Morgunblaðið - 26.11.1998, Qupperneq 57

Morgunblaðið - 26.11.1998, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998 5 7 ÞÓRÐUR GUÐJOHNSEN + Þórður Guð- johnsen fæddist í Reykjavík 23. október 1936. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 18. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Jakob Guð- johnsen, fyrrum rafmagnsstjóri í Reykjavík, f. 23.1. 1899 á Húsavík, d. 11.10. 1968, og Ellý Hedwig Nowottn- ick, f. 3.3. 1903 í Halle í Þýskalandi, d. 12.11. 1962. Systkini Þórðar eru: Kristín, f. 10.5. 1928, Stef- án, f. 27.5. 1931, og Dóra, f. 29.5. 1938. Sonur Þórðar og Herborgar Friðjónsdóttur Stefánssonar rit- höfundar og konu hans Maríu Þorsteinsdóttur er Friðjón Stef- Við Doddi bróðir vorum alla tíð sannir Vesturbæingar og hófum lífsgönguna í hjarta þess bæjar- hluta, á Vesturgötu 19. Þegar við urðum þokkalega fótafær leiddi gabbi okkur út í Eyju eins og Órfirisey var þá kölluð. Þetta varð föst venja á sunnudagsmorgnum þegar vel viðraði og lengi-a náði heimurinn þá ekki. Það var ákaflega kært með okk- ur systkinum fyrstu árin. Eg fékk fljótt vitneskju um að Doddi væri fríðasti drengurinn í Vesturbænum og reyndar þótt víðar væri leitað. Hann bar suðrænt yfirbragð mömmu, með dökkbrúnt, fallegt hár og brún augu. Hann varð strax vinsæll og eftirlæti allra kvenna í götunni og furðaði engan, því hann líktist helst litlum kóngssyni í brúnu flauelsstuttbuxunum sínum með samlita derhúfu. Allir vita að alheimurinn þenst út og það gerði hann líka í þá daga. Þegar við elt- umst byrjaði hann á að teygja sig alla leið upp í Gamla bíó í Ingólfs- stræti, en þangað fengum við stundum að fara í þrjúbíó á sunnu- dögum. Það gekk ekki þrautalaust, því um leið og heimurinn stækkaði stækkuðum við í kjölfarið og Dodda jókst þroski og víðsýni. I stuttu máli; það þurfti að múta honum til að taka mig með í bíó, því hann hafði uppgötvað hvílík skömm það var ungum drengjum að eiga litla systur, hvað þá að hafa eina slíka í eftirdragi. Hann lofaði foreldrum okkar upp á æru og trú að taka mig með og gæta mín og gerði það - á sinn hátt. Þegar við höfðum leiðst fallega niður tröppurnar og vorum komin út á götu tilkynnti hann mér að hann myndi ganga á gangstétt- inni hinum megin götunnar og skyldi ég halda mig mín megin. A áfangastað skyldi hann svo sjá til þess að ég fengi sæti við hlið hans. Sá böggull fylgdi þó skammrifi, að ekki mátti ég yrða á hann, svo tryggt væri að hann yrði ekki á neinn hátt bendlaður við tilviljunar- kennda návist mína. Hann gaf sér góðan tíma til að útskýra þetta fyr- ir mér og þótt mér þætti það sárt vissi ég að svona varð þetta að vera. Doddi fór fremstur í flokki ungra drengja á vit ævintýranna, prins í ævintýraleit. Það var álögum líkast hvernig hann sneri heim úr þeim könnunarferðum. Það þótti ekki tíðindum sæta þótt hann dytti um skakkar og skældar gangstéttar- hellur og hruflaði sig, það kom líka fyrir okkur hin. Hann slapp með skrámur í strjálli bílaumferðinni á Vesturgötunni og svo datt hann of- an af flestum girðingum og skúr- þökum í nágrenninu og fékk yfír- leitt slæma sýkingu í þau sár sem af hlutust. A þessum árum vai- hann einu sinni fluttur í skyndi á spítala með sprunginn botnlanga. Hámarki náðu ósköpin þegar hann missti sjón á öðru auga í einum stríðsleiknum. Enn í dag verður mér orða vant þegar ég er spurð án kerfisfræðingur, f. 2. desember 1967, kvæntur Gíslínu Ólafsdóttur. Þórður varð stúdent frá Versl- unarskóla íslands 1958. Hann stund- aði um tíma nám í lögfræði við Há- skóla íslands og tók þátt í ýmsum fé- lagsstörfum stúd- enta á námsárun- um. Þórður varð ungur frímerkja- safnari og einn af stofnendum Félags íslenskra frímerkjasafnara. Hann gerðist síðar verslunarmaður og starf- aði lengst af í búsáhaldaversl- uninni Hamborg. Útför Þórðar fer fram frá Dómkirkjunni í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. hvort hann Doddi hafi ekki verið verndaður af móður sinni. Tíminn leið og áfram gengum við systkinin hvort á sinni gangstétt- inni. Við hittumst þó heima þar sem við stríddum, í þess orðs fyllstu merkingu, og gerðum friðsömum foreldi-um okkar lífið nær óbæri- legt með hugvitssömum stríðsað- gerðum. Því áralanga stríði lauk þó skyndilega þegar ég kom Dodda að óvörum þar sem hann sat einn á tali við frumburð minn, ómálga, í vöggu sinni og fór vel á með þeim. Eins og áður er sagt hafa hlut- irnir tilhneigingu til að þenjast út og er gatnakerfið þar engin undan- tekning. Stundum hvarf Doddi mér sjónum, var ekki lengur á hinni gangstéttinni, hann hafði þá tekið á sig smákrók í einhverri hliðargöt- unni. Hann birtist þó alltaf aftur, glaður og reifur. Hann kom líka stundum og gekk með mér smá- spöl, mín megin, og ekki varð hann lítið stoltur þegar honum fæddist sonur sama ár og ég eignaðist þriðju dótturina. Vinátta þeirra frændsystkina varð okkur þáðum gleðiefni. Með árunum varð gatnakerfið æ flóknara og viðhaldið erfiðara. Doddi þurfti því oft að taka á sig krók, þegar verið var að endurnýja hellulögnina. Öngstrætin voru mörg og þröng og flest voru þau ekki einu sinni hellulögð. Þau urðu viðsjárverð og jafnvel launhál í vætutíð. Það kom líka íyrir að giyfjur voru grafnar í gangstéttir og þótt þar væru oftast grindur settar upp til viðvörunar var það bara ekki nóg fyrir hann bróður minn, því allt lagðist á eitt, hann var hrakfallabálkur, ekki fótviss og svo hafði hann bara hálfa sjón. Því fór sem fór. Göngu Dodda bróður er nú lokið. Hann er horfinn úr fóruneyti mínu, álagafjötrar fallnir af kóngssyni. Vinátta hans, prúðmennska og drengskapur voru mér ávallt mikils virði. Því gleymi ég ekki. Dóra. Ég man ekki hvenær ég sá Þórð Guðjohnsen fyrst. Einhvernveginn finnst mér einsog hann hafi alltaf verið partur af Reykjavík. Þegar ég var mjög í æsku tókum við upp á því að heilsast, en gerðum svo með okkur þegjandi samkomulag skömmu síðar um að hætta því. Ég varð þess reyndar aldrei var að þessi stráfíni herramaður heilsaði neinum: Hann arkaði einbeittur eft- ir Austurstræti, Bankastræti og Laugavegi í aðkallandi viðskiptaer- indum, og af öllu fasi hans mátti ráða að þarna færi maður sem teldi samskipti við fólk fullkomna tíma- sóun. En þetta átti nú eftir að breytast. Heldur betur. Þórður sagði mér að á sextugsafmæli sínu hefði hann tekið eindregna ákvörðun um að binda enda á tuttugu ára aðskilnað við Bakkus. Hann hélt áfram að vera jafn vel til hafður þótt við- skiptaerindin væru eilítið af öðrum toga og það losnaði um málbeinið. Og drottinn minn dýri, hvílíkur sögumaður! Halldór Laxness sagði einhverntímann að íslenskur húmor væri þannig að hann byrjaði hvergi og endaði hvergi. Þórður Guðjohn- sen var hinsvegar sagnamaður af náð: sögurnar hans voru hvorki of langar né stuttar og botninn var aldrei suður í Borgarfirði. Ég held að hann hafi verið hnyttnasti maður sem ég hef kynnst á lífsleiðinni. Sumar sögurnar voru vitanlega komnar til ára sinna, en hann sagði þær alltaf einsog hann væri að segja þær í fyrsta sinn. Aðrar sög- ur voru splunkunýjar og þær sagði hann á hraðbergi með hæfilegum kúnstpásum. Maður vissi að skrítl- unni væri að ljúka þegar hann dró augað í pung. Og skrítlan var und- antekningalaust fyndin, jafnvel þótt sagan fjallaði um hann sjálfan og söguefnið væri kannski langt frá því að flokkast undir hefðbundna gamansemi. Síðustu misseri var Þórður nokk- urskonar heiðursgestur á Grandrokk við Klapparstíg. Þar flugu sögurnar og tilsvörin, og þar fengu menn að vita að hann væri besti skrollari á íslandi. Ég heyrði hann aldrei monta sig af neinu öðru. Jú, einu. Hann fullyrti að hann væri síðasti maðurinn á Is- landi sem ennþá helgaði sig stétta- baráttu. Það var þegar hann kom, dálítið krambúleraður, eftir að hafa dottið á Laugavegi. Hann hló að öllu saman. Óllu. Og samt vissum við að honum leið ekki alltaf vel. Þórður Guðjohnsen gekk í Skák- félag Grandrokk og ég varð þess heiðurs aðnjótandi að tefla við hann skák. Við, félagar hans í skákfélag- inu, söknum vinar í stað. Hann var drengur góður og Reykjavík er til muna svipminni við fráfall hans. Hrafn Jökulsson. „Nú er brennivmið orðið svo dýrt, að ég hef ekki efni á að kaupa mér skó.“ Þessi fleygu orð mælti vinur minn Þórður Gujohnsen eftir einhveija áfengishækkunina af stæiri gerðinni. Mig minnir að Halldór Laxness segi einhvers staðar að þeir sem stunda orðsins list megi þakka fyrir að skilja eftir sig eina sígilda setningu. Þórður Guðjohnsen lét margar slíkar frá sér fara og væri fyrir það eitt eftir- minnilegur. En það var fleira. Mað- urinn sjálfur var svo sérstakur að eftir var tekið. Hann var hrein- ræktaður original. Útlit, gáfur, leiftrandi húmor og lífshlaup hans allt var frábrugðið því venjulega og hversdagslega. Ungur stundaði Þórður lögfræði- nám og hafði alla hæfileika og burði til að ljúka_ því með ágætum en gerði ekki. I þess stað gekk hann vel og lengi um gleðinnar dyr. Hann vai- vinsæll og aufúsugestur hvai-vetna á gleðifundum, og má geta nærri að það hafi truflað at- orkuna til átaka í námi og síðar starfi. Svo sneri hann snögglega við blaði og stundaði reglusemi á þriðja áratug og lét lítið fyrir sér fara. Hann vann verslunarstörf og var fastur punktur í miðborg Reykja- víkur í erindagjörðum í banka og fyrirtæki. Alltaf var ánægja að hitta hann á förnum vegi og njóta hnittni hans og gamansemi. Aftur sneri hann við blaðinu fyrir hálfu öðru ári eða svo og tók upp gamla lifnaðarhætti og gekk þá götu til enda þar til yfir lauk. Þórður Guðjohnsen var sem fyrr segir sérstæður maður. Hann var fluggi-eindur og fróður vel um marga hluti, ekki síst það sem á hverjum tíma var að gerast í þjóð- félaginu. Hann hafði brennandi áhuga á pólitík; fylgcli Sjálfstæðis- flokknum að málum, gekk ævinlega með merki hans í barmi og hélt uppi málstað flokksins hvar sem hann kom. Er óvíst að sá flokkur hafi átt snjallari áróðursmann, á þeim vettvangi þar sem Þórður barðist, með þekkingu og leiftrandi fyndni að vopni. Sjálfur kallaði hann sig fótgönguliða í hernum og vissi sem var að stríð vinnst ekki með offísérum einum. Þrátt fyrir velting í lífsins ólgu- sjó brást Þórði aldrei kurteisi og prúðmannleg framkoma, þótt hann ætti stundum til að ganga nærri pólitískum andstæðingum með stríðni og kerskni. Hann var orð- heldinn og áreiðanlegur og hjálp- samur þegar hann gat af mörkum lagt. Hjálpsemin kom meðal annars fram í því að til hans leituðu ýmsir sem í fá hús áttu að venda með ráð- gjöf um vandamál sín. Leysti hann úr þeim af eðlislægri greind og hyggjuviti á grunni fjölbreyttrar lífsreynslu. Fyrir það heyrði ég hann nefndan Sókrates götunnar. Vinátta okkar Þórðar stóð í ára- tugi og á ég ekkert nema ánægju- legar minningar um öll þau kynni, einnig síðasta kaflann þótt erfiður væri á ýmsa lund. Ég mun sakna heimsókna hans, símtalanna skemmtilegu og hugmyndaflugsins þegai- gamansemin náði sér á strik. Kvaddur er drengur góður sem háði lífsstríðið á sinn hátt og greiddi herkostnaðinn sjálfur. Farðu vel, vinur. Magnús Óskarsson. Eftir andlát þitt, Þórður Guðjohnsen, minnist ég þess að við áttum oft ánægjulegar stundir saman á Ránargötunni. Við áttum oft á tímum við sameiginleg vanda- mál að stríða. Alltaf varst þú mér hollur vinur í raun og mæltir ekki styggðarorð við mig þótt ýmislegt gengi á. Ég leyfi mér að láta þessa vísu fylgja með um leið og ég þakka þér drengskap þinn og votta að- standendum djúpa samúð. Þegar þögnin lýstur þil þykkra moldar veggja aðrir lesa ljóða spil á leiðum okkar beggja. Gunnar Ólafur Júnsson. + Kveðjuathöfn um ástkæran eiginmann minn, föður okkar, tengdaföður og afa, JÓNAS GÍSLASON vígslubiskup, verður í Hallgrímskirkju föstudaginn 27. nóv- ember kl. 15.00. Jarðsett verður í Skálholti laugardaginn 28. nóvember kl. 14.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á KFUM & K og Samband islenskra kristniboðsfélaga. Arnfríður Inga Arnmundsdóttir, Gísli Jónasson, Árný Albertsdóttir, Arnmundur Kr. Jónasson, Aðalheiður Sighvatsdóttir og barnabörn. + Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát og útför, SVEINSÍNU INGIBJARGAR HJARTARDÓTTUR, Skipholti 47, Reykjavik. Árni Jónsson, Jón Emil Árnason, Hjörtur B. Árnason, Unnur Halldórsdóttir, Páll Ingi Árnason, Margrét Sveinbjörnsdóttir, Helgi Árnason, Mábil G. Másdóttir, Hilmar Árnason, Guðni Árnason, Lilja Loftsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, ÁSDÍSAR HAFLIÐADÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahlynning- ar Krabbameinsfélagsins. Nína K. Gunnarsdóttir, Linda B. Gunnarsdóttir, Lilja Magnúsdóttir, Hafliði Gísli Bjarnason, Ægir Þór Bjarnason, Bjarni Þorgrímsson, Brynja B. Garðarsdóttir, Gunnar Áki Hjálmarsson, Elías Arnar Hjálmarsson, Bergrós Björk Bjarnadóttir, Haukur Hafliði Hjálmarsson, Ásdís Hafliðadóttir. + Þökkum öllum þeim sem sýnt hafa okkur ómetanlega vináttu og samúð við andlát og út- för móður okkar og ömmu, ÁSTU EYÞÓRSDÓTTUR, Hjallabraut 6, Hafnarfirði. Guðrún Jónsdóttir, Kristinn Þór Jónsson og barnabörn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.