Morgunblaðið - 08.12.1998, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 08.12.1998, Qupperneq 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1998 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Utsala SPRON á vörum úr þrotabúi Radíóbúðarinnar um helgina Samningar tókust ekki við KRISTINN Tryggvi Gunnarsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs SPRON, segir fjarri lagi að spari- sjóðurinn hafi fai-ið út í samkeppni við raftækjaverslanir, þegar seldar voru vörur á afslætti úr þrotabúi Radíóbúðarinnar. Stefán Guðjónsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka verslunar- innar, hefur gagnrýnt útsölu SPRON, sem var haldin á laugar- dag, og meðal annars sagt að ýms- um viðskiptavinum sparisjóðsins, sem rækju raftækjaverslanir, þættu það kaldar keðjur frá við- skiptabanka sínum að fara í sam- keppni við þá við upphaf helstu söluvertíðar í greininni. Kristinn segir að um lítið magn hafi verið að ræða sem hafi ekki áhrif á verslun ræftækjaverslana fyrir jólin. Hann sagði að nokkrum raftækjasölum hefðu verið boðnar vörurnar í heilu lagi en samningar hefðu ekki tekist. „Utsalan var neyðarúrræði af okk- ar hálfu. Við leggjum metnað okk- ar í að veita viðskiptavinum okkar góða þjónustu og hörmum að hafa þurft að sinna þessum óhjákvæmi- legu fullnustuaðgerðum sem og óþægindum sem þær kunnu að hafa valdið." Þarf ekki verslunarleyfi Bæði SPRON og íslandsbanki áttu veð í birgðum Radíóbúðarinn- ar. Kristinn sagði fullkomlega eðli- legt að bankarnir leystu til sín vör- urnar með þessum hætti, enda væri slíkt heimilt í lögum um við- skiptabanka og sparisjóði. „I lög- unum segir að bönkum og spari- sjóðum sé heimilt án takmarkana að yfirtaka eignir til þess að tryggja fullnustukröfu. Bankar og sparisjóðir þurfa því ekki sérstakt verslunarieyfí til þess að selja vör- ur sem þeir þurfa að leysa til sín með þessum hætti.“ Sparisjóðurinn var einnig gagn- í-ýndur fýrir að láta kaupendur út- sölunnar undin-ita samning, þar sem skýrt var tekið fram að varan væri undanþegin ábyrgð. Kristinn sagði ekkert athugavert við að SPRON hefði samið sig frá ábyrgð. „Slík leið er vel þekkt þegar um sölu á vörum úr þrotabúum er að ræða enda endurspeglaðist það í verði varanna, sem voru seldar með talsverðum afslætti." Breytingar á bílaleigumarkaði Auto Skandinavia kaup- ir rekstur Stjörnubíla AUTO Skandinavia hf. hefur keypt rekstur bílaleigunnar Stjörnubíla ehf., sem hefur haft umboð fyrir Av- is RentACar hér á landi. Bílaleigan Avis RentACar starfar í yfir 170 löndum og hefur yfir 5 þúsund útibú. Fyrirtækið Stjörnu- bílar tryggði sér umboð fyrir Avis árið 1989 og hefur haft um 200 bíla á sínum vegum. Norska fyrirtækið Schöyen RentACar yfirtók Stjörnu- bíla árið 1997 þegar fyrirtækið gekk í gegnum rekstrareríiðleika. Starf- semi Stjörnubíla er nú rekin með hagnaði og áætlaðar tekjur fyrir- tækisins eru um 100 milljónir króna á árinu, að sögn Þórunnar Reynis- dóttur, forstjóra Stjörnubíla og eins af eigendum Auto Skandinavia. Þórunn sagði að Schöyen Group hefði tekið ákvörðun um að beina sjónum sínum að bílaleigumarkaðn- um í Noregi og nágrannalöndum í stað þess að reka bílaleigu hér á landi. Hún sagði að nýir eigendur Stjömubíla hefðu víðtæka reynslu í starfsemi bflaleiga og ferðamanna- þjónustu. „Markmið fyrirtækisins er að fjölga bílaleigubílum fyrir næsta sumar. „Mikill vöxtur hefur verið í starfsemi bílaleiga hér á landi en er- lendir ferðamenn eru í auknum mæli farnir að leigja sér bílaleigu- bíla í stað þess að fara með áætlun- arbílum.“ Sex starfsmenn hafa starfað hjá Stjörnubílum og sagði Þórann að ekki væru fyrirhugaðar breytingar á starfsmannahaldi. Gjaldeyristekjurnar 21 milljarður fyrstu níu mánuðina 3,5 milljarða aukn- ing á milli ára Erlendum ferða- mönnum fjölgaði um 29 þúsund GJALDEYRISTEKJUR af ferða- mannaþjónustu námu rúmlega 21 milljarði króna fyrstu níu mánuði ársins sem er um 3,3 milljörðum meira en á sama tíma í fyrra eða 18% aukning á milli ára. Þar af eru um 1,9 milljarðar vegna eyðslu í landinu og um 1,4 milljarðar vegna fargjaldatekna, samkvæmt upplýs- ingum frá Seðlabanka íslands. Miðað við þær forsendur sem nú liggja fyrir um farþegafjölda síð- ustu 3 mánuði ársins má gera ráð fyrir að aukning gjaldeyristekna af ferðaþjónustu verði a.m.k. 3,5 millj- arðar á árinu og heildartekjurnar því á milli 25 og 26 milljarðar króna. Þá fjölgaði erlendum ferðamönn- um til Islands um nærri 29.000 fyrstu 11 mánuði ársins miðað við sama tíma í fyrra eða um 15%. 26% aukning í nóvember I nóvembermánuði sl. komu alls 12.376 erlendir ferðamenn til lands- ins en í sama mánuði í fyrra komu 9.816. Aukningin í nóvember miðað við síðasta ár er 26,1%, samkvæmt upplýsingum frá Ferðamálaráði. Flestir hinna erlendu gesta komu frá Bandaríkjunum eða 3.129. Frá Bretlandi komu 2.185, frá Noregi 1.672 og 1.454 frá Svíþjóð. Þá komu 810 frá Danmörku og 623 frá Þýskalandi. Erlendir gestir, sem heimsækja Island, verða fleiri á þessu ári en nokkru sinni fyrr. Miðað við þær upplýsingar sem nú liggja fyrir um ferðamenn í desember er Ijóst að þeir verða yfír 230.000 í ár eða um 30.000 fleiri en í fyrra, þegar rétt rúmlega 200.000 gestir komu allt árið. Stefnumótunin að skila árangri Magnús Oddsson, ferðamála- stjóri, segh- bæði tekjuaukninguna sem og fjölgun erlendra gesta hing- að til lands vera meiri en búist var við í upphafi ársins. „Þetta er auð- vitað ánægjulegt og sýnir að sú stefnumótun sem mörkuð hefur verið, er að skila árangri. I fyrsta lagi hefur ferðaþjónustunni tekist að auka komu ferðamanna utan há- annatímans yfír sumarmánuðina í júní, júlí og ágúst. Við sjáum fram á að meira en helmingur gestanna Fjöldi ferðamanna til íslands janúar til nóvember 1997 og 1998 Breyting á milli ára Danmörk Noregur 1997 I 19-461 , —:— —— —i _ _ ___ 1 W /O 1998 ; 22.080 □ 15-831 19% 18.806 Svíþjóð 118-615 119.818 6/0 Bandaríkin - 30.389 05% 38.046] 25/0 Bretland I 22.293 ! 4Q0A "* l 26.447 19/0 Þýskaland _ J 29-188 ] 31.104 7/0 Heildarfjöldi ferðamanna—árið 1997. 194.178 14,8% J árið 1998: 222.932 Gjaldeyristekjur janúartil september 1997 og 1998 Samkvæmt upplýsingum Breyting á frá Seðlabanka (slands 1997 1998 milli ára Tekjur alls 17.828 21.119 18% Fargjaldatekjur 8.150 9.530 17% Eyðsla í landinu 9.678 11.589 20% Gestafjöldi 172.988 197.440 14% eða um 116 þúsund manns komi ut- an umrædds tímabils á þessu ári. Þá sýna niðurstöður einnig fram á að gjaldeyristekjur af hverjum ein- stökum ferðamanni hafa aukist. Þar er ekki síst um að ræða aukningu í verslun, afþreyingu og fleiri þátt- um“. Magnús segir að í framtíðinni verði að leggja enn frekari áherslu á þriðja meginmarkmiðið sem er að ná viðunandi arðsemi í atvinnu- greininni sem nokkuð hefur skort á undanfarin ár. Hann segir allar for- sendur benda til áframhaldandi vaxtar í ferðaþjónustu hér á landi á næsta ári, bæði hvað varðar tekjur og fjölda gesta. BRIMBORG Faxafenl 8 • Simi 515 7010 Olíufélagið í Reykjanesbæ Hluthafar sam- þykktu samruna HLUTHAFAR í Olíufélaginu hf. í Reykjanesbæ, áður Olíu- samlagi Keflavíkur og ná- grennis, hafa samþykkt sam- runaáætlun félagsins við Olíu- félagið hf. á genginu 1 á móti 4. Hluthafar fá kr. 2.659,99 fyrir hverjar 10 þúsund krón- ur nafnverðs í Olíufélaginu eða um 27% en markaðsvirði félagsins er talið liggja nálægt einum milljarði króna. Fyrirtækið sem á 60 ára af- mæli um þessar mundir hóf starfsemi árið 1938. Það var einn af stofnendum Olíufé- lagsins hf. á sínum tíma og meðal stærstu hluthafa þess frá upphafi. Að sögn Guðjóns Ólafsson- ar, framkvæmdastjóra, var til- lagan samþykkt einróma á hluthafafundi í Reykjanesbæ í gær. Hann segir að hljóti til- lagan sömu málsmeðferð með- al forsvarsmanna Olíufélags- ins þegar málið verður tekið fyrir í næstu viku, verði hægt að ganga endanlega frá sam- rana fyrirtækjanna fljótlega.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.