Morgunblaðið - 08.12.1998, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 08.12.1998, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI PRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1998 15 Formleg vígsla á dreifikerfí Hitaveitu Dalvíkur á Árskógsströnd Öll hús í þéttbýliskjöm- unum tengjast hitaveitu FORMLEG vígsla Hitaveitu Dal- víkur á dreifikerfi hitaveitunnar á Arskógsströnd fór fram í Félags- heimilinu Árskógi sl. laugardag. Það var Karólína Björg Gunnars- dóttir, ábúandi á Brimnesi, sem gangsetti dælu sem dælir inn á dreifikerfið. Öll hús í þéttbýliskjömunum tveimur, Ai-skógssandi og Hauga- nesi hafa tengst hitaveitu og áætl- uð árleg notkun er 120.000 rúmmetrar vatns. Með tilkomu hitaveitunnar mun húshitunar- kostnaður lækka um 40% frá því sem áður var. Aætlaður kostnaður við byggingu veitunnar er um 85 milljónir króna og er rannsóknar- kostnaður þá ekki meðtalinn. Dreifikerfi veitunnar er um 7 km og stofnæðar um 4 km á lengd. Húshitunarkostnaður jafnaður um áramót Rögnvaldur Skíði Friðbjörns- son, bæjarstjóri Dalvíkurbyggðar, flutti ávarp við vígsluna og sagði að það hlyti að vera mikið fagnað- arefni fyrir þá sem nú eiga þess kost að njóta þessara hlunninda sem vatninu fylgja. „Ekki bara efnahagslega, en þau eru vissulega veraleg, heldur og öll þau þægindi sem því fylgir að hafa rennandi vatn í húsum sínum allan sólar- hrínginn og í krönunum þegar á þarf að halda.“ Rögnvaldur Skíði kom einnig inn á þá umræðu sem átt hefur sér stað á opinberam vettvangi, að jafna beri kostnað við hitun íbúðar- húsnæðis þar sem hitaveitu nýtur ekki við og að það verði gert með aukinni þátttöku Landsvirkjunar og ríkissjóðs. Það sé veralegt hags- munamál fyrir landsbyggðina að þetta náist fram. Hann sagði að þrátt fyrir að væntanlegt væri að Morgunblaðið/Kristján KARÓLÍNA Björg Gunnarsdóttir, ábúandi á Brimnesi, gangsetti dælu sem dælir inn á dreifikerfi Hitaveitu Dalvíkur á Árskógsströnd og not- aði tölvutæknina við það verk. Með henni á myndinni eru t.h. Þor- steinn Björnsson hitaveitustjóri, Rögnvaldur Skfði Friðbjörnsson, bæj- arstjóri Dalvíkurbyggðar, og Kristján Snorrason, fyrrverandi oddviti. VALGERÐUR Sverrisdóttir alþingismaður skoðar borkrónuna sem kom niður á heita vatnið á Brimnesborgum hinn 19. október 1997. Borkrónan hefur verið skreytt með platta því til staðfestingar og þá þótti við hæfi að prýða hana blómum á þessari hátíðarstundu. húshitun yrði að einhverju leyti jöfnuð innan skamms tíma af opin- berri hálfu, hefði sveitarstjórn áform um að hefja jöfnun húshit- unarkostnaðar í sveitarfélaginu þegar um næstu áramót. Verða jöfnunargreiðslur skattlagðar? „Þegar kemur að því að fram- kvæma þetta er talið auðveldast og eðlilegast að það gerist með bein- um fjárframlögum til viðkomandi. Hver er þá afstaða skattayfirvalda til slíkra greiðslna? I dag bendir allt til þess að greiðslur yrðu skatt- lagðar hjá viðkomandi en beðið er eftir endanlegu áliti frá ríkisskatt- stjóra. Það væri algjörlega óviðun- andi ef sú staða kæmi upp að þess- ir fjármunir yrðu skattlagðir og yrðu til þess að ríkissjóður fengi tekjur af þessari aðgerð og við því þyrfti að bregðast. Ég vil að það komi skýrt fram að þessi jöfnuður á að koma frá Landsvirkjun og ríki en ekki úr sjóðum sveitarfélagsins eða veitunnar," sagði Rögnvaldur Skíði. Reiknað með 70 rúmmetrum á klukkustund Á áranum 1994-1997 vora bor- aðar rannsóknarholur í leit að heitu vatni í fyrrverandi Árskógs- hreppi og í október 1997 var komið niður á heitt vatn á tæplega 450 metra dýpi á Brimnesborgum. Við prufudælingu gaf holan 50 lítra á sekúndu af 75 gráða heitu vatni. Miðað við núverandi virkjun hol- unnar er reiknað með að hún geti gefið 70 rámmetra af heitu vatni á klst. en meðalnotkun er áætluð 13 rámmetrar á klst. Miðlunarrými er fyi-ir 305 rúmmetra sem á kaldasta tíma ætti að endast til 10-12 klst. notkunar. Rauða kross deildir á Norðurlandi Safna hann- yrðaefnum og senda til Lesótó RAUÐA kross deildir á Norður- landi standa nú fyrir söfnun á hannyrðaefnum sem senda verða til Lesótó, en þær hafa efnt til slíkra safnana undanfarin ár. Tekið er við góðum notuðum og ónotuð- um efnum, efnisafgöngum, tölum, prjónum, nálum og öðra sem kem- ur sér vel við hannyrðir. Söfnunin stendur til 10. janúar næstkomandi og er það von Rauða kross deildanna að Norðlendingar bregðist enn og aftur vel við og taki þátt í söfnuninni. Þeim sem eru að taka til í saumakörfunni eða skápunum og eiga hannyrðaefni á lausu er bent á að hafa samband við Rauða kross deild í sinni heima- byggð, Akureyrardeild Rauða krossins eða svæðisskrifstofu Rauða krossins á Norðurlandi. Að söfnun lokinni verða hann- yrðaefnin send til Lesótó en þar vinna konur ýmsan varning úr efniviðnum og selja. Ágóðanum er varið til reksturs heilsugæslu- stöðva en einnig hafa konurnar nokkrar tekjur af vinnu sinni til framfærslu fjölskyldu sinnar. Rauða kross deildirnar á Norð- urlandi hafa verið í vinadeildasam- vinnu við Rauða krossinn í Lesótó frá árinu 1993. Lesótó er fjalllent ríki í Suður-Afríku með um tvær milljónir íbúa en aðalatvinnuvegur landsins er landbúnaður og meðal útflutningsvara er di-ykkjarvatn. Styðja rekstur tveggja heilsugæslustöðva Meðal verkefna Rauða krossins í Lesótó er rekstur heilsugæslu- stöðva í afskekktustu héraðum landsins, en Rauða kross deildir á Norðurlandi hafa stutt rekstur tveggja heilsugæslustöðva. Hvor stöðin þjónar um það bil 10 þúsund manns og er enga aðra læknisþjón- ustu að fá á þeim svæðum. I heilsu- gæslustöðvunum hefur meginá- herslan verið lögð á fyrirbyggjandi aðgerðir, s.s. bólusetningar, mæðra- og ungbarnaeftirlit, heil- brigðisfræðslu, næringarráðgjöf og eftirlit með næringarástandi ungra barna auk þess sem veitt hefur verið meðhöndlun við staðbundn- um sjúkdómum. Kerru og vélsleða stolið VÉLSLEÐA og kerru sem hann var í var stolið síðastliðið föstu- dagskvöld, á tímabilinu frá kl. 18 til 19, en kerran stóð utan við Baugsbót við Frostagötu 1 b á Akureyri. Um er að ræða yfirbyggða kerru fyrir einn sleða og var hún óskráð. Yfirbyggingin er úr svörtu áli, en járngrind neðan við hana er grá að lit, klædd brúnum vatnsheldum krossviði. Vélsleð- inn sem í kerrunni var er af gerðinni Polaris Indy 650 RXL árgerð 1991, dökkblár að lit og ber hann skráningarnúmerið SM- 029. Áþekk kerra sást aftan í bíl á leið suður til Reykjavík þessa nótt en þeir sem einhveijar upp- lýsingar geta gefið um hvar kerruna eða vélsleðann er að finna eru beðnir að hafa sam- band við rannsóknardeild lög- reglunnar á Akureyri. Fjölmenni á Vetrar- sporti ‘99 ÚTILÍFSSÝNINGIN Vetrarsport ‘99 var haldin í íþróttahöllinni á Akureyri um liðna helgi. Talið er að ríflega 2.500 manns hafi sótt sýninguna en alls kynntu 27 sýnendur vöra sína og þjónustu. Gott veður og færð gerðu að verkum að óvenju mikið var um ut- anbæjarfólk á sýningunni. Hópar fólks komu langt að gagngert til að skoða sýninguna, m.a. frá Reykja- vík, Borgarnesi og Austfjörðum. Félag vélsleðamanna í Eyjafirði stóðu fyrir sýningunni eins og það hefur gert undanfarin 12 ár. Árs- hátíð félagsins var svo haldinn í Sjallanum á laugardagskvöld og vora þar veittar viðurkenningar fyrir glæsilegasta bás sýningarinn- ar, glæsilegasta bílinn og glæsileg- asta sleðann. Breyttur Pajero á 38 tommu dekkjum var valinn bíll sýningarinnar, Pantera 800 sleði sýningarinnar og bás Akureyrar- bæjar, íþrótta- og tómstundaráðs var valinn glæsilegasti básinn. ----------------- * Aætlun um sjálfbæra þróun á norð- urslóðum STOFNUN Vilhjálms Stefánsson- ar stendur fyrir minningarfyrir- lestri um Vilhjálm Stefánsson í dag, þriðjudaginn 8. desember, í aðalsal Háskólans á Akureyri að Sólborg og hefst hann kl. 16. Fyrirlesari er dr. Oran R. Young, prófessor og forstöðumað- ur í arktískum fræðum við Háskól- ann í Dartmouth í Bandaríkjunum. Hann mun tala um gerð áætlunai- um sjálfbæra þróun á norðurslóð- um. Erindið er flutt á ensku. Dr. Young er prófessor í um- hverfisfræðum og þekktur fræði- maður á sviði auðlindastjórnunar og áhrifa hnattrænna umhverfis- breytinga á norðurslóðum og hefur hann skrifað nokkrar bækur um þessi efni. ------♦-♦“♦----- Notastöðin Oddi hf. Meint fjár- málamisferli rannsakað EFNAHAGSBROTADEILD Rík- islögreglustjóra rannsakar meint fjármálamisferli hjá Nótastöðinni Odda hf. á Akureyri, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Mál þetta kom upp í byrjun þessa árs og snertir þrjá fyrrver- andi starfsmenn fyi’irtækisins svo og svokallaðar svartar greiðslur til starfsmanna vegna yfirvinnu. Fjöl- margir aðilar hafa verið yfirheyrðir vegna málsins og þar á meðal allir starfsmenn Nótastöðvarinnar. Stofnun Vilhjálms Stefánssonar Minningarfyrirlestur Yilhjálms Stefánssonar Efni: Creating an Arctic Sustainable Development Strategy. Fyrirlesari: Prófessor Oran R. Young Tími: Þriðjudagur 8. desember kl. 16:00 Staður: Aðalsalur Háskólans á Akureyri, Sólborg Allt áhugafólk um norðurslóðir og sjálfbæra þróun velkomið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.