Morgunblaðið - 26.11.1998, Side 68
68 FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Morgunblaðið/Golli
HVER verður herra Island? Vandi er um slíkt að spá.
Rosalega flott hj á þeim
í KVÖLD verður á Broadway
haldin keppnin um herra Island.
Elín Gestsdóttir hjá fyrirtækinu
Fegurðarsamkeppni Islands segir
þetta þriðja árið í röð sem fyrir-
tækið hennar sjái um keppnina,
en það sér líka um stúlkurnar.
Aður var keppnin haldin af og til
af misjöfnum aðilum í hvert
skipti.
- Hverniggengur keppnin?
„Hún gengur alltaf betur og
betur og áhuginn fyrir henni
eykst frá ári til árs. Það hafa
aldrei verið jafn margir strákar
til í að vera með. Það er haldin
undankeppni úti á landi og tveir
til þrír strákar frá hverjum
landshluta taka þátt. Alls eru
keppendurnir tuttugu og einn og
eru níu þeirra frá höfuðborgar-
svæðinu."
- Finnst þér almenningur taka
strákakeppninni öðruvísi en
s telp ukeppninni ?
„Ekki Iengur. Fyrst tók fólk
henni ekki alvarlega, en það er
ekki ininni alvara á bakvið
herra ísland en ungfrúna. Strák-
ar eru farnir að hafa svo gaman
af því að líta vel úr, vera í fínu
formi, snyrta sig og marga lang-
ar til að stunda fyrirsætustörf.
Sá sem vinnur keppnina fer í lok
maí til Manila á Filippseyjum að
taka þátt í fyrirsætukeppninni
„Male of the Year“. Það er mjög
stór keppni með um sextíu ung-
um mönnum alls staðar að úr
heiminum, og gefur góð tæki-
færi.“
Heildarmyndin ræður
- Eruð þið að leita að ein-
hverju sérstöku útliti?
„Nei, við viljum helst að hann
sé mjög íslenskur, annars ræður
alltaf heildarmyndin; útlit, fas,
persónuleiki og hversu vel hann
myndast. Svo er hann auðvitað
reyklaus, því þetta er reyklaus
keppni.“
- Hvernig fer kvöldið fram ?
„Strákarnir taka á móti gest-
um í anddyri Broadway með
fordrykk kl. Niðri á sviðinu bíð-
ur glæsilegt hlaðborð eftir mat-
argestunum og sýnd verða
bestu atriðin úr Abba-sýning-
unni. Síðan hefst keppnin og
strákarnir koma þrisvar fram
og ekkert hlé verður á milli
heldur munu dansarar og fleira
hæfileikaríkt fólk tengja inn-
komur strákanna saman. Fyrst
verða þeir klæddir tískufatnaði
frá Veiðimanninum, síðan box-
ernærbuxum og að lokum
smókingjakkafötum og taka létt
dansspor með dönsurunum.“
-Ha?
„Já, þú ert hissa. Þeir hlógu
Iíka fyrst að hugmyndinni, en
þetta er rosalega flott hjá þeim.
Það verður mikili léttleiki yfír
keppninni og áreiðanlega ægi-
lega gaman.“
Ungfrú heimur
kosin í kvöld
KEPPNIN um fegurstu konu
heims fer fram í kvöld á eyjunni
Mahe í Indlandshafí. Keppendur
hafa dvalið þar í þrjár vikur við
undirbúning keppninnar en ís-
lenskar stúlkur eru fjarri góðu
gamni fjórða árið í röð. Elín
Gestsdóttir, framkvæmdastjóri
Fegurðarsamkeppni Islands, seg-
ir að þegar farið var að innheimta
hátt þátttökugjald fyrir fjórum
árum hafí verið ákveðið að hætta
við að senda íslenska stúlku til
þátttöku, en frá þessari keppni
hafa tvær íslenskar stúlkur geng-
ið sem sigurvegarar, þær Hólm-
fríður Karlsdóttir og Linda Pét-
ursdótth-.
Ný ímynd
Aðstandendur keppninnar,
Eric og Julia Morley, segjast
hafa breytt ímynd keppninnar í
ár. Nú skipti andlegur gjömleiki
ekki minna máli en líkamlegur,
og því til áréttingar eru sundbol-
irnir og háu hælarnir úti en í stað
þeirra komin tískusýning á
nýjasta „götuklæðnaðinum“.
Keppninni í kvöld verður sjón-
vai’pað á níu evrópskum sjón-
varpsstöðum og er það í fyrsta
sinn í tíu ár sem það er gert.
Fjörug tískusýning og nýtt yfir-
bragð hefur komið keppninni í
náðina hjá sjónvai’psstöðvunum á
ný, en keppnin var gagnrýnd
talsvert í lok síðasta áratugar.
I gær voru stúlkurnar spurðar
spjörunum úr af dómstóli sem
samanstendur af sjö þekktum ein-
staklingum úr skemmtanabrans-
anum. Sú spurningakeppni er til
að meta andlegt atgervi stúlkn-
anna, enda á ungfrú Heimur í ár
að vera bæði sæt og klár. Sú sem
titilinn hlýtur í kvöld mun verja
tíma sínum næsta árið við góð-
gerðarstörf fyrir illa sett börn auk
þess að vekja athygli á umhveiáis-
málum. En gerðu Hófí og Linda
P. það ekki líka?
NORRÆNU keppendurnir. Frá vinstri Jessica Magdalena Al-
menas frá Svíþjóð, Maaret Sajija Nousianinen frá Finnlandi og
Henriette Dankerstein frá Noregi.
Frá A til Ö
BOTNLEÐJA verður ineð útgáfutónleika sína í Loftkastalan-
um fimnitudagskvöld í tilefni af útgáfu geisladisksins Magnyl
sem kominn er i verslanir.
FUNKMASTER 2000 verður með útgáfutónleika sína í Kaffí-
leikhúsinu fímmtudagskvöld.
■ ÁLAFOSS FÖT BEZT Sveitasveit-
in Hundslappadrífa leikur frumsamin
lög fimmtudagskvöld. Aðgangseyrir
er 500 kr. A fóstudags- og laugar-
dagskvöld leika síðan Rúnar Þór og
félagar.
■ ASGARÐUR Dansleikur föstu-
dagskvöld kl. 21-2. Hljómsveitin
Upplyfting leikur. Dansað sunnu-
dagskvöld frá kl. 20-23 með Caprí-
tríóinu sem sér um fjörið.
■ ASTRÓ Á fímmtudagskvöld verð-
ur útgáfuveisla í tilefni af útgáfu bók-
arinnar Prívat sem hljómsveitin
Skítamórall gefur út. Sýnd verða
brot úr sjónvarpsþættinum Prívat
sem sýndur verður í desember á
RÚV. Húsið opnað kl. 23.07 en kl.
22.07 fyrir boðsgesti.
■ BROADWAY Á laugardagskvöld
leikur hljómsveitin Sól Dögg eftir
jólahlaðborðið og Abba sýninguna.
■ CAFÉ AMSTERDAM Á fímmtu-
dagskvöld verður Bjami Tryggva
með dónaskap og spilamennsku og á
fóstudags- og laugardagskvöld leikur
hljómsveitin Kókos en hana skipa
þeir Tómas Malmber, söngur, Árni
Björnsson, bassi, Matthías Stefáns-
son, gítar og Ingvi Rafn Ingvason,
trommur.
■ CAFÉ ROMANCE Píanóleikarinn
og söngvarinn Liz Gammon skemmt-
ir gestum næstu vikumar. Jafnframt
mun Liz spila fyrir matargesti Café
Óperu fram eftir kvöldi.
■ CATALÍNA, Hamraborg 11 Hinn
eini sanni Siggi Björns leikur og
syngur fóstudags- og laugardags-
kvöld.
■ DUBLINER Á fimmtudagskvöld
leikur Ollie Macguinnes og á fóstu-
dags- og laugardagskvöld tekur
Bjarni Tryggva síðan við. Ollie
Macguiness leikur síðan sunnudags-
kvöld.
■ FJÖRUKRÁIN Fjaran: Jón Moller
leikur rómantíska píanótónlist fyrir
matargesti. Fjöragarðurinn: Vík-
ingasveitin er orðin að íslenskum jóla-
sveinum með Grýlu í fararbroddi og
syngja þau og leika fyrir veislugesti.
Á föstudags- og laugardagskvöld er
dansleikur með Rúnari Júl. og félög-
um.
■ GAUKUR Á STÖNG Á fimmtu-
dagskvöld leika hljómsveitirnar Súr-
efni og Sól Dögg og á föstudags- og
laugardagskvöld verður síðan
skemmtun með hljómsveitinni Spur
þar sem Telma Ágústsdóttir er í far-
arbroddi.
■ GISTIHEIMILIÐ ÓLAFSVÍK
Hljómsveitin Blístrandi æðarkollur
leikur á laugardagskvöld.
■ GRAND HÓTEL v/Sigtún Gunnar
Páll leikur og syngur dægurlagaperl-
ur fyrir gesti hótelsins fimmtudags-,
föstudags- og laugardagskvöld frá kl.
19-23. Allir velkomnir.
■ GULLÖLDIN Á föstudagskvöld
leikur dúettinn Sælusveitin sem er
skipuð þeim Hermanni Arasyni og
Níelsi Ragnarssyni og á laugardags-
kvöld tekur síðan dúettinn Klappað
og klárt við en hann skipa þau Garð-
ar Karls og Didda Löve.
■ HITT HÚSIÐ Hljómsveitin
Stjörnukisi leikur á síðdegistónleik-
um föstudag kl. 17. Að venju er
ókeypis aðgangur að tónleikunum og
einnig hitt að hljómlistamennirnir
sem koma fram gefa sína vinnu.
■ HÓTEL HÚSAVÍK Hljómsveitin
Buttercup leikur fóstudagskvöld.
■ INFERNO, Kringlunni Á fóstu-
dags- og laugardagskvöld verða dans-
sýningar þar sem danshöfundurinn
Belinda Murphy frá Eurovision - Ri-
verdance kemur fram. Um kvöldið
munu síðan Papar leika fyrir dansi.
Húsið opnað kl. 22.30. Miðaverð 1.450
kr.
■ KAFFILEIKHÚSIÐ Á fimmtu-
dagksvöld verða útgáfutónleikar með
hljómsveitinni Funkmaster 2000 og
hefjast þeir kl. 21. Hljómsveitin er
samansett af 5 ungum mönnum og
spila þeir fónktónlist frá 7. og 8. ára-
tugnum. Funkmaster er nú að gefa út
sinn fyrsta geisladisk sem ber heitið
Funkmaster 2000 - Á vegamótum en
diskurinn var einmitt tekinn upp
„live“ á veitingahúsinu Vegamótum
31. okt. sl. Hljómsveitina skipa: Ómar
Guðjónsson, gítarleikari, Hannes
Helgason, hljómborðsleikari, Krist-
ján Orri Sigurleifsson, bassaleikari,
Sverrir Þór Sævarsson, trommuleik-
ari og Helgi Sv. Helgason, slagverks-
leikari. Miðaverð á tónleikana er 800
kr.
■ KAFFI REYKJAVÍK Á fimmtu-
dags-, föstudags- og laugardagskvöld
leikur hljómsveitin Hálft í hvoru. Á
sunnudagskvöldinu leika þau Ruth
Reginalds og Birgir Birgis en á
mánudagskvöldinu tekur James R.
við. Á þriðjudags- og miðvikudags-
kvöld leika þau Rut og Birgir.
■ KNUDSEN Stykkishólmi Hljóm-
sveitin Blístrandi æðarkollur leikur
föstudagskvöld.
■ KRINGLUKRÁIN í aðalsal
fímmtudags-, föstudags-, laugardags-
og sunnudagskvöld leikur hljómsveit-
in Léttir sprettir. I Leikstofunni
fóstudags- og laugardagskvöld leikur
Viðar Jónsson.
■ LOFTKASTALINN Fimmtudag-
inn 26. nóv. heldur hljómsveitin Botn-
leðja útgáfutónleika. Tilefnið er út-
koma plötunnar Magnyl sem komin
er í búðir. Botnleðja kemur þarna
fram ásamt sérstökum gestum og
hefjast tónleikarnir kl. 22. Léttar
veitingar verða í boði. Miðaverð er
800 kr.
■ NAUSTIÐ Jólahlaðborð föstu-
dags- og laugardagskvöld á 3.100 kr.,
2.700 kr. aðra daga og 1.950 kr. í há-
deginu.
■ NAUSTKJALLARINN Línudans
verður öll íimmtudagskvöld kl. 21 á
vegum Kántrýklúbbsins. Miðaverð er
500 kr. Plötusnúðurinn Skugga-Bald-
ur leikur. Dansað til kl. 3. Reykjavík-
urstofa er opin frá kl. 18 alla daga
vikunnar.
■ NÆTURGALINN Á fóstudags-,
laugardags- og sunnudagskvöld leika
Lúdó og Stefán frá kl. 21. Á sunnu-
dagskvöld leikur Hljómsveit Hjördís-
ar Geirs nýju og gömlu dansana frá
kl. 21.
■ ODD-VITINN Akureyri Á föstu-
dags- og laugardagskvöld skemmtir
hljómsveitin Jósi bróðir & syndir
Dóra.
■ PÉTURSPÖBB Föstudags- og á
laugardagskvöldinu leikur hljóm-
sveitin Tvennir tímar.
■ RÁIN Keflavík Hljómsveitin Haf-
rót leikur fóstudags- og laugai’dags-
kvöld.
■ SJALLINN Akureyri Hljómsveitin
Skítamórall verður með unglinga-
dansleik kl. 19-21 laugardagskvöld og
um kl. 23 opnar svo húsið fyrir full-
orðna ballgesti.
■ SKOTHÚSIÐ Keflavík Á fóstu-
dagskvöld verður dansleikur með Dj.
Sigga. Á laugardagskvöldinu er
kalkúnahlaðborð og verður húsið opn-
að kl. 19 með fordrykk. Arnór Vil-
bergsson leikur fyrir matargesti og
síðar leika þau Sigga Beinteins og
Grétar Örvars. Tískusýning verður
frá Mangó og Töff og er kynnir Freyr
Sverrisson. Hljómsveitin Sixties leik-
ur síðan fyrir dansi.
■ SPOTLIGHT CLUB er opinn
fimmtudags-, fóstudags-, og laugar-
dagskvöld. Dj. fvar leikur alla dag-
ana. Munið þema helgarinnar.
■ STAPINN Keflavík Á fimmtu-
dagskvöld verður sameiginlegt ball
félagsmiðstöðva á Reykjanesi þar
sem hljómsveitin Buttercup leikur.
■ TILKYNNINGAR í skemmtana-
rammann þurfa að berast í síðasta
lagi á þriðjudögum. Skila skal til-
kynningum til Kolbrúnar í bréfsíma
569 1181 eða á netfang frett@mbl.is