Morgunblaðið - 08.12.1998, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1998 29
ERLENT
Forsetakosningar í Venesúela
Deilur iiman frönsku Þjóðfylkingarinnar
Uppreisnarmaðurinn fyrr-
verandi vann stórsigur
Reuters
HUGO Chávez veifar til stuðningsraanna sinna eftir að sigur hans í
forsetakosningunum f Venesúela var ljós.
Caracas. Reuters.
UPPREISNARMAÐURINN fyrr-
verandi, Hugo Chávez, vann stór-
sigur í forsetakosningum í Venesú-
ela um helgina, og tókst Chávez
þannig að vinna með atkvæðum þau
völd sem honum mistókst að hrifsa
til sín í valdaránstilraun árið 1992.
Sagðist Chávez eftir að úrslitin voru
ljós að hann myndi verða „hermað-
ur íólksins." „Ríkisstjórn Hugos
Chávez verður ríkisstjórn almúg-
ans,“ sagði nýkjörinn forseti við
ánægða stuðningsmenn sína í mið-
borg Caracas, höfuðborg Venesú-
ela, en Chávez bauð sig fram í emb-
ættið í nafni þjóðernisstefnu og
andstöðu við þá spillingu sem al-
menningi hefur þótt einkenna
stjórnarhætti í landinu. Mun Chá-
vez einnig hafa notið góðs af þeirri
óánægju sem ríkir með misskipt-
ingu auðsins í landinu.
Þegar búið var að telja tvo-þriðju
allra atkvæða hafði Chávez hlotið
56,2% greiddra atkvæða en helsti
andstæðingur hans, Henrique Salas,
sem naut stuðnings stærstu stjórn-
málaflokka í landinu, einungis
39,7%. Lýsti Salas Chávez stuttu
síðar sigurvegara í kosningunum og
óskaði honum alls hins besta í nýju
starfí, sagði hann þurfa á þeim ósk-
um að halda enda bíður Chávez nú
það verkefni að rífa Venesúela upp
úr efnahagslægð, þeirri þriðju á síð-
ustu fímm árum, en einungis tvö
lönd flytja út meiri olíu á ári hverju í
heiminum.
Sigurinn í forsetakosningunum þyk-
ir marka þáttaskil á óvenjulegum
ferli hins 44 ára gamla Chávezar.
Fjórða febrúar árið 1992 fór hann
fyrir valdaránstilraun þar sem fjöldi
manna féll en lauk með því að Chá-
vez og menn hans lögðu niður vopn
sín. Þótt uppreisnin nyti ekki stuðn-
ings á sínum tíma vakti hún athygli
á Chávez og eftir að hann var laus
úr fangelsi árið 1994 varð hann fljótt
vinsæll baráttumaður fyrir réttind-
um fátækari íbúa Venesúela.
Árásir andstæðinganna
skiluðu ekki árangri
Lögðu stuðningsmenn hans í for-
setakosningunum áherslu á að þeir
teldu hann þann eina sem hefði
áhuga á málefnum fjöldans, and-
stætt spilltum stjórnmálamönnum
ríkjandi stjórnmálaafla í Iandinu.
Andstæðingar Chávez reyndu hins
vegar í kosningabaráttunni að út-
mála Chávez sem valdníðing og
hættulegan mann.
Sagði Chávez á fréttamannafundi
eftir að úrslit voru ljós á sunnudag
að árásir andstæðinga hans hefðu
greinilega ekki náð að skaða hann
en sagði að þær hefðu samt sem áð-
ur „varpað fram mynd af Hugo Chá-
vez sem er ekki raunsönn". Var
sáttatónn í Chávez og kvaðst hann
alls ekki hafa í hyggju að taka upp
einræðistilburði í anda Fidels Ca-
stro Kúbuleiðtoga. Sagði hann að
menn ættu eftir að komast að raun
um að nýir stjórnarherrar í Venesú-
ela væru heiðarlegt fólk sem hefði
hag þjóðar sinnar í fyrirrúmi.
Hitnar verulega
undir Le Pen
París. Reuters.
JEAN-MARIE Le Pen, hinn rosta-
fengni leiðtogi frönsku Þjóðfylking-
arinnar, úthúðaði um helgina þeim,
sem hafa gagnrýnt hann innan
flokksins, sem kynþáttahöturum og
öfgamönnum, og gaf í skyn að vara-
formanninum Bruno Megret væri
hollast að ganga úr flokknum.
Le Pen lét þessi orð falla daginn
eftir að nokla-ir félagar hans úr
flokkSforystunni dii’fðust að gagn-
rýna meintan gerræðisstjórnunai’stíl
leiðtogans á flokksstjórnarfundi á
laugardag. Le Pen sagði að gagn-
rýnendur sínir væru „lengst til
hægri í hópi þjóðernissinnaðra
hægrimanna" og hélt því fram að
flokkurinn stæði enn heill að baki
sér.
En hann lét kaldhæðnisleg um-
mæli falla um varaformanninn,
Megret, sem nýtur stuðnings
margra virkra flokksmanna sem eru
orðnir þreyttir á þvi sem þeim finnst
vera fíflaskapur hins sjötuga for-
manns.
„Það voru smálæti [á flokksstjórn-
arfundinum], sem lítill minnihluti
öfga- og aðgerðasinna, jafnvel kyn-
þáttahatara, efndu til,“ sagði Le Pen
er liann reyndi að lægja öldurnar
eftir háreystismissætti sem varð á
fundinum eftir að tveimur nánum
samherjum Megrets var vísað úr
húsi.
Aðspui’ður um Megret sagði Le
Pen: „Eg vísa engum á dyr. En ef
einhverjir halda að nærvera þeirra
fari ekki saman við mína, þá er þeim
frjálst að fara.“
Franskir fjölmiðlar gerðu mikið úr
Bruno Megret og Le Pen
átökum helgarinnar innan forystu
Þjóðfylkingarinnar, sem hefur aldrei
áður komið með eins skýrum hætti
upp á yfirborðið. Voru líkur leiddar
að því að þetta væri upphafið að
endalokum Le Pens sem leiðtoga
hreyfíngarinnar, sem hann hefur
farið fyrir í 26 ár.
Framboðsmál
í brennidepli
Hart hefur verið tekizt á innan
flokksforystunnar frá því varafor-
maðurinn ákvað að sækjast eftir því
að leiða framboðslista flokksins fyrir
kosningarnar til Evrópuþingsins
næsta sumar. Le Pen hafði fyrst út-
nefnt eiginkonu sína í efsta sætið,
þar sem útlit var fyrir að honum yrði
bannað að bjóða sig fram eftir að
hann var dæmdur fyrir að hafa í
fyrra gerzt sekur um likamsmeiðing-
ar á konu úr öðrum stjómmálaflokki.
B^OiA áwr939b8úsStveT3’.890
4d, svartur, ek. Þ' ’ álfelgur,
þús. Leðurinnr., sonuua,
o.m.fl.
Toyota Celica GT4, árg. 95, vst.
2000-Turbo, 5g, 2d, rauður, ek.
111 þús., verð 2.490 þús. Leður-
innr, sóllúga, álfelgur o.m.fl.
Hyundai Coupe FX, árg. 98 vst.
2000, 5g, 2d, rauður, ek. 9 þús.,
verð 1.790 þús. Leðurinnr.,
sóllúga, álfelgur.
Hyundai Aloz, arg. 98, vst. 1000,
5g, silfurgrár, ek. 15 þús., verð
870 þús.
AÐRIR BÍLAR
Á S T A Ð NJJ M
Subaru Legacy, árg. 90, vst.
1800, 5g, 5d, hvítur, ek. 158
þús, verö 790 þús. Station
Mazda 323 LX, árg. 86, vst.
1300, ss, 4d, hvítur, ek. 146
þús., ve.rð 190 þús.
Nissan Sunny Wagon, árg. 93,
vst. 1600, 5g, 5d, steingr., ek.
120 þús., verð 850 þús.
Hyundai Elantra GT, árg. 95,
vst. 1800, 5g, 4d, grænn, ek. 60
þús., verð 950 þús.
Volvo 740 GL, árg. 85, vst 2300,
ss, 4d, hvítur, ek. 183 þús., verð
390 þús.
Hyundai Accent GLS, árg. 98,
vst. 1500, 5g, 5d, hvítur, ek. 36
þús., verð 1.080.
BMW 520 IA Touring, árg. 92,
vst 2000 ss, 5d, blár, ek. 141
þús. verð 1.690 þús.
Hyundai Sonata GLSi, árg. 97,
vst 2000, 5g, 4d, brons, ek. 45
þús. verð 1.330 þús.
Ford Escort, árg. 96, vst. 1400,
5g, 3d, hvítur, ek. 45 þús. verð
860 þús., sendibíll
Opel Astra, árg. 96, vst. 1400,
5g, 5d, blár, ek. 49 þús., verð
970 þús.
Bílalán til allt að
60 mánaða.
Visa-Euro-raðgreiðslur
til allt að 36 mánaða.
Nissan Micra GX, árg. 98, vst.
1300, 5g, 3d, Ijósbr., ek. 3 þús.
verð 1.190 þús.
Land Rover Discovery, árg. 91,
vst. 3500, 5 g, 5d, hvítur, ek. 80
þús. verð 1.440 þús.
Renault Twingo, árg. 97, vst.
1200, 5g, 3d, rauður, ek. 45 þús.,
verð 840 þús.
Hyundai Pony GLSi, árg. 94,
vst. 1500, 5g, 4d, grænn, ek. 76
þús., verð 570 þús.
Mazta 323F, árg. 97, vst. 1500,
5g, 5d, rauður, ek. 67 þús., verð
1.290 þús.
Ford Transit, árg. 98, vst. 2500,
5g, 6d, rauður, 54 þús., verð
1.950 þús., Diesel Turbo
Toyota Corolla Touring, árg. 96
vst. 1800, 5g, 5d, grænsans, ek.
27 þús., verð 1.450 þús., 4x4
Hyundai Accent GSi, árg. 98,
vst. 1500, 5g, 3d, rauður, ek. 13
þús., verð 1.050 þús.
B&L notaðir bílar • Suðurlandsbraut 12 • Sími: 575 1200 . Beinn simi: 575 1230