Morgunblaðið - 24.11.1998, Side 25

Morgunblaðið - 24.11.1998, Side 25
MORGUNB LAÐIÐ PRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998 25 ERLENT frakar neita að afhenda gögn um vopnaframleiðslu Segja UNSCOM vilja réttlæta loftárásir Reuters KÍNVERSKUR íbúi Jakarta skoðar rústir kirkju sem hópur múslíma kveikti í þegar til átaka kom í borginni á sunnudag. Átök í Jakarta Bagdad, London. Reuters. PRAKASH Shah, sendimaður Sa- meinuðu þjóðanna, fór í gær til Iraks og búist var við að hann myndi freista þess að fá þarlenda ráðamenn tO að afhenda vopnaeftirlitsnefnd Sameinuðu þjóðanna^ gögn sem hún hefur óskað eftir. Irakai- höfnuðu beiðninni á sunnudag, lýstu henni sem „ögrun“ og sögðu að markmiðið með henni væri aðeins að réttlæta hugsanlegar árásir Bandaríkja- manna og Breta á Irak og hindra að viðskiptabanninu á landið yrði aflétt. Leiðtogar íraskra stjómarandstæð- inga komu saman í London í gær og lofuðu að vinna með Bandaríkja- mönnum og Bretum að því að steypa Saddam Hussein Iraksforseta af stóli sem fyrst. Richard Butler, formaður vopna- eftirlitsnefndarinnai', UNSCOM, óskaði eftir gögnunum í vikunni sem leið og Mohammad Saeed al-Sahaf, utanríkisráðherra Iraks, sagði á sunnudag að beiðnin væri liður í „viOimannslegri“ áróðursherferð. Hann bætti við að Irakar hefðu þeg- ar afhent UNSCOM og Alþjóða- kjarnorkumálastofnuninni tvær milljónir skjala frá því leit þeirra að gereyðingarvopnum í Irak hófst árið 1991. Dagblöð í írak veittust harkalega að Butler í gær, sögðu hann ala með sér hatur í garð íraks og vera stað- ráðinn í að hindra að viðskiptabann- inu á landið yrði aflétt. „Butler lítur ekki aðeins á Iraka sem persónuleg- an andstæðing heldur einnig óvin sem hann verði að skaða og refsa íraskir stjórnar- andstæðingar lofa samstarfí um að steypa Saddam öðram tO varnaðar," sagði Aí- Thawra, málgagn flokks Saddams Husseins. Blaðið sakaði UNSCOM um að „framfylgja stefnu Banda- ríkjastjórnar sem miðar að því að draga refsiaðgerðirnar á langinn með því að skapa hættuástand, dreifa lygum og ráða njósnara“. Butler segir of snemmt að ræða loftárásir Butler sagði á sunnudag að of snemmt væri að ræða hvort gera þyrfti loftárásir á skotmörk í írak ef gögnin yrðu ekki afhent. Banda- ríkjamenn og Bretar segjast enn vera tilbúnir að grípa til hernaðarað- gerða standi Irakar ekki við loforð sín um fullt samstarf við UNSCOM. Sandy Berger, þjóðaröryggisráð- gjafí Bandaríkjanna, sagði að banda- ríska stjórnin biði eftir lokasvari íraka. Butler óskaði eftir ýmsum gögn- um, allt frá upplýsingum um efna- og sýklavopn sem Irakar notuðu í stríð- inu við Iran á árunum 1980-88 til persónulegra dagbóka íraskra her- foringja. Irakar sögðu að nokkur skjalanna væru eftirlitsnefndinni óviðkomandi, nokkur hefðu aldrei verið til og önnur eyðilagst eða týnst. Forystumenn 15 hreyfinga íra- skra stjómarandstæðinga, sem starfa í Bretlandi, komu saman í breska utanríkisráðuneytinu í gær og lofuðu að vinna saman að því að steypa Saddam Hussein sem fyrst. Hreyfingarnar hafa verið mjög sundraðar og breska stjómin hvatti þær til að leggja deilumálin til hliðar og taka höndum saman í baráttunni fyrir lýðræði í Irak. Bresk og bandarísk stjómvöld sögðu í vikunni sem leið að þau myndu hefja samvinnu við íraska stjórnarandstæðinga til að auka lík- urnar á því að lýðræðisleg stjórn kæmist til valda í Irak. „Við erum að reyna að tryggja að til verðmamein- að pólitískt afl, sem sýni að Irak geti orðið opnai-a og lýðræðislegra land,“ sagði Derek Fatehett, aðstoðarutan- ríkisráðherra Bretlands. „Ef og þeg- ar stjórnarskipti verða í Irak væri mjög gagnlegt að stjórnarandstöðu- hreyfingarnar hefðu þá tekið hönd- um saman til að afstýra stjórnleysi í Bagdad.“ Nabil Mousawi, einn af forystu- mönnum íraska þjóðarráðsins, stærstu hreyfingar íraskra útlaga, sagði að fundurinn hefði verið mjög gagnlegur. “Við hlökkum allir til þess að vinna saman," sagði hann og bætti við að Fatehett hefði ekki lof- að hreyfingunum fjármunum eða vopnum. Bretar hafa sagt að slík að- stoð komi ekki til greina að svo stöddu. Jakarta. Reuters. B.J. Habibie, forseti Indónesíu, hvatti í gær íbúa landsins til að sýna stillingu eftir að a.m.k. 13 manns féllu í átökum milli múslíma og kaþ- ólikka í hverfi Kínverja í Jakarta á sunnudag. Forsetinn kvaðst stað- ráðinn í að hindra ólýðræðislegar tilraunir til að knýja fram breyting- ar í landinu. Kveikt var í nokkrum byggingum í Jakarta þegar múslímar frá Jövu og kaþólikkar frá eyjunni Ambon börðust í hverfi Kínverja í miðborg- inni. íbúar hverfisins segja að hópar glæpamanna frá Ambon hafi lengi beitt kínverska kaupmenn í hverfinu fjárkúgunum. Kínverjar eru mjög öflugir í efnahagslífi Indónesíu og hafa oft orðið fyrir árásum óeirða- seggja úr röðum annarra íbúa. Lík sjö þeirra, sem féllu í átökun- um, fundust í rústum byggingar, sem Ambon-menn höfðu notað sem spilavíti. Þetta eru mannskæðustu átök sem blossað hafa upp í hverfi Kínverja í Jakarta frá því í maí þeg- ar að minnsta kosti 1.200 manns létu lífið í óeirðum í borginni. Fyrr í mánuðinum féllu 15 manns í mót- mælum indónesíski'a námsmanna. Rakið til valdabaráttu Leiðtogar stjórnarandstöðunnar sögðu að átökin á sunnudag hefðu verið skipulögð og fréttaskýrendur telja að hópar indónesískra heldri- manna hafi komið þeim af stað í því skyni að styrkja stöðu sína í valda- baráttunni í landinu eftir afsögn Su- hartos, fyrrverandi forseta, í maí, en hann hafði þá verið einráður í land- inu í 32 ár. Stjórn Indónesíu kvaðst í gær ætla að skipa nýja nefnd til að rann- saka auð Suhartos og varaði við þvi að hann kynni að verða settur í stofufangelsi ef hann reyndi að hindra störf hennar. Fjölskylda Su- hartos er talin hafa dregið sér and- virði allt að 2,8 milljarða ki'óna. Toyota Celica GT4 '95, 2000, 5 g., 2 d. Rauður. Ekinn 110 þús. km. Verð kr. 2.490.000. Hyundai H-1 Starex '98, 2500, 5 g., 4 d. Blágrár. Ekinn 14 þús. km. Verð kr. 2.050.000. Jeep Grand Cherokee Orvis '95,5200 ss., 5 d. Grænn. Ekinn 107 þús. km. Verð kr. 3.380.000. BMW 520i '95, 2000, ss., 4 d. Svartur. Ekinn 80 þús. km. Verð kr. 2.250.000. Mazda 323F '97, 1500, 5 g„ 5 d. Rauður. Ekinn 67 þús. km. Verð kr. 1.290.000. Renauit Laguna RT '95,2000, 5 g. 5 d. Grænn. Ekinn 73 þús. km. Verð kr. 1.280.000. Hyunai Scoupe '94,1500, 5 g„ 2 d. Rauður. Ekinn 39 þús. km. Verð kr. 770.000. Verð kr. 1.560.000. BMW 518i '92, 1800, 5 g„ 4 d. Blár. Ekinn 93 þús. km. Verð kr. 1.470.000. Volvo S40 '97, 2000, 5 g„ 4 d. Blár. Ekinn 50 þús. km. Verð kr. 1.890.000. Hyundai Sonata V6 '97, 3000, ss„ 4 d. Grár. Ekinn 27 þús. km. Verð kr. 1.730.000. Toyota Carina GCi '93, 2000 ss„ 4 d. Grænn. Ekinn 152 þús km. Verð kr. 860.000. V/SA Ford Escort STW '96, 1600, 5 g„ 5 d. V.rauður. Ekinn 38 þús. km. Verð kr. 1.130.000. Renault 19 RT '96,1400, 5 g„ 4 d. Rauður. Ekinn 44 þús. km. Verð kr. 930.000. Daihatsu Charade '98,1500, 5 g„ 4 d. L.grár. Ekinn 16 þús. km. Verð kr. 1.190.000. Hyundai Accent '96,1300, 5 g„ 4 d. Grár. Ekinn 19 þús. km. Verð kr. 890.000. Hyundai H-100 '94,2400, 5g„ 4 d. Blár. Ekinn 59 þús. km. Verð kr. 920.000. Renault Nevada '93, 2200,5 g„ 5 d. Grár. Ekinn 127 þús. km. Bílalán til allt að 60 mánaða. Visa-Euro-raðgreiðslur til allt að 36 mánaða. Land Rover Discovery X5 '97, ss„ 5 d. D.grænn. Ekinn 57 þús. km. Verð kr. 2.890.000. Range Rover Vouge '87, 3500 ss. 5 d. Grár. Ekinn 180 þús. Verð kr. 990.000. Range Rover 2,5 DT '97, 2500, ss„ 5 d. Grænn. Ekinn 39 þús. km. Verð kr. 4.350.000 þús. Ford Transit (diesel) '98,2500, 5 g„ 6 d. Rauður. Ekinn 54 þús. km. Verð kr. 1.950.000. B&L notaðir bílar • Suðurlandsbraut 12 • Sími: 575 1200 • Beinn simi: 575 1230

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.