Morgunblaðið - 08.12.1998, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1998
MORGUNBLADIÐ
LANDIÐ
Könnun Markaðs- og atvinnumálaskrifstofu Reykjanesbæjar
Morgunblaðið/Björn Blöndal
VIÐ upphaf kynningarfundarins. Frá vinstri til hægri eru: Sigríður Jóna Jóhannesdóttir, svæðisvinnumiðlun
Suðurnesja, Jón Björn Skúlason, atvinnuráðgjafi MOA, Kjartan Már Kjartansson, formaður Markaðs- og at-
vinnumálaráðs Reykjanesbæjar, Ólafur Jón Arnbjörnsson, skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Friðjón
Einarsson, framkvæmdastjóri MOA, Jóhann D. Jónsson, ferðamálafulltrúi Suðurnesja.
Vísbending
um góðar
atvinnu-
horfur
Keflavík - „Atvinnuhorfur eru
góðar og allt bendir til að þetta
geti orðið uppgangssvæði á næstu
árum,“ sagði Kjartan Már Kjart-
ansson formaður Markaðs- og at-
vinnumálaráðs Reykjanesbæjar
þegar kynnt var könnun sem gerð
var á vegum ráðsins um atvinnulíf
og menntun á Suðurnesjum ný-
lega.
Urtakið í könnuninni voru öll
fyrirtæki á Suðurnesjum og var
svörun um 70%. Fram kom að
ekki virðist nægjanlegt framboð
af menntuðu vinnuafli og þá sér-
staklega konum. Atvinnuleysi hef-
ur farið snarminnkandi, er nú
1,6% og 94% þeirra sem skráðir
eru atvinnulausir hafa eingöngu
grunnskólapróf.
Jón Björn Skúlason atvinnuráð-
gjafi MOA sagði að ef tekin væri
áætluð fjölgun frá 1998 til 2003
og skipt eftir menntun þá inuni
störfum sem krefjast iðn- eða
stúdentsprófs ijölga um 52% en
spurn eftir fólki sem hefur aðeins
grunnskólapróf minnka um tæp
11%. Störfum sem kreljast há-
skólaprófs eða meistaragráðu
muni fjölga um 32%. Jón Björn
sagði að tæplega 30% þeirra sem
svöruðu segðu að ekki væri nægj-
anlegt framboð af menntuðu
vinnuafli á Suðurnesjum og um
50% iðnfyrirtækja. Hann sagði
ennfremur að Ijölgun stöðugilda
frá 1993 til 1998 hefði verið um
24% en samkvæmt þessari könnun
verður 20% fjölgun starfa til árs-
ins 2003 og þar sé ekki reiknað
með fyrirtækjum sem stofnuð
kunni að verða á tímabilinu.
Þekking og hæfni
ræður úrslitum
Kjartan Már Kjartansson sagði
að þarna væri verið að reyna að
skyggnast inn í framtíðina og
meta væntingar atvinnulífsins til
menntunar. Upplýsingar í könn-
uninni ættu að geta orðið stjórn-
endum fyrirtækja, starfsmönnum
og nemendum leiðarljós um gildi
menntunar og sveitarstjórnar-
mönnum leiðbeining um stefnu í
menntunarmálum framtíðarinnar.
Krafan um aukna menntun í at-
vinnulífinu ykist með hverju árinu
sem liði. Þekking og hæfni starfs-
fólks fyrirtækja væri talin ráða
úrslitum í hörðum heimi sam-
keppninnar og fyrirtæki gerðu
því auknar kröfur um menntun og
endurmenntun starfsfólks.
Aðventu-
hátíð í
Skógum
AÐVENTUHÁTÍÐ Eyvindar-
hólaprestakalls og Grunnskól-
ans í Skógum undir Eyjafjöllum
var haldin annan sunnudag í að-
ventu. Séra Halldór Gunnars-
son sóknarprestur stýrði fjöl-
skyldumessu í Eyvindarhóla-
kii-kju með aðstoð nemenda
Grunnskólans, sem báru ljósið á
táknrænan hátt inn í kirkjuna,
sungu jólasálma, fluttu hugleið-
ingar og fleira.
I messukaffi, sem haldið var
að lokinni guðsþjónustu bauð
Kvenfélag Austur-Eyfellinga
kaffíveitingar og flutt var leik-
og söngdagskrá, sem nemendur
höfðu æft fyi-ir tilefnið. Þá komu
rithöfundamir Sveinbjörn I.
Baldvinsson og Ami Sigurjóns-
son og lásu úr nýútkomnum
verkum sínum. Nemendur
Grunnskólans höfðu veg og
vanda af skreytingu félagsheim-
ilisins ásamt kennurum, en jafn-
framt héngu myndir á veggjum
eftir nemendur yngri deildanna.
Nemendur allra deilda
Grunnskólans höfðu einnig sett
saman ljóðabók, sem seld var á
staðnum, hvemar ágóði af sölu
skyldi renna í sjóð til kaupa á
píanóbekk, fyrir nýjan flygil fé-
lagsheimilisins, sem kvenfélagið
festi kaup á í haust.
Morgunblaðið/Hallfríður Bjarnadóttir
RAY ka Msengana, formaður Rauða kross Suður-Afríku, heimsótti
m.a. 3. bekk í Grunnskóla Reyðarfjarðar.
Formaður RKI
í Suður-Afríku
á Reyðarfírði
Reyðarfirði - Hér hafa verið á ferð-
inni Ray ka Msengana, formaður
Rauða kross Suður-Afríku, Anna
Þrúður Þorkelsdóttir, formaður
RKI, Sigrún Árnadóttir, fram-
kvæmdastjóri RKÍ, og Óskar S.
Jónsson, svæðisfulltrúi RKÍ á Aust-
urlandi, ásamt félögum úr Austur-
landsdeildum RKÍ. Þau hafa heim-
sótt skóla, leikskóla, dvalarheimili
aldraða, fískvinnslustöðvar og fleiri
staði.
Tilgangurinn með heimsókn þess-
ari er að koma á vinadeildarsam-
starfi milli deilda Rauða kross ís-
lands á Austurlandi og deilda á
Western Cape-svæðinu í Suður-Af-
ríku. Á sameiginlegum fundi deild-
anna hér á Austurlandi 2. desember
síðastliðinn. var skrifað Undir vilja-
yfírlýsingu þess efnis, að byrjað
yi’ði á formlegu samstarfi á næsta
ári. Samstarfíð á að beinast að því
að vinna með ungu fólki, til dæmis
að koma götubörnunum inn í félags-
miðstöðvar þar sem þau geta stund-
að nám, eytt tómstundum við tónlist
o.fl.
Hafa ekki borð og stóla
í Grunnskóla Reyðarfjarðar
heilsaði Ray ka Msengana upp á
nemendur og spjallaði við þá. Sagði
hann þeim frá skólunum í sínu
heimalandi, þar sem sums staðar
eru allt að 60 nemendur hjá hverj-
um kennara, sumir nemendur hafa
ekki borð og stóla heldur vinna á
gólfinu. Hann hvatti nemendur til
að vera duglega að læra og biýndi
fyrir þeim að forðast reykingar,
áfengi og eiturlyf.
Nemendur 2. bekkjar sungu jóla-
lög fyrir gestina og nemendur 8.
bekkjar afhentu Ray ka Msengana
pakka með verkefnum sem þau
höfðu unnið í enskutímum. Þar
sögðu þau frá sinni heimabyggð og
hvert þeirra skrifaði síðan bréf til
jafnaldra í Suður-Afríku. Vonast
þau til að komast í bréfasamskipti
við þá.
Morgunblaðið/Sigurður Hannesson
SVEINBJÖRN Sverrisson, elsti starfsmaður Óslands hf., og Halldór,
ungur sonur Björns E. Traustasonar, verksmiðjustjóra, taka fyrstu
skóflustunguna að nýju verksmiðjunni.
Bygging
nýrrar
bræðslu
hafin á Höfn
Hornafirði - 2. desember var merk-
isdagur í atvinnusögu Hornfirðinga
en þá hófst formlega bygging á nýju
verksmiðjuhúsi Óslands fiskimjöls-
verksmiðju hf. við hlið þess gamla í
Óslandi á Höfn.
Gamla verksmiðjan hefur nokkuð
lengi verið starfrækt á undanþágu
vegna ófullnægjandi hreinsibúnaðar
og var meira að segja stöðvuð um
þriggja mánaða skeið í sumar.
Stærð nýja hússins verður 27X50
metrar að litlum hluta á tveimur
hæðum eða alls um 1.500 fermetrar.
Héðinn smiðja hannaði húsið og sér
einnig um uppsetningu stálgrindai'
og véla. Áætlað er að fullbúið kosti
allt saman 7-800 milljónir króna. Af-
kastageta verksmiðjunnar verður
900 tonn á sólarhring og þess má
geta að í henni verður stærsti loft-
þurrkari sem til er í heiminum.
Fyrsti áfanginn, sem nú er hafinn,
felst í jarðvinnu, broti á gömlum þró-
arveggjum, gerð undh-staðna, steypu
platna og lagningu frárennslislagna.
Þessi áfangi var boðinn út í lokuðu
útboði og hlaut Trévirki ehf. verkið á
21.340.220 krónur en tilboð barst
einnig frá Sveini Sighvatssyni upp á
krónur 24.404.140. Kostnaðaráætlun
hljóðaði upp á kr. 19.266.900.
Vinnu við fyrsta áfanga á að vera
lokið eigi síðar en 15. mars nk. Und-
irverktakar hjá Trévirki verða
Hjarðarnesbræður hf. með jai'ð-
vinnu, Bragi Karlsson með lagnir og
Ólafur Karl Karlsson með múrverk.
Nýja verksmiðjan á að verða tilbúin
til notkunar 1. júní á næsta ári og
binda Hornfirðingar miklar vonir við
að hún eigi efth- að mala gull. Ekki
spillir heldur að með henni á hvim-
leiður reykur að heyra sögunni til.
Námskeið
um stofnun
og rekstur
fyrirtækja
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
HÓPURINN sem tók þátt í námskeiðinu á vegum Iðntæknistofnunar.
Hrunamannahreppi - Námskeið á
vegum Iðntæknistofnunar um
stofnun og rekstur smáfyrirtækja
var haldið síðustu tvær helgar í
Aratungu og á Flúðum, tvo daga
á hvorum stað. Námskeiðið sóttu
17 manns auk leiðbeinenda, sem
voru Brynhildur Bergþórsdóttir,
rekstrarhagfræðingur, Guðbjörg
Björnsdóttir, markaðsfræðingur,
og Jón Gíslason, rekstrarhag-
fræðingur með meiru.
Að sögn Ásborgar Arnþórsdótt-
ir, ferðamálafulltrúa uppsveita
Árnessýslu, var námskeiðið ætlað
fólki sem vill stofna smáfyrirtæki
eða kynna sér rekstur þeirra.
Einnig fólki sem er með fyriríæki
og vill afla sér meiri þekkingar á
þessum sviðum.
Ásborg sagði að þeir sem sóttu
námskeiðið væru afar ánægðir og
teldu sig hafa lært mjög mikið á
þessum fjórum dögum. Meðal þess
sem farið væri yfir væri áætlunar-
gerð, hvað þyrfti til að geta stofn-
að fyrirtæki, farið í gegnum
rekstur fyrirtækja, hvernig menn
gera áætlanir, markaðsmál og
margt fleira.
Hugmyndir um ný
Ásborg sagði ennfremur að
margar góðar hugmyndir væru
uppi um stofnun smærri fyrir-
tækja hér í uppsveitum en fólkið
sem sótti þessar leiðbeiningar
kemur úr mörgum greinum at-
vinnulffsins. Hún sagði námskeiðið
haldið til að skjóta sterkari stoð-
um undir atvinnulífið og þá mögu-
leika á sóknarfæruin sem hér
gerðust, einkum í þeim byggðar-
kjörnum sem myndast hafa í upp-
sveitunum. Mætti þar t.d. nefna
margskonar þjónustu fyrir ferða-
menn sem hér væru afar margir,
einkum að sumarlagi.