Morgunblaðið - 24.11.1998, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998 33
Hamingjuóskir
Reutei*s
Brosað í Bilbao
KtM.IST
Langho I tski rkja
KÓRTÓNLEIKAR
í tilefni sextugsafmælis Þorkels Sig-
urbjörnssonar flutti Kór Langholts-
kirkju og Gradualekórinn kirkjuleg
kórverk eftir afmælisbarnið.
Einsöngvari var Ólöf Kolbrún Harð-
ardóttir en stjórnandi Jón Stefáns-
son. Laugardagurinn 21. nóvember,
1998.
ÞORKELL Sigurbjörnsson er
einn af afkastamestu tónskáldum
okkar íslendinga og í gerð kirkju-
legra tónverka hefur hann lagt með
sér digran sjóð. Starf kóra í tón-
leikahaldi og við kirkjulegar athafn-
ir er drjúgur hluti af daglegri tón-
listarumsýslan fólks og því er Þor-
kell líklega kunnastur fyrir kórverk
sín, sem mörg hafa þá hljóman í sér
að þau verða aldrei of oft kveðin.
Tónleikarnir í Langholtskirkju
voru rammaðir inn með fjórum
kunnustu kórverkum Þorkels, er
hófust á sálmalögunun Heyr himna-
smiður við kvæði Kolbeins Tuma-
sonar og Til þín Drottinn við ljóð
Páls V.G. Kolka, lög sem réttnefnd
eru perlur og voru mjög vel flutt af
báðum kórunum. Tónleikunum lauk
svo með tveimur kórverkum af
stærri gerðinni, Davíðssálmi nr. 92
og Hósíanna. I þessum verkum er
tónvinnan óhefðbundnari en í
sálmalögunum og hafa frá því þau
voru frumflutt 1978 verið meðal
vinsælustu kirkjuverka Þorkels og
sérstaklega þó Hósíanna. Bæði
verkin voru mjög vel flutt en í Dav-
íðssálminum áttu Eiríkur Hreinn
Helgason, Halldór Torfason og Jón
Helgi Þórarinsson ágætlega sungn-
ar smástrófur og Ólöf Kolbrún
Harðardóttir söng hásópranröddina
í Hósíanna.
Kór Langholtskirkju flutti fyrir
hlé Englar hæstir, innilegt og ein-
falt sálmalag við texta eftir Matt-
hías Jochumsson, tvö lög, sem Ólöf
Kolbrún Harðardóttir söng með
kórnum, Faðir vor, þín eilíf elska
vakir við Ijóð Sigurbjörns Einars-
sonar og Maríukvæði við texta
Matthíasar. Yngsta tónverkið á tón-
leikunum var Andi Guðs sveif áður
fyrr við orð Valdimars Briem og var
TONLIST
Tjarnarbfö
SÖNGTÓNLEIKAR
Tjarnarkvartettinn flutti íslenska
tónlist. Laugardag kl. 16.
ÍSLENSK tónlist þrífst á þvi að
eiga gott tónlistarfólk. Og í engri
grein tónlistarinnar hefur verið jafn
mikil gróska og í kórsöng og sam-
söng hvers konar. Vart eru haldnir
þeir kórtónleikar að ekki séu frum-
flutt ný kórlög. Tónleikar Tjarnar-
kvartettsins í Tjarnarbíói á laugar-
daginn voru engin undantekning
þar á, síður en svo. Þar var allt nýtt!
Ný 'lög, og nýjar útsetningar á
kunnum lögum og gömlum þjóðlög-
um. Islensk tónlist þrífst á því að
eiga gott tónlistarfólk; það
sannaðist hér enn einu sinni. Það
var frábært að heyra hve mikið er
til af góðri nýrri tónlist fyrir fjög-
urra radda sönghópa og kóra.
Tjarnarkvartettinn, skipaður
Rósu Kristínu Baldursdóttur sópr-
an, Kristjönu Arngi'ímsdóttur alt,
Hjörleifi Hjai’tarsyni tenór og
Kristjáni Hjartarsyni bassa, hefur
nú um nokkurra ára skeið ótvírætt
verið fremstur í flokki íslenskra
sönghópa, og uppistaðan í efnisskrá
hans æviniega verið íslensk tónlist.
Raddirnar fjórar eru mjög ólíkar,
en falla ákaflega vel saman. Skóluð
rödd Rósu Kristinar trónar tær og
hrein á toppnum, lyftir samhljómn-
um og gefur honum fyllingu; hin
hlýja og fagra rödd Kristjönu og
björt og músíkölsk rödd Hjörleifs
samið á þessu ári fyrir Kór Lang-
holtskirkju og tvö síðustu lögin fyrir
hlé voru Davíðssálmur nr. 117 og
Lofsöngur engla við biblíutexta,
Lúkas 2,14. í heild var flutningur-
inn sérlega áhrifamikill, sérstaklega
í tveimur síðustu verkunum, sem
eru töluvert ki’efjandi í söng.
Efth’ hlé söng Gradualekórinn
fjögur verk, Hvað flýgur mér í
hjarta blítt og Immanúel oss í nátt,
sem bæði eru úr Hymnodia Sacra
og Einn Guð í hæðinni, sérkennilegt
þjóðlag, er Ingunn Bjarnadóttir
bjargaði frá gleymsku. Gradu-
alekórinn lauk flutningi sínum með
Te Deum rið fornan bænatexta í
þýðingu Sigurbjörns Einarssonar
og söng Regína Unnur Olafsdótth’
einsöng en undirleikari á hörpu var
Monica Abendroth. Flutningurinn
var í heild mjög góður og svo var
einnig um áframhaldið en þá tók við
Kór Langholtskirkju og flutti þrjú
nýleg verk, tvö þau fyrri við ljóð
Sigurbjörns Einarssonar, Hér legg-
ur skip að landi (1994), sérlega
hugnæmt lag, og Hvítasunna (1997)
en þriðja verkið var Stælið, frá 1990,
við biblíutexta (Jesaja 35, 3-6).
Saman sungu kórarnir Nú hverf-
ur sól í haf, og tónleikunum lauk,
svo sem tilgreint var iyrr, með Dav-
íðssálmi nr. 92 og því fræga
Hósíanna. Þrátt fyrir nokkurn
stílmun á þeim tónverkum sem flutt
voru, eru verkin samt ótrúlega sam-
stæð en eins og oft vill verða, eru
„litlu" lögin ef til vill þau sem af-
hjúpa mest og í mörgum þeirra er
að finna þann sérstæða innileika,
sem hver hlustandi vill geyma með
sér. Þar er að finna lög eins og
Heyr himnasmiður, Til þín Drott-
inn, Englar hæstir, og lag sem und-
irritaður heyrði í fyrsta sinn, Hér
leggur skip að landi, er hefur í sér
þá snertifleti tilfínninga, sem ekki
verða skilgreindir.
Með hamingjuóskum til Þorkels
fylgir þökk til Kórs Langholts-
kirkju, Gradualekórsins, ein-
söngvara, samleikara og stjórnanda
fyrir frábæran flutning og að halda
uppi merkjum íslenski’ar tónlistar,
með því að rifja upp hluta af því
sem Þorkell Sigurbjörnsson hefur
gefið okkur Islendingum til eignar
um ókomin ár.
eru óbrigðular í innviðum tónlistar-
innar, og á botninum situr falleg
rödd Kristjáns, sem sannarlega
mætti fá fleiri tækifæri í samsöngn-
um til að láta ljós sitt skína. Sam-
hijómur kvartettsins er góður og
vel samstilltur, og þar skiptir
áralöng samæfmg mestu. Ef eitt-
hvað ætti að tína til í söng hópsins
til að finna að, - þá mætti að ósekju
víkka enn meira litróf blæbrigða og
styrks í söngnum. Styrkur hópsins
felst hins vegar í þeirri miklu söng-
gleði sem af honum stafar og ein-
lægi’i og innilegri túlkun tónlistar-
innar.
Hirðskáld Tjarnarkvartettsins
um þessar mundir er Hróðmar Ingi
Sigurbjörnsson, og átti hann flest
lögin á efnisskránni, bæði frumsam-
in, útsetningar á þjóðiögum, og
einnig útsetningar á lögum annarra
tónskálda. Lög Hróðmars, Fegin í
fangi mínu og La belle við ijóð
Jónasar Hallgi’ímssonar og Vöggu-
vísa við ljóð Jóhanns Jónssonar, og
þjóðlagaútsetningarnar 0 jómfrú
fln og Ekkillinn frá Alfahamri stað-
festa að Hróðmar er í röð okkar
fremstu kórtónskálda, og útsetning-
ar hans á hrífandi lögum Heimis
BANDARÍSKI popplistamaðurinn
Robert Rauschenberg stendur
glaðbeittur við eitt verka sinna,
upplýst reiðhjól, í Guggenheimsafn-
MENNINGARSAMTÖK Norð-
lendinga - MENOR - hafa
ákveðið að efna til samkeppni í
ritun einþáttunga í samvinnu við
Leikfélag Akureyrar.
Keppnin er öllum opin, og er
skilafrestur handrita til 1.
október 1999. Hámarkslengd
handrita skal vera sem svarar 1
klst. í flutningi. Handritin skulu
merkt dulnefni, en með skal
fylgja nafn höfundar og heimil-
isfang í lokuðu umslagi. Hand-
ritin skulu merkt MENOR, en
send til Leikfélags Akureyrar,
Hafnarstræti 57, Akureyri.
Dómnefnd keppninnar verður
skipuð þremur mönnum, einum
tilnefndum af MENOR, einum
frá Leikfélagi Akureyrar og ein-
um tilnefndum af Bandalagi ís-
lenskra leikfélaga. Vegleg pen-
ingaverðlaun verða í boði fyrir
þrjú bestu handritin.
Sindrasonar Hjarta mitt og Þótt
form þín hjúpi graflín við ljóð Hall-
dórs Laxness og Eftir barn við ljóð
Friðriks Guðna Þórleifssonar eru
virkilega fínar. Söngur Kristjönu í
Vögguvísunni var heillandi í bíandi
kyrrð sinni. Tvö lög eftir Ti-yggva
M. Baldvinsson, Ektamakinn elsku-
legi við ijóð Hallgríms Péturssonar
og Rrummi við ljóð Davíðs Stefáns-
sonar, eru líka til vitnis um að mik-
ils sé af Tryggva að vænta á þessu
sviði í framtíðinni. Útsetningar
Elíasar Davíðssonar á lögum Sig-
fúsar Halldórssonar I gi-ænum mó,
og lagi Jóns Múla Árnasonar eru
fyrir virtúósa að syngja, og söng
Tjarnarkvartettinn þau með mikl-
um glæsibrag, einkum lagið um
Reykjavíkurfrökenina þar sem allt
var lagt í sölurnar í aldeilis frábær-
um flutningi með miklum húmor og
gleði. Lag og ljóð Ríkarðar Ai-nar
Pálssonar Delg Jó Dárni var sömu-
leiðis sungið af mikilli gleði og inn-
lifun. Tvö lög Atla Heimis Sveins-
sonar, íslands minni við ljóð Jónas-
ar Hallgrímssonar og Idyll við hug-
ljúft ljóð Halldórs Blöndal, voru
feikna vel sungin, það var hreinlega
sem brysti á með indælu sólskini og
inu í Bilbao. Þar var á dögunum
opnuð yfirlitssýning á um 300 verk-
um Rauschenbergs og stendur hún
fram í mars á næsta ári.
Ráðgert er að leikfélög á
Norðurlandi taki verð-
launaþætti (og e.t.v. fleiri) til
sýninga á árinu 2000 eða síðar.
Einnig er áformað að tengja
keppnina sérstaklega
kristnitökuafmælinu árið 2000,
á þann veg að efni, sem kynni
að berast og tengdist á ein-
hvern máta atburðum
kristnitökunnar eða öðrum í
kirkjusögu Islands, mætti nota
til flutnings á kristnihátíðum á
Norðurlandi eða annars staðar.
Þetta mun vera í fyrsta skipti
sem efnt er til slíkrar sam-
keppni á Norðurlandi, en MEN-
OR og dagblaðið Dagur hafa
staðið fyrir samkeppni í ritun
smásagna og ljóðagerð frá árinu
1989.
Nánari upplýsingar um tilhög-
un einþáttungskeppninnar veitir
Þráinn Karlsson.
flugnasuði í rómantískri náttúru-
stemmningu samgönguráðherrans
og Atla Heimis. Alan eftir Hiimar
Oddsson er mikil söngdrápa í fínni
útsetningu Hróðmars og fór Tjarn-
arkvartettinn prýðilega með þetta
vinsæla lag. Lag Sigvalda
Kaldalóns Kata litla í koti í útsetn-
ingu Hildigunnar Rúnarsdóttur hef-
ur ekki verið sungið með jafnmikilli
kátínu síðan kvennadeild Sunnu-
kórsins söng það hér um árið og lag
Gunnars Reynis Sveinssonar, Mað-
ur hefur nú í útsetningu Sigurðai’
Haildórssonar, var sungið með
sama innileika og annað á þessum
ágætu tónleikum. Tvö lög eftir
„sveitakonur" eins og sagt var í
kynningu voru síðust á efnis-
skránni, Amma kvað, eftir Sigríði
Hafstað í útsetningu Hróðmars
Inga Sigurbjörnssonar og Sofðu
svanur á heiði eftir Ingibjörgu
Bergþórsdóttur í útsetningu Þor-
kels Sigurbjörnssonar. Þetta voru
falleg lög og vel sungin, og vekja
spurningar um hvort þessar konur
eigi ekki fleiri slík í handraðanum
sem ástæða væri til að leyfa okkur
hinum að heyra.
Tónleikar Tjarnarkvartettsins í
Tjarnarbíói voru eiginlega söng-
skemmtun, eins og þær gerðust
bestar hér áður fyrr. Það var mikil
stemmning í salnum og auðheyi’t að
viðstaddir undu söngnum vel. Það
ánægjulegasta var að heyra að hér
hafa góðir tónlistarmenn orðið hvati
þess að ný tónlist hefur orðið til. Ný
og góð tónlist mun á móti efla þessa
tónlistarmenn og alla þá aðra sem
langar að spreyta sig.
Bergþóra Jónsdóttir
Borgarleikhúsið
Leiklestur
sígildra
ljóðleikja
LEIKFÉLAG
Reykjavíkur
hyggst standa
að leiklestra-
syrpu nú í vetur:
Leiklestur sí-
gildra ljóðleikja
í þýðingu Helga
Hálfdanarsonar:
Ofjarlinn eftir
Frakkann Pi-
erre Comeille;
Lífið er draumur eftir Spánverjann
Don Pedró Calderón de la Barca;
Kóríólanus eftir Englendinginn
William Shakespeare og
Hyppólítos eftir Grikkjann Evr-
ípídes.
Fyrsti lestur verður á Litla sviði
Borgarleikhússins í kvöld, þriðju-
dag kl. 20: Lífið er draumur, (La
vida es sueno), eftir Don Pedro
Calderón de la Barca (1600-1681).
Þátttakendur eru Ámi Pétur
Guðjónsson, Halldór Gylfason,
Hjalti Rögnvaldsson, Jón Hjartar-
son, Kristján Franklín Magnús,
Rósa Guðný Þórsdóttir, Valgerður
Dan, Þórhallur Gunnarsson og
Þorsteinn Gunnarsson.
Ekkert þessara sígildu ieikrita
hefur verið flutt áður á íslensku og
era þau öll í bundnu máli.
Leiklestrunum er ætlað að vera
kynning á þessum stórskáldum, en
mörg verka þeirra hafa komið út
undanfarin ár á íslensku.
Calderón de la Barca
(1600-1681) var eitt höfuðskálda
Spánverja á 17. öld. Hann skrifaði
yfir 400 verk, þar af eru 108 gam-
anleikir þekktir, og 73 trúarlegir
hátíðaleikir auk harmleikja og
sögulegra leikverka.
Van Gogh-
verk á fimm
milljarða kr.
New York. Reuters.
SJÁLFSMYND eftir hol-
lenska listamanninn Vincent
van Gogh seldist fyrir helgi á
rúmlega 70
milljónir
dala, sem
svarar til um
4,99 milij-
arða ís-
lenskra
króna á upp-
boði hjá
Christie’s. Er þetta þriðja
hæsta verð sem greitt hefur
verið fyrir listaverk á uppboði.
Van Gogh málaði mjmdina
árið 1889 og nefnist hún
„Portrait de l’artiste sans bar-
be“ (mynd af listamanninum
skegglausum) og var hún met-
in á um 20-25 milljónir dala,
um 1,4-1,75 milljarða ísl. kr.
Hæsta verð sem fengist hefur
fyrir mynd eftir van Gogh var
fyrir andlitsmynd af dr.
Gachet, sem seldist á 82,5
milljónir dala, um 5,77 millj-
arða ísl. kr. á uppboði fyrir átta
árum. Myndin sem seld var
fyrir helgi var ein af síðustu
sjálfsmyndum hans sem enn
voru í einkaeigu.
Van Gogh málaði myndina í
afmælisgjöf handa móður
sinni, ári áður en hann lést. Er
hún talin síðasta sjálfsmynd
hans. Áður en van Gogh málaði
myndina rakaði hann sig því
hann taldi að þá myndi hann
virðast unglegur og heilsu-
hraustur og var verkinu ætlað
að róa móður hans sem hafði
miklar áhyggjur af syninum.
Jón Ásgeirsson
Ný og góð
tónlist
Samkeppni í gerð
einþáttunga
Calderón
de la Barca.