Morgunblaðið - 26.11.1998, Síða 48

Morgunblaðið - 26.11.1998, Síða 48
FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Rannsóknir - í þágu fortíðar eða framtíðar? Sveinn Hallgrímur Hannesson Jónasson SAMANBURÐUR milli þjóða færist í vöxt á flestum sviðum. Til- gangurinn er sá að meta samkeppnishæfni þeirra. Eitt af því sem ekki hefur komið nógu vel út fyrir Island í al- þjóðlegum samanburði eru framlög til rann- sókna- og þróunarstarfs (r&þ). Þess verður þó að geta að umsvif á þessu sviði hafa aukist verulega á síðustu ár- um. Framlag til rann- sókna hér á landi hefur aukist á 5 árum frá 4,4 milljörðum kr. árið 1990 í 7 milljarða árið 1995, eða um 60%. Fullyrt er að árið 1997 hafí 9,5 millj- örðum kr. verið varið til þessara mála. Ef sú tala er rétt er framlagið orðið um 1,7% af landsframleiðslu og má þá ætla að íslendingar hafí fíkrað sig upp um nokkur sæti í saman- burði við önnur OECD ríki. Við er- um þá á svipuðu róli og Belgar og _JDanir ef þetta reynist rétt. Mikilvæg samvinna Fyrirtæki lögðu til um 35% af þvi fé sem rann til rannsókna í landinu árið 1995 og önnuðust tæplega þriðj- ung þeirra. Hið opinbera lagði hins vegar til um 65% og framkvæmdi lið- lega tvo þriðju hluta rannsóknanna. Samanburður við önnur ríki sýnir að þáttur fyrirtækja erlendis er mun meiri en hér á landi. Þar munar mest um framlög mjög stórra fyrirtækja en sambærileg fyrirtæki höfum við —rkki hér á landi. Fleiri og fleirí ís- lensk fyrirtæki hafa þó komið sér upp aðstöðu og færni til að stunda rannsóknir og má ætla að hlutur þeirra sé orðinn nálægt 40% af rann- sóknum ársins 1997. Hlutur fyrir- tækjanna í rannsóknum þarf enn að aukast og mikið og náið samstarf þarf að vera milli þehra og opin- beira stofnana á þessu sviði. Viðhorf ríkisvaldsins Hið opinbera rekur nokkrar rann- sóknastofnanir, m.a. til að þjóna at- vinnulífinu. Sá háttur er hafður á að einstök atvinnuvegaráðuneyti hafa hvert sína stofnun eða stofnanir til að vinna að r&þ fyrir þær atvinnugrein- ar sem heyra undir viðkomandi ráðu- neyti. Framlög til þessara stofnana endurspegla væntanlega að nokkru leyti viðhorf ríkisvaldsins til mikil- vægis viðkomandi greina og þar með hvort ástæða sé til að efla og styrkja greinarnar til þess að taka við vinnu- fúsum höndum og standa undir góð- um lífskjörum í framtíðinni. Það er orðið löngu tímabært, segja Hall- grímur Jónasson og Sveinn Hannesson, að s atvinnustefna Islend- inga hætti að taka mið af þeim úreltu og hættulegu viðhorfum að sumar atvinnugrein- ar séu öðrum æðri. Til þess að skoða þetta nánar voru teknar saman upplýsingar úr Verk- efnavísum 1998, sem er rit fjármála- ráðuneytisins og fylgir frumvarpi til fjárlaga 1998. Framlögum ríkissjóðs til r&þ og stofnana, sem þjóna ein- stökum atvinnugreinum, var skipt upp eftir atvinnugi’einum. Notaðar voru áætlanir stofnananna fyrfr árið 1997 eins og þær eru birtar í Verk- efnavísum 1998. Fyrir einstakar stofnanir var einungis talinn með sá hluti ríkisframlagsins sem í Verk- efnavísum er gert ráð fyrir að renni til r&þ. Á myndinn eru niðurstöður þessarar samantektar settar fram sem framlag ríkisins á móti hverjum 1.000 kr. sem viðkomandi atvinnu- grein leggur til landsframleiðslunnar (sjá mynd). Ótrúlegur munur Niðurstöðurnar eru sláandi eins og sjá má á súluritinu. Fyrir hverjar 1.000 kr. landbúnaðarins í lands- VETRARVINDAR 2 fyrir 1 á Vetrarvinda! KVIKMYNDAHATIÐ I HASKOLABIOI OG REGNBOGANUM 26. nóv.-16. des. Gegn framvísun þessarar auglýsingar býður Morgunblaðiö lesendum sínum tvo mióa á verði eins á kvikmynda- hátíóina Vetrarvinda sem haldin er í Regnboganum og Háskólabíói. Góða skemmtun! fltorgtsstMafófr DCG VonnMM HASKOLABIO framleiðslunni leggur ríkið honum til 27 kr. til r&þ. Utgerðin fær 22 kr. Fiskiðnaðurinn aðeins fjórar kr. en annar framleiðsluiðnaður, ásamt byggingariðnaði rekur lestina með rétt innan við tvær kr. Iðnaðurinn fær samkvæmt þessu í sinn hlut um 7% af því sem ríkisvaldinu þykir hæfilegt að renni til landbúnaðar og um 9% af því sem rennur til rann- sókna í þágu útgerðar. Urelt viðhorf byggð á ýkjusögum Þessi munur kann að eiga sér sögulegar rætur og er þá vísað til þess sem enn ber nokkuð á að því sé haldið fram að til séu svokallaðar „undirstöðuatvinnugreinar“. Nýjasta og skýrasta dæmið um þessi úreltu viðhorf er að fínna í nýlegum auglýs- ingum LÍÚ þar sem m.a. er reynt að ýta undir þann gamla misskilning að útgerðin leggi „landsmönnum til sjö af hverjum tíu krónum“. Hið rétta er að útgerðin vegur tæp 9% í lands- framleiðslunni en fískvinnslan rúm 5%. Það er orðið löngu tímabært að atvinnustefna Islendinga hætti að taka mið af þeim úreltu og hættu- legu viðhorfum að sumar atvinnu- greinar séu öðrum æðri. Sérstaklega er þó mikilvægt að menn láti af hreinum ýkjusögum um eigið fram- lag til sameiginlegrar velferðar þjóð- arinnar. Það er mikilvægt að þjóð, sem hef- ur á skömmum tíma þróast frá því að vera einhæft samfélag landbúnaðar og sjávarútvegs, átti sig á því að efnahagslíf nútímans þarf að hvíla á mörgum stoðum. Ef íslenskt samfé- lag á að þróast eins og önnur vest- ræn samfélög og geta boðið þegnum sínum þá fjölbreytni, sem upplýs- ingasamfélag nútímans býður, er tími til kominn að hætta að mismuna atvinnugi’einum með jafn fráleitum hætti og hér að framan er lýst. Framlög til þjónustu, sem rann- sóknastofnanir veita eiga að endur- spegla sýn okkar á hátækni- og há- launaþjóðfélag framtíðarinnar en ekki frumframleiðslusamfélagið sem foreldrar og forfeður okkar byggðu fyi-ir áratugum. Hallgrímur Jónasson er forstjóri Iðntæknistofnumir íslands, Sveinn Hannesson er framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðaiins. Styðjum foreldra ungra vímu- efnaneytenda SJALDAN eða aldrei hafa eins mörg ung- menni ánetjast fíkniefn- um og á allra síðustu árum. Eins og ástandið er í dag verða tugir ungmenna fíkniefnun- um að bráð. Þrátt fyrir aukið forvarnastarf fjölgar þeim stöðugt og aldurinn færist neðar. Forstöðumaður Barna- vemdarstofu, Bragi Guðbrandsson, segir að neyðarástand hafi skap- ast í meðferðarmálum ungra vímuefnaneyt- enda vegna þessa. Óll þessi ungmenni eiga að- standendur sem hafa fundið fyrir af- leiðingum neyslunnar. Erfiðleikarnir sem skapast við vímuefnaneyslu unglinga lenda ekki síst á foreldrum Markmið Foreldra- hússins, segir Kristján Guðmundsson, verður að styðja og efla foreldra og hjálpa þeim að missa ekki trúna á sjálfa sig. og forsjáraðilum þeirra. Nýleg rann- sókn á upplifun foreldra ungra vímu- efnaneytenda leiddi í ljós að foreldr- ar þurfa mikinn stuðning og skilning til að vera í stakk búnir að taka á þeim vandamálum sem upp koma samfara neyslunni. Foreldrar fyllast mikilli öi’væntingu og sektarkennd þegar þau uppgvöta að barnið þefrra hefur hafíð vímuefnaneyslu. Við- brögð nánasta umhverfis og þjón- ustukerfisins eru einnig mjög mis- jöfn. Foreldrar eiga af þeim sökum oft erfitt með að leita sér aðstoðar og vita oft ekki hvert er best að snúa sér. Því vaknar upp sú spurning hvort við höf- um verið á réttri leið og hvort ekki sé nauðsyn- legt að leita nýrra leiða og styðja við nýjar hug- myndir sem hafa reynst vel í nágrannalöndum okkar, með því að opna Foreldrahús. Rannsókn sú sem vitnað var í leiddi í ljós að sá stuðn- ingur sem skilaði mest- um árangri til foreldr- anna var aðstoð ann- arra foreldra með svip- aða reynslu. Nú hefur foreldrahópur Vímu- lausrar æsku farið af stað með það verkefni að opna hér á landi Foreldrahús. Markmið For- eldrahússins verður að styðja og efla foreldra og hjálpa þeim að missa ekki trúna á sjálfa sig. Þar verður ávallt hægt að fá stuðning annarra foreldra sem hafa verið eða eru í svipaðri aðstöðu og einnig verður boðið upp á fjölskylduráðgjöf. Ástandið í dag er svo alvarlegt að það þolfr enga bið að taka á þessum málum. Þörfín fyrir að veita foreldr- um stuðning er sífellt að aukast og sú aðstaða sem foreldrahópurinn hefur nú í dag til þess að svara þeirri þörf er ófullnægjandi. Því ber okkur Reykvíkingum að standa við bakið á foreldrahópi Vímulausrar æsku og sjá til þess að hann fái þá aðstöðu sem þarf til þess að styðja þá fjöl- mörgu foreldra sem þarfnast aðstoð- ar og stuðnings. Sú aðstoð mun svo eflaust skila sér margfalt til baka með því að foreldrar verða betur í stakk búnir til þess að takast á við vandann og leysa hann farsællega. Horfum ekki á fleiri börn ánetjast fíkninefnum. Með því að vinna sam- an og auka úrræðin er hægt að grípa í taumana og ná tökum á vandanum. Opnum Foreldrahús strax. Höfundur er varaborgarfulltrúi Sjdlfstæðisflokksins. Kristján Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.