
arverð hafi komizt í hálfkvisti við
þetta,“ sagði David Menlow, for-
stjóri IPO Financial Network.
Netbréf í fararbroddi
Byrjunai-verð bréfa sem önnur
iýrirtæki hafa sett í umferð hafa þó
slagað hátt upp í verð bréfanna í
theglobe.com. Upphaflegt verð vef-
síðuþróunarfyrirtækisins Earth-
Webb hækkaði úr 14 dolluram 11.
nóvember í 85 dollara á föstudag-
inn, en lækkaði svo í 67 dollara.
Bréf í netuppboðshaldaranum
eBay hækkaði á sex vikum í 140
dollara úr 18 dolluram.
Upphaflega átti að setja bréf í
theglobe.com í sölu á 11-13 dollara
16. október, en því var frestað og
verðið lækkaði vegna fjánnálaum-
róts í heiminum. Síðan hefur tapið í
Wall Street í sumar verið endur-
heimt að miklu leyti og netbréf
hafa verið í fararbroddi á banda-
rískum markaði fyrir hlutabréf,
sem era boðin til sölu í fyrsta sinn,
meðal annars vegna bjartsýni á
jólasölu í ár.
Bay setti hlutabréf í umferð 24
september og þá hafði liðið lengi-i
tími liðið síðan slíkt hafði gerzt síð-
an 1980. Síðan hefurDuPont fjár-
magnað olíufyrirtæki, Conoco, með
útgáfu hlutabréfa og aflað 4,5 millj-
arða dollara, sem er met.
í síðustu viku aflaði Murdoch-
fyrirtækið Fox Entertainment 2,8
milljarða dollara þegar það setti
hlutabréf í sölu í fyrsta sinn og hef-
ur aðeins tvisvar sinnum áður
fengizt jafnhátt verð í fyrsta sinn.
Verið getur að sjónvarpsstöðin
CBS afli allt að 2,9 milljarða doll-
ara þegar hún selur hlutabréf í út-
varpsfyrirtækinu Infinity í næsta
mánuði.
ORUGGT UMHVERFI
... MEÐ OFLUGUM NETÞJONI
HEILDflRLflUSN FYRIR
LÍTIL
MEÐflLSTOR FYRIRTflEKI
*
>wmsrnmmmm
HEZLDflRLflUSNIR
Skeifunni 17 • Sími 550 4000 • Opiðvirka daga09:00-18:00 * laugardaga 10:00-16:00
Compaq er með 43% markaðshlutdeild í PC netþjónum
( Bandaríkjunum. Og hver er ástæðan fyrir svona mikilli
útbreiðslu? Netþjónamir frá Compaq, sem framleiddir
eru undir hinu stranga gæðaeftirliti fyrirtækisins, eru
öflugir og fljótvirkir, tryggja mjög vel öryggi gagna
þinna og skjala, og hafa einfaldlega það sem þarf til að
ná útbreiðslu: þeir hafa reynst mjög vel.
Með Compaq Prosignia 200 netþjóninum og Microsoft
Back Office (Small Business Server) færðu heildarlausn
fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem býr yfir framúr-
skarandi samhæfingareiginleikum. Prosignia 200 er
öflugur netþjónn með 96 Mb minni, 4.3 scsi hörðum
diski, 15" skjá og 4/8 GB Compaq afritunarstöð.
Hafðu samband við sölumenn i sima 550 4000
og kynntu þér þjónustu okkar.
& -
Microsoft
- s/ccr oliti ju ino
Gagnaöryggi
(af ritunarbunaður)
Rekstraröryggi
Heildarlausn
í nethugbúnaði
(Microsoft Bock Office, SBS)
Viðverulausn fra VKS
Faxlausn
Post- og
hopvinnukerf i
Hraðari
Internetsamskipti
Goð þjonusta
Compaq gæði
186.600 KR.
Prosignia 200 netþjónn
2 89.700 KR.
Netþjónn oa Microsoft Back Office
Smoli Business Server
Nýr
stjórnar-
maðurIU
BANDARÍKJAMAÐURINN
Patrick Cleary hefur tekið
sæti í stjórn íslenska útvarps-
félagsins í stað Jóns Ólafsson-
ar, sem lét af störfum fyrr á
þessu ári.
Að sögn Hreggviðs Jónsson-
ar, útvarpsstjóra ÍÚ, hefur
Cleary mikia reynslu af fjöl-
miðlarekstri en hann starfaði
lengi sem yfirmaður fjölmiðla-
og fjarskiptadeildar hjá Chase
Manhattan bankanum í New
York áður en hann fór á eftir-
laun um fertugt árið 1996.
Hann hefur síðan komið að
fjárfestingum og ráðgjöf á eig-
in vegum. Cleary verður áfram
búsettur í Bandaríkjunum en
mun fljúga reglulega til Is-
lands og sækja stjórnarfundi
Útvarpsfélagsins.
w w w