Morgunblaðið - 08.12.1998, Blaðsíða 80
. .tannlæknar
mæla með því
w,<o>«»s ' csssa
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJA\GK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.1S, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Malbikað í
hlýindunum
í desember
MIKIL hlýindi hafa verið á land-
inu undanfarna daga og í gær
komst hitinn hæst í 13 stig á
Vopnafirði og víða um norðaust-
an- og austanvert landið fór hit-
inn yfir 10 stig. Á Akureyri var
10 stiga hiti og í Reykjavík 9 stig
og nýttu starfsmenn Malbikunar
Bergsteins ehf., sér hlýindin og
malbikuðu við Elliðavatn. Að
sögn Sigurðar Skarphéðinssonar
gatnamálastjóra er ekki oft sem
viðrar til malbikunar á þessum
árstíma en þó kemur fyrir að
hægt er að sinna nauðsynlegum
lagfæringum. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Veðurstofunni fer að
draga úr hlýindum næstu daga
og má búast við 7-8 stiga há-
marks hita í dag en á fimmtudag
kólnar og má búast við frosti um
allt land á föstudag og laugar-
dag.
Stjórnarfundur hefur verið boðaður í dag hjá fslenskum sjávarafurðum
Velja um samvinnu með
SH eða Norway Seafood
REIKNAÐ er með að stjórn íslenskra sjávaraf-
urða hf. ákveði á fundi í dag hvort óskað verður
eftir formlegum samningaviðræðum við Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna hf. um sameiningu félag-
anna í eitt. Skiptar skoðanir eru innan ÍS um
málið og var óformlegum samningaviðræðum við
SH hætt um helgina þegar ákveðnir framleiðend-
ur og hluthafar beittu sér fyrir því að teknar
voru upp viðræður við norska stórfyrirtækið
Norway Seafood um samvinnu.
Norway Seafood er hluti af Aker RGI, fyrir-
tækjasamsteypu sem norski stórútgerðarmaður-
inn Kjell Inge Rökke á meirihlutann í. Fulltrúar
norska fyrirtækisins komu hingað til lands á
sunnudag, að tilstuðlan Sighvats Bjamasonar,
framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar hf., og
ræddu við fulltrúa stórra hluthafa ÍS fram á
mánudag. í gær var ekki vitað um niðurstöður
samtala við Norðmennina en þeir IS-menn sem
hvað mestar efasemdir hafa um samruna við SH
gerðu sér í gær vonir um að fyrir fundinn yrði
lagður annar valkostur, raunhæf hugmynd um
samvinnu við Nonvay Seafood sem fæli í sér lausn
á rekstrarvanda ÍS svo félagið gæti starfað áfram
með sæmilegri reisn sem sjálfstætt hlutafélag.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur
meðal annars verið rætt um samvinnu fyrirtækj-
anna um sölu íslenskra fískafurða og sameiningu
fiskréttaverksmiðja þein-a í Bandaríkjunum.
Norska fyrirtækið á gamla fiskréttaverksmiðju í
New Bedford og til skoðunar hefur komið að
leggja hana niður í kjölfar sameiningar sölufyrir-
tækjanna vestra og auka í staðinn vinnslu í nýrri
fiskréttaverksmiðju IS í Newport News.
Atkvæðagreiðsla í dag
Boðað hefur verið til fundar stjórnar IS í dag
9g síðdegis í gær bjuggust heimildarmenn innan
ÍS við því að málið yrði gert upp með atkvæða-
greiðslu um tillögu um að ganga til formlegra
viðræðna við Sölumiðstöðina.
Málið er afar viðkvæmt og erfitt að fá nokkrar
upplýsingar um afstöðu stjórnarmanna íslenskra
sjávarafurða eða annarra hluthafa og framleið-
enda. Heimildarmenn Morgunblaðsins töldu þó í
gær líklegra að SH-leiðin yrði farin en sú norska.
■ Ákvörðun um samruna/41
Morgunblaðið/Árni Saaberg
Barist um kauprétt hlutabréfa Búnaðarbankans
Hækkun frá útboðs-
gengi orðin 17,2%
Ríkisstjórnin tekur kvótamálið til
umræðu á fundi sínum á morgun
Yfír 300 um-
sóknir um kvóta
hafa borist
KAPPHLAUP er á fjármálamark-
aði um hlutabréf í Búnaðarbanka
Islands hf. í hlutafjárútboði bank-
ans, sem hefst í dag. Bankar, spari-
sjóðir og verðbréfafyrirtæki hvetja
almenning til að taka þátt í útboð-
inu og bjóðast til að kaupa kauprétt
einstaklinga á gengi sem er hærra
en nafnvirði bréfanna. Hver ein-
staklingur getur sótt um kaup á allt
að 500 þúsunda króna hlut á geng-
inu 2,15.1 gær buðu verðbréfafyrir-
tækin Handsal og Fjárvangur til að
kaupa kauprétt einstaklinga á geng-
inu 2,52. Nemur hækkunin frá út-
boðsgengi 17,2%.
Islandsbanki birti auglýsingu í
Morgunblaðinu á sunnudag þar sem
hann óskar eftir því að kaupa hluta-
bréf eða kauprétt hlutabréfa í Bún-
aðarbankanum og ábyrgist að þeir,
sem framselji kauprétt sinn til ís-
landsbanka, fái hærra gengi en út-
boðsgengið fyrir sinn hlut. Lands-
bankinn tilkynnti í kjölfarið að hann
myndi veita almenningi sömu þjón-
ustu og Islandsbanki og í gær
brugðust margar aðrar fjármála-
stofnanir við með sama hætti.
Guðmundur Kr. Tómasson, að-
stoðarmaður bankastjóra Islands-
banka, segir að hátt í tíu þúsund
manns hafi nú þegar framselt kaup-
rétt sinn til íslandsbanka og miðað
sé við gengið 2,28.
Halldór J. Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbankans, segir að bank-
inn vilji stuðla að því að eignaraðild
verði sem dreifðust í sölu ríkisbank-
anna og því hafi hann ekki áður tek-
ið þátt í verslun með kauprétt. „Við
höfðum ekki heldur áform uppi um
það núna en töldum síðan að við
yrðum að veita sömu þjónustu og
aðrir bankar veita.“
Samræmist ekki stefnu
ríkisstjórnarinnar
Finnur Ingólfsson viðskiptaráð-
herra segir að framvirk viðskipti
samræmist ekki stefnu ríkisstjórn-
arinnar um dreifða eignaraðild.
Hann segir að þegar sölu ríkis-
banka verði haldið áfram, komi til
greina að skoða nýjar leiðir. T.d. sé
hægt að bjóða öllum viðskiptamönn-
um bankanna hlutabréf á hagstæðu
verði eða að senda allri þjóðinni hlut
í banka á hagstæðu verði og setja
það skilyrði að menn ættu hlutinn í
tiltekinn tíma, t.d. þrjú ár.
■ Hæstu boð/18
ÞORSTEINN Pálsson sjávarút-
vegsráðherra segir að verði lagt
fram frumvarp til breytinga á lög-
um um stjórn fiskveiða sé líklegt að
beðið verði með að svara umsóknum
um veiðileyfi og kvóta, sem ráðu-
neytinu hafi borist, þangað til að Al-
þingi hafi fjallað um frumvarpið.
Um þetta hafi þó ekki verið tekin
endanleg ákvörðun.
Ráðuneytinu höfðu í gær borist
yfir 300 umsóknir um veiðileyfi og
kvóta. Fyrstu umsóknirnar bárust
fyrir helgi en í gær barst skæða-
drífa umsókna í ráðuneytið. Voru
þær alls staðar af landinu.
Fjórir lögfræðingar kallaðir
til ráðuneytis
Þorsteinn Pálsson sagði að á veg-
um sjávarátvegsráðuneytis væri
verið að skoða viðbrögð við dómi
Hæstaréttar í máli Valdimars Jó-
hannessonar. Til ráðgjafar hefðu
verið kallaðir lögfræðingarnir Þor-
geir Örlygsson prófessor, Eiríkur
Tómasson prófessor, Árni Kolbeins-
son ráðuneytisstjóri og Baldur Guð-
laugsson hæstaréttarlögmaður og
ynnu þeir ásamt starfsmönnum
ráðuneytisins að málinu. Til skoðun-
ar væri hvort og þá hvemig breyta
GRÝLA
ætti lögum. Málið væri flókíð og
þyrfti að skoða það vel frá öllum
hliðum. Hann sagði að ríkisstjórnin
myndi fjalla um málið á fundi á
morgun, miðvikudag, en óvíst væri
hvort niðurstaða fengist á fundinum
eða hvort hún þyrfti lengri tíma til
að skoða það.
„Aðalatriði er að það þarf að fara
vandvirknislega yfir þetta. Það kom
fram í ræðum flestra alþingis-
manna, sem töluðu í utandag-
skrárumræðum á Alþingi á föstu-
dag, að það yrði að vanda þessa
meðferð og við höfum hugsað okkur
að gera það,“ sagði Þorsteinn.
■ Vilja veiða/2
■ Um livað snýst/40
--------------
Reykjavíkur-
apótek til
sölu á 290
milljónir
AUSTURSTRÆTI 16, eða Reykja-
víkurapótek eins og það er gjarnan
kallað, er til sölu. Húsið er í eigu
Háskóla íslands og verðhugmynd
er um 290 milljónir króna.
Háskóli Islands rekur apótekið í
húsinu og reyndi fyrr á árinu að
selja reksturinn. Ekkert hefur ver-
ið ákveðið um áframhald hans.
Húsið skiptist í kjallara, verslunar-
hæð, fjórar skrifstofuhæðir og ris,
og er samtals um 2.500 fermetrar.
Innréttingarnar í apótekinu eru
friðaðar.
Húsið teiknaði Guðjón Samúels-
son en það var fyrirtækið Nathan
og Olsen sem hóf byggingu hússins
árið 1916.
■ Hús/2C