Morgunblaðið - 26.11.1998, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 26.11.1998, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR * ____ > Opinber heimsókn Olafs Rag-nars Grímssonar forseta Islands til Svíþjóðar HÉR geturðu fengið að vita allt um sænska kon- unga í íslendingasög- um,“ sagði forseti Is- lands er hann sýndi Karli Gústafi Svíakonungi geisladisk með Islend- ingasögunum, sem um leið er haf- sjór fróðleiks um sögurnar. Kon- ungurinn virtist undrast að svo mikið efni kæmist fyrir á litlum diski, sem bar fyrir augu hans í bókasýningu, sem forsetinn opnaði í gær að konungi viðstöddum. Viðskipti, vísindi og íslenskar bókmenntir og bókagerð voru efst á blaði á öðrum degi opinberrar heimsóknar Óla.fs Ragnars Gríms- sonarj forseta Islands, í Svíþjóð í gær. I fór með honum var gestgjafi hans Karl Gústaf Svíakonungur og saman snæddu þeir og Silvía drottning hádegisverð í boði Stokkhólmsborgar í ráðhúsi borg- arinnar ásamt fjölda gesta. Is- lenskir útflutningsaðilar notuðu tækifærið, ræddu viðskiptamögu- leika og kynntu í gær Island fyrir sænskum fjárfestum við góðar undirtektir, auk sem þess sem áð- umefnd bókasýning var framtak ráðsins. Astra - Ericsson - Oz Það er ör hjartsláttur hjá þeim, sem undirbúa forseta- og konungs- heimsókn. Menn hlaupa fram og til baka, gæta þess að stólar standi í réttum röðum og að enginn óverð- ugur stígi á rauða dregilinn, sem er sjálfsagður liður í almennilegri heimsókn. Þannig hófst dagurinn hjá Astra, sem var fyrsti viðkomu- staður Ólafs Ragnars og Karls Gústafs í gær. Fyrirtækið getur státað af því að framleiða heimsins mest selda lyf, Losec, er gert hefur magasár að viðráðanlegum sjúk- dómi miðað við það sem áður var. Þar heilsuðu forsetinn og Svíakon- ungur meðal annars upp á Svein Briem lyfjafræðing, sem vinnur hjá Astra og starfar við rannsóknir á verkjalyfjum, en þann geira binda forráðamenn fyrirtækisins miklar vonir við á næstu árum. Alls starfa 25 þúsund manns hjá fyrirtækinu, sem nýtir tíu milljarða sænskra króna í rannsóknir árlega eins og H&kan Mogren framkvæmdastjóri fræddi gesti um. Hjá símafyrirtækdnu Ericsson voru þeir forsetinn og Karl Gústaf fræddir á því að Island væri besta markaðssvæði fyrirtækisins og að Islendingar væru mjög framsæknir í símanotkun, sem í huga Ericsson og fleiri er farið að spanna miklu víðara svið en samtöl eingöngu. Til að þróa það svið nánar hefur Erics- son fengið Oz til samstarfs við sig og væntir mikils af því samstarfi sagði Sven-Christer Nilsson, aðal- framkvæmdastjóri Ericsson. íslendingar fyrirhyggjulausir um óspillt land Næst lá leið Ólafs Ragnars og Karls Gústafs á málþing Utflutn- ingsráðs, þar sem sænskir og ís- Pressens bild FRAMKVÆMDASTJÓRI og stjómarformaður sænska símafyrirtækisins Ericsson, Sven-Christer Nilsson, afhendir Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta íslands, farsíma af nýrri gerð í heimsókn forsetans til höfuðstöðva fyrirtækisins í Stokkhólmi. Island besta mark- aðssvæði Ericsson s s A öðrum degi opinberrar heimsóknar Olafs Ragnars Grímssonar, — ■ ■ ' forseta Islands, til Svíþjóðar voru vísindi og viðskipti efst á baugi, segir Sigrún Davíðsdóttir, sem fylgdist með heimsókninni. lenskir menn úr viðskiptalífinu báru saman bækur sínar ásamt Halldóri Asgrímssyni utann'kisráðherra. Páll Sigurjónsson, formaður Ut- flutningsráðs, dró saman umræðu- efnin í stuttu máli fyrir gestina. Hann benti á að mikið ójafnvægi væri á útflutningi Islendinga til Sví- þjóðar og innflutningi til Islands frá Svíþjóð. í umræðunum komu fram ýmsar ábendingar um hvemig hægt væri að breyta þessu Islendingum í hag og laða sænskar fjárfestingar til Islands. Meðal annars var bent á að sænskur skógar- og pappírsiðn- aður gæti átt athyglisverða mögu- leika á Islandi og vitnað til þess hve vel hefði gengið á þessu sviði á Húsavík, þar sem Aldin hefur kom- ið á stofn trjáþurrkun, og er nú stefnt á frekari tijávinnslu þar. Þama var einnig boðið til glæsi- legs hlaðborðs með íslenskum mat- vælum og eftir hádegi var rætt í FLT-PICA KARL Gústaf Svíakonungur og forseti íslands komu við hjá lyfjafyrirtækinu Astra í Gartuna við Södertalje í gær. Lengst til vinstri er Hákan Mogren, forstjóri fyrirtækisins. starfshópum um fjárfestingar á ís- landi og þau mál kynnt sænskum fjárfestum. Ein þeirra sem kom á málþingið var Bryndís Sverrisdóttir, sem rekur ferðaski-ifstofuna Islandia í Stokkhólmi. Hún sagði þingið gagnlegt, en hefði sjálf viljað heyra meira af ferðamálum og uppbygg- ingu á því sviði á Islandi. Hún sagðist hafa miklar áhyggjur af fyrirhuguðum virkjunarfram- kvæmdum á hálendinu. íslending- ar virtust ekki skilja hve miklu máli það skipti að varðveita ímynd- ina um óspillt land. Það væri einmitt eftir slíku, sem ferðamenn leituðu, ekki uppistöðulónum og háspennuvírum. Eftir hádegisverð í ráðhúsinu var haldið í stutta heimsókn á Kar- ólínska sjúkrahúsið og þaðan vai’ haldið á SIPRI, alþjóðlega friðar- rannsóknarstofnun. Þar hlustuðu Ólafur Ragnar og Karl Gústaf af athygli á fræðimenn stofnunarinn- ar kynna rannsóknarsvið SIPRI, en í upphafi minntist Adam Daniel Rotfeld, formaður stofnunarinnai', Olgu Harðardóttur, er unnið hefur við stofnunina, en lést langt um aldur fram. Ólafur spurði fræðimennina um hvernig mið hefði verið tekið í starfi stofnunarinnar af breyttum aðstæðum undanfarinn áratug og öryggi í Evrópu, en konungurinn hafði áhuga á hvert væri framlag stofnunarinnar til baráttunnar gegn jarðsprengjum. Islensk bókagerð og bókmenntir „Ó, er fólkið að bíða,“ sagði Karl Gústaf konungur, þegar hann stóð niðursokkinn í íslensku bækumar, sem urðu fyrir honum er hann kom inn í bókaverslun Hedengrens, þar sem verið var að opna bókasýn- ingu. Konungurinn hafði undið sér beint í bækumar, en ekki tekið eft- ir að innar í búðinni beið fjöldi manns eftir forsetinn opnaði sýn- inguna. Konungurinn vatt sér í stól sem beið hans. En þegar Steinunn Sigurðardóttir hafði lesið upp ljóð og forsetinn ávarpað gesti á ís- lensku og sænsku og opnað sýning- una komst konungurinn aftur í að skoða íslensku bækurnai- og sýndi þeim mikinn áhuga. Honum fannst merkilegt hve prentlist væri á háu stigi á Islandi, þegar hann heyrði að fagrar bækur væra að öllu unn- ar á Islandi. Bókasýningin er haldin að til- stuðlan Utflutningsráðs í stórri og glæsilegri bókabúð í miðborg Stokkhólms, sem óðum fyllist af fólki í jólainnkaupum. Anna Einars- dóttir setti upp sýninguna, þar sem era bæði bækur á íslensku og öðr- um málum. Auk Steinunnar koma fram þau Kristinn R. Ólafsson og Jóhann árelíuz og lesa úr verkum sínum. Eftir bókasýninguna var dagskráin á enda, en í gærkvöldi hélt forsetinn konungshjónunum veislu á Hotel Hasselbacken. „Þögnin getur hrópað hæst“ Stokkhólnú. Morgunblaðið. „ÞAÐ ER fullkomlega eðlilegt að forsetinn túlki megináherslu Islands á alþjóðavettvangi," segir Ólafur Ragnar Grímsson forseti íslands í tilefni umræðu um viðtal, sem birtist við hann í Svenska Dagbladet á þriðjudaginn. Hann álítur blaðakonuna hafa misskilið ummæli sín um við- brögð Bandaríkjastjómar og þýsku stjómar- innar um Eystrasaltslöndin og að of mikið sé að segja að hann geri lítið úr gildi Evrópusam- bandsins, þó hann segi að þau séu ekki einu samtökin, sem móti Evrópu. Elisabeth Crona blaðakona, sem tók viðtalið, segist í samtali við Morgunblaðið ekki kannast við að hún hafí mis- skilið orð Ólafs. A fundi með blaðamönnum í Stokkhólmi í fyrradag var forsetinn spurður hvort eitthvað væri rangt eftir honum haft í áðumefndu viðtali, en hann kvað svo ekki vera. Þegar Ólafur Ragn- ar var í gærmorgun spurður út í einstök atriði viðtalsins, sagði hann að það gætti misskilnings í því sem haft væri eftir honum um álit á Islend- ingum í Washington og Bonn. Skýiingu þessa kvað forsetinn vera þá að á blaðamannafundin- um í fyrradag hefði hann ekki verið búinn að lesa viðtalið í Svenska Dagbladet gaumgæfilega. Umræður Ólafs Ragnars um utanríkismál hafa vakið þá spumingu, hvort forsetakosning- arnar hafi í raun snúist um að kjósa formælanda íslendinga í utanríkismálum. „Að sjálfsögðu snerust forsetakosningamar ekki um það,“ segir Ólafur Ragnar og segist ekki álíta sig neinn slík- an formælanda. „Það er misskilningur á því, sem ég hef lagt áherslu á. Hins vegar er það óhjá- kvæmilegt að í opinberri heimsókn leggi forset- inn áherslu á þau atriði, sem ríkisstjórin álítm’ mikilvæg. Það væri óeðlilegt að forsetinn viki ekki að slíku. Það er ekki verið að ræða veðrið í opinberum heimsóknum, heldur mikilvæg hags- munamál," segir Ólafur og bætir við að opinber- ar heimsóknii- hafi ekki veislur og kjólföt sem að- alinnihald. í áðurnefndu viðtali nefnir Ólafur Ragnar einnig að hann hafi umboð þjóðarinnar. I það leggur hann þann skilning að forsetinn hafi umboð frá þjóðinni um tíma. „Kosningar eru ekki hefðaratburður. Það eru engin tíðindi að forseti hafi lýðræðislegt umboð, en það getur verið nauðsynlegt að minna á það í konungs- ríkjum. Mér finnst sjálfsagt að fjalla um þetta á opinn hátt eins og ég vandist á tuttugu ára ferli mínum sem fræðimaður.“ Um muninn á umboði sínu og til dæmis ut- anríkisráðherra segir Ólafur Ragnar að mun- urinn sé meðal annars sá að það sé ekki verk- efni forseta að fjalla um dagleg viðfangsefni, samningaviðræður og þröngan hagsmuna- rekstur. „I opinberum heimsóknum er hins vegar eðlilegt að fjalla um áherslur, sem skipta Island máli.“ Um ummæh sín í áðurnefndu viðtali um að hann hafi sagt Islendinga litna homauga í Bonn og Washington fyrir dyggan stuðning við Eystrasaltslöndin segir hann að þau ummæli eigi við stöðuna fyrir 8-9 árum, þegar íslend- ingar studdu Eystrasaltslöndin traustlega í sjálfstæðisviðleitni þein-a. Það eru þessi um- mæli, sem Elisabeth Crona kannast ekki við að hafa misskilið. I viðtalinu má einnig skilja sem svo að Ólafi Ragnari þyki hlutverk ESB í Evrópu ekki ýkja mikilvægt og haldi heldur á lofti svæða- samstarfi þar. Ólafur Ragnar segir misskiln- ing að svo sé, en hnykkir á að Evrópa sé meira heldur en aðeins ESB. „Evrópuráðið gegnir þar miklu hlutverki og ég minni á að þar fara Islendingar með forystu á næsta ári,“ segir hann og bætir við að þar sem ísland sé utan ESB, en tengt því efnahagslega með EES- samningnum sé mikilvægt að halda því á lofti að í Evrópu fari fram margs konar samstarf. „En það er engin gagnrýni á ESB,“ bætir hann við.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.