Morgunblaðið - 24.11.1998, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
!
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Páll Þórhallsson
HOPURINN á tröppunum hjá Mannréttindadómstól Evrópu.
Sýslumenn í Strassborg
Strassborg. Morgunblaðið.
EKKI virðist gæta iieinnar þykkju
hjá sýslumönnum Islands í garð
Mannréttindadómstóls Evrópu
þótt sá hafí átt þátt í að svipta þá
dómsvaldi sem þeir höfðu fram til
1992. Efndi Sýslumannafélag ís-
lands til hópferðar til höfuðstöðva
Mannréttindadómstólsins i Strass-
borg í byrjun nóvember. I félag-
inu eru auk sýslumanna, lögreglu-
stjórar, tollstjórar og saksóknar-
ar. Veg og vanda af undirbúningi
ferðarinnar hafði Magnús K.
Hannesson, varafastafulItrúi hjá
fastanefnd íslands hjá Evrópuráð-
inu.
Gestirnir kynntu sér starfsemi
Evrópuráðsins og hlýddu á fyrir-
lestra um pólitískt híutverk þess,
endurnýjaðan Mannréttindadóm-
stól Evrópu og samskipti fjölmiöla
og lögreglu. Þáðu þeir einnig
heimboð hjá sendiherrahjónunum
Sveini Björnssyni og Sigríði Jóns-
dóttur. Fór það vel og kurteislega
fram þótt reyndar yrði að kalla út
slökkvilið borgarinnar til að losa
hluta gesta úr lyftu í húsi sendi-
herrans.
Sumir úr hópnum notuðu einnig
tækifærið og nutu menningarvið-
burða sem borgin hefur upp á að
bjóða. Þannig fór hinn landskunni
aðdáandi Rolling Stones, Ólafur
Helgi Kjartansson, sýslumaður á
Isafírði, ásamt eiginkonu sinni á
tónleika með rokkaranum
víðkunna Johnny Halliday og
sagði við tíðindamann Morgun-
blaðsins að þeir hefðu verið hverr-
ar krónu virði. „Eg hlustaði mikið
á Johnny þegar ég var lítill snáði,“
sagði Ólafur Helgi, „ég hélt hann
væri löngu dauður þangað til ég
las um það í Mogganum í sumar
að hann hefði fyllt Stade de
France í París. Þá hugsaði ég með
mér, hann hlýtur að vera í fullu
Qöri og ákvað að skella mér á tón-
leikana með honum.“.
Borgarstjóri um biðlista eftir leikskólaplássi
Hraða í uppbyggingii
leikskóla takmörk sett
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri segir að reynt hafí ver-
ið að bregðast við aukinni eftir-
spurn eftir leikskólaplássi með því
að hækka greiðslur til einkarekinna
leikskóla og með því að niðurgreiða
hjá dagmæðrum fyrir öll börn, auk
þess að byggja upp leikskólapláss í
borginni. Það hefði samt ekki dug-
að til, en eins og fram kom í Morg-
unblaðinu í gær eru nú rúmlega
2.000 börn á biðlista hjá Dagvist
bama.
Ingibjörg Sólrún sagði að því
væri auðvitað takmörk sett hve
hratt væri hægt að fara í aukna
uppbyggingu í leikskólum, því þá
gæti borgin jafnvel staðið frammi
fyrir því að fá ekki fólk til starfa á
þeim leikskólum sem byggðir væru.
Þá sé það vandamál nú að margar
dagmæður hafi hætt að starfa sem
slíkar og farið út á hinn almenna
vinnumarkað þannig að greiðsla frá
borginni til þeirra dugi ekki til ein
og sér.
„Við munum auðvitað halda
áfram að byggja upp í leikskólun-
um og sjá svo hvað setur. Það er
líka spurning hvort það er hægt að
stýra þessu með einhverjum hætti
þannig að við kannski bjóðum ekki
heilsdagspláss fyrir börn undir
tveggja ára aldri til þess að hin
njóti þá forgangs og komist fyrr að.
Þetta er reyndar svolítið misjafnt
eftir hverfum. I sumum hverfum er
það þannig að við erum með börn á
leikskólum allt frá eins árs aldri, en
annars staðar eru börn að bíða allt
Andlát
BJARNI KRISTINN
BJARNASON
BJARNI 10481™
Bjamason, fyrrver-
andi hæstaréttardóm-
ari, lést sunnudaginn
22. nóvember, 72 ára
að aldri.
Bjarni fæddist 31.
ágúst 1926 að Önd-
verðamesi í Gríms-
nesi. Foreldrar hans
voru Bjarni Jónsson,
bóndi í Óndverðarnesi,
og Kristín Halldórs-
dóttir, eiginkona hans.
Bjami varð stúdent
frá Verslunarskóla Is-
lands árið 1949. Hann
lauk embættisprófi frá lagadeild
Háskóla Islands árið 1955. Eftir
embættispróf var Bjarni dómara-
fulltrái við embætti borgardómara
og skipaður borgardómari 1962.
Árið 1986 var Bjarni skipaður
hæstaréttardómari og
gegndi því embætti til
1991 er hann lét af
störfum vegna aldurs.
Hann var formaður
Siglingadóms frá 1975
til 1986 og forseti Fé-
lagsdóms 1983-1985.
Frá 1992 var hann
prófdómari við mál-
flutningspróf héraðs-
dómslögmanna.
Bjarni gegndi ýms-
um félags- og trúnað-
arstörfum og sat með-
al annars í stjórn
Skógræktarfélags ís-
lands og Skógræktarfélags
Reykjavíkur til margi'a ára.
Bjarni kvæntist árið 1954 Ólöfu
Pálsdóttur læknaritara. Þau eign-
uðust fimm börn og era fjögur
þeirra á lífi.
að þriggja ára aldri, þannig að
þetta er svolítið hverfabundið,“
sagði Ingibjörg Sólrún.
Styrkja þarf
einkareksturinn
„Við höfum lagt áherslu á að leita
nýrra leiða, til dæmis að styrkja
einkaaðila meira en verið hefur og
það má færa full rök fyrir því að
það sé einfaldara og skilvirkara,"
segir Guðlaugur Þór Þórðarson,
fulltrái Sjálfstæðisflokksins í stjórn
Dagvistar barna.
Hann segir að þrátt fyrir að lagð-
ir hafi verið miklir fjánuunir í upp-
byggingu leikskóla séu enn börn á
biðlista og raunar sé spurning
hversu borgin eigi að ganga langt í
að festa fjármuni í fasteignum í
þessu skyni á sama tíma og verið sé
að reyna að draga saman húseignir
borgarinnar. Guðlaugur sagði að
starfsfólk leikskóla leitaði gjarnan í
betur launuð störf þegar vel áraði í
þjóðfélaginu. „Opinber rekstur er
þyngri en einkarekstur og þess
vegna er brýnt að nýta kosti einka-
reksturs í þessum málaflokki.“
--------------------------
Utafakstur við
Hrútafjarðará
BIFREIÐ með ökumanni og þrem-
ur farþegum hans fór útaf við brána
yfir Hrátafjarðará seint á laugar-
dagskvöld. Hvorki ökumann né far-
þega hans sakaði, enda voru allir í
bílbeltum og telur lögreglan á
Hólmavík, sem sinnti óhappinu, að
bílbeltanotkunin hafi komið í veg
fyrir alvarleg slys.
Hálka var á veginum og missti
ökumaðurinn stjórn á bifreiðinni
með þeim afleiðingum að hún fór út-
af og rann niður snarbratta 7-10
metra langa skriðu. Lenti bifreiðin
með framendann í ísi lagða Hráta-
fjarðarána. Bifreiðin, sem er bíla-
leigubíll, skemmdist talsvert og en
búið er að draga hana upp úr ánni.