Morgunblaðið - 08.12.1998, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1998 19
Viltu hagnast?
íslandsbanki gerir þér tilboð!
Sala á hlutabréfum í Búnaðarbanka íslands hf. á almennum markaði hefst í
dag. íslandsbanki, sem áður hefur lýst yfir áhuga á kaupum á hlutabréfum í
Búnaðarbankanum, er nú tilbúinn að kaupa hlutabréf eða kauprétt
hlutabréfa í útboði Búnaðarbanka íslands.
Þú þarft ekkert að leggja út! Þú sækir um 500.000 kr. hlut að nafnvirði á
genginu 2,15. Ef þú selur íslandsbanka hlut þinn ábyrgist bankinn að greiða
þér hærra gengi fyrir þau bréf sem koma í þinn hlut á meðan á útboðinu
stendur. íslandsbanki gengur frá greiðslu á hlut þínum til Búnaðarbanka
og leggur hagnaðinn inn á reikninginn þinn. íslandsbanki tekur enga
söluþóknun fyrir viðskiptin og áhættan er því engin!
Alls er nú boðinn út 350 m.kr. hlutur að nafnvirði í Búnaðarbankanum og
getur hlutur hvers og eins aldrei orðið hærri en 500.000 kr. að nafnvirði.
Ef heildarumsóknir fara umfram 350 m.kr. skerðist sú fjárhæð sem kemur
í hlut hvers og eins í samræmi við þaó sem fram kemur í útboðs- og
skráningarlýsingu Búnaðarbankans.
Þú getur selt (slandsbanka kauprétt þinn hvenær sem er á útboðstímanum,
sem er frá 8. til 11. desember. Tilboðsgengi bankans getur tekið breytingum
frá einum tíma til annars og verða upplýsingar um gildandi kaupgengi hverju
sinni á vef íslandsbanka, www.isbank.is, og í síma 878 1212. Auk þess fást
upplýsingar um gildandi kaupgengi í öllum útibúum íslandsbanka.
Þú þarft bara að fylla út umsóknina á bakhlið þessarar auglýsingar og skila
henni í næsta útibú íslandsbanka fyrir kl. 14, föstudaginn 11. desember.
Notendur Heimabanka íslandsbanka geta gengið frá umsókninni með
lítilli fyrirhöfn í Heimabankanum á Internetinu.
Tryggðu þér þinn hiut og gakktu frá umsókninni strax
- það er ekki eftir neinu að bíða!
Fylltu út umsóknina á
bakhlið þessarar auglýsingar
og skilaðu henni í næsta útibú
íslandsbanka þar sem hún
verður skráð á gengi þess tíma.
J