Morgunblaðið - 24.11.1998, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998 23
NEYTENDUR
Þrýstiskot
geta verið
varasöm í
gömlum
pípulögnum
LESANDI Morgunblaðsins, sem
keypt hafði stíflulosandi efni með
þrýstibúnaði til að nota í niðurfalli
baðkars, hafði lent í því að rör
hrukku í sundur við þrýstinginn
sem inyndaðist þegar efnið var
notað. Töluvert vatnstjón hlaust af,
en stíflan var samt sem áður til
staðar og þurfti hann að kalla til
iðnaðarmenn til að lagfæra tjónið
og losa stífluna. Hann vildi fá að
vita hvort mikið væri um slík tjón.
Hjá þeim tryggingafélögum sem
leitað var til voru svörin ýmist á
þann veg að ekkert hefði heyrst af
slíkum tjónum eða að þau væru
rnjög sjaldgæf.
Kristján Oddsson, framkvæmda-
stjóri Lagnafélagsins, kveðst held-
ur ekki hafi heyrt um mörg slík til-
felli, en ráðleggur fólki, sérstak-
lega í eldri húsum, að leita til fag-
manna til að losa stíflur.
Hann segir að aukning hafi verið
í notkun þrýstiskota svokallaðra að
undanfórnu, en mjög varasamt geti
verið að nota þau, þar sem lagnir
eru famar að gefa sig. Stíflan get-
ur verið það mikil að rörin láta
undan án þess að stífian eyðist. Því
geti verið ódýrara þegar upp er
staðið að leita til fagmanns.
Nýtt
Italskar
töskur
TÖSKU- og hanskabúðin í
Reykjavík tók nýlega við
einkaumboði fyrir töskur frá
fyrirtækinu Fiorelli á Italíu.
Merkið er ekki með öllu óþekkt
hérlendis því kventöskur frá
fyrirtækinu hafa verið seldar í
nokkrum verslunum hér síðustu
ár. í fréttatilkynningu frá
Tösku- og hanskabúðinni kem-
ui' fram að ítölsk sérkenni komi
fram í smekklegri hönnun og
vönduðum frágangi á töskun-
um, sem ýmist eru úr leðri eða
gerviefnum af ýmsu tagi. Tösk-
urnar eru nú þegai' fáanlegar í
versluninni.
Grænt
te hjá
Whittard
HJÁ Whittard-versluninni í
Ki'inglunni fást nú fjórar nýjar
tegundir af grænu tei.
Tegundh-nar hafa mildara
bragð en hefðbundið grænt te
og heita Grænt Dai'jeeling,
Grænt Earl Grey, Grænt
Mango og Grænt Peach. Sagt
er að grænt te bæti meltinguna
og hafi róandi áhrif.
Forsteiktar
kalkúna-
bringur
FYRIRTÆKIÐ Ferskir
kjúklingar í Garðabæ hóf á ár-
inu að selja forsteiktar kalkúna-
bringur sem framleiddar eru
hérlendis.
Að sögn Guðmundar Gísla-
sonar hjá Ferskum kjúklingum
eru bringurnar bæði með bar-
becue og ómeðhöndlaðar og fást
í mörgum verslunum, tilbúnar á
jólaborðið. Má borða þær jafnt
heitar sem kaldar.
Spurt og svarað
Velúrgallamir koxnxiir
Glæsilegt úrval.
Gullbrá, snyrtivöruverslun,
Nóatúni 17, sími 562 4217.
-Góðir skór á betra verði-
á Skómarkaöinum 3. hæö Kringlunnar.
Opið frá kl. 12-18 alla daga nema sunnudaga.
Skómarkaðurinn
3. hæö, Kringlunni, sími 568 2888.
DISEL
ESSO bœtir um betur
• Fullkomnar bruna í vélum, hvort sem þœr
eru með eða án forbrunahóífs.
Er umhverfisvœri - innihéldur ekki klór.
»Dregur úr reyk- og hávaðamengun.
Ver eldsneytiskerfið gegn sliti.
• Fullkomnar eldsneytisbrunahn ***"
vegna hœkkaðrar cetanetölu.
• Kemur í veg fyrir að
freyði við áfyllingu tanka.
* Stenst ströngustu kröfur
vélaframleiðenda - oggott betur!
• Heldur kuldaþoli olíunnar í hámarki.
Heldur kerfum vélanna hreinum
og hreinsar upp óhrein kerfi.
VEISTU UM
AÐRA BETRI?
FRAMÚRSKARANDI, FJÖLVIRK DÍSELOLÍA
Fjölvirk bíetiefni í Gteðadísel ESSO „Prentiunt Diesel"
Olíufélagið hf. ESSO hýður nú aðeins díselolíu sem uppfyllir
Evrópustaðálinn EN 590 um umhverfisvernd - og til að
auka endingartíma og tryggja þýðan gang vélarinnar bœtir
Olíufélagið fjölvirkum bætiefnum í alla sína díselolíu.
Einstakt frostþol - allt að -24 ° C
Nú eru helstu kuldavandamálin einnig úr sögunni þar sem
ESSO Gæðadísel þolir að vetrarlagi allt að 24 stigafrosti.
ESSO Gæðadíselolía inniheldur:
• Dreifi- og hreinsiefni.
• Cetanetölubœtiefni sem stuðlar að réttum
bruna eldsneytis við öll skilyrði.
• Smur- og slitvamarefni.
• Tœringarvamarefni.
• Antioxidant stöðugleikaefni.
• Demulsifier vatnsútféllingarefni.
• Froðuvamarefni.
• Lyktareyði.
• Bakteríudrepandi efni.
Cssol
ESSO gœðaeldsneyti á bílinn - afhreinni hollustu við vélina og umhverfið.
Olíufélagiðhf
www.esso.ls