Morgunblaðið - 18.11.1998, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1998 23
Áfall fyrir
Le Pen
ÁFRÝJUNARDÓMSTÓLL í
Frakklandi bannaði í gær
Jean-Marie Le Pen að gegna,
eða sækjast
eftir því að
gegna, póli-
tískum emb-
ættum næsta
árið en Le Pen
hafði áður ver-
ið dæmdur í
7|p| tveggja ára
LePen baIm á læ&ra
dómsstigi. Get-
ur Le Pen því ekki verið í for-
svari flokks síns, Þjóðfylking-
arinnar, í kosningum til Evr-
ópuþings í júní næstkomandi,
og þarf jafnframt að hætta
störfum á Evrópuþinginu og í
sveitastjórn í suðurhluta
Frakklands. Er þetta álitið
nokkurt áfall fyrir Le Pen og
gerist nú líklegra en áður að
gerð verði atlaga að forystu-
stöðu hans innan Þjóðfylking-
Umdeildar
hugmyndir
NAWAZ Sharif, forsætisráð-
herra Pakistans, hefur farið
fram á að innleidd verði í land-
inu hraðvirk hegningarlög,
svipuð þeim er stjórn Talebana
viðhefur í Afganistan, en skv.
þeim væri t.d. hægt að hengja
nauðgara innan 24 klukku-
stunda frá handtöku. Koma
þessar hugmyndir stjórnar-
andstæðingum í Pakistan og
mannréttindasamtökum í opna
skjöldu og mótmæltu þau til-
lögunum mjög í gær. Sharif
benti hins vegar á að glæpir
væru næsta fáheyrðir í
Afganistan eftir að Talebanar
tóku upp álíka lög.
Senn ákvörð-
un varðandi
Pinochet
BRESKUR dómstóll úrskurð-
aði í gær að breska ríkisstjórn-
in yrði að vera búin að gera
upp við sig fyrir 2. desember
hvort hún ætlaði að fara að
óskum dómstóls á Spáni og
framselja Augusto Pinochet,
fyrrverandi einræðisherra í
Chile, til Spánar. Akvörðun
Jacks Straws, innanríkisráð-
herra, þar að lútandi kemm-
hins vegar ekki til með að
skipta máli úrskurði dómstóll á
vegum Lávarðadeildar breska
þingsins, sem er æðsta dómstig
í Bretlandi, að Pinochet njóti
friðhelgi diplómata. Akvörðun-
ar dómsins er að vænta á
næstu dögum.
Indlandsher
æfír sig
INDVERSKI herinn stóð í
gær fyrir einni af sínum um-
svifamestu heræfíngum, að
sögn þarlendra fjölmiðla. Tóku
10.000 hermenn landhers, sjó-
hers og lofthers þátt í æfingun-
um sem fram fóru einhvers
staðar á vesturströnd Ind-
lands. Sögðu fulltrúar stjórn-
valda að hér væri um árlegar
og venjubundnar æfingar að
ræða. Pakistönsk stjórnvöld
lýstu hins vegar furðu sinni á
umfangi æfinganna og einnig
tímasetningu þeirra, nú þegar
stæði til að reyna að finna
lausn á áratuga deilum land-
anna tveggja, en mikil spenna
hefur verið í samskiptum land-
anna á þessu ári.
ERLENT
Reuters
MARTA Moreno, ung kona í Hondúras, veltir fyrir sér lífinu og tilverunni á bakka Choluteca-fljótsins. Þeg-
ar það var í sem mestum ham af völdum fellibylsins hreif það með sér heimili hennar og eiginmann.
Bandaríkin auka aðstoð
við Mið-Ameríkuríkin
Tegucigalpa. Reuters.
FORSETAFRÚ Bandaríkjanna,
Hillaiy Rodham Clinton, tilkynnti í
fyrradag um nýja aðstoð Banda-
ríkjastjórnar, 12,7 milljarða ísl. kr.,
við Hondúras og önnur þau ríki í
Mið-Ameríku, sem urðu fyrir barð-
inu á fellibylnum Mitch. Hillary
Clinton forsetafrú Bandaríkjanna,
Jacques Chirac, forseti Frakklands,
og Felipe, krónprins Spánar, voru í
Hondúras í fyrradag til að kynna
sér ástandið í landinu.
Hillary tilkynnti um aðstoðina við
komuna til Hondúras en heita má,
að efnahagslífið í landinu sé í rúst af
völdum fellibylsins, sem kostaði alls
um 11.000 manns lífið og 13.000
manna er enn saknað. Sagði hún, að
Bandaríkjaher myndi fjölga her-
mönnum við hjálparstörf úr 1.600 í
Hillary Clinton
lofar aðstoð í
heimsókn sinni
til Hondúras
5.600, bæta við 16 þyrlum, auka
læknisaðstoð og hjálp við að bæta
brýr og vegi og koma upp búnaði til
að hreinsa vatn.
Meiri aðstoðar þörf
Einn embættismanna Hvíta húss-
ins sagði í gær, að gengið yrði frá
aukinni aðstoð, einkum matvælaað-
stoð, á næstunni og kvaðst hann
ekki telja, að þær ráðstafanir þyrfti
að bera undir þingið. Talsmenn AI-
þjóðabankans og Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins hafa einnig tilkynnt, að
Hondúras og Nicaragua verði hjálp-
að til að greiða af erlendum skuld-
um sínum.
Chirae, forseti Frakklands, fór
um Guatemala, Hondúras, E1
Salvador og Nicaragua á mánudag
og átti viðræður við ráðamenn en
franska stjórnin hefur gefið ríkjun-
um eftir rúmlega níu milljarða kr.
skuld. Felipe Spánarprins fór um
þessi ríki um helgina og í fyrradag
og aðrir fulltrúar erlendra ríkja
hafa einnig verið þar á ferð.
Mið-Ameríkuríkin hafa nú þegar
fengið nokkra tugi milljarða ísl. kr. í
aðstoð en Chirac sagði, að betur
mætti ef duga skyldi þar sem ríkin
fjögur skulduðu alls um 1.120 millj-
arða kr. erlendis.
Breska lávarðadeildin
Forsetinn
ekki lengur í
sokkabuxum
The Daily Telegraph.
IRVINE lávarður, forseti lá-
varðadeildar breska þingsins og
dómsmálaráðherra Bretlands,
þarf ekki lengur að klæðast hné-
buxum, sokkabuxum og spennu-
skóm við skyldustörf sín. Hann
mun þó enn bera hárkollu og
skikkju þegar hann kemur fram
sem forseti deildarinnar, en
sleppur við það þegar hann talar
sem ráðherra.
Lávarðadeildin fjallaði um
klæðaburð forsetans á þriðjudag,
og eftir heitar umræður sem
stóðu í tvær klukkustundir var
tillaga um nútímalegri klæðnað
samþykkt með 145 atkvæðum
gegn 115. Irvine lávarður óskaði
sjálfur eftir breytingunum, og
var sagður „ánægður" með niður-
stöðuna, enda fær hann nú að
klæðast svörtum buxum og skóm.
Atlaga að þjóðlegum
hefðum
Hefðarsinnar í lávarðadeildinni
voru ósáttir við lyktir málsins, og
sökuðu Verkamannaflokkinn um
að hafa beitt flokksvaldi til að
tryggja samþykkt tillögunnar.
„Þetta er enn eitt dæmið um at-
lögu núverandi ríkissljórnar að
þeim þjóðlegu hefðum og gildum
sem önnur lönd öfunda okkur af,“
sagði jarlinn af Ferrers, einn for-
ystumanna íhaldsflokksins í
deildinni. „Þetta er bara byrjun-
in. Ef við gefum eftir hér leiðir
það til enn frekari krafna um nú-
timavæðingu," sagði Waddington
lávarður, fyrrverandi innanrfkis-
ráðherra fyrir íhaldsflokkinn.
Þingmenn sem fylgja Verka-
mannaflokknum að málum lögðu
áherslu á að nauðsynlegt væri að
hlýða kalli tímans, og Addington
lávarður, sem er frjálslyndur
demókrati, benti hefðarsinnum á
að þegar forseti lávarðadeildar-
innar stæði í skikkju sinni væri
ekki einu sinni hægt að koma
auga á hnébuxurnar og spennu-
skóna.
MS . kVÍ' ■ *
RYMINGARSALA A SMÐAVOR
V, 1, y*. V V
JfB$að7Ó%
\ ! %
(
I ,• JM '
Skíði
Skíðaskór
Bindingar
Skíðastafir
Skíðagallar
Skíðaúlpur
Skíðahanskar
Skíðagleraugu
Skíðahjálmar
Skíðasokkar
Big Foot
SALOMON
RUCES
Keppnisskíði
Keppnisskíðaskór
Kepphisbindingar
Ótrúlegt verð
\
Ármúla 40
Símar: 553 5320,
568 8860.
Skiðaþjónusta, slípum, . .r| =
I brynum og berum a skiði.
E i n stærsta sportvöruverslun I a n d s i n s