Morgunblaðið - 24.11.1998, Page 60
' 60 ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Regnföt
Góð regnföt með endurskinsborðum
á jakka og buxum. Stærðir 80—130 cm.
Einnig regnvettlingar og -hattar
POLARN O. PYRET
Kringlunni 8—12, sími 568 1822
V--------------------------
Sölusýning á Grand
Hótel Reykjavik
á húsgögnum i
„antík“-stíl
Allt handunnið, úr gegnheilum mahogny-við.
Gæðahúsgögn. Einnig til sýnis íkonar,
antíkklukkur, styttur o.fl. tilvalið tii gjafa
Skartgripaskrín frá kr. 14.800.
Stólar,
massíft
mahogny.
Stóll,
kr. 18.800
Armstóll kr. 24.800.
„Partner“-skrifborð
(1,80m x 1,90m) kr. 148.000.
Skrifborð með „rulletop"-
hurð, kr. 124.800.
Glerskápur,
tvöfaldur,
kr. 98.000
fe
Forstofuskápur,
kr 29.900.
n
HÓTEIy
REYKJAVIK
stUHi
munít
MsppsrSt(g 40 sfmi 5S170FP
Opið í dag, þriðjudag
frá kl. 13-19.
Lokadagur á morgun
miðvikudag frá kl. 13-18.
Sjón er sögu ríkari!
Sigtúni 38.
í DAG
VELVAKAJMPI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Dýr rukkun!
ÉG var að fara í gegnum
Hvalfjarðargöngin. En ég
gat ekki borgað vegna
þess ég var ekki með 1.000
kr. á mér og kortið virkaði
ekki í göngunum svo ég
varð að láta senda mér
reikning fyrir þessu. En ég
get engan veginn skilið
hvernig þeir fá það út að
rukka 1.000 kr. aukalega
fyrir að senda reikninginn
heim.
Okumaður.
Afkoma Fram-
sóknarflokksins
ÉG ER fædd og uppalin í
Framsóknarflokknum, og
hef því fylgst vei með því
sem þar er að gerast. Það
er því miður mikii afturför
í gangi hjá flokknum, og
hefur gætt mikillar óá-
nægju hjá mörgum fram-
sóknarmönnum vegna
þessa, aðailega vegna þess
að flokkurinn reynir ekki
einu sinni að halda sam-
bandi við þessa aðila sem
alla tíð hafa stutt flokkinn.
Það er ekki nóg að auglýsa
sig af og til og skrifa grein-
ar í blöð, það þarf að hafa
samband við fíokksmenn í
kjördæmum. Það er leiðin-
legt afspurnar að flokkm'
sem hefur kjörorðið fólk í
fyrirrúmi skuli ekki hlúa
betur að sínu fólki og þeir
aðilar sem leitað hafa til
Halldórs Ásgrímssonar fá
þar enga fyrirgreiðslu, en
svo er hann að punta upp í
fín störf ýmsar persónur,
sem almenningur er ekki
par hrifinn af. Það væri
ágætt að fá svar fi'á for-
ustu flokksins og skýring-
ar á þessu. Skiptir þá ekki
máli hvort persóna er
framsóknarmegin eða t.d.
krati.
Aðeins á kosningadag-
inn skiptir þitt atkvæði
máli, hina dagana mátt þú
eiga þig, og flokknum
kemur einstaklingurinn
ekkert við. Því miður er
þetta stefna sem er vara-
söm ef flokkurinn á ekki að
bera skarðan hlut frá borði
í vor.
Kjósandi
Tveir tvöfaldir
KONA hringdi og sagði
frá því að hún hefði farið í
leikhús fyrir skömmu að
sjá leikritið Tveir tvöfaldir.
Er skemmst frá því að
segja að þetta er eitthvað
það alskemmtilegasta leik-
rit sem hún hefur nokkurn
tíma séð. Úrvalsleikarai'
eru í verkinu, en einn lang-
ar hana að nefna sérstak-
lega vegna þess að hann er
ekki mjög þekktur, en það
er Bergur Þór Ingólfsson.
„Hann er afskaplega efni-
legur og stendur sig vel.
Mig langai' að þakka fyrir
þessa frábæni skemmtun.
Þá langar mig að nefna að
Fóstbræður mættu taka
sér þessa leikara til fyrir-
myndar því mér finnst
mikið vanta upp á að þeir
standi sig í sínu hiutverki á
Stöð 2.“
Tapað/fundið
Ungbarnateppi
tapaðist
KÖFLÓTT lítið ungbarna-
teppi í pastellitum með
guiri líningu tapaðist
fimmtudaginn 12. nóvem-
ber, líklega í Læknagai'ði
Háskóla Islands, fyrir
framan Verkfæralagerinn í
Annúla eða við Bíldshöfða.
Hafi einhver fundið teppið
er hann vinsamlega beðinn
að hafa samband í síma
554-3919, því það hefur
mikið tilfinningalegt gildi
fyrir eigandann.
Eyrnalokkur
fannst
FORLÁTA eyrnalokkkur
fannst á göngustíg við Æg-
issíðu á móts við Sund-
skálavík sunnudaginn 15.
nóvember sl. Upplýsingar
í síma 552-4754.
Lyklakippa
tapaðist
LYKLAKIPPA með fjór-
um lyklum og bíllykli tap-
aðist þriðjudaginn 17. nóv-
ember sl. fyrir utan eða
inni í Oddfellow-húsinu við
Vonarstræti. Finnandi er
vinsamlega beðinn að
hringja í síma 552-9960.
Gleraugu
töpuðust
NETT karlmannsgleraugu
með breytilegum styi'k-
leika í glerjunum töpust sl.
þriðjudag. Þau voru í
hulstri. Hugsanlegt er að
þau hafi verið tekin í mis-
gi-ipum með skjalabunka
eða einhverju álíka á
Vinnumiðlun höfuðborgar-
svæðisins (EES vinnumiðl-
un). Viti einhver um gler-
augun er hann vinsamlega
beðinn að hringja í síma
588-2580.
Með morgunkaffinu
ÞÚ ERT fáránlega tapsár.
SKRÝTIÐ að hér
skuli aldrei sjást
veiðimenn, því sagt
er að dýrin hér séu
stór og kraftmikil.
VIÐ skulum ekki segja
neinum frá því strax, en ég
held að ég sé mcð eggi.
ÞETTA er tómstundaher-
bergi mannsins mfns.
MORGUNBLAÐIÐ
bii'tir tilkynningai'
um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og
fleira lesendum sín-
um að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrir-
vara virka daga og
þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf
að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns
og simanúmer. Fólk
getur hringt í síma
569-1100, Sent í
bréfsíma 569-1329,
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík.
Ast er...
8-25
... að skipta ekki milli
rása þegarhún vill horfa
á fréttir.
TM Reg. U.S. P«l Off. — all riQhts resorved
(c) 1998 Los Angeles Tsnes Syndicato
Yíkverji skrifar...
A
IÆSKU Víkverja fóru bömin úr
Vesturbænum í sunnudagaskóla
hjá KFUM við Amtmannsstíg og
höfðu gott af. Sérstaklega voru þó
biblíumyndirnar eftirsóttar og eft-
irminnilegar. Hálfri öld síðar lá leið
Víkverja í sunnudagaskóla í Víði-
staðakirkju í Hafnarfirði í fyri'a-
dag.
Á hálfri öld hefur ekki margt
breytzt og á ekki að breytast enda
boðskapur kirkjunnar í grundvall-
aratriðum sá sami, þótt framsetn-
ingin kunni að vera svolítið önnur.
Sennilega er meira sungið nú en þá
og tónlistin að hluta til nútímalegri.
Biblíumyndirnar eru enn til staðar
en nú eru þær límmiðar, sem límdir
eru inn í bækur og þar er textinn,
sem á að fylgja myndunum. Vík-
verji er ekki viss um að límmiðamir
séu framför.
Hins vegar er vel að verki staðið
og enginn vafi á því, að í kirkjum
landsins og söfnuðum er unnið gott
starf meðal upprennandi æsku
landsins - starf, sem ekki er haft
hátt um. En það segir töluverða
sögu að tæplega eitt hundrað
manns voru í Víðistaðakirkju þenn-
an sunnudagsmorgun.
XXX
VÍKVERJI sá ekki þætti Þor-
valdar Gylfasonar um Jón Sig-
urðsson og Einar Benediktsson en
hins vegar þann þriðja og síðasta
um Halldór Laxness í fyrrakvöld.
Það hefur áreiðanlega komið mörg-
um á óvart hvað þjóðfélagsgagnrýni
skáldsins um miðja öldina hefur
mikla skírskotun til okkar nú í lok
aldarinnar. Vissir þættir í umfjöllun
Halldórs um landbúnaðinn eiga við
enn í dag og alveg sérstaka eftirtekt
vekur hve hann hefur verið langt á
undan sínum samtíma í afstöðu til
umhverfismála.
Afstaða fólks til þjóðfélagsgagn-
rýni Halldórs Laxness á þeim tíma,
sem hún var sett fram hefur auðvið-
að mótast af viðhorfum þess tíma.
Þegar horft er til baka er hins vegar
ljóst, að í þeim efnum, sem öðrum
hefur sýn hans á íslenzkt þjóðfélags
og veikleika þess verið ótrúlega
skörp. Þorvaldi Gylfasyni tókst að
koma því rækilega til skila í þættin-
um.
XXX
HLIN Agnarsdóttir hefur áður
sýnt að hún kann vel til verka í
leikhúsi. Þótt skoðanir séu skiptar
um hversu vel henni tókst upp í
sunnudagsleikhúsi Sjónvarpsins í
þáttunum þremur, sem lokið var
sýningu á í fyrrakvöld, er það skoð-
un Víkverja, að í öllum megindrátt-
um hafi vel tekizt til.
Að baki þeim gamanmálum, sem
uppi voru höfð í þessum þáttum, var
á köflum meiri alvara og veruleiki,
en kannski leit út fyrir við fyrstu
sýn.