Morgunblaðið - 08.12.1998, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 08.12.1998, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Svavar Gestsson alþingismaður Sérnefnd fjalli um Hæstarétt- ardóm SVAVAR Gestsson, þing- flokksformaður Alþýðu- bandalagsins, sagði í upphafi þingfundar á Alþingi í gær að sér þætti eðlilegt að Alþingi kysi sérnefnd, sem skipuð væri fulltrúum allra þing- flokka, til þess að gera tillög- ur um hvernig best verði brugðist við dómi Hæstarétt- ar í máli Valdimars Jóhanns- sonar gegn íslenska ríkinu. Taldi hann að Alþingi gæti ekkei-t í málinu og að það ætti ekki að bíða eftir því að „sjáv- arútvegsráðherra þóknaðist að koma með tillögur“ til Al- þingis. Umfjöllun þarf að byggja á ítarlegri skoðun Þorsteinn Pálsson sjávar- útvegsráðherra skýrði frá því, vegna þessara ummæla Svavars, að ríkisstjómin hefði fjallað um málið og að það væri nú til skoðunar í sjávarútvegsráðuneytinu. Hann ítrekaði að umfjöllun um dóminn þyrfti að byggja á ítarlegri skoðun á honum og kvaðst vænta þess að ríkis- stjórnin gæti kynnt niður- stöður sínar innan tíðar. I framhaldi af þessum orð- um ráðherra sagði Svavar að hann teldi lítillækkandi fyrir Alþingi að bíða eftir þvi sem kæmi frá ríkisstjóminni um þetta mál og boðaði því þings- ályktunartillögu um kosningu sémefndar til að fjaila um dóm Hæstaréttar. í máli Svavars kom einnig fram það sjónarmið að þetta mál yrði ekki leyst með breytingum á 5. gr. laga um stjómun fiskveiða heldur þyrfti að taka á málinu í heild, bæði að því er varðaði fisk- veiðistjómunina sem og und- irstöðuþætti stjórnskipunar- mnar. Alþingi Dagskrá ÞINGFUNDUR Alþingis hefst kl. 13 í dag með utan- dagskrárumræðu um sölu hlutabréfa í bönkum. Að henni lokinni verður fram haldið annarri umræðu um gagnagrunn á heilbrigðis- sviði. Frumvarpi til fjáraukalaga vísað til þriðju umræðu Hækkar um 619,9 milljónir króna FRUMVARPI til fjáraukalaga fyrir árið 1998 var vísað til þriðju um- ræðu á Alþingi í gær en þá voru jafnframt samþykktar breytingar- tillögur meirihluta fjárlaganefndar Alþingis sem nema samtals 619,9 milljónum króna til hækkunar. Breytingartillögur minnihluta fjárlaganefndar upp á 746 milljónir ki'óna voru hins vegar dregnar til baka í gær, en þær gengu út á að rétta hlut ör- orku- og ellilíf- eyrisþega og að auka fé til sjúkrahúsanna í Reykjavík. Að sögn Kristínar Halldórsdóttur, Samtaka um kvennalista, eru tillögumar dregnar til baka til þriðju umræðu með hliðsjón af þeim athugunum og viðræðum sem nú eru í gangi um þessi mál. Jón Kristjánsson, formaður fjár- laganefndar Alþingis, mælti fyrir tillögum meirihluta nefndarinnar fyrir helgi og sagði m.a. við það tækifæri að ef eitthvert mál gengi eins og rauður þráður I gegnum breytingartillögur meirihlutans þá væri það hækkun á launakostnaði vegna þeirra kjarasamninga sem verið hefðu í gangi og aðlögunar- samninga. Til að mynda hækkar framlag til málefna fatlaðra um 54 milljónir króna til að mæta áhrifum kjarasamninga á stofnunum fyrir fatlaða, svo dæmi sé nefnt. Mótmæla að kjör fólks skuli ekki leiðrétt Sigríður Jóhannesdóttir mælti fyrir breytingartillögum minnihluta fjárlaganefndar. Sagði hún m.a. að minnihlutinn áteldi harðlega að ekki skuli vera gerð tilraun til að rétta hlut þeirra sem eingöngu hefðu framfærslu af grunnlífeyri með tekjutryggingu vegna elli eða ör- orku „Sam- kvæmt útreikn- ingum fagmanna á þróun launa og lífeyris á sl. fjór- um árum vantar 1.842 millj. kr. upp á að greiðslur til þessa fólks jafnist á við lægstu umsamin laun. A þessu ári skortir 148 millj. kr. til þess að jöfnuði sé náð miðað við meðaltalsvísitölu launa. Því leggur minnihlutinn til að þessum hópum verði bættur tekjumissir sem svar- ar þeirri upphæð. Einnig leggur minnihlutinn til aukaframlög til Ríkisspítala og Sjúki'ahúss Reykja- víkur til að minnka rekstrarhalla svo við hann megi una,“ sagði hún m.a., en eins og áður segir voru þessar breytingartillögur dregnar til baka til 3. umræðu. ALÞINGI Mótmæla auka- fjárveiting*u vegna sölu FBA GUÐMUNDUR Ámi Stefánsson, þingflokki jafnaðarmanna, og Steingrímur J. Sigfússon, þing- flokki óháðra, mótmæltu í at- kvæðagreiðslu á Alþingi í gær um frumvarp til fjái-aukalaga fyrir árið 1998, tillögu meirihluta fjárlaga- nefndar um 49,5 milljóna króna viðbótarfjárheimild til útboðs- og einkavæðingarverkefna vegna kostnaðar við sölu hlutabréfa ríkis- ins í Fjárfestingarbanka atvinnu- lífsins hf. í haust. I nefndaráliti meirihlutans segir að gerður hafi verið 45 milljóna ki'óna samningur við Fjárfesting- arbanka atvinnulífsins um umsjón með sölunni og að hann hafi síðan samið við öll innlend verðbréfafyr- irtæki og banka um þátttöku í söl- unni. Þar að auki hefði kostnaður við mat á verðmæti bankans verið 4,5 milljónir. Samtals væri því ósk- að eftir 49,5 m.kr viðbótarfjár- heimild. Verið að borga þeim fyrir- tækjum seni fljúgast á Steingrímur J. sagði m.a. eftir- farandi þegar hann gerði grein fyr- ir atkvæði sínu í gær: „Hér á að spreða út nær 50 millj. kr. og dreifa þeim á banka og verðbréfa- fyrirtæki til að borga þeim fyi-ir út- boð á hlutabréfum sem þau svo sjálf fljúgast á um að hreppa þegar þau er komin til sölu og þjóða of- fjár í kennitölur almennings til að ná þessu síðan til sín. Verður skrípaleikurinn ekki fullkomnaður með betri hætti en að borga þeim fyrir að standa í þessum áflogum um bréfin sem sett eru á markað. Ég segi eins og er að það er örugg- lega viða meiri þörf fyrir þessar 50 milljónir en í þessa hít. Ég greiði því atkvæði gegn þessari tillögu með alveg óvenju góðri samvisku.“ Geir H. Haarde fjármálaráð- herra sagði aftur á móti að það væri undarleg afstaða að vera á móti því að greiddar skyldu þókn- anir eða sölulaun, eins og í því til- felli sem hér um ræddi. „Mér finnst það furðuleg afstaða sem hér kemur fram að fyi'irtæki eigi að taka að sér að veita þessa þjónustu án þess að fá eitthvað greitt fyrir hana,“ sagði hann og benti á að áð- ur hefði slíkur sölukostnaður jafn- an verið dreginn frá heildarand- virðri seldra eigna ríkisins og því hefði hann ekki sést. Nú væri hins vegar heildarbrúttóandvirði tekið inn og síðan væri gerð grein fyrir sölukostnaðinum með sérstakri færslu. Breytingartillaga meirihlutans var samþykkt í atkvæðagreiðslunni en 19 greiddu atkvæði á móti. ÞINGMENN fylgjast alvarlegir með umræðum. Morgunblaðið/Ásdís Stj órnarandstaðan spyr um frumvarp um persónuvernd ÖSSUR Skarphéðinsson, þingflokki jafnaðarmanna, kvaddi sér hljóðs í upphafi þingfundar á Alþingi í gær og óskaði eftir því við ríkisstjórnina að frumvarp til laga um persónu- vemd og meðferð persónuupplýs- inga, sem samþykkt hefði verið af ríkisstjórninni í lok október sl., lægi fyrir Alþingi áður en önnur umræða um frumvarp til laga um gagna- grunn á heilbrigðissviði færi fram, en til stóð að sú umræða færi fram síðar um daginn, sem hún reyndar og gerði. Benti Össur m.a. á að í frumvarp- inu um persónuvernd væri kveðið á um aðbúnað tölvunefndar og sagði nauðsynlegt að slíkar upplýsingar lægju fyrir áður en hægt yrði að taka afstöðu til gagnagrunnsfrum- varpsins. Aukið eftirlit tölvunefndar væri einn af lykilþáttum persónu- vemdar í gagnagrunnsfrumvarpinu. Fleiri þingmenn stjómarandstöðu tóku undir óskir Össurar og gengu sumir jafnvel svo langt að fara fram á að frumvarpið um persónuvemd yrði afgreitt á Alþingi áður en fram- varpið um gagnagrunn á heilbrigð- issviði kæmi til afgreiðslu í þinginu. „Það er ósvinna að ætla sér að knýja fram afgreiðslu [gagna- grunnsfrumvarpsins] áður en [per- sónuverndarfrumvarpið]...verður afgreitt hér á Alþingi," sagði Hjör- leifur Guttormsson, þingflokki óháðra. Tengist ekki afgreiðslu gagnagrunnsvi'umvarpsins Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð- herra varð til svara og fullyrti að frumvarpið um persónuvernd, sem ríkisstjórnin hefði afgreitt til stjórnarflokkanna, tengdist ekki afgreiðslu gagnagrunnsfrumvarps- ins. Það væri sjálfstætt mál og óháð því. Sagði hann því næst að persónuverndarfrumvarpið hefði ekki verið afgreitt úr báðum stjórnarflokkunum og lægi því ekki fyrir þinginu enn sem komið væri. Síðar kom reyndar í ljós að frum- varpið hefði verið afgreitt úr þing- flokki framsóknarmanna en væri enn til umræðu í þingflokki sjálf- stæðismanna. Þorsteinn Pálsson upplýsti að þrátt fyrir það væri enginn ágreiningur um frumvarpið í þingflokknum. Jóhanna Sig-urðardóltir Finnur Ingólfsson Utandagskrárumræða á Alþingi í dag Rætt um útboð á hlutafé í bönkum UMRÆÐA um útboð á hlutafé í bönkum verður utandagskrár á Al- þingi í dag. Málshefjandi er Jó- hanna Sigurðardóttir alþingismaður og Finnur Ingólfsson viðskiptaráð- herra verður til svara. Jóhann hefur lagt fram spuming- ar í fjórum liðum vegna þessa máls. Hún spyr viðskiptaráðherra hvaða álit hann hafi á því að stórir fjárfest- ar, m.a. fjármálastofnanir í meiri- hlutaeigu ríkisins, hafi náð til sín með kennitölusöfnun hlutafé í Fjár- festingarbanka atvinnulífsins sem var langt umfram leyfilegt hámark og hvort hann telji viðskiptin sam- rýmast eðlilegum viðskiptaháttum. Hún spyr hvort raungengi FBA hafi verið hærra með tilliti til þess að hækkun á gengi bréfanna varð strax 30%. Hún spyr hvert áætlað tekjutap ríkissjóðs sé vegna þessa. Hún spyr hvort ráðherra muni beita sér fyrir aðgerðum til að koma í veg fyrir kennitölusöfnun í sölu hluta- fjár í Búnaðarbankanum og ef Al- þingi heimilar frekari sölu á hlutafé í FBA. Loks spyr hún hvernig við- skiptaráðherra ætli að tryggja framgang á stefnu ríkisstjórnarinn- ar um dreifða eignaraðild.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.