Morgunblaðið - 26.11.1998, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998 35
LISTIR
Hugtæk harmsaga
BÆKUR
Skáldsaga
TIL HAMINGJU
MEÐ DAGINN, SARA
Eftir Yann Queffélee. Þýð. Guðrún
Finnbogadóttir. 151 bls. Fróði hf.
Prentun: Oddi hf. 1998.
ÞETTA er lítil bók að umtaki en
mikil að inntaki. Hún sameinar það
besta í franskri skáldsagnahefð,
rómatík og raunsæi fyrri tíma,
tjáningaraðferðum seinni tíma
höfunda þar sem frásögnin
felst að hálfu í blæbrigðum
orða og setninga eða með öðr-
um orðum í - stílnum. Lík-
ingamálið sannar að höfund-
urinn er gæddur skörpu og
frumlegu ímyndunarafli. Per-
sónurnar - aðalsöguhetjan
væri ef til vill ráttara að segja
- standa föstum fótum á
gegnheilum grunni veruleik-
ans en höfða eigi að síður til
draums og undirvitundar.
Söguþráðurinn er sléttur og
misfellulaus á yfirborði. Og
spennan heldur lesandanum
rækilega vakandi. Þar að auki
er Queffélec einkar lagið - en
hið sama verður því miður
ekki sagt um alla nútíma-
höfunda - að útmála hina líffræði-
legu hlið ástarinnar án þess að ger-
ast grófur. Aðalsöguhetjan er
sænsk, Sara, sautján ára skip-
stjóradóttir. Sagan - með allri
sinni flækju fram og aftur í tíma og
rúmi - gerist mest í hugarheimi
hennar. Lífið um borð í skipinu
birtist lesandanum eins og það
kemur henni fyrir sjónir. Faðir
Söru hafði verið skipstjóri á
Estóníu en var rekinn með skömm
vegna þess að hann fór of varlega.
Sara álítur að ekki hafi verið allt
með felldu varðandi brottvikningu
hans og tekur sér far með skipinu í
þeim vændum - meðal annars - að
komast að raun um hið sanna. í
upphafi sögunnar er hún stödd á
afgreiðslu skipsins í Tallinn; kveðst
vera peningalaus og beiðist þess að
mega vinna fyrir fargjaldinu. Til-
viljun ræður að hún fær þá ósk
sína uppfyllta. Haldið er um borð
og sjóferðin hefst. Og sannarlega
ber margt fyiir augu og eyru ungu
stúlkunni í þessu risavaxna
farþegaskipi. Atburðalýsingar
skiptast á við endurminningar og
hugleiðingar Söm - hugarburð
mætti stundum kalla það - eða
blandast við hennar mjög svo
hvikula tilfinningalíf. Sara hefur
verið á föstu með piltinum Magnúsi
sem er íþróttamaður og geymir
Yann
Queffélec
Guðrún
Finnbogadóttir
meydóm hennar eins og verðlaun
sjálfum sér til handa; verðlaun fyr-
ir afrek sem hann á eftir að vinna.
Og vinnm- kannski aldrei! Sara
elskar íbður sinn sem hún telur að
hafi verið órétti beittur. Fyrsta
verk hennar sem þernu á skipinu
er að færa skipstjóranum kampa-
vín sem hann er vanur að dreypa á
þegar skipið er komið út á rámsjó.
Hún heyrir í veðurfregnum frá
Finnlandi að spáð er stormi. Sara
heyrir líka utan að sér að ekki sé
allt í sem bestu lagi um borð í skip-
inu, vatnsagi sé á bíladekki vegna
þess að sjór flæði inn með stefninu.
Verður sá þráður ekki rakinn nán-
ar hér.
Það kann að sýnast djarft að
senda frá sér sögu um svo hörmu-
legan atburð sem Estóníuslysið
var, og það svo skömmu eftir að at-
burðurinn átti sér stað. Kvikmynd-
ir um Titanic munu ekki hafa verið
gerðar fyn- en það skip hafði legið
áratugum saman á hafsbotni. Það
var þó heimssögulegur viðburður
sem Estóníuslysið mun tæpast
verða talið. En Queffélec nálgast
efnið með þeim hætti að engum á
að vera misboðið. Slysinu ollu ekki
mistök eins manns heldur almenn
vanræksla og síðan röð atvika.
Northrop Frye segir í Anatomy
of Critisism að sé bók ekki
skemmtileg, þá sé hún mis-
heppnuð, hvert svo sem efni
hennar sé. Þau orð koma í
hugann við lestur sögu þess-
arar. Þarna er sagt frá at-
burðarás sem endaði hörmu-
lega. Saga skipsins Estóníu
varð sannkölluð sorgarsaga
um það er lauk. Og það er
einnig þessi skáldsaga Yann
Queffélec þótt hann fari
fæstum orðum um slysið
sjálft. Allt um það er sagan
hugtæk og þar með
skemmtileg í orðsins upp-
runalegustu merkingu.
Texti Guðránar Finn-
bogadóttur er prýðilega
vandaður. Að koma til skila
hinu grátbroslega í textan-
um og að íslenska þetta alþýðlega
franska raunsæi, sem jafnframt er
dýpkað og skerpt með skáldlegu
innsæi - það er ekki á allra færi.
En það hefur Guðránu tekist með
ágætum. Til hamingju með dag-
inn, Sara sameinar kosti góðra
bókmennta, hugtækrar harmsögu
og æsandi spennusögu.
Erlendur Jónsson
Morgunblaðið/Þorkell
LEIKRITIÐ Mýs og menn samlesið í Loftkastalanum.
1
Mýs og menn
Loftkastalanum
HJÁ Flugfélaginu Lofti standa yfir
æfingar á leikriti Johns Steinbecks,
Mýs og menn, Of Mice and Men, í
þýðingu Ólafs Jóhanns Sigurðssonar
frá árinu 1943.
Sagan kom fyrst út í Bandaríkjun-
um árið 1937 og var leikgerð hennar
frumsýnd í New York sama ár. Leik-
ritið kom út hjá Bókaútgáfu menn-
ingarsjóðs árið 1964.
Sagan gerist í kreppunni miklu
árið 1936-37 í landbúnaðardal í Suð-
ur-Kaliforníu. Steinbeck ólst upp á
þessum slóðum og fylgir málfari
söguhetjanna og aðstæðum þehTa út
í æsar.
Með helstu hlutverk fara Hilmar
Snær Guðnason, Jóhann Sigurðar-
son, Inga María Valdimarsdóttir,
Guðmundur Ólafsson, Þröstur Guð-
bjai’tsson og Helgi Björnsson. Leik-
stjóri er Guðjón Pedersen. Tónlist-
ina samdi Egill Ólafsson sérstaklega
fyrir þessa uppsetningu.
Leikritið verður frumsýnt 1. des-
ember.
----------------------
Lúðrasveit
Hafnarfjarðar í
V íðistaðakirkju
LÚÐRASVEIT Hafnarfjarðar held-
ur tónleika í Víðistaðakirkju í Hafn-
arfirði í kvöld, fimmtudag, kl. 20.30.
Á tónleikunum verður eingöngu
leikin íslensk tónlist, meðal annars
eftir Friðrik Bjarnason og Oddgeir
Kristjánsson. Stjórnandi lúðrasveit-
arinnar er Stefán Ómar Jakobsson.
Aðgangur að tónleikunum er
ókéypis.
r
ANDLEYSI
KVIKMYJVDIR
Sagabío
BROS EINS OG ÞITT
„A SMILE LIKE YOURS“ ★
Leikstjóri og handritshöfundur:
Keith Samples. Aðalhlutverk: Greg
Kinnear, Lauren Holly, Joan Cusack
og Christopher McDonald. Rysher
Entertainment 1998.
annað en að gapa af undrun yfir öllu
saman.
Dáðleysi og dofi einkenna þessa
mynd og þvílíkt andleysi, að maður
hefur ekki séð annað eins í langan
tíma.
Arnaldur Indriðason
I ROMANTISKU gamanmynd-
inni Bros eins og þitt er sagt frá
ungum hjónum sem eiga í erfiðleik-
um með að eignast barn. Konan
starfar við að gera ilmvötn og býr
til mjög kynæsandi ilm og þau gera
endalausar tilraunir hér og hvar, á
vinnustaðnum, á fótboltavellinum,
en ekkert gengur. Þau leita sér sér-
fræðiaðstoðar og í ljós kemur að
vandinn liggur hjá manninum.
Hefst þá mikið puð og eftir frekara
jaml, japl og fuður, þar sem hjóna-
kornin skilja um tíma, virðist hilla
undir árangur.
Ekkert í þessari mynd er fyndið
og enn síður hjartnæmt. Þó eru í
henni einstaka brandarar, enginn
þeirra reyndar mjög góður, en leik-
stjórnin er slík að þeir komast ekki
almennilega til skila. Vondar tíma-
setningar og klippingar spilla fyrir
því litla gn'ni sem er að hafa auk
þess sem leikararnir, Greg Kinnear,
sem Iék ágætlega homma í Það ger-
ist ekki betra, og Lauren Holly, eru
eins og úti á þekju mestallan tí-
mann; sérstaklega á hún í erfiðleik-
um með sig, hlæjandi og grátandi á
víxl. Kinnear gerir eiginlega ekkert
Súreíhisvönir
Karin Herzog
• vinna gegn
öldrunareinkennum
• enduruppbyggja húðina
• vinna á appelsínuhúð
og slití.
• vinna á ungUngabólum
• viðhalda ferskleika
húðarinnar
Ferskir vindar í
umhirðu húðar
Ráðgjöf og kynning
í Grafarvogsapóteki,
Hverafold,
í dag kl. 14-18
Kynningarafsláttur
Tilboð gilda til 2. des.
GRÆNATUN 1 - KOPAVOGI
~N
f/ið erum 11 ára
Komum okkur í form
fyrir jólin
Bjóðum 15% afslátt af
rafnuddi, Strata 3-2-1.
Strata 3-2-1 er sársaukalaus 20
mínútna nuddmeðferð. Pað er
grennandi og mótandi, gott gegn
cellulite og er slökunar- og
vöðvabólgunudd. Árangur eftir einn
tíma. Erum iíka með G-5- nudd og UCV-
leirvafninga. Persónuleg þjónusta.
15% afsláttur af öllum vorum.
Verið velkomin
)Heilsu-Gallerí
sími 554 5800
HRUND
Ve r s 1 u n
s n y r t i
&
s t o f a
Hárgreiðslustofan
el//a ocf
í tiíefni ajmzOsins Sjóðum við
viðsíqptavinum okfar
15% staðgreiðsíuafsíá tt
af fjónustu og vörum og 10%
afslátt ef borgað er með
greiðsbukprti.
Sírni 554 4025
20% afmœSisafsCáttur
afiím- og/ijafavörum ojj fótavaji..
'Taska m/vörum að verðmœti 1.800 Ar.
fijCgir mcð Catbiodermie- íu,\vs meðferð.
9{ýjar töskur í Tomrny kpmnar.
20%> afsfáttur af
ftromaticjurta- og iímotíumeðferð og
Lyftosome- andfítsmeðfcrð.
GUINOT
•• -•••• • -
Sími 554 3799
Opið mán-fös 8.00 - 23.00
Laugardaga 10.00-21.00
Sunnudaga 12.00 - 18.00
AFMÆLISTILBOÐ
15% afsláttur af kortum
10% afsláttur af kremum
25% afsláttur af nærfötum
Ljósabekkir - Gufa
Alltaf nýjar perur
Rólegt umhverfi
Verið velkomin!
ALLIR VELKOMNM
X,,