Morgunblaðið - 24.11.1998, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Hi
7.800 skráðu sig fyrir hlut í hlutaf]árútboði Skýrr hf.
Kennitölusöfnun ver ðbréfafyrirtækj anna
í hlutafjárútboði Fjárfestingarbankans
■
í
:
■
-
i
y
Eftirspum marg-
föld á við framboð
Bankaeftirlit-
ið byrjað að
safna gögnum
JÓHANNA Sigurðardóttir alþingis-
maður hefur sent bankeftirliti Seðla-
banka íslands bréf þar sem hún ósk-
ar eftir því að bankaeftirlitið athugi
hvort um óeðlilega viðskiptahætti
hafi verið að ræða þegar verðbréfa-
íyrirtæki söfnuðu kennitölum til að
geta keypt hærri hlut en ella í hluta-
bréfaútboði Fjárfestingarbanka at-
vinnulífsins, FBA, sem lauk nýlega.
Hjálagt sendi hún ljósrit af bréfi
sem henni barst um málið en í því
segir ónefnt verðbréfafyrirtæki
starfsmönnum sínum að þeim sé
heimilt að koma með kennitölur sín-
ar og fjölskyldu sinnar, og aðila sem
þeir treysta, og að greiddir séu 5
punktar fyrir hverja kennitölu. Eins
að vænt verðmæti hverrar kenni-
tölu sé á bilinu 50 - 100 þúsund
krónur, sem fari þó alfarið eftir því
hversu mikil áski'iftin verður.
Samþjöppun valds
í bankakerfínu
Segir Jóhanna í bréfi sínu til
bankaeftirlitsins að þessir við-
skiptahættir hljóti að teljast óeðli-
legir þar sem markmiðið með út-
boðinu var að ná fram dreifðri eign-
araðild að bankanum. „Eg held að
þarna gæti verið um upphafið á
samþjöppun valds innan bankakerf-
isins að ræða,“ sagði Jóhanna í sam-
tali við Morgunblaðið.
I „leynibréfinu" svokallaða, sem
Jóhanna lætur fylgja með til banka-
eftirlitsins, er sérstaklega tekið
fram að kennitölusöfnunin megi
ekki fréttast á markaðnum. „Eg
þarf vonandi ekki að ítreka við ykk-
ur mikilvægi þess að trúnaði vegna
þessa máls verði haldið. Ef þetta
fréttist á markaðnum og til sam-
keppnisaðila okkar er málið dautt.
Við viljum þó hvetja ykkur til að ná
í kennitölurnar og hringja út til að-
ila sem þið treystið," segir í bréfinu
sem Jóhanna lét fylgja með bréfi
sínu til bankaeftirlitsins.
Breytir engu
Ragnar Hafliðason forstöðumað-
ur bankaeftirlits Seðlabankans
staðfesti í samtali við Morgunblaðið
að bankaeftirlitið hefði fengið erind-
ið. Hann sagði þó að það breytti
engu þar sem þeir hafi þegar verið
byrjaðir að kanna málið. „Hennar
bréf breytti í raun engu. Við erum
byi’jaði að afla gagna og lítið meira
er hægt að segja um stöðuna að
sinni,“ sagði Ragnar.
Hann sagðist telja að niðurstöðu
væri varla að vænta í málinu fyrr en
eftir mánaðarmót.
UM 7.800 manns skráðu sig fyrir
hlut í áskriftarhluta hlutafjánítboðs
Skýrr hf. en frestur til að skila til-
boðum rann út á föstudag. Vegna
mikillar þátttöku varð að skerða
flest tilboðin og fær hver tilboðs-
gjafi að kaupa hlut í fyrirtækinu
fyrir um tíu þúsund að nafnvirði eða
32 þúsund krónur að markaðsvirði.
Um 78 milljóna króna hlutafé var
í boði miðað við nafnverð í áskriftar-
hlutanum en þátttakendur skráðu
sig alls fyrir einum milljarði og
fimmtán milljónum króna, að sögn
Þorsteins Víglundssonar, deildar-
stjóra hjá Kaupþingi. Eftirspurnin
var því þrettán sinnum meiri en
framboðið.
Markaðsverðmæt-
ið þrefaldaðist á
átján mánuðum
Gengi hlutabréfanna í áskriftar-
hlutanum var 3,20 en hæsta tilboð í
tilboðshlutanum miðaðist við 4,20
eins og komið hefur fram. Ef eftir-
markaður myndast fyrir bréfin á
genginu 4,20 hefur hver kaupandi í
áskriftarhlutanum, sem kaupir
hlutabréf fyrir tíu þúsund krónur að
nafnvirði, því hagnast um tíu þús-
und krónur.
Sé markaðsvirði Skýrr reiknað
út frá genginu 4,20 hefur það tæp-
lega þrefaldast á átján mánuðum
eða frá því í maí 1997, þegar Opin
kerfi hf. keyptu 51% hlutafjár í fyr-
irtækinu, 102 milljónir króna að
nafnvirði, að undangengnu útboði á
genginu 1,58.
Þátttakan fór fram úr
björtustu vonum
Hreinn Jakobsson, forstjóri
Skýrr hf., er afar ánægður með út-
boðið og segir að þátttakan hafi far-
ið fram úr björtustu vonum. „Þrett-
ánföld eftirspurn umfram framboð
sýnir að Skýrr nýtur víðtæks
trausts á meðal fjárfesta og þeir
hafa mikla trú á starfsmönnum og
framtíð félagsins. Þessar góðu við-
tökur sýna einnig að menn vænta
mikils af fyrirtækinu og hvetja okk-
ur starfsmennina til að gera enn
betur.“
Meginhluti tekna Skýrr hf. kem-
ur frá opinberum fyrirtækjum en
nú þarf fyrirtækið að keppa um
þessi viðskipti á hörðum samkeppn-
ismarkaði. Þessi breyting leggst vel
í Hrein. „Ég spái því að samkeppnin
muni aukast enn frekar og við erum
reiðubúin að taka þátt í henni. Nú
hafa viðskiptavinir okkar frelsi til
að kaupa þjónustu sína hvar sem er
en ekW má gleyma því að frelsið
virkar í báðar áttir. Skýrr hf. getur
nú leitað á ný mið í þjónustu sinni
og við sjáum mörg spennandi tæki-
færi í einkageiranum," segir
Hreinn.
Sæplast hagræðir
og selur hús
SÆPLAST hf. hefur gengið frá
samningi um sölu á 600 fermetra
fasteign að Ránarbraut 9. Kaupandi
húseignarinnar, sem byggð var árið
1981, er ísstöðin hf. á Dalvík. Þetta
kemur fram í fréttatilkynningu frá
Sæplasti.
Húsið var notað undir starfsemi
röradeildar fyrirtækisins sem seld
var síðastliðið sumar.
I tilkynningunni segir að sú
ákvörðun að selja húsið sé liður í
frekari hagræðingaraðgerðum og
muni létta á rekstri fyrirtækisins.
Rekstur Sæplasts á árinu hefur,
samkvæmt tilkynningunni, gengið
betur en áætlanir gerðu ráð fyrir og
í óendurskoðuðu uppgjöri miðað við
30. september sl. er veltan orðin um
390 m.kr en hagnaður ríflega 26
m.kr.
Ný áætlun fyrir árið 1998 gerir
ráð fyrir að veltan verði um 500
milljónir króna og að hagnaður
verði um tvöfalt meiri en upphaf-
lega var gert ráð fyrir.