Morgunblaðið - 26.11.1998, Page 33

Morgunblaðið - 26.11.1998, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998 33 Nýjar bækur • HEIMSINS besta amma. er rit- stýrt af Helenu Exley, en Jón Daní- elsson þýddi bókina. Það eru barnabörnin sjálf sem hafa skrifað þessa bók og mynd- skreytt hana. • HEIMSINS besti pabbi er rit- stýrt af Helenu Exley. Þýðandi er Guðbrandur Siglaugsson. I kynningu segir: „Þetta er fal- legt rit sem lofar feðurna. Það er skrifað og myndskreytt af alúð og dálæti, af börnum. Kætin, hláturinn og ánægjan af því að vera með pabba lýsir af hverri mynd og hveiTÍ setningu." Utgefandi er Skjaldborg. Umbrot og frágangur: Skjaldborg. Bækurn- ar eru prentaðar í Singapúr. Heims- ins besta amma er 30 bls. Heimsins besti pabbi er28 bls. Verð hvorrar bókar: 750 kr. • Frank og Jói - meðan klukkan tifar er eftir Franklin W. Dixon í þýðingu Jóns Birgis Péturssonar. I kynningu segir: Frank og Jói eru synir frægs rannsóknarlög- reglumanns og ákveðnir í að feta í fótspor hans. Að þessu sinni taka þeir að sér rannsókn á dularfullum atburðum í húsi einu og reynist hún bæði hættuleg og snúin. En bræð- urnir heimsfrægu kunna eitt og annað fyrir sér. Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er 142 bls. Umbrot og frágangur: Skjaldborg. Bókin erprentuð í Singapúr. Verð: 1.680 kr. • AST, peningar og allt i rugli er unglingasaga eftir Carsten Folke Möller í þýðingu Jóns Daníelssonar. I kynningu segir: „Fyrst vann ég í lottóinu - svo kyssti Katrín mig. Framtíðarhorfur mínar gátu ekki verið bjartari. Einmitt þá snerast örlögin gegn mér...“ Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er 136 bls. Umbrot og frágangur: Skjaldborg. Bókin er prentuð í Singapúr. Verð: 1.780 kr. • REGNSKÓGAR hafsins - bók um kóralla og kóralrif er eftir Lars Thomas í þýðingu Gissurar Ó. Erl- ingssonar. Myndir eru eftir Johann- es Bojesen. Margir hafa í tímans rás lagt sig í líma við að komast sem næst kóröll- unum enda eru þeir heimkynni svo morandi lífs að á þurru landi er þess líki einungis að finna í regnskógum hitabeltisins. Hér er aragrúi fiska og hér vaxa líka hinir undraverðu eðalkórallar sem eru efniviður í sum af fegurstu listaverkum veraldar, segir í kynningu. Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er 46 bls. í stóru broti. Umbrot og frágangur: Skjaldborg. Bókin er prentuð í Singapúr. Verð: 1.480 kr. • NANCY og gamla albúmið er eftir Carolyn Keene í þýðingu Gunnars Sigurjónssonar. í kynningu segir: Að þessu sinni reynir Nancy að hafa uppi á dular- fullri brúðu fyrir konu eina og kemst á slóð sígauna sem virðast hafa óhreint mjöl í pokahorninu. Nancy verður fljótt ljóst að hún er í bráðri hættu stödd. Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er 165 bls. Umbrot og frágangur: Skjaldborg. Bókin erprentuð í Singapúr. Verð: 1.680 kr. • MERKILEG dýr er eftir Bent Jörgensen í þýðingu Gissurar Ó. Erlingssonar. Teikningar eru eftir Birde Poulsen. I kynningu segir: Öll dýr eru merkileg. En sum dýr era merki- legri en önnur, annaðhvort vegna þess að þau lifa á allt annan hátt en við eða af því að þau eru einkennileg í útliti.“ Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er 46 bls. í stóru broti. Umbrot og frágangur: Skjaldborg. Bókin er prentuð í Singapúr. Verð: 1.480 kr. • FYRSTA orðabók mín er eftir Richard Scarry í þýðingu Óskars Ingimarssonar. Bókin er endurút- gefin. í kynningu segir: Meira en 1.000 litmyndir pi-ýða bókina og mörg þúsund orð á íslensku, ensku og dönsku. Bókin hjálpar yngstu börn- unum að þekkja umhverfi sitt og hlutina í kringum sig. Útgefandi er Setberg. Bókin er 63 bls. Verð: 1.480 kr. Þar sem ég er, þar er ég BÆKUR Ljöð LJÓÐ - ÚRVAL eftir Þorstein Valdimarsson. Eysteinn Þorvaldsson bjó til prentun- ar og ritar inngang. Bókmennta- fræðistofnun Háskóla íslands 1998 - 232 bls. MÖRG þau skáld sem komu fram um miðja öldina eiga í innri átökum sem að nokkru eiga rætur að rekja til örra þjóðfélagsbreyt- inga. Ekki var einungis um að ræða viðbrogð við formbyltingu atóm- skáldanna heldur lifðu þau í tveimur heimum, heimi dreifbýlis og þjóð- legs veruleika og veröld þéttbýlis og erlendra áhrifa. Þorsteinn Valdimars- son var eitt þessara skálda. Hann var maður tveggja heima. Hann meðtók rómantík gamla sveitasamfélagsins. Ljóð hans sóttu sitt til rómantíkur og nýróm- antíkur, ekki síst orð- færi og myndmál. En hann var einnig barn síns tíma. Þótt hann héldi oftast vel í hefðbundið ljóðform einkenndust skrif hans þó af formtilraunum og leit að nýjum tjáningarhætti og þar var hann fundvís. Enn fremur leit- uðu tilvistarspurningar á hann og gætir þar áhrifa frá módernismanum og tilvistarstefnunni. Nú hefur Eysteinn Þorvaldsson búið úi*val ljóða Þorsteins til prent- unar og ritar ítarlegan og vandaðan inngang. Það er fagnaðarefni að fá þessa bók í hendurnar. Mörg ljóð Þorsteins lifa með þjóðinni bæði í söngvum og svo standa þau vissu- lega fyrir sínu sjálf. Sum þeirra eru mjög kunn eins og ljóðin Ingi Lár og Þú veist í hjarta þér. A vissan hátt ruddi Þorsteinn einnig þeim skemmtilega lausavísnahætti, lim- runni, braut og má ef til vill þakka honum að veralegu leyti hversu góðu lífí limran lifir sem lausavísnaháttur hér á landi. Til gamans úr því að mikið er talað um sameiningu ki'ata og komma um þessar mundh- má rifja upp limru sem Þorsteinn orti og kallai’ Kratar: Gamla Vilmundarvitið er vitanlega’ orðið slitið á stöku stað - svo þeir stíga’ ekki í það nema stundum, eins og þið vitið. En úr þessu hefur nú ræst, vona ég. Raunar er mikill hluti limra Þor- steins ekki pólitískur kveðskapur eða gamankvæði heldur fjalla þau mörg hver um dýrð náttúrunnar. Eitt helsta einkenni á ljóðum Þorsteins var hið rómantíska ljóð- og myndmál samfara fé- lagslegum viðhorfum. Fjallar Eysteinn ítar- lega um það í inngangi sínum. Einkum ber hann það saman við ljóð rómantískra skálda og ekki síst Jónasar Hall- gi’ímssonar. Því verður ekki neitað að mai’gt er líkt í kveðskapi þessara manna. Sumt af ljúf- lingatali Þorsteins minnh’ á listaskáldið góða: flýt þér Ijóð mitt á lynggötu hjarta míns ástvin eitthvað dvelur hingað hann seiðir sunginn óður slóð kvöldálfa komi ljúflingur Því má hins vegar ekki gleyma að Þorsteinn var ekki einn um að yrkja í anda þessa listaskálds. Svipaður andi var í kvæðum margra sósíal- ískra skálda um miðja öldina. Má þar nefna Jóhannes úr Kötlum, Guð- mund Böðvarsson og Snoraa Hjart- arson. Þar fóru saman rómantískt myndmál og félagsleg viðhorf og raunar oft líka trúarleg viðhorf svo merkilegt sem það nú er. Þess ber einnig að geta að einn mesti áhrifa- maður sósíalista, Kristinn E. Andrésson, hampaði mjög Fjölni og Jónasi. Skýringanna á þessu kann að vera að leita að nokkru til hug- myndafræði Sósíalistaflokksins sem byggði annars vegar á hugmyndinni um sósíalisma í einu landi og svokall- aðri þjóðfylkingai’stefnu. En þessari stefnu fylgdi mikil áhersla á þjóðern- ishyggju, alþýðlega og þjóðlega menningu. Jónas Hallgrímsson sam- einaði þetta allt í skáldskapi sínum svo að hann var kjörin fyrirmynd. í mörgum ljóðum sem fjölluðu um Nato og vera hersins hér á landi endurómaði smávina-, ljúflinga- og náttúrutal Jónasar. En það er líka innhverfari tónn í kvæðum Þorsteins, spurningar um tilvist mannsins. Einkum er þetta áberandi í síðustu ljóðabók hans. Ey- steinn kallar hann raunar félags- lyndan einfara þótt það kunni að verka sem mótsögn. I það minnsta dregur Þorsteinn upp mynd af sjálf- um sér í líki arnar í kvæðinu Örn: Par sem ég er, þar er ég, svo einfalt er það. Og þegar ég fer, þá fer ég og þá fyrst, í annan stað. Handgenginn engum áttum, af öllum frjáls, næ ég hvarvetna háttum mín sjálfs. Þorsteinn var einnig mikilvh’kur þýðandi og þýddi meðal annars kvæði eftir Arthur Rimbaud, Goethe, Eichendorff og einn fræg- asta texta Bob Dylans um tímana sem breytast. Málfar Þorsteins er allajafnan nokkuð upphafið og klið- mjúkt og raunar furðulegt hversu vel það málfar lætur við annars hrjúfan þexta hins ameríska trú- badors. Islenskir textasmiðir gætu margt lært af Þorsteini. Það er fengur í þessu ljóðaúrvali Þorsteins Valdimarssonar og Ey- steinn Þorvaldsson hefur unnið þarft og gott verk í vali ljóða og ritun inn- gangs. „Sumir kveðja / og síðan ekki / söguna meir. // - Aðrir með söng / sem aldrei deyr“ orti Þorsteinn um Inga Lár. Þótt stór orð hæfi illa þessum hógværa manni hygg ég að ljóð hans muni lifa lengi með okkur. Skafti Þ. Halldórsson Nýjar bækur • AIN mín - kunnir laxveiðimenn segja frá uppáhaldsánni sinni er skráð af Eiríki St. Eiríkssyni. I kynningu segir: Alkunna er að flestir laxveiðimenn eiga sér sína uppáhaldsá sem þeir hafa tekið ást- fóstri við og þangað leggja þeir leið sína ár eftir ár, hvernig sem skil- yrði eru og hvort sem veiðivon er eða ekki. I bókinni segja sex lax- veiðimenn frá uppáhaldsánni sinni, veiðireynslp, veiðistöðum o.s.fi’v.: Ólafur H. Ólafsson, Halldór Snæland, Jón G. Baldvinsson, Gunnar Sveinbjörnsson, Asbjörn Óttarsson, og Eiríkur Sveinsson. Útgefandi er Fróði. Bókin er223 bls. Mikill fjöldi ljósmynda er í bókinni. Kápu hannaði Omar Örn Sigurðsson en Ijósmynd á kápu tók Rafn Hafnfjörð. Bókin er prent- unnin í Prentsmiðjunni Grafík. Verð 2.980 kr. • SNJALLAR stúlkur er eftir Ro- bert Leeson, í þýðingu Guðna Kol- beinssonar. I kynningu segir: „Robert Leeson en er gamalreyndur höf- undur barnaefnis í Bretlandi, bæði bóka og útvarpsefnis. Hér segir hann sögur af snjöllum stúlkum frá ýmsum löndum. Þetta eru stúlkur sem ekki hræðast neitt, lifandi, eða dautt, þær hafa engan áhuga á monthönum eða kjaftöskum, þær langar ekki alltaf til að giftast en ef þær gera það þá láta þær skýrt í ljós að það verður að taka tillit til þess sem þær vilja.“ Útgefandi erÆskan. Bókin er 96 bls. Myndir eru eftir Axel Scheffler. Verð: 1.780 kr. • DAGBÓK drápskattar er ætluð ungum lesendum eftir Anne Fine í þýðingu Arna Arnasonar. I kynningu segir: „Anne Fine er einn vinsælasti núlifandi barna- bókahöfunda á Vesturlöndum. Hún • hefur skrifað fjölda bóka handa börnum og unglingum (Madame Doubtfire). Dagbók drápskattar mun vera fyrsta bók hennar sem kemur út í íslenskri þýðingu. Það er heimilisköttur sem segir sögu sína sjálfur í bókinni. Eðli kattarins fellur ekki alls kostar að góðum siðum fjölskyldunnar sem hann dvelst hjá. Það verða því óhjá- kvæmilega árekstrar á heimilinu þegar kötturinn fer að draga fórn- arlömb sín inn á heimilið.“ Útgefandi er Æskan. Bókin er 64 bls., myndskreytt af Steve Cox. Verð: 1.190 kr. Þorsteinn Valdimarsson Hið góða og jákvæða Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir KÓRARNIR þrír sungu saman í lok tónleikanna. Þriggja kóra tónleikar í Hveragerðiskirkju Hveragerði. Morgunblaðið. BÆKUR Ljóð SÁÐMAÐURINN Eftir Harald S. Magnússon. 56 bls. Gefið út af höf. Prentun: Prentsmiðja Hafnarfjarðar. 1998. LJÓÐIN í Sáðmanninum eru lík- ast til öll þar sem þau era séð, leyna engu. Tónninn er jákvæður. Ahersla er lögð á hið fagra og upp- byggilega í mannlífinu og náttúrunni. Kímnigáfan, en af henni era þarna fáein pró- sent, spillir ekki. Þau mættu þó að skaðlausu vera fieiri. Hvað sem því líður er Haraldur umfram allt skáld sem byggir ljóð sín á íhugun. Þetta er ekki sterkur kveðskapur, ekki beint áleitinn, en einlægur og notalegur aflestrar. Augljóst er að Haraldi er meira í mun að koma á framfæri því sem hann vildi sagt hafa en aga stíl sinn, sveigja Ijóðið undir strangt og útreiknað form. Velferð mannkyns og varðveisla lífs á jörðinni standa honum hjarta nær. Sum ljóðin, Vonin t.d., leiða líka hugann að trúnni: Biðjandi augu mæna til himins. Bænheyrðu mig, þú ert einn sem skilur. Hugurinn sljóvgast, augun daprast. Og enn mæna augun til himins. Sum ljóðin höfða sterklega til samviskunnar, svo sem Rjúpan, síð- asta ijóðið í bókinni: Það mai’rai’ í hjai-ninu, þegar veiðimaðurinn greikkar sporið. Vængbrotin rjúpan berst vonlausri baráttu. Veiðimaðurinn bætir blóðugri rjúpu ájólaborðið. Þessi tvö sýnishorn ættu að gefa nokki’a hugmynd um ljóðin í Sáð- manninum. Þetta eru ekki átaka- ljóð. En þau hrinda engum frá sér og gera engar ofurkröfur til lesand- ans. Þau gætu orðið sálubót í myi’ku skammdegi þegar jólin nálgast. Erlendur Jónsson HÚSFYLLIR var í Hveragerðis- kirkju síðastliðinn laugardag þegar Söngsveit Hveragerðis, Kveldúlfskórinn í Borgarnesi og Skagfirska söngsveitin héldu þar sanieiginlega tónleika. Efnisskrá tónleikanna var fjölbreytt en mest var þó flutt af íslenskum sönglögum. Áheyrendur létu óspart ánægju sína í ljós og urðu allir kórarnir að flytja aukalag. Skagfirska söngsveitin flutti dúett úr Kátu ekkjunni sem aukalag og vakti skemmtilegur flutningur þeirra Kristínar R. Sigurðardóttur og Guðmundar Sigurðssonar hrifningu. Hápunktur tónleikanna var síðan þegar þessir þrír kórar sameinuðust í einn og fluttu sam- an lag Páls ísólfssonar við ljóð Davíðs Stefánssonar, Úr útsæ rísa Islands fjöll. Þessir tónleikar kóranna þriggja marka upphafið að sam- vinnu þeirra því ætlunin er að þeir hittist að ári f Borgarnesi og haldi tilsvarandi tónleika þar. Geta íbúar Borgarbyggðar þegar farið að hlakka til því miðað við tónleikana síðastliðinn laugardag er hægt að lofa ógleymanlegri stund í Borgar- nesi að ári. Haraldur S. Magnússon

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.