Morgunblaðið - 26.11.1998, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 26.11.1998, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ UR VERINU FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998 23 5% olíusparnaður í flutningaskipum Brennsluhvatar Davids Butts vekja athygli vestanhafs Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson BJÖRN Haraldsson og Svanur Kristjánsson, umboðsmenn Portline Star á íslandi, og Indriði Kristinsson, hafnarstjóri í Þorlákshöfn, við komu Florindu til landsins á dögunum. Siglt frá Þorlákshöfn BRENNSLUHVATAR sem stuðla að eldneytissparnaði og mengunarvörnum í díselvélum hafa vakið talsverða athygli stór- fyrirtækja í Kanada. Brennslu- hvatarnir eru hannaðir og þróaðir af David Butt hér á landi, en hann flutti starfsemi sína vestur um haf fyrir um tveimur áram, Fyrirtæk- ið Comtec Combustion Technologies framleiðir nú búnað- inn og verður honum m.a. komið fyrir um borð í nokkrum flutn- ingaskipum olíurisans Irving Oil. David Butt sótti um einkaleyfi fyrir brennsluhvatann í Kanada og Bandaríkjunum og hefur um- hverfisráðuneytið í Nova Scotia og Atlantic Canada Oppertunities Agency lagt fram 3 milljónir króna til markaðssetningar og markaðskönnunar fyrir tækið í Kanada. Irving Oil meðal viðskiptavina Mikill áhugi er fyrir brennslu- hvatanum vestra og hafa tvö fyrir- tæki í eigu Irving Oil prófað tækið í skipum og á vélaverkstæðum, en Irving Oil er umboðsaðili Comtec í Kanada. Skipadeild Irving Oil, Kent Line Ltd., var með tæki til reynslu um borð í einu skipa sinna og nam olíusparnaður skipsins á reynslutímabilinu um 5%, sem jafngildir einu tonni af olíu á sól- arhring. Ennfremur varð vél skipsins hreinni með notkun bún- aðarins og mun minna var af sóti í útblæstri. Irving Oil hefur nú pantað tækið í tvö skip til viðbót- ar, en skipin eru hvert um sig með 7 þúsund hestafla vélar. Þá mun kanadíski sjóherinn reyna brennsluhvatann á næsta ári, auk þess sem kanadíska strandgæslan er með tækið í tveimur skipum til reynslu. Vélarnar skila meira afli Brennsluhvatinn hefur einnig verið til reynslu í fiskiskipum, bæði hérlendis og í Kanada. Að jafnaði nemur olíusparnaður skip- anna um 5%, auk þess sem vélarn- ar þykja ganga betur og skila meira afli. Tækið er nú í notkun í hátt í 40 íslenskum skipum en einnig hefur SR-mjöl notað það í brennsluofnum sínum. David Butt segir kostnað við ísetningu tækisins skila sér fljótt með eldneytissparnaði. Hann hafi nú kynnt búnaðinn fyrir öll- um helstu og stærstu útgerðum í Kanada og byggi einkum á niður- stöðum prófana hér á Islandi og yfirlýsingum íslenskra útgerða og fyrirtækja. Hann segir að einnig verði að huga að endur- nýjun búnaðarins en að jafnaði endist tækið í um 8 þúsund klukkustundir. Umboðsaðili Comtec á íslandi er Umhverfi hf., sem er í eigu Ey- mundar Matthíassonar. Morgunblaðið. Þorlákshöfn. FLUTNINGASKIPIÐ Florinda kom til Þorlákshafnar nýverið og eru þar með hafnar reglubundnar siglingar milli Þorlákshafnar og Avairo í Portúgal, með viðkomu í Alasundi í Noregi. Það er portú- galska skipafélagið Portline Star, eitt stærsta þarlendra skipafélaga, sem á skipið og stendur að flutning- unum. Umboðsmaður félagsins á Islandi er Björn Haraldsson og hefur verið opnuð umboðsskrifstofa í Þorláks- höfn. Segir Björn um 14 mánuði liðna frá því fyrst kom til tals að þörf væri fyrir aukna og öðruvísi flutnmga fyrir þá sem stæðu utan við SÍF. Þetta sé þó ekki gert í sam- keppni við neinn, heldur sé um nýj- an möguleika að ræða sem allir geti nýtt sér. Með því að skipa ekki upp í Rotterdam, heldur sigla beint til Portúgal, eigi að vera hægt að bjóða lægra verð. Fyrirhugað er að Florinda verði í Þorlákshöfn á 23 daga fresti. Björn segh- skipið, sem er um 2.400 smá- lestir, hafa verið útbúið sérstaklega fyrir þessa flutninga, en í skipinu eru bæði kæli- og írystivélar. Þetta er fyrsta skipið sem er sérstaklega útbúið með gæðastýringu á hitastig fyrir saltfisk. I skipinu er pláss fyrir 50 gámatengi. Breytingar á skipinu voru boðnar út og var íslenska fyr- irtækið Frostmark með lægsta til- boð í kæli- og frystikerfi. Guðlaugur Pálsson, framkvæmdastjóri Frost- marks, segir að mestur hluti verks- ins hafi verið unninn í Portúgal en lokafrágangur færi fram í Þorláks- höfn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.