Morgunblaðið - 26.11.1998, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ
^64 FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Gospel tónleikar
Ettu Cameron
í Bústaðakirkju
GOSPEL tónleikar með hinni vin-
sælu gospelsöngkonu Ettu Camer-
on verða haldnir fóstudagskvöldið
27. nóvember og laugardagskvöldið
28. nóvember kl. 20.30 í Bústaða-
kirkju.
Etta er okkur að góðu kunn en
hún hélt hér tónleika í febrúar 1994
ásamt söngfólki Bústaðakirkju.
Etta Cameron, sem býr um þess-
-""'’ar mundir í Kaupmannahöfn, hefur
á undanförnum árum haldið tón-
leika um Evrópu við góðar undir-
tektir. Það var fyrir tilstilli Guðna
Þ. Guðmundssonar og danska
sendiráðsins að við fáum Ettu til
okkar að þessu sinni.
Etta Cameron er fædd og uppal-
in í Ameríku. Hún byrjaði ung að
sækja kirkju og fór fljótlega að
taka þátt í kirkjusöngnum. Ahugi
hennar á kirkjusöng og þá sérstak-
lega Gospelsöng, var það mikill að
hún sótti allt að þrjár guðsþjónust-
ur á sunnudögum og einnig í miðri
viku til þess að fá tækifæri til þess
að syngja.
Etta leggur mikla áherslu á
söngtextann, lítur á hann sem eins-
konar predikun í tónlistarformi.
Undirleikarar á þessum tónleik-
um eru: Ole Kock Hansen á píanó,
Guðmundur Steingrímsson á
trommur og Gunnar Hrafnsson á
bassa. Stjórnandi tónleikanna er
Guðni Þ. Guðmundsson Geta má að
Ole Kock Hansen er einn fremsti
djasspíanisti okkar tíma og því
stórkostlegt að fá hann til liðs við
okkur.
Miðasala og nánari upplýsingar
Tast í Bústaðakirkju.
Kirkjustarfsnefnd
Bústaðakirkju.
Áskirkja. Opið hús fyrir alla ald-
urshópa kl. 14-17. Biblíulestur kl.
20.30 í safnaðarheimili Áskirkju.
Sóknarprestur kynnir og fræðir um
spámennina í Gamla testamentinu.
Bústaðakirkja. Foreldramorgnar
kl. 10-12.
Dómkirkjan. Opið hús í safnaðar-
heimilinu kl. 14-16.
Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl.
12. Orgelleikur, íhugun, altaris-
ganga. Léttur málsverður í safnað-
arheimili eftir stundina. Æskulýðs-
félagið Örk (yngri deild) kl. 20.
- Háteigskirkja. Starf fyrir 10-12 ára
börn kl. 17. I auga stormsins,
kyrrð, íhugun, bæn, lofsöngur og
fræðsla. Kl. 19.30 innri íhugun, kl.
20.15 fræðsla, kl. 21 Taizé-messa.
Langholtskirkja. Opið hús íyrir
foreldra yngi-i barna kl. 10-12.
Söngstund kl. 11.
Laugarneskirkja. Kl. 12 kyrrðar-
stund í hádegi. Gunnar Gunnarsson
leikur á orgel. Léttur málsverður
að stundinni lokinni.
Neskirkja. Félagsstarf aldraðra
laugardag 28. nóv. kl. 15. Minjasafn
Rafmagnsveitu Reykjavíkur skoð-
að. Kaffiveitingar í Blásteini, Árbæ.
Þátttaka tilkynnist í síma 511 1560
kl. 10-12 í dag og á morgun, föstu-
dag. Allir velkomnir.
Breiðholtskirkja. Mömmumorgunn
á föstudögum kl. 10-12.
Digraneskirkja. Mömmumorgnar
kl. 10-12. Leikfimi aldraðra ki.
11.20. LLL ráðgjöf um brjóstagjöf.
Bæna- og kyrrðarstund kl. 18.
Bænarefnum má koma til sóknar-
prests eða kirkjuvarðar, einnig má
setja bænarefni í bænakassa í and-
dyri kirkjunnar.
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir
11-12 ára kl. 16.
Grafarvogskirkja. Mömmumorgn-
ar kl. 10-12. Dagskráin í vetur verð-
ur fjölbreytt og boðið verður upp á
áhugaverða fyrirlestra og skemmti-
legar samverustundh’. Kyrrðar-
stundir í hádegi kl. 12. Fyrirbænir
og altarisganga, léttur hádegis-
verður. Æskulýðsfélagið 10. bekkur
kl. 20-22.
Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar. St-
arf íyrir 7-9 ára börn kl. 16.30.
Kópavogskirkja. Starf eldri borgara
í dag kl. 14-16 í safnaðarheimilinu
Borgum. Kyrrðar- og bænastund í
dag kl. 18. Fyrirbænaefnum má
koma til prests eða kirkjuvarðar.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús
fyrir 10-12 ára börn frá kl. 17-18.30
í safnaðarheimilinu, Linnetstíg 6.
Æskulýðsfundur kl. 20-22.
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra.
Fræðslustundir í Hjallakirkju í
nóvember. í kvöld kl. 20.30 flytur
dr. Sigui’jón Árni Eyjólfsson erindi
um sjálfsvirðingu og virðingu fyrir
öðrum.
Hafnarfjarðarkirkja.
Mömmumorgnar kl. 10-12 í Vonar-
höfn. ÁTN-starf fyrir 8-9 ára kl. 17-
18.30 í Vonarhöfn.
Vídalínskirkja. Bæna og kyrrðar-
stund kl. 22. Kaffi eftir athöfn.
Biblíulestur kl. 21.
Víðistaðakirkja. Foreldramorgunn
kl. 10-12. Opið hús fyrir 10-12 ára
börnkl. 17-18.30.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opin kl.
16-18. Starfsfólk verður á sama tíma
í Kirkjulundi. Kyrrðar- og fræðslu-
stund í kirkjunni kl. 17.30 í umsjá sr.
Sigfúsar Baldvins Ingvasonar.
Akraneskirkja. Fyrirbænastund
kl. 18.30.
Hjálpræðisherinn. Ki. 20.30 „Mín
saga“. Kafteinn Miriam Oskars-
dóttir heldur áfram með sögu sína.
Allir hjartanlega velkomnir.
Akraneskirkja. Fyrirbænastund
kl. 18.30.
D0MUS MEDICA
við Snorrabraut - Reykjavík
Sími 551 8519
STEINAR WAAGE
S KÓVERSLUN
KRINGLAN
Kringlunni 8-12 - Reykjavík
Sími 568 9212
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS - 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
í DAG
VELVAKANPI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Meira um við-
gerðarþj ónustu
VIÐ viljum taka undir orð
fólks hér á síðunni upp á
síðkastið, varðandi lélega
viðgerðarþjónustu hjá
Heimilistækjum. Fyrir
u.þ.b. tveimur árum fórum
við með myndbandstæki í
viðgerð til þeirra. Viðgerð-
armaður sagði það kosta
um 10.000 krónur að gera
við það og það myndi duga
í framtíðini. I staðinn fyrir
að henda því ákváðum við
að láta gera við það. Við-
gerðin kostaði tæplega
12.000 krónur. Þegar heim
var komið var tækið jafn-
bilað og fyrr. Aftur var
arkað með tækið í viðgerð.
Viðgerðarmaðurinn sagði
að nú væri komin upp ný
bilun og það myndi kosta
um 11.000 krónur að gera
við það! Eftir mikið þras
við dónaiegan viðgerðar-
manninn og svipaðan yfir-
mann fórum við í Neyt-
endasamtökin. Við vorum
ósátt við að hafa kastað
peningum í tækið vegna
ummæla viðgerðarmanns-
ins og að bilunin væri ólög-
uð og vildum annaðhvort
fá fyi-ri viðgerð endur-
greidda og henda tækinu
eða tækið lagað okkm- að
kostnaðarlausu. Neytenda-
samtökin sögðu að við ætt-
um að fá tækið viðgert en
greiða varahluti. Við vor-
um búin að fá þvílíkt ógeð
á málinu, að við höfðum
ekki eirð í okkur að fara á
verkstæðið einu sinni enn,
þannig að við hentum tæk-
inu og fengum okkur nýtt
eftir að hafa fullvissað okk-
ur um að Heimilistæki
hefðu ekkert með viðgerð-
arþjónustuna á því að
gera. Þess má geta að
þessi sama bilun hafði
komið upp talsvert áður og
þá þurftum við að fara með
tækið tvisvar áður en það
var lagað. Þá var einnig
um tvær mismunandi bil-
anir að ræða að sögn við-
gerðarmannsins skap-
bráða.
Guðrún og Jóhannes.
Tapað/fundið
Suzuki skellinaðra
týndist
SVÖRT Suzuki skelli-
naðra, 50 cc með biáum
afturgaffli, týndist fyrir
mánuði frá Háagerði í
Reykjavík og hefur ekki
til hennar spurst síðan
þrátt fyrii’ leit og fyrir-
spurnir. Hér er um að
ræða aleigu 15 ára drengs
sem saknar gripsins sár-
iega. Þeir sem geta gefið
einhverjar upplýsingar
eru vinsamlega beðnir að
hafa samband í síma
566 7919, 558 8332 eða
553 7272. Fundarlaun.
Dýrahald
Dimmalimm er týnd
DIMMALIMM, sem er
svört læða, hvarf frá heim-
ili sinu í Háskólahverfinu í
haust. Hún er með silfur-
litaða ól og rautt merki-
spjald. Þeir sem búa á
Óskjuhliðarsvæðinu eru
sérstaklega beðnir að svip-
ast um eftir henni og láta
vita í síma 551 5301.
SKAK
llin.vjón Margeir
Péturvvon
STAÐAN kom upp í annarri
skák úrslitaeinvígisins á
bandaríska meistaramótinu í
ár. Nick deFirmian (2.605)
var með hvítt, en Joel Benja-
min (2.595) hafði svart og átti
leik. Svartur er peði
undir og stendur
höllum fæti og má
þakka íyrir jafn-
tefli:
38. - Hxa2+ 39.
Kxa2 - Da6+ 40.
Kb2 - Da3+ 41.
Kc2 - Dxc3+ 42.
Kdl - Df3+ 43. Be2
- Rc3+ 44. Kd2
-Re4+ 45. Kdl og
niðurstaðan er jafn-
tefli með þráskák.
Síðustu tveimur
skákunum lauk
einnig með jafntefli
þannig að deFirmian varð
Bandaríkjameistari. Hann
hefur verið tíðm’ gestur á
skákmótum hér á landi um 15
ára skeið.
Skákklúbbakeppni Taflfé-
lags Rcykjavfkur fer fram
annað kvöld. Keppt er i fjög-
urra manna sveitum. Nú eru
síðustu forvöð að búa til
skákklúbb. Slíkar keppnir
hafa notið vinsælda að und-
anfomu.
HOGNI HREKKVISI
i' f/ann, i/ar a/dreí svono? i/andf^sirw obur-
• ISorrxö/ríCxx.''
e/v hann. hittí, bessau
BLESSAÐUR
líttu á björtu
hliðarnar. Þú ert
þó hættur
þessi hræðilegu
kort með óskum
um góðan bata.
■ú ert
að fá
ilegu
íikum
Ivil !1
ENN einn loðfeldurinn! Geturðu ekki farið að gefa mér
eitthvað annað í afmælisgjöf
Víkveiji skrifar...
ADEGI íslenzkrar tungu hlustaði
Víkverji á Þjóðarsálina og
hringdi þá þangað faðir, sem hafði
verið að kenna fjögurra ára gömlum
syni sínum að þekkja stafina. Synin-
um gekk bara vel unz komið var að
stafnum Æ. „Hvaða hljóð myndar
þessi stafur, pabbi?“ spurði sá stutti.
Faðirinn svaraði eitthvað á þá leið að
hann hlyti að muna það, en reyndi
síðan að leiða stráksa á réttan veg og
spurði: „Hvað segir þú sjálfur, ef þú
dettur og meiðir þig?“ Strákurinn
var ekki lengi að kveikja og svaraði
að bragði: „Shit eða fuck“.
xxx
ATHYGLIVERÐ umræða hefur
undanfarið átt sér stað vegna
handtöku Breta á Augusto Pinchet,
chileanska herforingjanum sem á
sínum tíma hrifsaði völdin í Chile og
kom á slíkri óöld í landi sínu að fjöldi
manna hvarf þar sporlaust. Þegar
þetta er skrifað er beðið úrskurðai’
hæstai’éttar Breta um hvort handt-
aka Pinoehets hafi verið lögleg eður
eigi, þar sem þjóðhöfðingjar njóti
friðhelgi samkvæmt brezkum lögum.
Þessi friðhelgi virðist svolítið
skrítin. Einn mesti harðstjóri þess-
arar aldar, Adolf Hitler, var vissu-
lega þjóðhöfðingi Þjóðverja rétt fyrir
miðja öldina. Hefði hann notið frið-
helgi út á það í lok stríðsins, ef Bret-
ai’ hefðu náð að handsama hann í
stríðslok? Víkverji telur litlar líkur á
því, en fjarðlægðin í tíma breytir
kannski áherzlum í þessum efnum
sem öðrum. Spánverjar krefjast nú
framsals Pinochets og vilja leiða
hann fyrir rétt vegna hvarfs
spánskra ríkisborgara í Chile.
Brezka ríkisstjómin, sem líklegast
hefur samþykkt að Pinochet gæti
komið til London á því í nokkrum
erfiðleikum, hvað hún eigi að gera.
xxx
GÍFURLEG bylting er að verða í
bankaafgreiðslu, sem felur í sér
að nú geta menn afgreitt sig sjálfir
inn á veraldarvefnum og greitt gíró-
seðla, innheimtuseðla og annað, sem
þeir þurfa að greiða. Nýlega fékk
Víkverji tölvupóst frá bankanum sín-
um, sem tilkynnti honum, að bank-
inn teldi tímabært að hann fengi að-
gang að afgreiðslu hans á vefnum.
Víkverji var í fyrstu hálfragur við að
greiða fyrsta gíróseðilinn, en herti
upp hugann og lét slag standa.
Og viti menn, þetta var auðveldara
en hann átti von á. Nú þarf Víkverji
ekki að ergja sig lengur á því að bíða
eftir afgreiðslu í bankanum sínum
um mánaðamót, þegar biðraðir við
gjaldkerastúkumar eru hvað lengst-
ar. Þetta er gífurleg framför, og mik-
ið hlýtur þetta að létta á afgreiðslu
bankanna.
Víkverji hafði á orði við þjónustu-
fulltrúann, sem veitti honum aðgang
að vefsíðu bankans, að nú myndi
hann sjaldnar eiga erindi í bankann.
Bankastarfsmaðurinn játti því og
sagði: „Við eram sí og æ að minnka
störf okkar hér í bankanum. Ætli við
endum ekki með því að missa vinn-
una?“ Víkverji er nú kannski ekki
þeirrar skoðunar, en með því að
minnka þessi hefðbundnu störf gjald-
keranna hlýtur bankinn á móti að
geta aukið þjónustuna við viðskipta-
vini sína á öðrum sviðum. Því ætti
þetta að geta orðið bæði viðskiptavin-
unum og starfsfólkinu til góðs.