Morgunblaðið - 26.11.1998, Síða 26
26 FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Deilt á skattbreytingaáform
Schröders
Samherjar
gagnrýna
kanzlarann
GERHARD Schröder, kanzlari
Þýzkalands, hefur nú séð sig knúinn
til að bregðast við harðri gagni-ýni á
skattbreytingaáform ríkisstjórnar-
innar, sem undanfarna daga hefur
fyrst og fremst komið frá stjórnum
sambandslandanna sextán, sem
Þýzkaland skiptist upp í.
Forsætisráðherrar sambands-
landanna halda því fram að skatta-
lækkanirnar sem sambandsstjórnin,
undir forystu Schröders, hafi
áformað, muni skapa þeim (sam-
bandslöndunum) mestan tekjumissi.
Þeir hafa því hótað að beita neitun-
arvaldi gegn nýju skattalögunum í
Sambandsráðinu, efri deild þjóð-
þingsins, sem forsætisráðherramir
og fleh-i fulltrúar sambandsland-
anna eiga sæti á, en Jafnaðar-
mannaflokkurinn SPD - flokkur
Schröders - ræður þar nú yfir
traustum meirihluta. Meira að segja
Gerhard Glogowski, ai-ftaki
Schröders sem forsætisráðherra
Neðra-Saxlands, gagnrýndi áform
Schröder-stjórnarinnar, en áður
höfðu starfssystkin hans í Sachsen-
Anhalt, Nordrhein-Westfalen, Slés-
vík-Holtsetalandi og Hessen gert
það.
Schröder brást við þessu á
þriðjudag með því að fallast á sér-
stakan fund með forsætisráðherr-
um þeirra sambandslanda, þar sem
SPD er í stjórn. Edmund Stoiber,
forsætisráðherra Bæjaralands,
gagnrýndi þetta í gær og hvatti til
þess að kanzlarinn fundaði með öll-
um forsætisráðherrunum, ekki ein-
göngu þeim þeirra sem era í SPD.
„Það er ekki í lagi að nota sam-
bandslöndin til að bæta upp tekju-
missinn sem skattbreytingarnar
hafa í för með sér,“ sagði Gerhard
Glogowski í blaðaviðtali. Hann sagði
ákvörðun Schröder-stjórnarinnar
frá því í síðustu viku um að hætta að
innheimta skatta af launatekjum
undir 620 mörkum (um 25.000 kr.) á
mánuði myndi kosta landssjóðinn
410 milljónir marka árlega (um 16,8
milljarða kr.) í tapaðar skatttekjur.
Fjármálaráðherrann Oskar
Lafontaine, sem jafnframt er
flokksleiðtogi SPD, reyndi að slá á
áhyggjur héraðsleiðtoganna. Hann
sagðist myndu ræða leiðir til að
bæta þeim þetta upp á sérstökum
fundi með fjármálaráðherrum sam-
bandslandsstjórnanna síðar í vik-
unni.
Sun ræðst á Lafontaine
Brezka æsifréttablaðið The Sun
helgaði í gær síðu þrjú í blaðinu,
Reuters
GERHARD Schröder kanzlari heilsar Oskar Lafontaine fjármálaráð-
herra við upphaf ríkisstjórnarfundar í Berlín í gær, en þetta var í
fyrsta sinn sem stjórnin kom þar saman eftir að landið var sameinað.
Stjórnin flytur formlega til Berlínar næsta sumar. Innfellda myndin er
af blaðsíðu 3 í The Sun.
sem að öllu jöfnu er frátekin fyrir
mynd af berbrjósta yngismær,
þýzka fjármálaráðherranum, undir
fýrirsögninni „Ist das der
gefáhrlichsten Mann Europas?“,
þ.e. „Er þetta hættulegasti maður
Evrópu" á þýzku.
Lafontaine var þar með gerður að
nýjasta fómarlambi herferðar Sun
gegn aðild Bretlands að Efnahags-
og myntbandalagi Evrópu, EMU.
Hann var sakaður um að vilja
skattahækkanh', að sterlingspundið
verði afnumið og að þýzkur seðla-
banki stýri vaxtastigi í Bretlandi.
Hin þýzka fyrirsögn samsvaraði
fyrirsögninni sem stóð yfir álíka
árás á Tony Blair forsætisráðherra
fyrr á árinu, sem gekk út á að hann
væri brezkum hagsmunum hættu-
legur vegna þeirrar stefnu sinnar
að vilja koma Bretlandi inn í EMU.
Fyrsta ýtarlega sjónvarpsviðtalið við Kenneth Starr
„Hefðum átt að hafa
meiri hemil á Tripp“
Kenneth Starr Linda Tripp
Washington. Reuters.
KENNETH Starr,
sem stjórnaði fjög-
urra ára rannsókn á
málum Bills Clintons
Bandaríkjaforseta,
sagði í viðtali í ABC-
sjónvarpinu í nótt að
lögfræðingar sínir
hefðu átt að „hafa
meiri hemil“ á Lindu
Tripp á mikilvægu
tímabili í rannsókn-
inni. Þetta er fyrsta
ýtarlega viðtalið sem
tekið hefur verið við
Starr frá því hann hóf
rannsóknina á því
hvort forsetinn hefði
framið meinsæri og lagt stein í götu
réttvísinnar með því að reyna að
leyna kynferðislegu sambandi sínu
við Monicu Lewinsky, fyrrverandi
starfsstúlku í Hvíta húsinu.
Tripp hafði hljóðritað samtöl sín
við Lewinsky, fyrrverandi vinkonu
sína, um samband hennar við
Clinton. Diane Sawyer, sem tók
viðtalið við Starr, spurði hann
hvernig á því stæði að Tripp hefði
farið af skrifstofu hans í janúar á
fund við lögfræðinga Paulu Jones,
sem höfðaði mál gegn Clinton og
sakaði hann um kynferðislega
áreitni. Daginn eftir yfirheyrðu
lögfræðingarnir Clinton um ásak-
anir Tripp og forsetinn neitaði því
þá í fyrsta sinn í eiðsvarinni yfir-
lýsingu að hann hefði haldið við
Lewinsky. Hann viðurkenndi þó
síðar að hafa átt í kynferðislegu
sambandi við hana.
„Ég tel að við hefðum getað haft
meiri hemil á henni,“ sagði Starr í
útdrætti úr viðtalinu sem birtur var
í gær. Þegar Sawyer spurði hann
að því hvort hann ætti við að lög-
fræðingar hans „hefðu átt að hafa
meiri hemil á henni“ svaraði hann
því játandi. Hann bætti við sam-
starfsmenn sínir hefðu ekki vitað
að Tripp ætlaði að ræða við lög-
fræðinga Paulu Jones.
„Einstaklega
hæfileikaríkur“ forseti
Demókratar og fleiri stuðnings-
menn Clintons hafa sakað Starr
um að hafa komið fram sem erkió-
vinur forsetans og gert allt sem á
valdi hans stæði til að knýja fram
brottvikningu hans. Starr fór þó
lofsamlegum orðum um Clinton í
viðtalinu. „Hann er einstaklega
hæfileikaríkur, frábærlega sköru-
legur, og ég hef kynnst fólki í
starfi mínu sem er í nánum tengsl-
um við hann og telur hann aðeins
vekja mjög mikinn hlýhug og holl-
ustu meðal flestra sem kynnast
honum.“
Starr bar vitni fyrir dómsmála-
nefnd fulltrúadeildar Bandaríkja-
þings á fimmtudaginn var og hvatti
til þess að Clinton yrði sviptur for-
setaembættinu þar sem hann hefði
borið ljúgvitni og lagt stein í götu
réttvísinnar.
Hann sagði í viðtalinu að hann
væri andvígur ástarsamböndum ut-
an hjónabands en neitaði því að
hann væri „tepraleg kynlífslög-
regla“ eins og andstæðingar hans
hafa sakað hann um. Hann bætti
við að ekki væri hægt að láta mein-
særi viðgangast og að bandaríska
þingið mætti ekki senda þau skila-
boð til bandarískra unglinga að
menn gætu komist upp með að bera
ljúgvitni.
„Hefðum e.t.v. átt
að gera meira“
Talsmaður Starrs, Charles Baka-
ly, sagði í viðtali við CNN-sjón-
varpið í fyrrakvöld að skrifstofa
hans stæði við allt sem fram kæmi í
rannsóknarskýrslunni sem send
var þinginu en nokkrir aðstoðar-
menn Starrs veltu því hins vegar
fyrir sér hvort ekki hefði átt að búa
þingmennina betur undir berorðar
lýsingar á kynlífi forsetans í skýi-sl-
unni.
„Við reyndum að vara þá við því
að þetta væra mjög viðkvæmar
upplýsingar," sagði hann. „Við velt-
um því þó fyrir okkur hvort við
hefðum getað gert meira - við vit-
um ekki hvað - en við hefðum ef til
vill átt að gera meira til að undii'-
búa þá.“
Boða tillögu um
vítur á Clinton
Washington. Reuters.
NOKKRIR demókratai' í dómsmála-
nefnd fulltrúadeildar Bandaríkja-
þings sögðust í fyrradag ætla að
leggja fram tillögu fyiir nefndina um
að Bill Clinton Bandaríkjaforseti
yi-ði víttur en ekki sviptur embætt-
inu vegna ásakana um að hann hefði
framið meinsæri.
Rick Boucher, þingmaður frá
Virginíu, sagði að óvíst væri hversu
margir demókratar í dómsmála-
nefndinni myndu styðja tillöguna en
viðurkenndi að á meðal þeiraa væri
ekki einhugur um hana.
Repúblikanar eru í meirihluta í
dómsmálanefndinni og leiðtogar
þeirra hafa sagt að þeir séu andvígir
því að forsetinn verði víttur, segja að
slíkt myndi ganga í berhögg við
stjórnarski'ána og vera ófullnægj-
andi refsing fyrir Clinton vegna
framgöngu hans í máli Monicu
Lewinsky, fyrrverandi starfsstúlku í
Hvíta húsinu.
Henry Hyde, formaður nefndar-
innar, hefur sagt að vilji demóki'atar
að forsetinn verði víttur sé betra að
þeir leggi tillöguna fram fyrir full-
trúadeildina eða hugsanlega öld-
ungadeild þingsins. Bob Livingston,
forseti fulltrúadeildarinnar, hefur
látið í ljósi efasemdir um tillöguna en
ekki hafnað henni.
The Washington Post hafði í gær
eftir heimildarmönnum úr röðum
repúblikana að lítið vantaði upp á að
tillaga um að Clinton yi'ði ákærður
fyrir meinsæri fengi nægan stuðning
í fulltrúadeildinni, hins vegar væri
ljóst að deildin myndi ekki ákæra
hann fyrir að leggja stein í götu rétt-
vísinnar.
Demókratar, sem vilja að forset-
inn verði víttur, sögðust telja að ekki
væri meirihluti fyrir því í fulltrúa-
deildinni að svipta Clinton forseta-
embættinu og örugglega ekki í öld-
ungadeildinni. Þeir sögðu að
repúblikanar og demókratar, sem
vilja ekki að Clinton sleppi alveg við
refsingu, myndu samþykkja vítur á
forsetann ef slík tillaga yrði lögð fyr-
ir fulltrúadeildina.
Paul McHale, demókrati frá Penn-
sylvaníu, sem hvatti Clinton til að
segja af sér í ágúst, sendi Hyde bréf
og drög að tillögu um vítur í fyrra-
dag. „Eg er nú sannfærður um að
vítur séu betri kostur,“ sagði hann.
„Það er þjóðinni fyrir bestu að málið
verði leitt til lykta sem fyrst.“
Repúblikanar
mótmæla
Talsmenn Clintons og Als Gores
varaforseta hafa fagnað þeirri
ákvörðun Janet Reno dómsmálaráð-
herra að skipa ekki óháðan saksókn-
ara til að rannsaka fjáröflun Gores
fyrir forsetakosningarnai' árið 1996.
Repúblikanar sögðust hins vegai'
hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum,
en þeir hafa gagnrýnt Reno í tvö ái'
fyrir að hafna því að skipa saksókn-
ara til að rannsaka hugsanleg brot
demókrata á lögum um fjármögnun
stjórnmálaflokka.
Repúblikaninn Dan Burton, for-
maður umbóta- og eftirlitsnefndar
fulltrúadeildarinnar, sem hefur
rannsakað slík fjáröflunarmál, sagði
að Reno hefði „enn einu sinni látið
hjá líða að fara að lögum“.
Ákvörðun Reno byggist á þriggja
mánaða rannsókn starfsmanna
dómsmálai'áðuneytisins og
repúblikaninn Orrin Hatch, formað-
ur dómsmálanefndar öldungadeildar-
innar, sagði að sú rannsókn hefði ein-
skorðast við veigalítil mál, svo sem
ásakanir um að Gore hefði hringt úr
síma Hvíta hússins til að óska eftir
fjárframlögum. Með ákvörðun sinni
hefði Reno grafið undan trausti al-
mennings á dómsmálaráðuneytinu og
hindrað að „glæfralegar fjáröflunar-
aðferðii' Clintons og fleiri embættis-
manna“ yi'ðu rannsakaðar til hlítar.