Morgunblaðið - 08.12.1998, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 08.12.1998, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR PRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1998 47 ^ var ávallt mikil umferð enda Rúna alin upp í stórri fjölskyldu og vön margmenni. Hún var ein þeirra manneskja sem laðaði hið jákvæða og góða fram í umhverfi sínu enda sjálf lífsglöð og umræðugóð. Slíkar manneskjur eru því miður alltof fá- gætar. Nú er Rúna horfin héðan og stórt skarð eftir skilið. Þótt söknuðurinn sé sár, ekki síst fyrir börn hennar og barnabörn, er gott að geta yljað sér við minninguna um hina hlýju og brosmildu persónu. Hugsanlega hittir hún Garðar sinn á nýju til- verastigi og skal enginn draga í efa að þar rís nýtt Bjarmaland og fjöl- sótt af þeim sem viJja láta sér líða vel. Við viljum þakka henni Rúnu fyr- ir að fá að kynnast henni og allri fjölskyldu hennar. Þau kynni hafa gefið okkur ómetanlegt veganesti. Við vottum börnum hennar, tengda- börnum og barnabörnum, ásamt systkinum, okkar dýpstu hluttekn- ingu. Blessun fylgi minningunni um Sigrúnu Þorgrímsdóttur. Ingvar, Valgerður og Hjálmar. EINAR HELGA- SON + Einar Helgason fæddist á Hofi í Vopnafirði 25. desem- ber 1922. Hann lést á Hjúkrun- arheimilinu Eir 17. nóvember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Askirkju 27. nóvem- ber. Kvöldið 17. nóv. sl. sofnaði hann inn í eilífðina, eins og leið okkar liggur. Rúmum fimm árum fyrr fékk hann heilablóðfall og þá dó í raun hraustmennið, fagmaðurinn, ferðagarpurinn og þverhausinn hann bróðir minn. Maðurinn sem áratugum saman ók öræfin á bflum sem gátu það ekki, en komust bara ekki upp með neitt múður. Áður en hann eignaðist bfl gekk hann þau þver og endilöng. Eftir áfallið var þessi járnkarl að- eins skuggi af sjálfum sér, en sá skuggi megnaði að lýsa öðrum full- hraustum. Af mildi sinni eftirlét forsjónin honum hjartahlýjuna, glaðlyndið, megnið af minninu, heilsu til að staulast um. Og æðruleysi sem vakti aðdáun allra sem því kynntust. Eitt sinn spurði ég þennan fyrr- um afburðafagmann og dugnaðar- fork hvernig heilsan væri. Þá leit hann á mig brosandi og svaraði: „Heilsan - hún er ljómandi, bara gagnslaus." Á stéttarfélagsfundi hlýddi ég eitt sinn á erindi þess spaka manns Páls Skúlasonar. Þar nefndi hann að til væru auðæfi, sem yxu við það, að af þeim væri eytt. Þau hétu kær- leikur. Þessi gömlu sannindi blöstu við mér í verki þegar ég sá umönn- un bróður míns á hjúkrunarheimil- inu Eir. Ást og umhyggja sonanna og fjöl- skyldunnar var vissulega aðdáunar- verð, en kom mér ekki á óvart. Ég þakka forsjóninni samvistirn- ar við bróður minn meðan hann var í fullu fjöri, en ekki síður hinn bækl- aða, sem ætíð gladdi nærstadda með brosinu, hlýjunni og óbugandi jákvæðni sinni, þrátt fyrir heilsu- leysið. Ég bið fjölskyldu hans Guðs blessunar í sorginni og um alla framtíð. Kristinn Helgason. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, véirituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1116, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, ÞORGERÐUR JÓNSDÓTTIR, Skarðshlíð 14c, Akureyri, lést á hjúkrunarheimilinu Seli að morgni föstu- dagsins 4. desember. Útförin auglýst síðar. Jóhannes Ólafsson, Elísabet Ballington, Jón Jóhannesson, Sigrún Magnúsdóttir, Sigfús Jóhannesson, Sigríður Elefsen, Guðrún Jóhannesdóttir, Gunnar B. Aspar, Hólmfríður Jóhannesdóttir, Birgir R. Sigurjónsson, Ingveldur Jóhannesdóttir, Jörundur Traustason, María Jóhannesdóttir, Þorsteinn Sveinsson. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og dóttir, LÁRA KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR, Vesturgötu 158, Akranesi, lést laugardaginn 5. desember á Landspítalanum. Frímann Jónsson, Jón Frímannsson, Fanney Frímannsdóttir, Erna Frímannsdóttir, Guðmundur M. Ólafsson. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, SIGHVATUR BJARNASON, fyrrv. aðalféhirðir, Háaleitisbraut 54, Reykajvík, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur að kvöldi sunnu- dagsins 6. desember. Elín Jóhanna Ágústsdóttir, Kristín Lynch, Charles T. Lynch, Bjarni Sighvatsson, Auróra Guðrún Friðriksdóttir, Viktor Á. Sighvatsson, Jóna Margrét Jónsdóttir, Ásgeir Sighvatsson, Hilda Torres, Elín Sighvatsdóttir. + GÍSLI BJARNASON, Grænuvöllum 1, Selfossi, lést á öldrunardeild Ljósheima, Selfossi, sunnudaginn 6. desember. Jarðarförin auglýst síðar. Benedikta G. Waage, Hallur Árnason, Gísli Jóhann Hallsson, Elín B. Ásbjörnsdóttir, Þorvaldur Friðrik Hallsson, Anna Guðrún Hallsdóttir. SIGRÚN ÞORGRÍMSDÓTTIR + Sigrún Þorgrímsdóttir fæddist á Húsavík hinn 8. maí 1933. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 20. nóvember síð- astliðinn og fór útför hennar fram frá Safnaðarheimilinu í Sandgerði 28. nóvember. Eftir fremur erfiða sjúkdómslegu er hún Rúna okkar dáin. Um hug- ann fljúga minningar frá tuttugu ára kynnum okkar af þessari ein- stöku konu. Ung og lítil fjölskylda, nýflutt til Sandgerðis, þurfti á dagmömmu að halda. Nokkrar mætar konur létu af sér vita en einhvern veginn kom aldrei til greina annað en trúa fal- legri og hlýlegi’i konu, Rúnu, fyrir barninu smáa. Samt hafði hún alla fyrirvara á og lýsti efasemdum um að hún gæti valdið hlutverki dag- móðurinnar - þrátt fyrir að hafa alið sjálf upp fjögur fyrirmyndar börn. Barnið fór fyrsta daginn, „svona til reynslu“, eftir það varð aldrei aftur snúið. Hin nýja „amma“ átti eftir það hjarta hins stutta sveins. í raun þarf ekkert meira að segja til að lýsa mannkostum Sig- rúnar Þorgrímsdóttur. Hver sú manneskja, sem vinnur hug og hjarta smáfólksins, er sterk og góð manneskja. Um það þarf ekki fleiri orð eða lýsingar. Rúna var slík manneskja. Fyrir okkui- fjölskylduna reynd- ust það hin mestu gæfuspor að verða þeirrar ánægju aðnjótandi að kynnast Rúnu og öllu hennar fólki á Bjarmalandi. Fyrr en varði vorum við tekin sem hluti af þessari stóru og samrýndu fjölskyldu. Gesta- gangurinn á Bjarmalandi var alltaf mikill. Þangað leitaði fólk af ýmsum ástæðum, til að gleðjast, létta á raunum sínum eða bara til að njóta andrúmsloftsins á Bjarmalandi. Þar + Elskulegur eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞÓRÐUR EGILSSON fyrrv. pípulagningameistari, Höfðagrund 24, Akranesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness föstudaginn 4. desember. Jóna Valdimarsdóttir, Guðni Þórðarson, Sjöfn Guðmundsdóttir, Gylfi Þórðarson, Marta Ásgeirsdóttir og barnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, MAGNÚS ZAKARÍASSON, Austurbrún 2, lést á Landspítalanum sunnudaginn 6. ember. Soffía Magnúsdóttir, Stefán Magnússon, Bára Jóhannsdóttir, Guðrún Magnúsdóttir, Stefán Stefánsson og barnabörn. + Bróðir okkar og frændi, GUNNAR SIGURJÓNSSON frá Granda í Dýrafirði, Hátúni 12, Reykjavík, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 3. des- ember. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju föstu- daginn 11. desember kl. 15.00. Aðstandendur. + Elskuleg móðir okkar, BERGÞÓRA LÁRUSDÓTTIR frá Heiði á Langanesi, sem lést á hjúkrunarheimilinu Seli, Akureyri, föstudaginn 4. desember, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju mánudaginn 14. desember kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Alda Jónatansdóttir, Magnús Jónatansson, Jóna Þrúður Jónatansdóttir, Sævar Jónatansson, Björgvin Smári Jónatansson. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞORBJÖRG AGNARSDÓTTIR, áður til heimilis í Granaskjóli 40, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 10. desember kl. 13.30. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði. Blóm vinsamlega afþökkuð. Ingibjörg Árnadóttir, Hólmfríður Árnadóttir, Bjarni Jónsson, Brjánn Árni Bjarnason, Steinunn Gunnlaugsdóttir, Bolli Bjarnason, Ellen Flosadóttir, Þorbjörg Nanna Haraldsdóttir, Kristjana Edda Haraldsdóttir, Heimir Haraldsson og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hluttekningu við andlát og útför þróður okkar og mágs, RÚTS HALLDÓRSSONAR, Sólvallagötu 14, Reykjavik. Brynjólfur H. Halldórsson, Guðrún St. Halldórsdóttir, Brian Dodsworth. *
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.