Morgunblaðið - 24.11.1998, Blaðsíða 66
66 ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1998
MORGUNB LAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Einfaldleiki
ogmunúð
Fatahönnuðurinn Sigríður Sunneva
gerir fatnað fyrir alla, en fínnst varan
sín blómstra á þroskuðum einstaklingum.
Hana langar að iáta fólk með útgeislun
og sterkan persónuleika kynna
flíkurnar sínar.
EG ER með leikara og skáld,
fólk sem ég dái og ber mikla
virðingu fyrir, og mér finnst
yndislegt að sjá þetta fólk í flíkunum
mínum,“ segir Sigríður Sunneva hjá
Sunneva Design, sem um þessar
mundir er að vinna kynningarbæk-
ling fyrir England og Asíu.
Blár himinninn og hráslagaleg
Reykjavík eru bakgrunnur náttúr-
unnar í ki'ingum Perluna, þar sem
bandaríski ljósmyndarinn Israel
festir leikarana Pálínu Jónsdóttur og
Ingvar E. Sigurðsson á fílmu, ásamt
..^gkáldinu góða, Thor Vilhjálmssyni.
' „Þetta verður mjög non-ænt, kalt og
stórglæsilegt,“ segir fatahönnuður-
inn ánægður með fólkið sitt.
Morgunblaðið/Ásdís
NORRÆNT, kalt og
stórglæsilegt.
„ER HANN ekki æðislegur og rosalega skáldalegur
í þessum jakka?“ spyr Sigríður Sunneva.
LEIKARARNIR við fyrirsætustörf.
Markviss stemmning
„Ég er alltaf minn eigin stílisti.
Það er ekki að ég treysti ekki sér-
fræðingum í greininni til að vinna
vel sína vinnu, heldur er ég svo
mikið gefin fyrir að fylgja mínum
vörum alla leið, og er mikið í mun
að fatnaðurinn minn sé kynntur á
réttan hátt. Það er markviss
istemmning í minni vöru, hún á að
koma til skila frelsi og styrk, en
jafnframt i'ómantík og frumstæðri
náttúrudýrkun. En einnig styrk og
frelsi nútímans sem er hraði og
þægilegheit, sem á mjög vel við
konur, en auðvitað er ég líka að
vinna fyrir karlmenn."
Vinnurðu eingöngu með skinn?
„Nei, ég hef verið að færa mig
upp á skaftið og flétta mjög spenn-
andi hráefnum með, s.s. vatteruðum
efnum með glansandi yfirborði og
sem eru vatnsheld. Ég vinn líka
með flísefni, helst úr 100% ull, og
með regnheld efni sem ég ætla að
vinna meira með til að gera flíkurn-
ar bæði hlýjar og regnheidar. Ég
.^ætla að vinna meira jöfnum höndum
'‘með jerseyefni og glansefni, þannig
að ég geti gert línuna mína breiðari
allt frá „glamúr“ til útivistarfatnað-
ar.“
Best í heimi
- Hvar fást flíkurnar þínar?
„í Leðuriðjunni Atson á Lauga-
vegi og síðan sel ég sportflíkur í
Veiðimanninum, og svo er ég í nánu
samstarfi við gk í Reykjavík og við
erum að fara út í spennandi hluti.
Aðstandendur þeirrar verslunar eru
mjög metnaðarfullir og vita ná-
kvæmlega hvað þeir eru að gera. Svo
verð ég með aðventudaga fyrir sunn-
an, þar sem viðskiptavinum og þeim
sem hafa áhuga á þessari hönnunar-
vöru er boðið að kíkja á það nýjasta
sem ég er meþ. En þetta er það sem
ég tel að við Islendingar getum gert
best í heimi. Þetta er íslenskt hrá-
efni, íslensk hönnun, hugvit og fram-
leiðsla. Ég hef verið að vinna við
þetta með risum úti á Italíu og þeir
keyptu hráefni héðan. Við eigum
hráefnið og ég er fullviss um að við
getum gert þetta best í heiminum.
Það er mergurinn málsins."
-A hvaða rnarkað er bæklingur-
inn stúaður?
„Þetta er bæklingur fyrir
1999/2000. Hann er fyrst og fremst
stflaður á útflutninginn. Ég hef
ítalskan umboðsmann sem er að
kanna markaðsmálin mín, og hann
hefur verið að líta til Asíu, þá
Japans, Kína og viss hluta Rúss-
landsmarkaðs. Þótt þar sé kreppa,
þarf ekki nema eina meðalpöntun frá
þessum fyrirtækjum til að anna árs-
framleiðslu. Bæklingurinn er einnig
ætlaður Englandsmai-kaði, en þar er
ég komin í mjög gott samband við
Harrods."
í einum munnbita
Hvar kynntist þú ljósmyndaran-
um?
„Hann er frá New York og hefur
verið að mynda fyrir Elite-keppnina,
fyrir Vogue og fleiri þekkt tímarit og
þannig hef ég fylgst með verkunum
hans. Ég hef dáðst að einfaldleikan-
um og hreinleikanum sem einkennir
myndirnar hans, og það að þær eru
líka munúðarfullar og hafa persónu-
töfra. Ég hef viljað fá þetta í mynd-
irnar mínar, og líka þessa dásamlegu
norrænu náttúru. Hann er núna
staddur á landinu til að mynda fyrir
Elite og skóla Johns Casablancas.
Ég hef séð bókina hans og þegar ég
frétti af honum hér bað ég hann
strax að ljósmynda í bæklinginn
minn. Hann elskar Island og gæti
innbyrt ísland, fegurð þess og þjóð-
ina í einum munnbita, og er mjög
ástríðufullur að koma rétt til skila
náttúrunni, og þessari blessuðu litlu
en mögnuðu þjóð.“
MYNPBÖNP
Alveg
prýðileg
Þveröfugt við kynlíf
(The Opposite of Sex)_
Drama
★★★
Leikstjórn og handrit: Don Roos.
Kvikmyndataka: Hubert
Taczanowski. Tónlist: Mason Daring.
Aðalhlutverk: Christina Ricci,
Martin Donovan, Lisa Kudrow og
Lyle Lovett. (97 mín.). Bandarísk.
Skífan, nóvember 1998. Bönnuð
innan 12 ára.
DIDI Truitt kemur inn í líf Bills,
samkynhneigðs hálfbróður síns eins
og rotið epli. FyiT en varir hefur
hún stolið kærasta
hans, peningum
og óbeint orðið til
þess að sverta
mannorð hans
verulega. En Bill
tekur hörmungun-
um með stóískri
ró í þeirri von að
hlutirnir séu ekki
eins slæmir og
þeir virðast vera.
Aðalsmerki þessarar kvikmynd-
ar er vandað handrit, þar sem
sjálfsvísandi frásagnarhætti er
beitt á einkar hugmyndaríkan
máta. Þar lætur sögumaður óspart
í ijós meðvitund um stöðu sína og
tengsl við frásögnina. Þá eru sam-
töl hlaðin margræðni og áhuga-
verðum hugleiðingum um ást, ham-
ingju, kynlíf og vináttu. Frumleg
persónusköpun nýtur sín til fulls í
flutningi ágætra ieikara myndar-
innar, en þar fer hinn hægláti en
töfrandi Martin Donovan fremstur
í flokki. Ef til vill má kenna leik-
stjórninni um þann stirðleika sem
örlar á í atburðarásinni, en það
verður bara sjarmerandi hluti af
heildaryfirbragði myndarinnar.
Heiða Jóhannsdóttir
Bræður
berjast
Martha, má ég kynna Fank,
Paniel og Laurence______
Ilúmantfsk gamanniýiid
★y2
Leikstjórn: Nick Hamm. Aðalhlut-
verk: Monica Potter, Rufus Sewell
og Tom Hollander. 90 mín. Bresk.
Háskólabíó, nóvember 1998.
Öllum leyfð.
ÞRÍR æskuvinir kynnast allir
sömu konunni, sama sólarhringinn
og verða ástfangir af henni. Hún er
bandarísk, þeir
breskir; tveir
dralluhalar og
einn fullkominn.
Spurningin er
hvern þeirra vel-
ur Martha?
Sagan er álíka
ótrúverðug og
fléttan. „Ovænt"
atvik eru gersam-
lega glær og endirinn augljós og
átakanlega væminn. Eitt það
merkilegasta við þessa mynd er
hversu lík aðalleikkonan er Juliu
Roberts. Leikararnir standa sig
með prýði og tæknilega er ekkert
að. A köflum er handritið bara of
bjánalegt til að hægt sé að njóta
þess sem vel er gert.
Guðmundur Ásgeirsson
<§> mbUs
__ALLTAf= eiTTH\SAÐ NÝTl-