Morgunblaðið - 24.11.1998, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ííliðs
lfa{f
11181
Morgunblaðið/Theodor
Hveragerði
Peninga-
verðlaun
fyrir
náms-
árangur
NEMENDUR tíunda bekkjar
Grunnskólans í Hveragerði fá
250 þúsund króna verðlaun úr
bæjarsjóði ef meðaleinkunn
þeiiTa úr samræmdu prófunum
á komandi vori verður jafnhá
eða hærri en landsmeðaltalið.
Samkvæmt frétt í blaðinu
Dagskránni var tillaga frá Araa
Magnússyni bæjarfulltrúa um
verðlaunaveitinguna samþykkt
samhljóða í bæjarstjórn Hvera-
gerðis fyrir skömmu.
Verðiaunin verða veitt í sjóð
sem nýtast á nemendum, en
skólastjórnendum og nemenda-
ráði hefur í sameiningu verið
falið að að gera tillögur um nýt-
ingu fjárins.
Sýnd veiði en
ekki gefin
HANN er sýnd veiði en ekki athygli kattarins. Það er
gefín, páfagaukurinn í Borg- stundum gott að vera fugl í
arnesi sem nýtur óskiptrar búri.
Orkufrumvarp
rætt í ríkisstjórn
RÍKISSTJÓRNIN hefur nú til
meðferðar frumvarpsdrög iðnaðar-
ráðherra um raforkuver. Finnur
Ingólfsson iðnaðarráðherra kvaðst í
samtali við Morgunblaðið í gær ekki
vilja svara því hvort drögin gerðu
ráð fyrir heimild til handa Norð-
lenskri orku um að virkja Héraðs-
vötn í Viilinganesi eins og farið hef-
ur verið fram á.
Kristján Jónsson rafmagnsveitu-
stjóri Rafmagnsveitna ríkisins, tjáði
Morgunblaðinu að Rarik hefði fyrir
nokkru sett fram hugmyndir um
fjóra virkjunarkosti af meðalstærð
og væri Villinganesvirkjun í Skaga-
firði einn þeirra. Hún gerði ráð fyrir
að minnsta kosti 30 megawatta
virkjun sem reist yrði á vegum
Norðlenskrar orku sem Rarik á
75% í en heimamenn í Skagafirði,
þ.e. raíveitur og fleiri aðilar, 25% en
fyrirtækið var stofnað snemma á
þessu ári. Aðrir virkjanakostir sem
Rarik hefur áhuga á eru í Fjarðará í
Seyðisfirði, Gilsárvatnavirkjun og
jarðhitavirkjun í Grensdal við
Hveragerði. Um síðastnefnda kost-
inn hefur verið stofnað fyrirtækið
Sunnlensk orka sem er með aðild
Hveragerðis og Ölfushrepps. Krist-
ján sagði að koma yrði til kasta Al-
þingis að veita Rarik leyfi til um-
ræddra virkjana.
Finnur Ingólfsson sagði frum-
varpsdrögin um orkumál enn til
meðferðar hjá ríkisstjóm og vildi á
meðan ekki greina frá því hvaða
virkjanahugmyndir væru þar til
skoðunar. Bjóst við að það yrði af-
greitt í næstu viku og frumvarp síð-
an lagt fram á Alþingi.
Skattaafsláttur vegna hlutabrefakaupa
Binditími lengdur úr
þremur árum í fjögur
BINDITÍMI eignar á hlutabréfum
er lengdur úr þremur áram í fjögur
ef kaupandi þeirra hyggst njóta
skattaafsláttar vegna þeirra. A
móti kemur að reglur eru rýmkað-
ar til að skipta hlutabréfunum fyrir
hlutabréf í öðram félögum á bindi-
tímanum, auk þess sem reglur um
aukningu hlutabréfaeignar era ein-
faldaðar.
Þetta var meðal þess sem fram
kom á fundi Geirs Haarde fjár-
málaráðherra sem skattamálanefnd
Sjálfstæðisflokksins boðaði til um
skattaívilnanir til að örva sparnað í
Valhöll í gær. Geir sagði að grand-
vallarorsökin fyrir miklum við-
skiptahalla hér á landi væri ónógur
þjóðhagslegur spamaður og því
væri mjög mikilvægt að auka hann.
Fjallaði hann meðal annars um
nýja skýrslu nefndar sem fjallaði
um eflingu þjóðhagslegs spamaðar
og nefndi til nokkrar leiðir í þeim
efnum, eins og húsnæðissparnaðar-
reikninga, skattaumbætur, einka-
væðingu og hlutabréfakaup og líf-
eyrisspamað. Aukinn lífeyrisspam-
Lífeyrissparn-
aður líklegast-
ur til að skapa
nýjan sparnað
aður væri langlíklegastur til þess
að skapa nýjan spamað því hvað
fyrri leiðimar varðaði væri oft um
að ræða tilfærslu milli sparnaðar-
foi-ma og ekki víst að þær yrðu
alltaf til þess að skapa nýjan sparn-
að.
5 milljarða sparnaður
Geir fjallaði síðan um nýjar regl-
ur um lífeyrisspamað sem heimila
launþegum frá áramótum að leggja
2% af launum inn á sérstaka lífeyr-
issparnaðarreikninga án skattlagn-
ingar og ber launagreiðanda að
bæta við 0,2% framlagi á móti
framlagi launþega ákveði hann slík-
an sparnað og lækkar þá trygg-
ingagjald launagi-eiðanda að sama
skapi.
Geir sagði að þeir væntu þess að
þessar nýju reglur mæltust vel fyr-
ir. Ef vel tækist til stæðu vonir til
þess að þjóðhagslegur spamaður
ykist um 5 milljarða króna á ári
vegna þessa. Mikiivægt væri að
þessi spamaður byggðist á frjálsum
spamaði, en ekki skattlagningu eða
skylduspamaði. Málið hefði þegar
verið til fyrstu umræðu í þinginu og
fengið þar góðar viðtökur og væri
nú til umfjöllunar í nefnd. Vinnu-
veitendur væra þeir einu sem
möglað hefðu yfir þessari aðferð.
Geir sagði einnig að pólitískur
stuðningur við einkavæðingu hefði
vaxið mjög mikið og það sýndu við-
brögð almennings við útboðunum
að undanfórnu. Bankamir væra
næst á dagskrá, en einnig væri nk-
ur vilji innan Sjálfstæðisflokksins
til að kanna landslagið hvað varðaði
sölu á Landssímanum. Þróun í fjar-
skiptum væri svo ör að ástæða væn
til að kanna möguleikana í þeim
efnum fyrr en seinna.
LJÁDU ÞEIM EYRA
í kvöld á Súfistanum í bókabúð Máls og menningar
Kynning á greinasafninu
Undur veraldar sem
Þorsteinn Vilhjálmsson
eðlisfræðingur ritstýrir.
Höfundar spjalla um efni
bókarinnar og bregða
upp myndum af undrum
þessa heims.
Aðgangur ókeypis - Hefst kl. 20.30
Mál og mennlng • Laugavegi 18 • Siml 515 2500
Grunur um matareitrun
eftir að 30-40 veiktust
GRUNUR um matareitran kom
upp um helgina í mötuneyti sem
starfsmenn nokkurra ríkisstofn-
ana snæða í við Borgartún 7 í
Reykjavík. Kom hann upp í
framhaldi af veikindum 30 til 40
starfsmanna sem snætt höfðu í
mötuneytinu í síðustu viku.
Rögnvaldur Ingólfsson, sviðs-
stjóri matvælasviðs hjá Heil-
brigðiseftirliti Reykjavíkur, seg-
ir málið í rannsókn og ekki hægt
að segja nákvæmlega um það á
þessu stigi hvað gerst hefur.
Veikindi komu upp í síðustu
viku hjá 30 til 40 starfsmönnum
Vegagerðarinnar, Ríkiskaupa og
íleiri stofnana sem era til húsa
við Borgartún 7. Granur um
matareitrun kom hins vegar
ekki upp fyrr en á fóstudag þeg-
ar menn, sem veikst höfðu,
komu aftur til vinnu og fóru að
bera sig saman. Var þá haft
samband við Heilbrigðiseftirlit
Reykjavíkur sem hóf rannsókn
málsins. Að sögn Rögnvalds
vora einkennin svipuð, uppköst
og niðurgangur, og stóðu veik-
indin yfirleitt ekki lengi.
Matur frá eldhúsi ríkisstarfs-
manna í Tollstöðvarhúsinu er
meðal annars sendur í Borgar-
tún 7 en aðrir sem snæddu mat
þaðan, til dæmis starfsmenn hjá
tollstjóra og fjármálaráðuneyti í
Ai’narhvoli, hafa ekki veikst.
Hefur því grunur helst beinst að
mötuneytinu við Borgartún, en
þar fer einnig fram lítils háttar
matargerð. Hvorki náðust sýnis-
horn af matvælum né frá þeim
sem veiktust en verið er að kort-
leggja faraldsfræði sýkingarinn-
ar.
Segir Rögnvaldur að farið hafí
verið fram á ákveðnar umbætur
þai- og mötuneytið síðan þiifið
og sótthreinsað. Bjóst Rögnvald-
ur við að það yrði opnað á ný í
vikunni.