Morgunblaðið - 24.11.1998, Side 46

Morgunblaðið - 24.11.1998, Side 46
~>46 ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998 AÐSENDAR GREINAR MORGUNB LAÐIÐ í Kleppsholtinu þai’ sem ég ólst upp þótti ekki við hæfi að sparka í menn liggj- andi, níðast á minni- máttar eða atast í þeim sem höfðu ekki skap til þess. Því hika ég eilítið við að svara j Braga Guðbrandssyni, forstjóra Bamavernd- arstofu, og skensi hans í Morgunblaðinu á fimmtudaginn í síð- ustu viku. Vafalaust botnar stór hópm' les- enda ekkert í því hvað mennimir era að þvarga. Fullur iðranar verð ég þó að draga allt mitt hnjóð til baka. Forstjórinn treystir því ekki að málstaður hans standi und- ir sjálfum sér og gerir stutta útt- tekt á sálarástandi mínu, - eins og til að hnykkja á því að ekki sé orð að marka það sem ég segi. Eg bjóst við að lærður maður úr ensku - - akademíunni, eins og Bragi, væri vaninn á tæpitungulausa orðræðu og gerði mun á andmælum og níði. An þess ég vissi virðist hann hafa tamið sér landlægan tepraskap nú- tíðarmanna með helgar skoðanir sem leggja gagmýni að jöfnu við skítkast. Auðvitað er ekkert að Vísast geta þeir menn heldur ekki rætt sam- ^ an, segir Pétur Tyrf- ingsson, sem nota ólík talnakerfi, virða hvor sinn siðabálk og tala hvor sitt tungumál. marka mann eins og mig sem hendir skít í stjómlausu reiðikasti. I þessum leiða skætingi mínum í Morgunblaðinu 8. nóv. var niður- staðan um áróðursherferð Braga Guðbrandssonar fyrir hagsmunum Bamavemdarstofu þessi: „Þýðing- armiklum staðreyndum var vísað á bug, óþarfa dylgjum um aðrar stofnanir var laumað inn í umræð- una, alhæfingum úr þröngu skoti var veifað eins og þær væra allur sannleikur og fjölda foreldra send háskalega röng skilaboð." skilur svona tölur og fær út að rúmlega hundrað manns komi á Vog úr hverjum ár- gangi undir tvítugu ár hvert (um 700 manns!). Þórarinn Tyrfingsson 'er vísast ekki óskeikull en trauðla svo óskýr og þvoglumæltur að þess- ar tölur vefjist fyrir hugsandi fólki. Ég hélt að félagsfræðingurinn kynni eitthvað fyrir sér í lýðfræði og botn- aði í svona tölum. Bið ég Braga Guðbrands- son að fyrirgefa mér að ætlast til að hann beri skynbragð á staðtölugögn og játa ég hispurslaust óskammfeilni mína. Engu að síður hafa þessar háu tölur þá félagslegu þýðingu að vímuefnavanda unglinga í heild ætti ekki að ragla saman við heimil- isvanda Bamaverndarstofu. Með þeim raglingi berast háskaleg skilaboð til foreldra um að vímu- efnavandi lýsi sér einkum með hegðun sem forstjórinn og ýmsir aðrir telja tilefni til nauðungarvist- ar og endurappeldis á stofnunum um langa hríð. Önnur tunga Þessi skilaboð era þeim mun skýrari þegar forstjóri Bama- vemdarstofu talar um meðferð SAA í sömu andrá og lýsir því yfir að hún komi ungmennum ekki að gagni. Þetta kalla ég óþarfa dylgj- ur um aðrar stofnanir sem hann laumar inn í umræðu sem snýst að líkindum um eitthvað annað. Þessu vill Bragi ekki gangast við en bítur þó höfuð af skömminni þegar hann endurtekur orð sín í svargreininni. Hann segir meðferð SÁÁ ekki hentuga fyrir unglinga. Svo heldur hann áfram og segir að máhð snú- ist um að taka ábyrgð á börnum sem ekki era fær um að axla hana sjálf - sem er ákaflega settlegt orðalag um böm sem engin bönd halda og rétt þykir að þröngva til meðferðar. Hann segist líka vera að tala um unglinga sem hann telur ekki með góðu móti hægt að greina sem alkóhólista og vandi þeirra sé „yfirleitt talsvert margbrotnari en neyslan ein“. Bragi viðurkennir þá að hann er alls ekki að ræða hinn eiginlega vímuefnavanda unglinga og því síður meðferð við honum. Nákvæmlega það sem ég bar uppá hann og agnúast yftr. Til hvers að blanda SÁA í þetta mál? Ég er alinn upp við að fólk segi það sem það segir. Mér var þá nokkur vorkunn að reikna með að Bragi segi líka það sem hann segir. En nú veit ég að hann segir ekki það sem hann segir, heldur segh- hann það sem hann segir ekki með því sem hann segir. Ég dreg því til baka allt mitt skítkast, níð og dylgjur - forstjórinn sagði ekki það sem hann sagði. Annar siður Fólk sem leggur stund á hvers konar lækningar og meðferð temur sér faglegt siðgæði. Svoleiðis fólk reynir að setja viðfangsefni sín og vandamál í rétt samhengi svo hvorki sé gert of mikið né lítið úr þeim. Þetta fólk hefur hugfast að orð þess um aðrar stofnanir og kollega geta haft áhrif á skjólstæð- inga þeirra og störf. Heilbrigðis- þjónar vita sem er að með orðum sínum senda þeir fólki skilaboð og leiðbeiningar. Ég veit svei mér ekki hvernig ég fékk þá flugu í höf- uðið að setja skrifstofumann í fé- lagsmálaráðuneytinu undir þetta siðferðilega mæliker? Ég bið emb- ættismanninn náðarsamlegast af- sökunar á framhleypni minni. Sennilega var það líka ljótur hrekkur að gera Braga Guðbrands- son, forstjóra Bamaverndarstofu, að nokkra leyti ábyrgan fyrir þess- ari slagsíðu á umræðunni um vímu- efnavanda og meðferð. Auðvitað verða menn að hafa myndugleik, þekkingu og sannfæringarkraft til að geta vakið umræðu á almanna- vettvangi og haft fyrir henni for- ystu. Forstjórinn hefur einfaldlega ekki þessa eiginleika og biðst ég af- sökunar á að telja hann jafnoka fjölmargra annarra forstöðumanna á almannavegum. Þeim hefur nefnilega oft og einatt farist þetta ágætlega úr hendi enda ráðnir í stöður sínar til að hafa vit fyrir okkur hinum. Forstjóri Barnavemdarstofu getur treyst því að ég mun ekki ónáða hann með frekara rausi. Vammlausir og virðulegir embætt- ismenn sem standa í þjóðþrifum ættu ekki að þurfa að sitja undir hrópum götustráka. Vísast geta þeir menn heldur ekki rætt saman sem nota óhk talnakerfi, virða hvor sinn siðabálk og tala hvor sitt tungumál. Ættu þeir síst að bregða blekbröndum sínum í dagblöðum sjálfum sér og almenningi til ónota. Höfundur er áfengisráðgjafi á sjúkrahúsinu Vogi. Við sama hey- garðshornið Pétur Tyrfingsson Omurleg sjón- armið Ivars Páls Jónssonar HVAÐ er það sem heldur herra Ivari Páli Jónssyni frá því að vera hasshaus og eit- urlyfjafíkill sbr. grein hans í Morgunblaðinu 17. nóvember 1998. Af skoðunum hans að dæma lítur allt út fyrir að hann sé langt leidd- ur. Nýtir hann sér kannski stundum þau „augljósu" réttindi að reykja góðan skít eins og það er kallað á máli fræðimanna? Eru þetta kannski fordóm- ar að kalla þá sem reykja hass hasshausa, þar sem þeir reykja aðeins í skjóli náttúralegra réttinda sinna. En hvað lögin geta verið ósanngjörn. Það að fá að reykja hass er Ivari til Hver á að gæta bróður míns? spyr Eiríkur Aki Eggertsson í svari um fíkniefnamál. marks um frelsi og sjálfsögð mann- réttindi. John Stuart Mill segir í bók sinni Frelsið, sem ég efast ekki um, að Ivar Páll hafi lesið, að frelsi merkti fyn- á öldum vernd þegn- anna gagnvart harðstjórn valdhafa. Með tímanum tókst mönnum að brjótast undan oki valdhafanna og koma á fót lýðræðisríki sem telja má stóran áfanga í frelsisbaráttu mannkyns. Nú á dögum berjast sumir menn fyrir því að fá að reykja hass og ef eitthvað er að marka grein Ivars í Morgunblað- inu 17. nóvember 1998 yrði lög- leiðsla þess, að hans mati, ekki síð- ur glæsilegur áfangi í sögu mann- kyns. I grein Ivars koma m.a. fram þau „skotheldu" rök að ríkið geti ekki komið í veg fyrir óhóflega salt- neyslu fólks, og þar af leiðandi sé ómögulegt að leggja bann við at- höfnum fólks ef þær skaði ekki aðra, og leyfi ég mér að aðstoða Iv- ar við að leggja til fleiri augljós dæmi úr raunveraleikanum, um at- hafnir sem ekki skaða aðra: „Þá skaðar það sjálfsagt engan annan sprauti ég mig með súrmjólk á tveggja daga fresti, eða kannski heróíni. Meira að segja SKYNSAMIR menn hljóta að vera mér sammála, því að þar er. aðeins um stigsmun að rasða, ekki eðlismun." Ivar varpaði þeirri spurningu fram, hvort réttlætanlegt hefði verið að banna ís- lensku Everest-förun- um að yfirgefa fjöl- skyldur sínar og halda á tindinn á þeim forsendum, að ekki væri lög- legt að reykja hass. Þarna væri að- eins um stigsmun að ræða, ekki eðl- ismun. Með því að reykja hass er- um við aðeins að skaða okkur sjálf segir ívar. Hann lætur því hins vegar ósvarað, hvað liggi að baki því að klífa einn erfiðasta tind í heimi, heldur leggur það að jöfnu við að reykja hass, án þess að gera sér grein fyrir þeirri afstöðu til lífs- ins, sem liggur til grandvallar og hvergi er betra að láta reyna á en í Himalæjafjallgarðinum. Ivar telur þarna aðeins vera um stigsmun að ræða, ekki eðlismun. ívar byggir málstað sinn á meg- inreglu um frelsi einstaklingsins og ábyrgð hans á eigin lífi en skeytir ekki um aðstæður þeirra einstak- linga sem taldir era hafa frelsi til að velja um það hvort þeir neyti eit- urlyfja eða ekki. Fullorðið fólk gengur að því vísu, að það geti ver- ið lífshættulegt að neyta eiturlyfja og það er einnig á þess ábyrgð að koma því til skila til barna og ung- linga að slíkt megi ekki viðgangast. Hins vegar eru það uppgjafarmenn eins og Ivar Páll Jónsson sem reyna að slá sig til riddara með jafnóábyrgum og óheilbrigðum sjónarmiðum og bera fyrir sig frelsi einstaklingsins, að honum geti ver- ið leyfilegt að gera hvað sem er án þess að það skaði aðra „með bein- um hætti“. - Hver á að gæta bróður míns? Höfundur er lögfræðinemi við HÍ. Eiríkur Áki Eggertsson Aðrar tölur Hinar þýðingarmiklu staðreyndir varða vímuefnavanda ungs fólks sem lesa má úr tölum yfir sjúklinga á stofnunum SÁA. Árið 1997 komu 206 unglingar yngri en 20 ára á Vog. Þetta er mikill fjöldi úr svo fá- um árgöngum. Athugað heíúr verið hve margir úr hveijum árgangi skila sér inn á Vog áður en þeir verða tvítugir. Þannig voru 112 ein- staklingar fæddir árið 1976 komnir inn á Vog áður en þeir náðu 20 ára aldri og 101 af þeim sem fæddir vora 1977. Þegar hiutfallið er skoð- að fjögur ár aftur í tímann má álykta að þróunin um þessar mund- ir hljóði uppá að 3,2% drengja skili sér á Vog fyrir tvítugt og 1,9% stúlkna. Það era fim mikil þegar forstjóri Bamavemdarstofu mis- OTTO von Bismarck taldi að ómerkilegustu pólitíkusar og hags- munapotarar ættu mjög auðvelt með að búa til prósentutölur til þess að „réttlæta“ þær staðhæfmgar sem þeir héldu fram hverju sinni, „ekkert væri auðveldara en að ljúga með prósentureikn- ingi“. Annar höfundur, Halldór Laxness, skrif- ar einhvers staðar: „Hálfvitar trúa pró- sentutölum." Viðhorf þessara manna kom undirrituð- um í hug þegar hann las greinina „Fáein orð um virkjanir og vemdun hálendisins“ eftir fyrrverandi orku- málastjóra, Jakob Bjömsson, í Morgunblaðinu 31. október sL Sem orkumálastjóri var höfundur greinarinnar meðal annars mikill áhugamaður um „nýtingu“ Þjórsár- vera til vatnsöflunar fyrir virkjanir til öflunar orku fyrir sel-stöðu stór- iðju. En höfundur þessi hefur ásamt núverandi orkumálastjóra látið í ljós áhuga á virkjunum fyrir stór- iðju í grein sem birtist fyrr á þessu ári og þar var látið að því liggja að útflutningur áls væri útflutningur ís- lenskra afurða og mætti flokka sem hlið- stæðu við útflutning sjávarafurða. Þeir orkumálastjórar skrif- uðu þessa grein saman og bára þennan „hálf- sannleika“ fram sem staðreynd. Þessi hálf- sannleikur hefur lengi verið grundvallarrétt- læting virkjanasinna og stóriðjuprófeta. Afleiðingar virkjana og uppistöðulónagerðar á hálendinu era og verða afskræming hálendis- ins sem slíks og eyðilegging sér- stæðra svæða, nýjasta afrekið er Hágöngulón, sem færði á kaf eitt sérstæðasta hverasvæði á jörðinni. Fyrrverandi orkumálastjóri vitn- ar í grein, sem hann segir að birst hafi í Morgunblaðinu 17. jan. 1997: „Brenglaðar hugmyndir um áhrif orkuvinnslu á miðhálendi Islands“. Hann komst að þeirri niðurstöðu að „það landsvæði sem virkjanir legðu Virkjanir og uppistöðu- lón á hálendinu mega ekki, segir Siglaugur Brynleifsson, eyði- leggja sérstæð svæði og náttúruperlur. hald á næmi innan við 4% af miðhá- lendinu“. Höfundur hefur áreiðan- lega reiknað þetta rétt út sam- kvæmt þeim forsendum sem hann hefur gefið sér, en hvort þær for- sendur standist nánari athugun er vafasamt, þar eð höfundur stefnir í útreikningi sínum að sem lægstri prósentutölu. Aðferðir félags- bræðra höfundar við prósentureikn- ing í Sovétríkjunum era vel kunnar og frægar að endemum. En hér er þessi staðreynd nefnd, vegna hins mikla áhuga Sovétmanna á iðnvæð- ingu og stóriðju á sínum tíma og að því er virðist keimlíks áhuga spor- göngumanna þeirra hér á landi síð- astliðin 30 ár. Höfundur telur að hin „brenglaða umræða" leiði í ljós að hvergi væri að finna náttúruperlur á hálendi ís- lands „utan Eyjabakka, Brúardala, Amardals og neðri hluta Þjórsár- vera“. Höfundur telur þar af leið- andi að í þessum umræðum fyrir jan. 1997 hafi aldrei verið minnst á Hágöngur, Vonarskarð, vatnasvæði Þingvalla. Það má sldlja á orðum höfundar að honum sé ósárt um há- lendi Islands norðan Vatnajökuls, nóg sé af útivistarsvæðum annars staðar. Vh-kjanir „leggja hald á land“ en þeim fylgja leiðslunet út og suður um óbyggðir og ból, sem þyk- ir ekki sérlega smekklegt. Einnig sleppir hann í þessari grein sinni að minnast á vandalíseringu Hágöngu- svæðisins. Einstaklingar sem hafa svo brenglað skyn á þýðingu ósnortinna víðerna eru því miður á því „plani“ að um þessi efni er óger- legt að ræða við þá, þeir era úr heimum einhverskonar hálfsiðunai- og allir landsmenn vita að kaffæring víðemanna norðan Vatnajökuls er talsvert meira en 10% af miðhálendi Islands, og því má bæta við að meg- inþorri landsmanna er ekki „hálfvit- ar sem trúa brengluðum prósentu- tölum“. Höfundur er rithöfundur. Brenglaður prósentureikningur Siglaugur Brynleifsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.