Morgunblaðið - 26.11.1998, Síða 55

Morgunblaðið - 26.11.1998, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998 55 + Jón Aðalbjörn Gíslason fæddist á Ytri-Kleif í Breið- dal í Suður-Múla- sýslu 5. mars 1923. Hann lést á Landa- kotsspítala 16. nóv. síðastliðinn. Jón var ógiftur og barnlaus. Foreldrar hans voru Gísli Stefáns- son frá Jórvík í Breiðdal, f. 11.1. 1887, d. 6.2.1975 og kona hans, Jóhanna Þórdís Jónsdóttir frá Ytri-Kleif, f. 11.12. 1897, d. 26.5. 1968. Systk- ini Jóns voru: 1) Rósa, f. 19.3. 1919, maki Einar Björgvin Gíslason, f. 19.1. 1910, d. 3.9. 1971. Eignuðust þau Qögur börn. 2) Einay f. 9.4. 1925, d. 25.10. 1945. Ogiftur og barn- laus. 3) Björgvin Emil, f. 25.4. 1928, d. 30.8. 1982, maki Anna Kristinsdóttir, f. 7.4. 1927, d. 27.4. 1984. Eignuðust þau þrjú börn, auk þess áttu þau sitt Jón Gíslason, móðurbróðir okkar, sem alltaf gekk undir gælunafninu Nanni i okkar fjölskyldu, er horfinn á vit genginna ættmenna sinna. Hann virtist alltaf svo ungur þrátt fyrir árin 75 sem honum var úthlut- að hér á jörð. Stutt er síðan hann fór allra ferða sinna, léttur á fæti, glað- ur í bragði, stæltur og útitekinn. Heilsu hans hafði að vísu hrakað á síðustu áram og sjónin dapraðist, en síðastliðið ár veittist honum erfitt hvað líkamlega heilsu snerti. Honum hentaði það eðlilega illa þar sem það skerti frelsi hans, en það vai- honum ákaflega nauðsynlegt. Hann vildi geta flögrað að vild eins og fai-fuglar, suður á bóginn þegar kólnaði hér á landi og austur á land er vor og sum- arvindar fóru að blása á þeim lands- hluta, er hann var borinn og barn- fæddur á. Lengi átti hann fleiri en einn Willys jeppa og á þeim bílum ferðaðist hann mikið um Island. Ferðafélagi hans á þeim árum var Indriði Einarsson frændi hans, sem einnig er látinn. Þeir voru ekki margir staðirnir sem Nanni hafði ekki heimsótt á íslandi. Hann var áskrifandi að ritum Ferðafélags Is- lands og hafði viðað að sér miklum barnið hvort áður en þau giftust. 4) Sigrún Þorbjörg, f. 1.11. 1934, d. 31.12. 1995, maki Alfreð Björnsson, f. 24.10. 1929, d. 28.2. 1984. Eignuðust þau tvær dætur. 5) Hálfsystir Jóns, samfeðra, er Valborg Gísladóttir, f. 12.4. 1915, maki Eggert Eggertsson, látinn. Þau eiga eina kjördóttur. Jón stundaði nám við Alþýðuskólann á Eiðum í tvo vetur. Liðtækur íþróttamaður var hann á yngri árum og hafði hug á að komast í Iþróttakennaraskólann, en ekki rættist sá draumur. Hann vann í vegagerð, fiskvinnu o.fl. í Vestmannaeyjum, Grindavík og fleiri stöðum. Jón bjó í Reykja- vík sl. tvo áratugi. títför Jóns fer fram frá Bú- staðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. fróðleik um landið okkar. Síðan for- eldrar hans létust hefur hann verið hluti af fjölskyldumynd okkar systk- inanna. Hann giftist ekki né eignað- ist afkomendur, en var alla tíð í afar nánu sambandi við systur sína, móð- ur okkar. Frá því faðir okkar lést 1971 hafa þau nánast fylgst algjör- lega að, og verið hvort öðru sérstak- ur stuðningur þar sem systkini þeirra eru látin, að undanskilinni hálfsystur þein'a, Valborgu Gísla- dóttur. Síðastliðinn hálfan annan áratug hafa þau búið í íbúðum sínum á Vesturgötu 17a, í sama stigagangi á sömu hæð. Þegar yngri bamaböm móður okkar vora lítil, áttu þau dá- lítið erfitt með að skilja að hann væri bróðir ömmu. „Hann er auðvitað maðurinn hennar ömmu“ sögðu þau dálítið umburðarlynd í röddinni við foreldra sína. Þar sem dyrnar að íbúðum þeirra voru nánast hlið við hlið fannst þeim þau búa í sömu íbúð. Oft er búið að vera glatt á hjalla á Vesturgötunni þegar öll fjölskyldan safnaðist þar saman af ýmsu tilefni. Nanni var þar ómissandi þáttur. Þótt hann væri ákaflega dulur varðandi sínax- tilfinningar, var alltaf hægt að finna að þarna var hann með sínu fólki. Hann var glaður, sló á létta strengi í þeim stíl er honum einum var lagið. Mjög ánægjulegt var að fylgjast með þegar hann keypti íbúð- ina sína á Vesturgötunni 2 áram á eftir móður okkar. Það var fyrsta og eina húsnæðið sem hann eignaðist um ævina þá rúmlega sextugur að aldri. Þá hélt hann okkur, sem að- stoðuðum hann við málningu og fleira, veislu, sem geymist vel í minn- ingunni. Það var ákaflega glaður og ánægður maður sem flutti þar inn á sitt heimili og þarna leið honum fjarska vel. Meira að segja tjáði hann sig um það þrátt fyrir að ræða lítið um sína líðan eða hugsanir. Nanni vann ýmiss konar verkamannavinnu t.d. við vegagerð á Austurlandi, í frystihúsi í Vestmannaeyjum, en lengst mun hann hafa unnið fyrir Fiskanes í Grindavík. Þegar hann varð sextíu og sjö ára hætti hann að vinna og dvaldi eftir það öll sumur í Krossgerði með móður okkar. Hann aðstoðaði hana við að halda í horfinu þar eftir að fastri búsetu lauk. Þeir vora ófáir girðingarstaurarnir, sem hann var búinn að reisa við og bæta í lykkjum þar sem þær vantaði. Oft var kátt á hjalla við eldhúsborðið í Krossgerði á sumarkvöldum. Nanni ásamt fleirum dró þá upp guðaveigar sem glöddu. Hann hafði gaman af að fá sér í staupinu á góðri stund, gera umræðurnar líflegar og efna til skoð- anaskipta. Hann hló að öllu saman og ekki var minnst á það meira. A veturna fór hann til Kanaríeyja og hafði farið þangað tuttugu og níu sinnum. Hann dvaldi þar oft þrjár til sex vikur á veturna. Hann var búinn að skipuleggja þrítugustu ferðina í fyi’ravetur og ætlaði að dvelja þar á sjötíu og fimm ára afmælinu sem var 5. mars. En þá gripu örlögin í taumana og heilsan var ekki nógu góð til að fara í slíkt ferðalag. Nanni var algjör sóldýrkandi og um leið og sólarglæta kom, var hann farinn úr peysu og buxum og kominn í bol og stuttbuxur. Hann var dökkur á hör- und allt árið, og jafnvel eftir margra mánaða dvöl á Landakoti, var hann enn dökkur enda starfsfólkið þar fljótt að átta sig á þörf hans fyrir að vera úti í sólinni. Og sumarið hér á suðvesturhorninu var sólríkt í ár. A Landakoti naut hann einstakrar um- önnunar hins ágæta starfsfólks er þar vinnur, umhyggja þess, natni og virðing við Jón er sérstaklega þökk- uð hér. Við þökkum frænda okkar sam- fylgdina og óskum honum velfarnað- ar á ókunnum stigum. Fjóla Margrét, Kristborg, Einar og fjölskyldur. JON AÐALBJORN GÍSLASON + Þóra Guð- mundsdóttir fæddist á Eskifirði 5. júlí 1908. Hún andaðist á Dvalar- heimili aldraðra á Eskifirði 13. nóvem- ber síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Björg Jónasdóttir frá Svínaskála í Reyð- arfirði, f. 7.6. 1875, og Guðmundur Ár- bjarnarson frí- kirkjuprestur á Eskifirði, f. 17.2. 1866 á Heiði í Mýrdal. Systkini Þóru voru Margrét,, Lára, Ás- björn, Aðalheiður og Jónína. Þau eru öll látin. Þóra ólst upp í Ásbyrgi á Það féll í hlut Þóru að sjá um mót- töku gestanna á Ásbyrgi og bera fram veitingar. Hún hafði gott lag á að láta gestina finna að þeir væru velkomnir, grunnt var á brosinu hjá Þóra, hún var ræðin og glaðlynd þannig ací hlutverkið fór henni vel úr hendi. Ásbyrgi var lengi aðalvið- komustaður ferðamanna sem komu til Eskifjarðar og eignaðist Þóra því marga vini og kunningja víðsvegar að af landinu. Þóra var félagslynd og tók þátt í ýmsum skemmtunum Eskifirði hjá for- eldrum sínum. Guð- mundur, faðir hennar, tók um aldamótin við starfi fríkirkjuprests á Eskifirði og á Völl- um á Héraði og gegndi því til ævi- loka árið 1925 þeg- ar Þóra var 16 ára. Eftir að Björg var orðin ekkja hóf hún veitingarekstur í Ásbyrgi og unnu dætur hennar, Þóra og Lára, alla starfsævi sína við fyrirtæki hennar. títför Þóru fer fram frá Eski- íjarðarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. unga fólksins- en það sem minnis- stæðast er okkur sem vorum að vaxa úr grasi á fjórða áratugnum er þátttaka Þóra í ýmsum leikhópum sem störfuðu á Eskifirði á þessum árum þegar atvinnulífið var oft í hægagangi og hugvitssamir menn- ingai'vitar notuðu tækifærið til að fitja upp á ýmsu skemmtilegu á meðan beðið var eftir uppbygging- unni og velmeguninni. Meðal þess sem gert var í þessu augnamiði var söngstarfsemi ýmiss konar, karla- kórar og blandaðir kórar auk þess sem lúðrasveit hélt tónleika undir stjórn Auðbjörns Emilssonar, mágs Þóru, en hún kom fram í leiksýning- um og þótti sérlega lagtæk við söng gamanvísna, sem margar voru eftir Arna Helgason og fjölluðu um íbúa bæjarins. Gamlir Eskfirðingar eiga því góðar minningar um Þóru sem eina af leikkonum bæjarins. Góð vinátta var ætíð með mæðg- unum í Ásbyrgi og fjölskyldu okkar sem bjó í næsta húsi og átti bros Þóru og skemmtilegt tiltal þátt í því að styi’kja þau bönd því Þóra var ætíð barngóð og gaf sér tíma til að ræða við litla fólkið. Þetta var ennþá áberandi löngu seinna þegar börn okkar Ragnheiðar kynntust Þóru sem þau minnast með hlýju. Ekki er því að neita að líf Þóra var með ólíkum brag borið saman við aðrar heimasætur, sem alast upp hjá foreldram, en flytja að heiman og stofna eigin heimili, en Þóra virt- ist sátt við sitt hlutskipti og naut samskipta við allt gott fólk sem hún mætti á langri ævi. Létta skapið og kímnigáfa Þóra kom jafnt að notum í daglega lífinu sem á senunni í gamla skólahúsinu þar sem hún söng gamanvísurnar forðum. Slíks nágranna er ljúft að minnast. Eftir að aldurinn fór að há Þóra naut hún ætíð stuðnings Guðmund- ar, systui’sonai' síns, og annarra ætt- ingja og síðan hún fór á Dvalarheim- ili aldraðra naut hún einnig mikillar umhyggju starfsfólksins, sem hún sagði að bæri sig á höndum sér. Guð blessi minningu Þóru í Ás- byrgi. Páll Halldórsson. ÞORA SIGRIÐUR G UÐMUNDSDÓTTIR t Systir okkar, amma, langamma og tengda- móðir, EINARA INGIMUNDARDÓTTIR, Norðurbrún 1, lóst á Landspítalanum miðvikudaginn 25. nóv- ember. Sigurður Ingimundarson, Margrét Pálmadóttir og aðrir aðstandendur. t Okkar ástkæra, RANNVEIG VALDIMARSDÓTTIR, Hlíf, ísafirði, sem lést á Sjúkrahúsi Isafjarðar 19. nóvem- ber sl., verður jarðsungin frá Isafjarðarkirkju laugardaginn 28. nóvember nk. kl. 14.00. Gestur Halldórsson, Ingibjörg Ágústsdóttir, Ásthildur Gestsdóttir, Haraldur Isaksen, Ólafur Gestsson, Sandra D. Gunnarsdóttir, Marías Halldór Gestsson, Ágúst Ragnar Gestsson og barnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, RÓSA S. KRISTJÁNSDÓTTIR, Sunnuvegi 19, Reykjavfk, verður jarðsungin frá Laugarneskirkju föstu- daginn 27. nóvember kl. 14.00. Stefán Bjarnason, Guðný Snæland, Hafsteinn Snæland, Ragnar Stefánsson, Ingibjörg Hjartardóttir, Þórhildur Snæland, Kristjana Snæland, Steinunn Snæland, Kristína Ragnarsdóttir, Stefán Ragnarsson, Gunnar Ragnarsson, Bryndís Ragnarsdóttir, makar þeirra og börn. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, KARÓLÍNA STEFÁNSDÓTTIR, Bergþórugötu 6b, Reykjavík, verður jarðsungin frá Grensáskirkju á morgun, föstudaginn 27. nóvember kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Stefán Óli Árnason, Rannveig Gísladóttir, Guðmundur Árnason, Sigrún Magnúsdóttir, Guðbjörg Árnadóttir, Reynir Þorsteinsson, Steinunn Árnadóttir, Jóhann Ásgeirsson. + Fósturbróðir minn, MAGNÚS ÓLAFSSON frá Vestur-Botni, sem lést á Sjúkrahúsi Patreksfjarðar fimmtu- daginn 19. nóvember, verður jarðsunginn frá Sauðlauksdalskirkju laugardaginn 28. nóv- ember kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Kristinn Kristjánsson. + Bróðir minn, JÓN A. GÍSLASON frá Brekkuborg í Breiðdal, Vesturgötu 17A, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju í dag, fimmtudaginn 26. nóvember, kl. 13.30. Rósa Gisladóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.