Morgunblaðið - 24.11.1998, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 24.11.1998, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Frumvarp um námsmenn af landsbyggðinni Eigi kost á lægra endurgreiðslu- hlutfalli námslána ÞRÍR þingmenn Framsóknarflokks, þeii- Hjálmar Árnason, Magnús Stef- ánsson og Guðni Agústsson, vilja að stjórn Lánasjóðs íslenskra náms- manna verði heimilt að gefa lánþeg- um frá ákveðnum byggðarlögum, sem skilgi-eind skulu í reglum, kost á lægra endurgreiðsluhlutfalli náms- lána en almennt tíðkast eða fella greiðslur niður að öllu leyti. Þá vilja þeir að stjórn sjóðsins verði heimilt að veita læknum, öðr- um háskólamenntuðum heilbrigðis- starfsmönnum og kennurum sam- bærilega heimild ef þeir að námi loknu setjist í tiltekinn tíma að á stöðum sem skortur er á fólki með slíka menntun. Þingmennirnh- hafa lagt fram á Alþingi frumvarp þessa efnis og benda m.a. á í greinargerðinni að kostnaður námsfólks utan af landi geti verið meiri en kostnaður íbúa þéttbýlisins og ennfremur að skortur geti verið á tilteknum hópum menntafólks utan stærstu þéttbýlis- staða. Segja þeir að frumvai'pið sé byggt á norskri hugmyndafræði og að þarna sé um að ræða tillögur um beinar aðgerðir af hálfu hins opin- bera í því skyni að hvetja menntað fólk til starfa á landsbyggðinni sem og að hvetja ungt fólk þaðan til að leggja stund á framhalds- eða há- skólanám. Morgunblaðið/Jón Svavarsson FORELDRAR Jóns, Steinn Jónsson og Jónína Jónasdóttir, tóku við verðlaununum fyrir hans hönd úr hendi Friðriks Sophussonar formanns dónmefndar. Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður Mun keppa um fyrsta sætið í opnu prófkjöri Jón Steinsson hlýtur fyrstu verðlaun í ritgerðarsamkeppni SUS „Verðum að hugsa stórt og taka áhættu“ JÓHANNA Sigurðardóttir alþingis- maður hyggst keppa um fýrsta sætið á framboðslista samfylkingar í Reykjavík verði haldið opið prófkjör. Þetta kemur fram á vefsíðu Samein- ingar á Netinu. Þar segh- Jóhanna að deilunum sem verið hafa í fjölmiðlum um fram- boðsmál samfylkingarinnar vei’ði að ljúka, og í stöðunni sjái hún ekki ann- an kost en opið prófkjör. Jóhanna segir að komi til þess muni hún keppa um fyrsta sætið í Reykjavík. ÆSKULÝÐS- og tómstundaráð Hafnarfjarðar gerði fyrir skömmu könnun á sölu á tóbaki til unglinga undir 18 ára aldri. ÆTH hefur síð- ustu ár staðið reglulega fyrir könn- unum af þessu tagi. Þær hafa sýnt að frá 75% til 95% allra söluaðila hafa „Það getur enginn sett fram skil- yrði eða kröfur, hvorki um sæti eða framboðsaðferðir. En því er ekki að leyna að margir telja að mínir möguleikar um efsta sætið felist helst í opnu prófkjöri án girðinga og ég tel mig ekki hafa þar minni möguleika en aðrir frambjóðendur. Og auðvitað mun ég keppa um fyrsta sætið í opnu prófkjöri verði sú leið valin í framboðsmálunum," segir Jóhanna. selt börnum og unglingum tóbak. í þessari nýju könnun brá svo við að 57% verslana seldu unglingum tó- bak en 43% ekki. Þetta eru bestu niðurstöður sem fengist hafa í könn- unum hingað til, segir í frétt frá ÆTH. JÓN Steinsson, 21 árs gamall hagfræðinemi við Princeton-há- skólann í Bandaríkjunum, hlaut fyrstu verðlaun í ritgerðarsam- keppninni ísland tækifæranna sem Samband ungra sjálfstæðis- manna (SUS) stóð fyrir í síðasta mánuði. Markmið keppninnar var að fá ungt fólk til þess að velta fyrir sér hvernig land það vildi byggja og hvernig vænting- ar það hefði til framtíðar og bárust ritgerðir í keppnina víða að af landinu sem og frá íslensk- um námsmönnum erlendis. Þar sem Jón er í Bandaríkjun- um tóku foreldrar hans, Steinn Jónsson og Jónína Jónasdóttir, við verðlaununum, 100 þúsund krónum, úr hendi Friðriks Soph- ussonar, varaformanns Sjálf- stæðisflokksins og formanns dómnefndarinnar, á laugardag. Þá hlaut Eygló Svala Arnars- dóttir, nemandi við Menntaskól- ann á Akureyri, sérstök auka- verðlaun fyrir frumlega ritgerð í smásagnaformi. I umsögn dómnefndar, sem skipuð var fimm mönnum auk formanns, segir m.a. að ritgerð Jóns hafi til að bera alla þá þætti sem leitað var eftir og prýða þurfi góða ritsmíð. I henni væru settar fram vel rök- studdar og ígrundaðar hug- myndir um það sem betur mætti fara hér á landi til að tryggja samkeppnisstöðu Islendinga til framtíðar. Einnig segir að höf- undur hafi með sannfærandi hætti bent á að aðeins með því að standa stöðugt vörð um frelsi einstaklingsins gætu Islendingar byggt þjóðfélag sem tryggði þegnum sínum nauðsynleg tæki- færi til athafna. Hefur lengi langað til að skrifa um þetta efni Jón segir í samtali við Morg- unblaðið að hann hafi í samræini við meginþema keppninnar skrifað um það af hveiju og hvernig ísland gæti orðið land tækifæranna og segir að senni- lega sé niðurstaða ritgerðarinn- ar sú að það sem þurfi til sé hugarfarsbreyting Islendinga. „Við þurfum að hætta að líta á okkur sem litla þjóð langt norð- ur í hafi og hætta að vera hrædd við að það verði valtað yfir okk- ur af einhveijum stórum útlend- ingum. Heldur þurfum við að hugsa stórt og taka áhættu úti í hinum stóra heimi,“ segir Jón. Inntur eftir því hvers vegna hann hafi tekið þátt í samkeppn- inni segir hann að sig hafi lengi langað til þess að skrifa ritgerð um tækifærin sem Island hafi en hafi ekki tekist að færa sér í nyt ennþá. „Þetta var því kjörið tækifæri til þess að skrifa rit- gerð sem mig hefur lengi langað til að skrifa,“ segir hann að síð- ustu. Hafnarfjörður Færri verslanir selja unglingum tóbak Stofnfundur Frjálslynda flokksins haldinn um næstu helgi Átök um formennsku frekar en málefni STOFNFUNDUR Frjálslynda flokksins verður haldinn í Reykjavík um næstu helgi og á honum fer fram stefnumótun flokksins og stjórn hans verður kosin. Útlit er fyrir að á fundinum takist tvær fylkingar á í kosningu um foi-mann flokksins, en gert er ráð fyrir að kosning for- manns og varaformanns verði óhlut- bundin. Svenir Hermannsson, frumkvöð- ull að stofnun flokksins, segir það liggja fvrir að hann taki að sér for- mennskuna verði hann kosinn til þess. Bárður Halldórsson, formaður Samtaka um þjóðareign, segir stjóm samtakanna telja Sverri óheppilegan í formannssætið og sækist Bárður sjálfur eftir for- mennskunni. Sverrir Hermannsson sagði í samtaii við Morgunblaðið að stjóm Samtaka um þjóðareign hefði tekið þá ákvörðun að slíta samstarfi við hann um stofnfund Frjálslynda flokksins, en samtökin hefðu áður lýst yfir að þau vildu ganga til sam- vinnu við hann. „Þetta ákvað stjómin, og þeir ætla að haida sínu merki fram þarna nokkrir saman. Síðan auglýsa þeir þennan fund minn sem sinn fund. Þeir ráða sínum málum og ég hef ekkert um það að segja, en þeir ætla sjálfsagt að mæta til þess að ná þar undirtökum. Þetta er frjálsiyndur flokkur og lýðræðisflokkur og hann á að vera það alveg fram í flngur- góma. Þess vegna bíða menn bara þess að atkvæði skeri úr,“ sagði Sverrir. Andstæðingunum gefið óvænt og óþarft vopn í hendur Hann sagðist ekki vita hvort mik- ið væri um smölun á stofnfundinn, en geysilega mikið væri haft sam- band heim til sín og hann yrði var við mikla óánægju meðal félags- manna í Samtökum um þjóðareign með viðsnúning stjórnar samtak- anna. Hann sagði að andstæðingum væri að fyrra bragði gefið óvænt og óþarft vopn í hendur og hætt væri við að almenningur liti á þetta sem fyrirfram dauðadæmda hreyfingu þar sem menn byrji á upphlaupum áður en flokkurinn verður til. „Þetta er að sjálfsögðu til bölvun- ar og ég hefði ýmislegt viljað til vinna að þurfa ekki að vera í ein- hverjum kosningaslag við Bárð Halldórsson. En það verður ekki við öllu séð,“ sagði Sverrir. „Eg vissi ekki fyrr en á fimmtudaginn var annað en að hann væri eindreginn stuðningsmaður minn og ég varaði mig ekkert á þessum miklu kúvend- ingum. Ég hef svitnað nú í hálft ár undan takmarkalausum hólræðum hans um mig og þótti nú stundum um of, en menn eiga leiðréttingu skoðana sinna og hann líka.“ Aðspurður hvort hann tæki að sér formennsku í Frjálslynda flokknum yrði hann kosinn til þess á stofn- fundi flokksins sagði Sverrir að það lægi fyrir. „Ef þetta á að verða barn í brók þá kemst ég ekkert hjá því að taka við því í byrjun, en það er vonandi að fljótt fáist ungt atgervis- og hæfi- leikafólk til þess að taka við,“ sagði hann. Sífellt í vörn vegna mála Sverris Bárður Halldórsson sagði ágrein- ing einungis vera um það hver ætti að leiða Frjálslynda flokkinn, en enginn málefnalegur ági-einingur væri á ferðinni. Hins vegar væri það fjarri lagi að stjóm Samtaka um þjóðareign teldi Sverri Hermanns- son vanhæfan eða óhæfan til að vera formaður flokksins. „Við töldum eingöngu að hann væri kannski ekki heppilegasti formaður- inn og vildum fá hann og fylgismenn hans til að ræða aðra kosti. Við voram í miðjum þeim viðræðum þegar hann sleit öllu,“ sagði Bárður. „Þetta snýst bara um það hvort það eiga að vera lýðræðislegar kosningar eða ekki og við munum hlíta þeirri niðurstöðu. Við munum mæta á þennan fund og viljum að þai’ verði kosið um þetta. Það er svo einfalt mál.“ Bárður sagði að hann hefði per- sónulega ekkert á móti Sverri He mannssyni og hefði aldrei haft, og sér fyndist sjálfgefíð að hann yrði áfram í forystusveit. Hins vegar hefðu menn sífellt þurft að vera í vörn vegna mála Sverris og Lands- bankans en þörf væri á því að kom- ast í sókn fyrir málstaðinn sem Frjálslyndi flokkurinn kemur til meðað byggja á. „Ég hef sjálfur sagt að ég er fc sannfærður um sakleysi hans og || fullan sóma hans í því efni, en veru- ■ leikinn er sá að ég stend alla daga og ver þetta. Ég er ekki svo skyni skroppinn að ég sjái ekki að ég á um tvennt að velja. Annað hvort að eyða ævinni í það að verja Sverri Her- mannsson eða að reyna að koma saman breiðfylkingu til varnar frelsi og lýðræði í landinu," sagði hann. Bárður sagði að hjá Samtökum um þjóðareign hefði fólk verið skráð fe í gegnum síma til þátttöku á stofn- K fundi flokksins, en hann sagðist ek vita til þess að um einhverja smölun væri að ræða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.