Morgunblaðið - 24.11.1998, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998 27
ERLENT
Reuters
JIANG Zemin, forseti Kína, og Borís Jeltsín Rússlandsforseti á fundi
þeirra á sjúkrahúsi í Moskvu í gær.
Forseti Kina ræðir við Borís Jeltsín
Leiðtogafund-
ur á sjúkrahúsi
Moskvu. Reuters.
Fulltrúar Clintons
vilja málamiðlun
JIANG Zemin, forseti Kína, ræddi í
gær við Borís Jeltsín á sjúkrahúsi í
Moskvu þar sem rússneski forsetinn
er að ná sér af lungnabólgu. Mun
þetta vera fyrsti leiðtogafundurinn
sem haldinn er á sjúkrahúsi.
Embættismenn í Kreml reyndu að
gera sem minnst úr veikindum
Jeltsíns og sögðu að viðræður leið-
toganna hefðu gengið eftir áætlun
þótt fundarstaðurinn hefði verið
óvenjulegur. Rússneskar sjónvarps-
stöðvar sýndu myndir af fundinum
þar sem Jeltsín sást standa og heilsa
kínverska forsetanum innilega, en
ekkert hljóð fylgdi myndunum og
fréttamenn fengu ekki að vera á
staðnum.
Fundinum var lýst sem fyrsta
„bindislausa" leiðtogafundi fjöl-
mennasta ríkis heims og hins víð-
feðmasta. Jiang, sem er 72 ára og
fimm árum eldri en Jeltsín, hló þeg-
ar hann var spurður um heilsu rúss-
neska forsetans. „Allt er í himna-
lagi,“ sagði Jiang á rússnesku, en
hann lærði málið á sjötta áratugnum
þegar hann stundaði nám í Moskvu
og vann um tíma í bílaverksmiðju.
Jeltsín og Jiang ræddu aukin sam-
skipti ríkjanna og ýmis alþjóðamál
og gáfu út tvær yfirlýsingar eftir
fundinn. Önnur þeirra var með yfir-
ski'iftinni „tengsl Rússlands og Kína
á þröskuldi 21. aldarinnar“ og í hinni
var því fagnað að náðst hefur sam-
komulag um afmörkun landamæra
ríkjanna. Jeltsín og Jiang bundu
enda á deilur um framkvæmd
iandamærasamnings ríkjanna frá
1991 sem blossuðu upp á leiðtoga-
fundi í Peking fyrir ári. Landamæra-
deilur ríkjanna leiddu til átaka á sjö-
unda áratugnum.
FULLTRÚAR Hvíta hússins eða
Bills Clintons, forseta Bandaríkj-
anna, gáfu til kynna um helgina, að
þeir væru til viðræðu um „eðlilega
og sanngjarna málamiðlun" milli
þings og forseta í því skyni að binda
enda á Clinton-málin á þingi. Er þá í
raun átt við, að þingið samþykki vít-
ur á Clinton en faili frá tilraunum til
að koma honum frá.
Það var Gregory Craig, sérstakur
ráðgjafi Hvíta hússins, sem kom
þessu á framfæri og eru orð hans
þeim mun mikilvægari fyrir það, að
nú þegar Kenneth Starr er búinn að
koma fyrir dómsmálanefndina er
ekkert í veginum fyrir því að full-
trúadeildin taki sína ákvörðun í mál-
inu.
„Forsetinn hefur sagt og ég ítreka
það, að við erum hlynntii’ sann-
gjarnri tillögu, sem getur bundið
enda á þessi mál,“ sagði Craig í við-
tali við NBC-sjónvarpsstöðina.
Vítur eða ákæra?
Bob Livingston, væntanlegur for-
seti fulltrúadeildarinnar og þar með
leiðtogi repúblikana, sagði í viðtali
við sömu stöð, að hann útilokaði
ekki, að forsetinn yi’ði víttur en
ákvæði fulltrúadeildin að ákæra
hann, þá væri eðlilegra að ræða um
einhverja máiamiðlun þegar málið
væri komið fyrir öldungadeildina.
Talið er útilokað, að málshöfðun
verði samþykkt þar því að þar þarf
þrjá fjórðu þingmanna til.
Fastlega er búist við, að meirihluti
repúblikana í dómsmálanefndinni
samþykki, að höfðað verði mál á
hendur Clinton og er gert ráð fyrir,
Hugsanlegt að allt
að 20 repúblikan-
ar greiði atkvæði
gegn málshöfðun
að atkvæðagreiðsla um það verði 7.
desember nk. Hitt er svo meira efa-
mál, að tillaga um málshöfðun verði
samþykkt í fulltrúadeildinni með það
í huga, að þar hafa nú repúblikanar
aðeins sex sæta meirihluta og kjós-
endur almennt vilja ekki, að Clinton
verði komið frá.
Vilja ekki að Clinton
sleppi alveg
Til þessa hafa sex repúblikanar í
fulltniadeildinni lýst yfir, að þeir
muni greiða atkvæði gegn málshöfð-
un gegn Clinton og Christopher
Shays, þingmaður fyrir Connecticut,
segist telja, að þeir verði um 20. Það
væri nóg til að fella tilllögu um máls-
höfðun þótt vitað sé, að nokkrir
demókratar hyggist styðja hana.
Margir demókratar vilja, að Clint-
on verði hegnt með einhverjum
hætti fyrir að hafa ekki sagt satt um
samband sitt við Monicu Lewinsky
og þeir leggja mikla áherslu á, að
repúblikanar fallist á einhverja
málamiðlun. Segja þeir, að geri þeir
það ekki, þá geti þeir ekki kennt
neinum um nema sjálfum sér ef
Clinton sleppur refsingai-laust frá
öllu saman.
Sumir þeirra repúblikana, sem eru
andvígir málshöfðun gegn Clinton,
hafa líka efasemdir um einhvers kon-
ar vítur. Benda þeir á, að á um þær
sé ekkert kveðið í stjórnarskránni og
auk þess gætu þær orðið að hættu-
legu fordæmi. Þær gætu orðið að
eins konar vopni, sem þingið notaði
síðar til að tugta til forsetana.
DUGMIKIL
FJÖLSKYLDA,
TÆKNILEGA SINNUÐ
£FÞÚ VILTHALDA
SENDINGARKOSTNAÐI
ÍALGJÖRU
LÁGMARKI
Rekstrarleigusamningur
Engin útborgun
22.31 lkr. á mánuSi
Fjármögnunarleiga
Utborgun 188.554 kr.
12.129 kr. á mánuSi
ftekctrarleiga er miöuð er við 24 mánuði og 20.000 km akstur á ári. Fjármögnunarleiga er miðuð við 60 mánuði
og 25% útborgun, greiðslur eru án vsk. Vsk leggst ofan á leigugreiðslur en viðkomandi fœr hann endurgreiddan
ef hann er með skattskyldan rekstur. Allt verð er án vsk.
ATVINNUBÍLAR
FyRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Ármúli 13
Sfmi 575 1200
Söludeild 575 1220
HYUnDRI
Minolta f jölskyldan er stór fjölskylda
og annálaðir dugnaðarforkar
MINOLTA FAXTÆKI
3 tegundir faxtækja,
öll tölvutengjanleg.
Allt í senn; prentari, skanni, fax
og Ijósritunarvél.
MINOLTA LASERPRENTARAR
4 tegundir laserprentara, bæði fyrir
svart/hvítt og lit.
MINOLTA UÓSRITUNARVÉLAR.
Hraði frá 15 upp í 80 eintök pr. mín.
Bæði fyrir svart/hvítt og lit.
Líttu við í nýrri verslun
og heilsaðu upp á einstæða
fjölskyldu.
MINOLTA
SKÝR MYND-SKÝR HUGSUN
____KJARAN_______
TÆKNIBÚNAÐUR
SÍÐUMÚL112 108 REYKJAVÍK SÍMI 510 5500 FAX 510 5509