Morgunblaðið - 24.11.1998, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 24.11.1998, Blaðsíða 64
X>4 ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FOLK í FRÉTTUM Stuttmyndin Á blindflugi frumsýnd á föstudag Furðufréttir manns“ næstu mínútur eftir að hann Morgunblaðið/Árni Sæberg GUNNAR B. Guðmundsson og Óskar Þór Axelsson. hættir að reykja. Pétur Blöndal talaði við Gunnar B. Guðmundsson og Óskar Þór Axelsson um dramatík. HILMIR Snær vandræðast í kjörbúðinni. Sólveig Elíasdóttir er kassadaman og í bakgrunni eru Gunnar B. Guðmundsson og Oskar Þór Axelsson. áttar hann sig og segir: „Jú, það er búið að vera alveg brjál- að að gera síðan ég hætti.“ - Er langt síðan hugmyndin að handritinu kviknaði? „Upphaflega pælingin er ævagömul," svarar Óskar. „Ætli það séu ekki 3 til 4 ár síðan ég hófst handa,“ svarar Gunnar. „Við endur- skrifuðum handritið þangað til við vorum komnir með rétta lengd og ákváðum að skrifa allar samræður út úr myndinni. Enda eru þær óþarfar þar sem — . myndin glímir við frumeðli manns- ins, - eins og að fá sér sígarettu þegar maður hefur fengið sér góða máltíð á Kentucky." „Hafnfirðingurinn,“ segir Óskar og brosir stríðnislega. „Alltaf á Kentucky.“ - Hvað tekur við eftir frumsýn- inguna á föstudag? „Við erum með umsókn hjá Kvik- myndasjóði vegna leikinnar stutt- myndar án tals sem er í ætt við teiknimyndir,“ svarar Gunnar. „Núna fer ég alltaf út að hlaupa á morgn- ana og er með fallegra litaraft.“ „Hún er máluð sterkum litum með klisjupersónum og brimar af léttgeggjun," heldur Óskar áfram. „Þótt þetta sé lítil mynd höfum við stórar fyrirmyndir á borð við Raising Ai-izona og Delicatessen,“ segir Gunnar. „Ekki má gleyma Elvis,“ bætir Óskar við. „Við fengum einmitt handritsstyrk í fyrra frá kvikmyndasjóði vegna handrits að myndinni Dansað við Elvis en það er ennþá á undirbún- ingsstigi." - Svona að lokum - ...... hvað ætlið þið að gera við stuttmyndina Á blindflugi? „Góð spurning,“ segir Óskar og hlær. „Við sýnum hana auðvitað í bíói og ætli við reynum ekki að selja hana í sjónvarp og koma henni á há- tíðir erlendis. Það er ekkert tal í myndinni sem gerir hana alþjóðlega og vonandi verður það henni til framdráttar. En það eru svo sem ekki miklir peningar í stuttmynda- iðnaðinum þannig að auðvitað er hún fyrst og fremst hugsuð sem kynningarmynd fyrir okkur.“ ,Á BLINDFLUGI fjallar um mann sem er að hætta að reykja,“ segir Gunnar B. Guðmundsson um nýjasta afsprengi Kvikmyndafélagsins Þeir Tveir ehf. sem hann rekur í félagi við Óskar Þór Axelsson. - Er það dramatíkin? —r „Já,“ svarar Gunnar grafalvarleg- ur. „Myndin fjallar um næstu mínút- ur í lífi mannsins eftir að hann hefur tekið ákvörðunina um að hætta. Hvað gerist við þessar dramatísku kringumstæður?" „Þetta er geðsjúkur reykingamað- ur sem fer strax að örvænta,“ skýtur Óskar inn í. „Það er ótrúlegt hvað reykinga- menn eru reiðubúnir að leggja á sig fyrir sígarettu,“ heldur Gunnar áfram. „Eg hætti að reykja efth- að ég lauk fyrsta uppkasti að handrit- ’inu og fór á kaffihús til að fínna út hvað væri verst við að vera hættur. Eg komst að því að erfiðasta augna- blikið er frá því sígarettan er dregin úr pakkanum og þangað til kveikt er í henni. Vinir mínir hafa þann hvim- leiða ávana að draga sígarettuna úr pakkanum, tala heillengi og sveifla henni kringum sig áður en þeir kveikja í henni. Eg þurfti að stoppa þá og segja þeim að gjöra svo vel að kveikja. Eg afbar það ekki lengur.“ - Hvernig endaði þetta? Byrjað- irðu aftur að reykja? „Nei,“ svarar Gunnar. „Ég byrjaði ekki aftur.“ - Finnurðu þá ekki mun á þér? „Jú, hann er farinn að vakna fyrr á _ morgnana og býr yfír mun meiri orku,“ segir Öskar og hlær. „Núna fer ég alltaf út að hlaupa á morgnana og er með fallegra litaraft,“ segir Gunnai- stoltur í bragði. „Ég fínn líka að lifrin vinnur mikið betur,“ bætir hann við. „Og hann græðir meiri peninga,“ segir Óskar. „Ha,“ Gunnar hváir og verður eins og spurningarmerki í framan. Svo FYLGST er með lífi reykinga- manns eftir að hann legg ur sígarettu- pakkann á hilluna. Er líf eftir reykingar? A blindflugi verður sýnd á undan frönsku myndinni Taxi í Háskólabíói og fer Hilmir Snær Guðnason með hlutverk „okkar Dýpsti bassi heims látinn ► GOSPEL-sönvarinn J.D. Sumner lést á inánudag 74 ára að aldri. Hann var margverðlaunað- ur á ferli sínum, fékk m.a. Gram- my-verðlaunin, og var dýpsti bassasöngvari heims ef marka má Heimsmetabók Guinness. Sumner var frægastur sem höfuðsöngvari Stamps kvartetts- ins sem spilaði á tónleikum með Elvis Presley á árunum 1972 til 1977. Hann kunni ekki á nótur þegar hann gekk til liðs við kvar- tettinn en saindi engu að síður ríflega 500 lög á litríkum ferli sínum. Lína lang- sokkur á Evuklæðum ► SÆNSKI rithöfundurinn Astrid Lindgren hefur fengið umtalsverðar skaðabætur frá bandariska tímaritinu Interview vegna erótískrar myndar sem birtist í blaðinu. Myndin var af fyrirsætu sem leit út eins og Lína langsokkur og var nakin í rúminu. Milljónir barna hafa alist upp við sögur Astrid Lindgren af Línu langsokk, Emil í Kattholti og Ronju ræningjadóttur. Ríflega 100 milljónir bóka eftir hana hafa selst um allan heiin á yfir 50 tungumálum. Tónleikar rokksveitar bannaðir ► BORGARYFIRVÖLD í Laus- anne hafa bannað tónleika bresku þungarokkssveitarinnar Dauði í júní eða „Death in June“ eftir kvartanir frá samtökum sem beita sér gegn kynþáttafor- dómum. Tónleikahaldarinn Patrick Pidoux sagði að búist hefði verið við aðdáenduin sveitarinnar víðs- vegar frá Evrópu á tónleikana sem stóð til að halda á fimmtu- dag. Ákvörðun borgarráðsins var tekin eftir að samtökin, sem nefnast ACOR, greindu frá því að þungarokksveitin boðaði nas- isma og sumir lagatextanna end- urspegluðu þá afstöðu. Karl skammar Daily Mirror KARL Bretaprins sendi út harð- orða skammarræðu til Daily Mirr- or á fímmtudaginn var. Tilefnið var frétt á forsíðu blaðsins þar sem til- kynnt var að Harry sonur hans hefði meiðst í skólanum. Karl sagði að einkalíf sona hans væri ekki virt og smáræði eins og daglegt íþróttahnjask væri ekki fréttnæmt. „Þrátt fyrir röksemdir um að almenningur eigi rétt á að . vita um heilsu Harry, get ég fullyrt að almenningur hafði engan áhuga á þeirri smáskeinu sem Harry hlaut í skólanum.“ Á fimmtudaginn var forsíðan á Daily Mirror með eftirfarandi fyr- irsögn: Harry lenti í slysi, en við megum ekki segja frá því! Síðan k var í leiðara blaðsins sagt að al- menningur ætti rétt á að vita um heilsu Harry þar sem hann væri þriðji arftaki krúnu landsins og þ.a.l. einn mikilvægasti maður landsins. Bresk blöð samþykktu eftir dauða Díönu prinsessu að hafa um- fjöllun um syni hennar í lágmarki. Karl hefur lagt mikla áherslu á að halda prinsunum frá kastljósi fjöl- miðlanna. Karl segir að þetta heið- ursmannasamkomulag hafí nú ver- ið brotið með því að blaðið sé nú, í þriðja skipti frá því Harry byrjaði í Eton fyrir þremur mánuðum, að birta tilgangslausar smáfréttir af honum. „Ég vona að blaðið biðji Harry prins afsökunar og láti af umfjöllun um líf hans í skólanum," sagði Karl. Hins vegar hafa stjómendur blaðsins ekki sýnt neina iðrun yfír fréttaflutningnum og segja að sú staðreynd að Harry sást með hönd í fatla sé nægileg ástæða til að birta frétt um málið. Fyrri fréttir blaðsins af Harry voru af því er hann skoraði tvö mörk í fót- boltaleik í skólanum og hin af því er hann lét klippa á sér hárið. KARL með Harry syni sínum þegar hann hóf námið í Eton. KARL er óhress með fjölmiðlana. Skapbráður forsetafram- bjóðandi ►STJÓRNANDI spjallþátta í Kazakhstan komst að því að blóm eru ekki alltaf til ánægju og ynd- isauka þegar hann Iíkti forseta- frambjóðanda, sem var í viðtali hjá liouum, við fyllibyttu. Gani Kasymov er einn sjö for- setaframbjóðenda sem bjóða sig fram gegn forsetanum Nursultan Nazarbayev í kosningum í janú- ar. Ákvörðun hans um að bjóða sig fram var líkt við ákvörðun óútreiknanlegrar fyllibyttu í þættinum. „Þú heldur sjálfsagt að þú verðskuldir blóm fyrir þessa spurningu," sagði Kasymov áður en hann kastaði blómavasa að spyrlinum í beinni útsendingu. Hittnin var hins vegar engu skárri en hjá „óútreiknanlegri fyllibyttu“ og sleit spyrillinn þeg- ar dagskránni á yfirvegaðan hátt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.