Morgunblaðið - 24.11.1998, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 24.11.1998, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ VERIÐ Auðlindahagfræðingurin Ronald Johnson varar við skatti á aflaheimildir „Farsælla að leggja skatt á físk- inn sjálfan“ Morgunblaðið/Porkell RONALD Johnson, prófessor í auðlinda- hagfræði við ríkisháskólann i Montana i Bandaríkjunum. ÍSLENSK stjórnvöld, sjávarútvegsfyrir- tæki og almenningur í landinu verða að vinna saman að því að svipta ekki útveg- inn þeim verðmætum sem hann hefur gert úr aflaheimildum á síðustu árum. Ætli Is- lendingar að taka upp auðlindagjald í formi skattheimtu er mun hagkvæmara að skattleggja aflann sjálfan en ekki afla- heimildirnar. Þetta er mat bandaríska auðlindahagfræðingsinss Ronald John- sons sem var staddur hér á landi í síðustu viku og hélt m.a. erindi á ráðstefnu um forsendur og reynslu íslenska kvótakerfis- ins. Auðlindagjald á næsta leiti Ronald Johnson er prófessor í auðlinda- hagfræði við ríkisháskólann í Montana í Bandaríkjunum. Hann hefur um nokkurt skeið fjallað um nýtingu náttúruauðlinda og m.a. skrifað greinar um fiskveiðar í Bandaríkjunum og á Nýja-Sjálandi. Hann segist í samtali við Morgunblaðið hafa orð- ið var við mikla umræðu um auðlindagjald við dvöl sína hérlendis og greinilegt að hér ríki andstæð sjónarmið. Umræðan hafi hins vegar verið áþekk þeirri sem farið hafi fram víða um heim, það er að segja um þá hugmynd að auðlindin tilheyri þjóðinni sjálfri og mörgum finnist þeir ekki njóta arðsins sem af henni skapast. Johnson segir að almennt sé talið að skattleggja megi arðinn sem myndist við nýtingu auðlindarinnar án þess að sjávar- útvegurinn hljóti nokkurn skaða af. Hann segist hins vegar ekki geta tekið undir þessa röksemdarfærslu. Skattlagning hafi þau áhrif að auðlindin verði ekki nýtt á hagkvæmasta hátt og þá verði arðurinn fyrir þjóðina enn minni. Hann segist hins vegar sjá fyrir sér að þennan ágreining megi jafna og það jafnvel fyrr en seinna. Lausnin hljóti þá að felast í málamiðlun af einhverju tagi. „Eg tel að íslenskur sjávar- útvegur muni að lokum greiða fyrir afnot sín af fiskimiðunum en stjómvöld ættu af- ur á móti ekki að fara fram á mikið. Ef slíkt samkomulag næst ætti fremur að skattleggja veiddan fisk en alls ekki afla- heimildirnar. Að mínu mati mætti slíkur skattur vera jafnvel 2-3% á aflaverðmæti en í staðinn sýnist mér að stjórnvöld þurfi að lækka tekjuskatt í landinu en eftir því sem ég best veit hafa íslensk sjávarútvegs- fyrirtæki kvartað mjög yfir hátekjuskatti. Samkomulag af þessu tagi yrði að mínu mati mjög hagkvæmt og jákvætt fyrir greinina í heild. I þessu sambandi er einnig mjög mikilvægt að um leið og sjáv- arútvegurinn er farinn að greiða fyrir af- not af auðlindinni yrði kvóti að nokkru leyti einkaeign. Það væri sömuleiðis skref fram á við.“ títvegurinn hefur aukið verðmæti aflaheimildanna Johnson segir margar ástæður fyrir að farsælla sé að skattleggja aflann sjálfan eða öllu heldur verðmæti landaðs afla. A liðnum árum hafi útvegurinn sjálfur aukið verðmæti aflaheimildanna mikið, umfram verðmæti aflans. „Það felst svo miklu meira í verðmæti aflaheimildanna en bara verðmæti aflans. Útvegurinn hefur sjálfur staðið að þróun afurða og uppbyggingu markaða, tækninýjungum í veiðum og vinnslu og fjárfest gríðarlega. Hvers vegna ætti að skattleggja þetta frumkvæði grein- arinnar? Ef aflaheimildirnar sjálfar yrðu skattlagðar skapaðist hætta því að kvóta- eigendur reyni á einhvem hátt að fela verð- mæti aflaheimildanna og stjómunarlega yrði slíkt fyrirkomulag mjög dýrt. Verð- mæti aflaheimildinna er auk þess nú þegar skattlagt á óbeinan hátt með fjár- magnstekjuskatti á fyrirtæki og einstak- linga.“ „Þegar útgerðarmaður hefur íjárfest í aflaheimildum," segir Johnson, „er það til að komast inn í atvinnugreinina og markmið hans er að gera út á sem hag- kvæmastan hátt. Ef útgerðin getur þannig dregið úr kostnaði og vel árar í greininni mun verðmæti aflaheimildanna aukast, vegna þess að í verðmætinu felst mismunur aflaverðmætisins og þes kostnaðar sem fylgir því að nýta auðlind- ina. Ef aflaheimildirnar sjálfar verða skattlagðar mun verðmæti þeirra sjálf- krafa lækka. Skattlagning hefur því þannig áhrif á heildarverðmæti afla- heimildanna. Ef Islendingar ætla á ann- að borð að taka upp einhvers konar auð- lindagjald ráðlegg ég þeim því eindregið að skattleggja fiskinn sjálfan en alls ekki kvótann.“ Breytingar á skattakerfí varasamar Johnson segist sannfærður um að fisk- veiðistjórnunarkerfi Islendinga sé mjög gott og i raun telji hann að því ætti ekki að breyta á nokkurn hátt. Langflestir séu sammála um ágæti framseljanlegra aflaheimilda og íslendingai- hafi stigið nauðsynlegt skref fram á við þegar tóku upp kvótakerfið. „Þið skattleggið nú þegar aðrar náttúruauðlindir og þið haf- ið gert talsverðar breytingar á skattakerf- inu í takt við reglur í öðrum löndum, meðal annars í Evrópu. Island er langt frá því að vera skattaparadís og allar frekari breyt- ingar ættu að miða að því að halda sköttum niðri. Það eru dæmi út um allan heim þar sem skattar hafa haft verulega slæm áhrif á efnahag landa. Ég tel því að það ætti ekki að gera neinar umfangsmiklar breytingar í skattlagningu á fiskiðnaðinn." Johnson segir ekki vera lagða sérstaka skatta á sjávarútveg í Bandaríkjunum, enda séu þeir fremur skammt á veg komnir í þróun fiskveiða. „Island og Nýja-Sjáland hafa tekið forystu í fiskveiðum og sérstak- lega fiskveiðistjómun og eru fyrirmynd annarra þjóða í þessum efnum. Ég vona því að íslendingar taki af skynsemi og var- kárni á þessum málum,“ segir Ronald Johnson. Óvæntar niðurstöður rannsókna á sjóslysum Reyndustu sjómennirnir lenda oftast í slysum HÆST slysatíðni meðal sjómanna mælist á aldrinum 25 til 39 ára og stangast það á við þær hugmyndir sem menn höfðu gert sér, sagði Kristinn Ingólfsson hjá Siglinga- stofnun Islands í erindi sem hann flutti á ráðstefnu sem bar yfir- skriftina „Aukið öryggi og hag- kvæmari sjósókn" fyrir helgi. Kristinn starfar við rannsóknir á sjóslysum og sagði hann enn frem- ur að þar sem umræddur aldurs- hópur er að mestu skipaður reynd- um sjómönnum sem væru yfirleitt vel á sig komnir líkamlega, væri líklegasta skýringin á því að þeir slösuðust oftar en aðrir sú, að þeir sinntu áhættusömustu störfunum um borð. Kristinn lagði fram súlurit máli sínu til stuðnings, en þar var unnið úr úrtaki 100 slysa og voru sjó- menn á umræddum aldri í alls 47 tilvikum hinir slösuðu. Stór hópur var einnig á aldrinum 20 til 24 ára, með alls 15 slys, og 10 slys voru í aldurshópnum 40 til 44 ára. Kristinn lagði enn fremur fram prósentutölur yfir staðsetningu slysa og kom þar fram að flest slys verða á handleggjum og höndum, eða 39%, 18% á fótleggjum og ökklum, 10% á höfði og 18% á öxl- um og baki. „Samt er oft spuming með axlir og bak hvort ekki sé um að ræða álagssjúkdóma. Annars er ekki hægt að benda á eina sérstaka ástæðu slysa heldur er um marga þætti að ræða, s.s. á hvaða veiðum skipið er, stærð þess og svo framvegis. Þó eru nokkur atriði sem einkenna vinnu um borð í skipum og eru oft meginorsök slysa. Má nefna hröð vinnubrögð, þrönga vinnuaðstöðu, mikil átök við hífingu veiðarfæra, slátt á veið- arfærum, hreyfingu á lausum hlut- um á þilfari, s.s. afla, grjóti og fleira og svo loks óvæntir utanað- komandi þætti á borð við velting og brotsjóa. Þegar slíkt gerist, kastast hlerar og togvírar til og sjór flæðir á dekk. Flest slys verða við með- höndlun veiðarfæra þ.e.a.s. við að taka og slaka veiðarfærum og það veldur jafn framt alvarlegustu slysunum," segir Kristinn. Óbreyttur kvóti í úthafskarfa ARSFUNDUR Norðaustur-Atl- antshafsstofnuninar, NEAFC, samþykkti óbreytta stjómun út- hafskarfaveiða fyrir 1999 frá því sem nú er. Einnig var ákveðið að veiðar úr norsk-íslenska síldar- stofninum yrðu með sama hætti á næsta ári og í ár. Önnur aðildarríki NEAFC féllust ekki á kröfu ís- lensku sendinefndarinnar um að aðskilja ætti stjómun veiða úr karfastofnunum tveimur sem veitt er úr, þ.e. úthafskarfa og djúp- karfa. Heildarveiðiheimildir í út- hafskarfa árið 1999 verða 153 þús- und tonn, sem skiptast þannig að Danmörk fær 40 þús. tonn, Island 45 þús. tonn, Evrópusambandið 23 þús. tonn, Rússland 36 þús. tonn, Noregur 6 þús. tonn og Pólland eitt þús. tonn. Önnur ríki fá sam- tals tvö þúsund tonn. Rússar greiddu atkvæði gegn þessari skiptingu og mótmæltu henni. Ékki náðist samkomulag um til- lögu að skiptingu makrílstofnsins og var málinu frestað til næsta fundar í NEAFC í febrúar næst- komandi. Einnig er reiknað með að þá verði ákveðið hvemig skipta eigi veiðum úr kolmunnastofni á milli aðildarríkjanna. 57. Fiskiþing Fiskifélags fslands Fiskifélagið verði forystuafl í umhverfísmálum Á 57. Fiskiþingi Fiskifélags ís- lands sem lauk á fóstudag kom fram vilji til að gera félagið að samstarfsvettvangi og forystuafli í umhverfismálum íslensks sjáv- arútvegs. Umhverfismál settu mjög mark sitt á störf þingsins og var m.a. mörkuð stefna Fiskifé- lagsins í þeim efnum. Á Fiskiþingi í gær var sam- þykkt að eitt af hlutverkum Fiski- félags Islands væri að vera á vaktinni um hvað er að gerast í al- þjóðlegu samstarfi í umhverfis- málum sem Island á aðild að og varða hagsmuni sjávarútvegsins. Þá beri félaginu að tryggja að sem best samvinna verði á milli aðila í sjávarútvegi um stefnumót- un í umhverfismálum og að settur verði á stofn samráðshópur er verði stjórnendum Fiskifélagsins til ráðuneytis í umhverfismálum. Einnig að félagið stuðli að nýtingu auðlindanna á sjálfbæran hátt, byggðan á vísindalegum rökum. Fram kom á þinginu að hugtakið sjálfbær nýting hafi ekki verið skilgreint nægilega vel og því sé nauðsynlegt að efla þekkingu á samspili lífríkisins í hafinu með t.d. fjölstofnarannsóknum og lík- önum. Þá var mælst til þess að Fiskifélagið léti athuga hver séu núverandi umhverfisáhrif íslensks sjávarútvegs. Bent var á að þegar slíkt mat lægi fyrir væri fyrst hægt að setja sjávarútveginum skýr markmið í umhverfismálum. Mikil samstaða í umhverfísmálum Pétur Bjamason, formaður stjómar Fiskifélags Islands, sagði að loknu þinginu í gær það hafa komið sér á óvart hversu samstiga þingfulltrúar hefðu verið í umræð- um um umhverfismál. „Það era allir sammála um að umhverfismál eru mjög mikilvæg og mér virðist eftir þingið að áherslur manna um aðgerðir séu mjög samhljóða. Menn telja ástand fiskistofnanna hér við land gott og vilja tefla fram þeirri staðreynd í kynningu á íslenskum útvegi en gagnrýni á sjávarútveg allsstaðar í heiminum hefur gengið út á hvemig nýtingu stofnanna er háttað. Menn telja einnig að fara verði varlega í um- hverfismerkingum á sjávarafurð- um og hér komu fram ýmis sjón- armið þar að lútandi. Menn vilja hafa áhrif á hvemig umhverfis- skilgreiningum og skilyrðum er háttað. Markaðurinn hefur enn ekki gert ki’öfur um slíkar merk- ingar, en menn eru sammála um að við verðum að búa okkur undir breytta tíma,“ sagði Pétur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.