Morgunblaðið - 24.11.1998, Síða 54
MORGUNBLAÐIÐ
54 ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998
V---------------------- -------
SKAUU^HÖLUN
REYKJAVIK
HESTAR
Hestamannafélag stofnað í Vestmannaeyjum
Veturinn 1998-’99
OPNUNARTÍMAR
Skólar og sérhópar
Opið fró mánud. lil föstud. kl. 10:00-15:00
Almenningur og hópar
Mánudaga kl. 12:00-15:00
Þriðjudaga kl. 12:00-15:00
Míðvikud. og fimmtud. kl. 12:00-15:00
ogkl. 17:00-19:30
Föstudaga kl. 13:00-23:00
Laugardaga kl. 13:00-18:00
(Kvölddagskrá auglýst sér)
Sunnudaga kl.l 3:00-18:00
Útleiga ó laugardagskvöldum
r/f
VÖRURMEÐ
ÞESSU MERKI
MENGAMINNA
Norræna umhverfismerkið
hjálpar þér að velja þær vörur
sem skaða síður umhverfið.
Þannig færum við verðmæti
til komandi kynslóða.
UMHVERFISMERKISRÁÐ
HOLLUSTUVERND RÍKISINS
Upplýsingar hjá Hollustuvemd ríksins
í síma 568 8848, heimasíöa: www.hollver.is
W/
MDDNAM
hefst í janúar 1999.
Nuddnámið tekur eitt og hálft ár.
Utskriftarheiti er
nuddfræðingur.
Námið er viðurkennt
af Félagi íslenskra
nuddfræðinga.
Upplýsingar í síma 567 8921
eða á Smiðshöfða 10,
112 Reykjavík
alla virka daga kl. 13-17.
Hægt er að sækja um í síma,
á staðnum eða fá sent
umsóknareyðublað.
Nuddskóli Guðmundar
Veður og færð á Netinu
ý§> mbl.is
-/KLUr/\f= e/T-TH\SA£/ NÝTT
Fjölbreyttir útreiðamöguleikar
koma aðkomumönnum á óvart
MorgunblaðiðA^aldimar Kristinsson
GÁSKAFÉLAGARNIR Valur Örn Gíslason og Elka Guðmundsdóttir
fylgdust grannt með því sem fram fór á ársþingi LH á Akureyri í
haust og mæta væntanlega að ári sem fullgildir fulltrúar.
Eyjamenn hafa allt
fram á þennan dag ver-
ið miklir íþróttagarpar
og ekki verið í rónni
fyrr en þeir komast í
röð þeirra bestu í
hverri grein. Nýlega
bættist hestamennskan
í hóp þeirra íþrótta-
greina sem þar er hægt
að stunda. Eyjamenn
mættu á ársþing hesta-
manna og fræddist
Valdimar Krístinsson
hjá fulltrúum þeirra
um stöðu hestamennsk-
unnar í Eyjum.
VAXTARBRODDUR er í hesta-
mennskunni í Vestamannaeyjum um
þessar mundir. Eyjamenn stofnuðu
hestamannafélag í september þar
sem stofnfélagar voru um 40. Kosið
var um nafn á félagið og varð fyrir
valinu nafnið Gáski. Áður mynduðu
hestamenn í Eyjum eina deild innan
hestamannafélagsins Geysis í Rang-
árvallasýslu. Tveir fulltrúar Gáska
mættu í haust á ársþing Landsam-
bands hestamannafélaga á Akureyri
sem áheymarfulltrúar en á næsta
ári verður Gáski fullgildur aðili að
samtökunum. í vor mun félagið fá
inngöngu í íþróttabandalag Vest-
mannaeyja og verður þar með orðið
aðili að LH og ISI. Það voru Gáska-
félagamir þau Valur Öm Gíslason og
Elka Guðmundsdóttir sem sátu
þingið og fræddu þau blaðamann lít-
illega um hestamennskuna í Eyjum.
Valur og Elka sögðu að hross í
eigu Eyjamanna væm á milli 40 og
50 og væru þau höfð í Eyjum allt ár-
ið nema þegar skroppið er í ferðalög
á meginlandið. Ennþá væri næg beit
fyrir hrossin en ljóst væri að ef þeim
fjölgaði mikið yrði að senda hross í
haustbeit upp á land. Valur benti á
að vissulega mætti skipuleggja beit-
ina betur en gert værí nú og með því
að auka beitarafköstin væri hugsan-
lega rými fyrir fleiri hross.
Hesthúsahverfi og reiðvegir
Eins og næm má geta er starfs-
vettvangur Gáska eins og óplægður
akur og sögðu þau Elka og Valur að
nú vantaði feiri hesthús og einnig
þyrfti að huga að reiðvegagerð. Unn-
ið væri að skipulagningu hesthúsa-
hverfís og reiðvega hjá bæjartækni-
fræðingi. Valur sagði að viðhorfið hjá
bæjai’yfírvöldum væri orðið mjög já-
kvætt gagnvart hestamennskunni og
með réttu hægt að segja að þar hafí
verið um algjöra kúvendingu að
ræða eftir að menn fóm að kynnast
hestamennskunni betur og skilja
hvað um væri að ræða.
Þegar þau voru spurð hvort hægt
væri að stunda einhverjar útreiðar
að gagni sögðu þau lítið mál að fara í
dagsferð um Heimaey án þess að
fara sömu leiðir og Valur skaut inn í
að lítið mál væri að þreyta hvaða
hest sem væri í Eyjum, svo miklh-
væru möguleikarnir til útreiða.
Hestamenn sem komið hafa til Eyja
hafa heillast af þeim reiðleiðum sem
þar bjóðast og eru yfírleitt undrandi
á því hversu möguleikarnir eru fjöl-
breyttir. Þá sagði Elka að ekki haml-
aði snjórinn útreiðum því þá sjaldan
sem hann festi stæði hann stutt við.
Á sumrin fara menn gjarnan með
hrossin upp á land með Herjólfi og
er farið í ferðalög á hrossunum. Þá
kom hópur hestamanna frá Selfossi í
fyirasumar með hross til Eyja og
reið út eina helgi og fyrir nokkrum
árum komu unglingar úr Herði í
Kjósarsýslu með flokk hesta og voru
með sýningu sem þau höfðu verið
með í Reiðhöllinni og víðar.
Breytt viðhorf til
hestamennskunnar
Um viðhorfið til hestamennskunn-
ar í Eyjum sögðu þau að vissulega
sýndist sitt hverjum, gagnrýnisradd-
irnar byggðust yfirleitt á þekkingar-
leysi. En þó hefði þetta breyst mikið
síðustu tvö árin og almennt væri fólk
orðið jákvætt gagnvart hesta-
mennskunni. En neikvæðnisrómur-
inn væri oft háværastur og þar af
leiðandi mest áberandi. Helst er það
að talið er að hætta á ofbeit fylgi
hestamennskunni. Rollukarlai'nir
eru frekar neikvæðir í garð hesta-
mennskunnar en sumir þeirra eru þó
farnir að spá í að fá sér hesta, sagði
Valur. Fólkið er mjög forvitið um
hestana og finna þau Valur og Elka
glöggt að þeir vekja talsverðan
áhuga. Þau kváðust bjartsýn á að
hestamennskan ætti eftir að vaxa og
dafna I Eyjum á næstu árum og
myndi án efa auðga enn frekar ann-
ars fjölbreytt mannlífið þar.
Verður fróðlegt að fylgjast með
framgangi hestamennskunnar í
Vestmannaeyjum á næstu árum. Er
hér eitthvað á ferðinni sem á eftir að
höfða sterkt til Vestmanneyinga?
Stjórnarfundur hjá Félagi hrossabænda
MorgunblaðiðA^aldimar Kristinsson
STJÓRNARMENN í Félagi hrossabænda vilja Kristin Hugason hrossaræktarráðunaut úr starfi þrátt fyrir afsökunarbeiðni hans á laugardag. Stjórn-
armenn eru, frá vinstri talið, Ármann Ólafsson, Skjöldur Stefánsson, Kristinn Guðnason formaður, Ingimar Ingimarsson og Ólafur Einarsson.
Vilja Kristin
Hugason úr starfi
HALDINN var á laugardag fund-
ur hjá nýkjörinni stjórn Félags
hrossabænda þar sem stjórnar-
menn voru á einu máli um að
Kristinn Hugason hrossaræktar-
ráðunautur yrði að víkja úr
starfí. Töldu menn að yfírlýsing
Kristins á laugardag sem innihélt
afsökunarbeiðni kæmi of seint.
Kristinn Guðnason, formaður
félagsins, sagði ljóst að þessi yf-
irlýsing hefði komið eftir mikinn
þrýsting og á þeim tíma sem upp-
sögn virtist liggja í loftinu. Hins
vegar taldi Kristinn Guðnason að
yfirlýsingin bætti málstað nafna
sms sérstaklega með tilliti til
þess ef hann þarf að leita sér að
nýrri vinnu. Sagði Kristinn
Guðnason þetta vissulega dapur-
legan endi því nafni hans Huga-
son hefði enga ástæðu haft til að
láta þau orð falla sem hann
gerði.
Um tillöguna, sem fjaðrafokinu
olli, þar sem lagt er til að sú hug-
mynd að hrossaræktarráðunaut-
ur taki ekki þátt í dómum verði
skoðuð, sagði Kristinn að hún
færi sína boðleið til fagráðs
hrossaræktar og stjórnar. Fyrir-
hugðuðum fundi ráðsins sem
halda átti í desember hefur verið
frestað fram í janúar.