Morgunblaðið - 24.11.1998, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. NOVEMBER 1998 53
-----------------------------1
Morgunblaðið/Arnór G. Ragnarsson
ÞÆR urðu í efstu sætunum í Islandsmóti kvenna í tvímenningi, sem
fram fór um helgina. Talið frá vinstri: Anna Ivarsdóttir, Guðrún
Oskarsdóttir, íslandsmeistararnir Alda Guðnadóttir og Dóra Axels-
dóttir, Esther Jakobsdóttir og Ljósbrá Baldursdóttir.
+ Sigmundur Ei-
ríksson fæddist
á Gestsstöðum á Fá-
skrúðsfirði 16. októ-
ber 1922. Hann lést
á heimili sínu 16.
nóvember síðastlið-
inn. Foreldrar Sig-
mundar voru Guð-
rún Jónína Jóns-
dóttir, f. 22.6. 1897 í
Geithellnahreppi, S-
Múl., d. 21.4. 1969,
og Eiríkur Stefáns-
son, bóndi á Gests-
stöðum, f. 30.6.
1892 í Tungu í Fá-
skrúðsfírði, d. 13.10. 1962. Þau
eignuðust tólf börn en upp
komust sjö synir sem allir eru
látnir. Einnig ólu þau upp tvær
fósturdætur sem báðar lifa. Sig-
mundur kvæntist Vilborgu Áka-
Elsku fósturpabbi minn, nú ert
þú horfinn úr þessu jarðneska lífi,
söknuðurinn er sár og mikill, en ég
veit að þú átt góða heimkomu. Þú
munt alltaf eiga sérstakan sess í
hjarta mínu. Eg vil þakka árin sem
ég átti með þér, ég mun ávallt
varðveita minningu þína fyrir alla
þína góðu eiginleika, æðruleysi og
góða skapið þitt, á hverju sem
gekk. Minningar eru margar. Eg
man hve góður þú varst gömlu
fólki, börnum, málleysingjum og
þeim sem minna máttu sín. Sér-
staklega man ég þegar ég var smá-
stelpa í sveitinni á leið milli fjár-
húsanna með þér í vondum veðr-
um, hvað var gott að læða lítilli
hendi í þína stóru og traustu hönd
og finna öryggið sem í henni fólst.
011 þau rúm tuttugu og tvö ár sem
dóttur 19.4. 1945.
Þau eignuðust 10
börn. Þau eru 1)
Guðrún Áslaug, f.
11.6. 1944. 2) Eirík-
ur Tryggvi, f. 19.12.
1945. 3) Jón, f. 10.6.
1948, d. 23.9. 1966.
4) Svanhvít, f. 23.6.
1949. 5) Guðný, f.
18.3. 1952. 6) Gest-
ur, f. 16.8. 1956. 7)
Sveinn, f. 24.10.
1960. 8) Einar, f.
14.3. 1963. 9) Sig-
mundur, f. 22.12.
1966. 10) Jónína
Vilborg, f. 7.10. 1968. Fóstur-
dóttir, _ Áslaug, f. 10.12.
1948. títför Sigmundar fer
fram frá Fáskrúðsfjarðarkirkju
í dag og hefst athöfnin klukkan
14.
þú hefur mátt búa við mikla van-
heilsu, þrautir, sárar kvalir og síð-
ustu ár við sjúkrahúsvist í tíma og
ótíma, alltaf tókstu því með ró og
jafnaðargeði, brostir til manns og
eyddir því og spurðir frétta af
mönnum, atvinnuástandi og afla-
brögðum. Vertu sæll, pabbi minn,
megi armar guðs umvefja þig.
Bogga mín, ég bið algóðan guð
að styi’kja þig í þínum mikla sökn-
uði.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðar kraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ.virstmigaðþértaka,
méryfirláttuvaka
þinn engii, svo ég sofi rótt.
(S. Egilsson)
Áslaug Jónsdóttir.
Borgnesing-
ar Islands-
meistarar
BRIPS
B r i d s h ö 11 i n
Þönglabakka
ÍSLANDSMÓT KVENNA í
TVIMENNINGI
21.-22. nóvember. 22 pör.
BORGNESINGARNIR Alda
Guðnadóttii' og Dóra Axelsdóttir
sigruðu nokkuð örugglega í íslands-
mótinu í tvímenningi sem lauk sl.
sunnudagskvöld. Þær hlutu 150 stig
yfir meðalskor eða liðlega 7 stig að
meðaltali úr setu. Þær tóku snemma
forystuna í mótinu og héldu henni
allt til loka. Helztu keppinautar
þeirra voru Ljósbrá Baldursdóttir
og Esther Jakobsdóttir sem ætíð
fylgdu þeim sem skugginn.
Fyrir síðustu umferðina voru Alda
og Dóra með 145 stig og Anna Ivars-
dóttir og Guðrún Oskarsdóttir voru
þá komnar í annað sætið með 139
stig en þær höfðu skorað grimmt í
síðustu umferðunum en Esther og
Ljósbrá voru þá með 124 stig. Anna
og Guðrún misstu svo flugið í síðustu
setunni á meðan hin tvö pörin héldu
sínu og vel það.
Lokastaðan í mótinu varð annars
þessi:
Alda Guðnadóttir - Dóra Axelsdóttir 150
Ljósbrá Baldursd. - Esther Jakobsdóttir 126
Anna ívarsdóttir - Guðrún Óskarsd. 122
Hjördís Sigurjónsd. - Ragnheiður Nielsen 84
Hulda Hjálmarsd. - Sigríður Eyjólfsd. 81
Inga Jóna Stefánsd. - Stefanía Sigurbjd. 65
Dúa Ólafsdóttir - Ólína Kjartansd. 63
Elín Jóhannsd. - Hertha Þorsteinsd. 61
Alda og Dóra spila nákvæmnislaufið
og hér er spil úr lokaumferðinni þar
sem þær fengu góðan topp og gull-
tryggðu sigur sinn í mótinu.
Norður
♦ DG83 VÁK85
♦ D1092 *Á
Vestur Austur
* 2 * A1096
V D974 V G10
♦ K863 ♦ ÁG754
* K842 * D107
Suður * K754 V 632
♦
* DG9763
Alda og Dóra sátu N/S og sagnir
gengu þannig:
Vestur Norður Austur Suður
pass 1 lauf pass 1 tígull
pass 1 grand pass 2 lauf
pass 2 grönd pass 3 hjörtu
pass 4 hjörtu pass 4 spaðar
pass pass pass pass
Tvö lauf var Stayman sagnvenjan
og 2 grönd lofuðu báðum hálitum. 3
hjörtu áttu svo að vera yfirfærsla
sem Alda misskildi þannig að það
kom í hlut Dóru að spila spilið. Með
spaða út er spilið dauðadæmt en
Ragnheiður Nielsen spilaði út tígli
og þá var smávinningsvon. Dóra
trompaði heima. Spilaði á laufás og
trompaði aftur tígul. Þá spilaði hún
blindum inn á hjartaás og trompa’ði
enn tígul. Nú spilaði hún laufi að
heiman og trompaði í borði með
spaða þristi. Þá var síðasti tígullinn
trompaðui- með spaðakóng. Loks
spilaði Dóra á hjartakóng og var nú
komin með 8 slagi í þessari stöðu
Norður
♦ DG8
V 85
♦ -
*-
Austur
* Á1096
V -
* G
* -
Suður
*
V 6
♦ -
*G976
Nú spilaði Dóra litlu hjarta úr blind-
um og Hjördís trompaði með spaða
6. Enn má hnekkja samningnum
með því að spila lágum spaða en
Hjördís tók á spaðaás og þar með
var samningurinn í húsi og íslands-
meistaratitillinn Borgnesinga.
Keppnisstjóri og reiknimeistari var
Jakob Kristinsson en Þorsteinn
Berg afhenti verðlaun í mótslok.
Arnór G. Ragnarsson
MINNINGAR
SIGMUNDUR
EIRÍKSSON
Vestur
* 2
VD9
♦ -
*84
HÚSIMÆQI ÓSKAST
íbúð óskast til leigu í Kópav.
Hjón með 2 litlar prinsessur óska eftir íbúð til
leigu í Kópavoginum. Reglusemi og skilvísum
greiðslum heitið.
Uppl. í síma 554 0064 eða 699 8777.
BÁTAR SKIP
Skipamiðlunin
Bátar & kvóti, Síðumúla 33
Til sölu Hafborg SF-116, sem er 26 brl stálbát-
ur, smíðaður árið 1981, er með 240 hestafla
Volvo Penta-vél. Selst með veiðiheimild en
án aflahlutdeildar.
Höfum kaupanda að 50-150tonna skipi með
100-150 þígkvóta.
Skipamiðlunin Bátar & kvóti,
sími 568 3330, fax 568 3331,
Síðumúla 33, skip@vortex.is
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur
Skíðadeildar Fram
verður haldinn í Framheimilinu þriðjudaginn
1. desember kl. 20.20.
Venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál.
Stjórnin.
Básafell hf.
Aðalfundarboð
Stjórn Básafells hf. boðartil aðalfundarfélags-
ins miðvikudaginn 2. desember 1998 kl. 13.30,
á Hótel ísafirði, ísafirði.
Á dagskrá fundarins eru:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. samþykktum
félagsins.
2. Tillaga stjórnar til aðalfundar um heimild
til kaupa á eigin hlutum skv. 55. gr. hlutafé-
lagalaga.
3. Tillaga stjórnarfélagsins um samruna
Fiskiðjunnar Freyju hf. og Bræðraverks ehf.
við Básafell hf. skv. fyrirliggjandi samruna-
áætlun félaganna. Verði tillagan samþykkt,
þá felst jafnframt í henni breyting á
samþykktum Básafells hf. um hækkun á
hlutafé úr kr. 714.276.077,00 í kr.
758.671.421,00, en hækkuninni verðurvarið
til að skipta á hlutum hluthafa í yfirteknu
félögunum á hlutabréfum í Básafelli hf.
Hluthöfum er bent á að skjöl viðkomandi fyrir-
huguðum samruna, skv. 5. mgr. 124. gr. hluta-
félagalaga, hafa legið frammi á skrifstofum
félagsinsfrá 30. október 1998. Hluthafar geta
fengið framangreind gögn send skv. beiðni
fyrir fundinn, eða nálgast þau á skrifstofu fé-
lagsins, en rétt er að taka fram að gögnin liggja
einnig frammi til skoðunar á sjálfum hluthafa-
fundinum.
Stjórn Básafells hf.
Samtök eldri
sjálfstæðismanna
Aðalfundur
Samtök eldri sjálfstæöismanna halda aöalfund
sinn, miðvikudaginn 25. nóvember 1998 í
Valhöll, Háaleitisbraut 1, og hefst hann kl. 20.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Gestur fundarins: Styrmir Gunnarsson ritstjóri.
Stjórnin.
Hafnarbúðir til leigu
Til leigu er nýuppgerð húseignin Hafnarbúðir
við Tryggvagötu. Mögulegt er að leigja út eign-
ina í einu lagi og gæti hún þá hentað sérstak-
lega vel sem gistiheimili. Einnig er hægt að
leigja húsið út í hæðum.
Stærðir hæða eru eftirfarandi.
Kjallari 332,8 m2
1. hæð 342,4 m2
2. hæð 342,4 m2
3. hæð 326,4 m2
alls 1.344 m2
Kjallari og 1. hæð henta sérstaklega vel fyrir
matsölustað (veitingastað) eða verslun. Efri
hæðir henta fyrir ýmsan rekstur, skrifstofur,
læknastofur o.fl.
Upplýsingar í símum 696 4646 og 892 5606.
Hvolsvöllur, 1450 fm
Til sölu á jarðhæð, einingar 122,5, 201, 250
og 879 fm, sem eru sérbúnar fyrir trésmiðju.
Há lofthæð, góð innkeyrsla. í áframhaldandi
útleigu, ef kaupandi óskar. Stærstur hluti kaup-
verðs yfirtaka lána. Tilboð óskast.
Ólafur Thóroddsen, hdl.,
Síðumúla 33, sími 568 3330, fax 568 3331.