Morgunblaðið - 24.11.1998, Qupperneq 20
ÞRIÐJUDAGUR 24. NOVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Vönduð '
itöl og jólakort
í miklu úrvali.
Sérmerkt fyrir þig
Nýjar víddir
í hönnun og útgáfu
>raul 54 CQ561 4300 Q5Ó1 4302
Nettoiu^
ELDHÚS - BAÐ - FATASKAPAR
ELDHÚS INNRÉTTINGAR
BAÐ INNRÉTTINGAR
FATASKÁPAR
VÖNDUÐ VARA - HAGSTÆTT VERÐ
Frí teiknivinna og tilboðsgerð
' hf&H'GVm- - fyrsta flokks frá
/rOniX
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SlMI 552 4420
Islensk list
til jóla
Sigurrós Stefánsdóttir, myndlistarkona
OGallerí
Amíd.
MÍDVliA
SKAHT
Skólavörðustíg l6a, Sími 561 4090
STAFRÆNN PRENTARI
UOSRITUNARVEL
SHARP AL-1000
• Tengjanleg viS tölvu
• 10 eintök ó mínútu
• Fast frumritaborS
• Stækkun - minnkun 50%-200%
• 250 blaSa framhlaðinn
pappírsbakki
79.900,
Stgr. m/vsk
BRÆÐURNIR
LágmúIa 8 • Sími 533 2800
pyrlrtaikl
fm®
fiðstoðum
við
jólagjafirnar
mikið úrval.
Pökkum inn
/m
\ yjcKK ^
^cKRISTALL
I Kringlunni og Faxafeni
VIÐSKIPTI
Framleiðsla Opera Software
vekur alþjóðlega athygli
Annar eigandinn af íslenskum ættum
FRAMLEIÐSLA norska hugbún-
aðarfyrirtækisins Opera Software
á vafranum Opera hefur vakið
mikla athygli og hafa um milljón
manns náð í kynningareintak af
honum á heimasíðu fyrirtækisins á
þessu ári. Fyrirtækið er að hluta
til í eigu Jóns Stephensons von
Tetzchner, sem er af íslenskum
ættum.
Jén segir að Opera-vafrinn
(browser) sé seldur í gegnum Net-
ið ólíkt vöfrum eins og Explorer
frá Microsoft og Navigator frá
Netscape, sem fást ókeypis. „Á
heimasíðu okkar getur fólk nálgast
kynningareintak sem hægt er að
nota til þess að komast um á Net-
inu í skamman tíma. Ef notandinn
er ánægður getur hann keypt vafr-
ann í gegnum heimasíðuna. Á
henni er einnig hægt að fá nýja
uppfærslu af vafranum, nota
ókeypis tölvupóstþjónustu og nálg-
ast upplýsingar á nokkram tungu-
málum.
Mikið selt til Bandaríkjanna
„Opera er um margt ólíkur öðr-
um vöfram og í því liggur styrkur
hans. Forritið er hraðvirkara og
talsvert minna í sniðum en forrit
sem keyra Navigator og Explor-
er.“
Vafrinn hefur verið seldur til yf-
ir 40 landa og um helmingur ein-
taka hefur farið til Bandaríkjanna.
„Við höfum meira að segja selt
nokki-a vafra til íslands. Okkur
hefur hins vegar ekki tekist að
selja mikið af eintökum til Netnot-
enda hér í Noregi þrátt fyrir að
Námstefna
Tækninefndar ICEPROi
Lifir EDI með Interneti?
Hvað er XML?
Námstefna á vegum Tækninefndar ICEPRO, nefndar um rafræn
viðskipti, verður haldin fimmtudaginn 26. nóvember á
Hótel Loftleiðum, Þingsal 1. Fjallað verður um ýmis tækni-
mál sem eru ofarlega á baugi um þessar mundir er tengjast
EDI-samskiptum, þ.e. stöðluðum rafrænum viðskiptum.
Leiðbeinandi á námstefnunni verður Jeremy Morton,
EDI-ráðgjafi EAN í Svíðþjóð. Námstefnan verður í fjórum hlutum,
sem hverjum líkur á stuttu verkefni. Námstefnan fer fram á ensku.
Dagskrá:
08.00
08.30
Morgunkaffi og skráning.
Hvað er XML? Tengsl XML við SGML og HTML. Fjallað verður
um XML (Extensible Markup Language), en með XML er verið
að tvinna saman kosti EDI og Internets. Farið verður í tengsi
XML við SGML (Standard Generalized Markup Language) og
HTML (Hyper Text Markup Language) og málreglur XML.
HTML er það forritunarmál sem flestar vefsíður eru skrifaðar
á í dag. en margt bendir til að SGML sé að koma í staðinn.
Þá verður verkefni er felst í því að skrifa einfalt XML skjal.
í öðrum hluta verður farið í DTD (Document Type Definition),
en DTD hefur verið kallað brúin milli SGML og XML.
Farið verður í verkefni sem felst í því að gera einfalt DTD XML
skjal fyrir EDI og forrit sem ekki lesa Or HTML skjölum.
10.00
10.20
Kaffihlé.
XML og/eða EDIFACT?
Stutt verkefni: Skrifa pöntun á XML
Hvað næst? Samþykki W3C, þ.e. stýrinefndar Veraldar vefsins?
Fjallað verður um forrit á þessu sviði, framtfðarsýn og hömlur.
Almennar umræður.
Þátttökugjald er kr. 7.000 fyrir félagsmenn og starfsmenn aðildarfyrirtækja,
en 9.500 fyrir aðra. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku sem fyrst til skrifstofu
ICEPRO, í síma 510 7102 eða í tölvupósti, jakob@chamber.is.
Athugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður.
Jeremy Morton er fæddur og uppalinn á Englandi. Hann hefur starfað víða,
m.a. á Bretlandi, f S-Afríku og Danmörku. í Svíþjóð rak hann um árabil eigið
ráðgjafafyrirtæki á sviði EDI-mála en undanfarin tvö ár hefur hann starfað sem
helsti ráðgjafi EAN í Svíþjóð á því sviði. Hann hefur kynnt sér mjög vel þróun
EDI-mála og tekur virkan þátt í alþjóðlegum vinnuhópum.
%
- ICEPRO, nefnd um rafræn viðskipti
Húsi verslunarinnar, Kringlan 7, 103 Reykjavfk
Sími 510 7100, fax 568 6564
Netfang: jakob@chamber.is
gengið bærilega og hann hefur
fengið fjölmörg verðlaun og viður-
kenningar. I ár höfum við meðal
annars fengið verðlaun frá tímarit-
unum PC-World og C-Net.
Aukin umsvif
um norskt fyrirtæki sé að ræða.“
Jón, sem á norskan föður og ís-
lenska móður, lauk tölvufræðinámi
í Noregi árið 1993 og stofnaði fyr-
irtækið Opera Software með
Norðmanninum Geir Ivarsöy árið
1995. „Það má segja að við höfum
byrjað með tvær hendur tómar en
framleiðsla á vafranum hefur
Fyrirtækið gerði nýlega samn-
ing við bandaríska fyrirtækið
InUnity um framleiðslu og sölu á
sérútgáfu af Operu. Samningurinn
er til fimm ára og færir fyrirtæk-
inu að minnsta kosti um 10 millj-
ónir íslenskra króna á ári. Jón seg-
ir að nokkur verkefni séu í bígerð
og starfsemi fyrirtækisins fari vax-
andi. „Umsvif okkar hafa aukist
talsvert á liðnum misseram. Nú
starfa hjá fyrirtækinu 12 manns í
Osló, auk nokkurra starfsmanna í
Bandaríkjunum, Svíþjóð og Suður-
Afríku.
Heimasíða Opera Software er
http://www.operasoftware.com.
Bankastjóri fær
5 millj. dala á
ári í eftirlaun
New York Telegraph.
DAVID COULTER, fyrrverandi
aðalframkvæmdastjóri stærsta
banka Bandaríkjanna, BankAmer-
ica, fær tæplega 5 milljónir dollara
á ári, um 350 milljónir íslenskra
króna, meðan hann lifír frá því
hann lét af störfum hjá fyrirtæk-
inu í síðasta mánuði.
Kveðið er á um þetta í samningi,
sem var gerður við Coulter og
fjóra aðra af sex æðstu mönnum
bankans þegar BankAmerica og
Nationsbank sameinuðust í sept-
ember. Samkvæmt samningnum á
Coulter rétt á „ellibótum," sem
samsvara 95% af grunnlaunum
hans og kaupauka 1997, sem námu
5,24 milljónum dollara. Coulter,
sem er fimmtugur að aldri, fær því
4,97 milljónir dollara á ári í eftir-
laun.
Auk þess falla í hlut Coulters
300.000 hlutabréf í BankAmerica,
sem honum vora veitt þegar nýja
fyrirtækið var stofnað, um leið og
hann lætur af störfum. Hvert
hlutabréf kostaði 59 dollara 20.
nóvember, þannig að verðmæti
hlutabréfaeignar hans nemur 17,7
milljónum dollara.
Coulter hætti störfum hjá
BankAmerica þegar bankinn sendi
frá sér óvænta tilkynningu þess
efnis að rekstrarhagnaður bank-
ans á þriðja ársfjórðungi hefði
minnkað um þriðjung úr 1,77 millj-
örðum Bandaríkjadala í 893 millj-
ónir dala. Skýringin var aðallega
sú að BankAmerica afskrifaði 372
milljóna dollara lán til DE Shaw
Securities Trading, baktrygging-
arsjóðs, þar sem einn milljarður
dala til viðbótar frá bankanum er í
hættu. Uppljóstranin olli uppnámi
í Wall Street skömmu eftir að litlu
munaði að Long Term Capital
Management, hinn kunni bak-
tryggingarsjóður, yrði gjaldþrota.
Fjórir menn aðrir úr stjórn
BankAmerica, sem enn starfa í
bankanum, hafa komizt að svipuðu
samkomulagi og Coult. Þeir eiga
rétt á árlegri greiðslu að upphæð
að minnsta kosti 2 milljónir dollara
hver, ef starfi þeirra lýkur af ein-
hverjum ástæðum.
Hins vegar er engin slík ákvæði
að finna í samningi stjórnarfor-
manns og aðalframkvæmdastjóra
BankAmerica, Hugh McColl. Að
sögn kunnugra „hefur hann ekki
trú á þeim.“
Landsnefnd Alþjóða verslunarráðsins
ATA-Carnet
Einfaldari tollameðferð og undanþága frá gjöldum
Námskeið haldið á Grand Hótel Reykjavík 26. nóvember 1998
Landsnefnd Alþjóða verslunarráðsins stendur fyrir námskeiði
um ATA-Carnet skírteini og norkun þeirra í útflutningi.
Á námskeiðinu munu Birgir Ármannsson, lögfræðingur hjá
Verslunarráði íslands og Peter Bishop, yfirmaður alþjóðaviðskipta
hjá Verslunarráðinu í London (London Chamber of Commerce
and Industry) fjalla um grundvallaratriðin í notkun ATA-Camet skírteina.
Námskcidih hcfst kl. 8:15 og mun standa til hidcgis.
M.a. vcrhur Jjatlah um hvaha vörur falla undir ATA-Camct útflutning.
Hvcmigi ah sakja um ATA-Camct skírtcini? Helstu vandamil er varha ATA-Camet.
Hvaha einfóldun felur ATA-Camct i sér? Hver er ivinningurinn?
Þátttökugjald er kr. 6.900. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku
sem fyrst til skrifstofu Landsnefndar Álþjóða verslunarráðsins
í síma 510 7100 eða í tölvupósti, mar@chamber.is.
Athugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður.